Morgunblaðið - 04.01.1987, Qupperneq 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1987
fclk í
fréttum
Frá Ára-
mótadansleik
Ríkissjón-
varpsins
§«m kunnugt bauð sjón-
varpið til áramótadansieiks í
veitingahúsinu Broadway á
Nýársnóttu. Þar komu margir
góðir skemmtikraftar fram, en
fyrir dansi lék hljómsveit
Glenns heitins Millers.
Fremur var fámennt framan
af, en fjölgaði þegar seig á
nóttina. Meðfylgjandi eru
nokkrar myndir frá ballinu
góða.
Krókódíla-Dundee ásamt brosmildum
vini.
en Glenn 8j
endatýndi
Morgunblaðið/Einar Falur
Meðal þeirra sem fram komu var Bubbi Morthens.
Við kennum þér alla almenna
dansa, bæði samkvæmisdansa
og gömlu dansana. 4
Bamadansar fyrir yngstu
kynslóðina.
Byrjenda- og framhaldsflokkar.
ínnritun fer fram dagana
2.-5 janúar
kl. 13-19 í símum
40020 og 46776.
Kennsluönnin er 20 vikur, kennsla hefst 5. janúar og önninni lýkur
með lokaballi. Til að tryggja góða kennslu er fjöldi nemenda í hverj-
um hópi takmarkaður. pjD _ Betri kennsla - betri árangur.
Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar
Auðbrekku 17, Kópavcgi. Símar 40020 og 46776.
Þessi foringi stóð sig vel i
fyrra: Christopher Lambert
sem Hálendingurinn.
1986 í Hollywood:
Ár mikilla
breytinga
W
Ikvikmyndaheiminum á sér stað stanslaus
barátta kvikmyndafyrirtækjanna um
áhorfendur og eins og á mörgum öðrum
sviðum eru áramót notuð til þess að líta
um öxl og meta velgengnina — eða hrak-
farirnar, allt eftuir tilefninu.
Mönnum ber saman um að síðastliðið ár
hafi verið ár mikilla breytinga í „bransan-
um“. Mikilmenni eins og Cary Grant og
James Cagney féllu frá. Kvikmyndaveri
MGM var lokað, en það hefur verið starf-
rækt frá árinu 1924. Áströlsk gamanmynd
reyndist vera mynd ársins, byijað var að
lita gamlar svart/hvítar myndir mörgum til
mikillar gremju og margt fleira óvænt bar
til á þessu ári, sem reyndist vera kvikmynda-
iðnaðinum ábátasamt.
í bytjun árs var framtíðin hins vegar
ekki björt. Aðsókn að kvikmyndahúsum var
mjög dræm, hver myndin á fætur annarri
kolféll og fólk virtist stunda annað í tóm-
stundum sínum. Þetta virtist engan enda
ætla að taka og það var ekki fyrr en síðla
í júní, sem breytinga varð vart. Þegar að
því kom var hagnaðurinn þegar orðinn 150
milljónum Bandaríkjadala minni en 1985
og allt stefndi í óefni. Þá snerist taflið alger-
lega við og kvikmyndafurstamir byijuðu að
græða á tá og fingri. Að vísu er ekki búið
að taka allar tölur saman enn, en allt útlit
er fyrir að um annað eða þriðja besta ár
kvikmyndaiðnaðarins hafí verið að ræða.
Það var Ástralinn Paul Hogan, sem mest
kom á óvart á árinu, þegar gamanmynd
hans, „Krókódíla-Dundee“ sló eftirminni-
lega í gegn. Samkvæmt AP-fréttastofunni
hefur engin mynd frumsýnd í Bandaríkjun-
um að hausti halað inn jafnmiklar fúlgur,
og í blaðinu Screen International kemur
fram að viðtökur í Lundúnaborg eru ekki
síðri. „Krókódíla-Dundee“ náði þeim áfanga
á 75. sýningardegi að ná inn 100 milljón
dölum með miðasölu, en aðeins tvær mynd-
ir aðrar náðu þeim árangri á árinu, þær
„Top Gun“ og „Karate Kid 11“ fyrir ein-
hverra hluta sakir.
Þetta var gott ár fyrir Paramount-kvik-
myndaverið, en það sendi bæði frá sér
„Krókódíla-Dundee“ og „Top Gun“, auk
„Star Trek IV — The Voyage Home“, sem
hefur reynst mjög vinsæl. Með þessar mynd-
ir í broddi fylkingar er ljóst að Paramount
fær meira en 10% alls gróða kvikmyndafyr-
irtækja árið 1986. Þó er tiltölulega nýbyijað
að sýna „Krókódíla-Dundee“ og „Star
Trek“.
Fleiri myndir fengu náð fyrir augum
bandarískra áhorfenda og verða þær vafalí-
tið flestar sýndar hér fyrr en síðar. Nú um
áramótin var það enn ein Paramount-
myndin, sem best gekk, en það er myndin
„The Golden Child“, en tíu best sóttu mynd-
ir í Bandaríkjunum í síðustu viku voru:
1. The Golden Child. (Paramount)
2. Star Trek IV. (Paramount)
3. Three Amigos. (Orion)
4. Litla hryllingsbúðin. (WarnerBros.)
5. Heartbreak Ridge. (Wamer Bros.)
6. Lafðin og flækingurinn. (Disney)
7. Krókódíla-Dundee. (Paramount)
8. No Mercy. (Tri-Star)
9. An American Tail. (Únivérsal)
10. Crimes of The Heart. (DeLaurentiis)