Morgunblaðið - 04.01.1987, Blaðsíða 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1987
4-
.. að velja fitandi fæði.
TM Reg. U.S. Pat. Off.-all rights reserved
© 1986 Los Angeles Times Syndicate
HÖGNI HREKKVlSI
u É5 V/L HBLPUX LATA/4PAWN SAFhlA -"
i-
Yfírgengilegt þjónustu-
leysi ÁTYR fyrir jólin
Reykvíkingur skrifar:
Það gengur stundum ekki and-
skotalaust að eiga undir högg að
sækja í þjónustugreinum hér í höf-
uðborginni. Ekki vil ég samt blanda
stjórn borgarinnar í þau mál, því
flest fer þar allvel fram.
En á sviði verslunar og viðskipta,
svona yfirleitt, er hörmungarástand
í meira lagi. Fyrst er það sú ós-
vinna að, ekki skuli mega hafa
opnar verslanir um kvöld og helg-
ar, og þó einkum um helgar, rétt
eins og í öðrum bæjarfélögum.
Það er til lítils að vera með ráð-
gerðir um að laða hingað hópa fólks
á ráðstefnur. Margt af þessu fólki
vill nota tímann til verslunar og þá
einkum á laugardögum eins og
gengur. En því er ekki að heilsa
yfir sumartímann og ekki nema til
hádegis á vetuma. Og engar úrbæt-
ur eru í augsýn. Stjórn Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur er sögð
vera þar helsti Þrándur í götu. eina
af verslunum ÁTVR til
að kaupa rauðvínið með steikinni.
Ég fór eins og lög gera ráð fyrir í
hádegi til að ganga frá þessu. En
þegar komið er að hurðinni birtist
vörður fyrir innann og segir snúð-
ugt: „Hér er lokað í hádeginu“.r
öðrum verlsunum sem
hafa opið allann daginn?
Ég hringdi í aðalskrifstofu ÁTVR
og spurðist fyrir um það hvort þetta
hefði alltaf verið svona. Mér var
svarað að það varað allt þetta ár,
a.m.k.. En hvort það hafði veriði
lengur við lýði vissi símastúlkan
ekki
Ég á bágt með að trúa því að
hinn ágæti f.v. forstjóri ÁTVR, sem
nú er látinn, hafi haft þennann
hátt á. En nýjir siðir fylgja nýjum
herrum og þjónusta á greinilega
ekki upp á pallborðið hjá þeim öll-
um.
Á þeim tíma sem hvað mest er
að gera hjá þessari ríkisstofnun
ætti þjónustan ætti að vera sem
liðlegust og því opið í hádeginu.
Ekki veitti nú af!
Eftir þessa reynslu og raunar
aðra verri frá þessari stofnun stuð
ég heilshugar tillögu þá sem Bessí
Johannsdóttir lagði fram á Alþingi
nú nýlega um að leggja ÁTVR nið-
ur og koma þjónustunni í hendur
einkaaðila. Þetta fyrirtæki er ekki
lengur í takt í tímann.
Bréfritari telur að ÁTVR sé ekki
lengur í takt við tímann og að
leggja beri niður fyrirtækið og
koma þjónustunni í hendur einkaað-
ila.
Víkverji skrifar
Einhver hjá Ferðamálaráði sagði
fyrir skemmstu að ríkið sniði
því svo þröngan stakk með nýju
fjárlögunum að það færi að verða
sjálfgert að leggja þessa starfsemi
niður. Ef Víkverja misminnir ekki,
átti samt einmitt núna að vera kjör-
ið tækifæri til þess að sópa hingað
erlendum ferðagörpum í kjölfar
þess fræga leiðtogafundar og öllu
því flóði ókeypis auglýsinga um
land og þjóð sem þá var dengt yfir
heimsbyggðina. ísland var loksins
„komið á kortið" sögðu menn mal-
andi af ánægju. Ilit ef við getum
nú ekki gengið á lagið af einskærum
blankheitum eins og það heitir
stundum.
Annars er ferðamannabransinn
kyndug kind og verður sífellt kynd-
ugri. Osviknar svaðilfarir gerast til
dæmis æ vinsælli: menn eru reiðu-
búnir að borga umtalsverðar fy'ár-
hæðir fyrir þau forréttindi að fá að
skramlast á torfærubílum yfir
brennheitar eyðimerkur, leika inn-
fædda innanum snákana í regn-
skógum Suður-Ameríku, flengjast
um auðnir Alaska tvöfaldir undir
níðþungum viðlegubúnaði. „Heitum
þér striti og vosbúð", gæti næstum
verið slagorð þeirra ferðaskrifstofa
sem sérhæfa sig í reisum af þessu
tagi.
xxx
Nú hefur Ken nokkrum Rose-
bery, sem er 27 ára gamall
ástralskur ferðagarpur, hugkvæmst
enn ein útgáfan af þessurp basl-
og puðferðum og hyggst efna til
„fangaferðar" til Ástralíu. Tilefnið
er það að í sumar verða liðin 200
ár síðan Bretar fluttu fyrstu refsi-
fangana til álfunnar og stofnuðu
þar alræmda fanganýlendu. Um
750 fangar af báðum kynjum voru
þá færðir í jámum um borð í ellefu
skip og þjappað saman í lestum
þeirra. Þegar talið var upp úr þeim
að ferðalokum reyndust 717 hafa
þraukað.
Hinar rásigldu fleytur, sem Ken
ætlar að nota, verða sömu stærðar
og sama útlits og upprunalegu
fangaskipin, en munu samt luma á
skrúfu og vél sem hægt verður að
grípa til ef í nauðirnar rekur.
xxx
Hinn framtakssami Ástralíu-
maður er allt um það undrandi
yfir því hve hugmynd hans hefur
fengið góðar undirtektir. „Hver
hefði trúað því fyrir 200 árum,“
sagði hann í blaðaviðtali á dögun-
um, „að menn vildu borga fyrir það
beinharða peninga að fá að lifa við
þrengingar í allt að átta mánuði
samfleytt.“
Ferðinni verður skipt í sjö áfanga
og fargjaldið fyrir þann stysta og
ódýrasta verður sem svarar 46.000
íslenskum krónum en þann dýrasta
220 þúsundum. Öll ferðin til Sydney
er hinsvegar verðlögð á litlar 850
þúsundir.
Sem fyrr segir átti kvenþjóðin
sína fulltrúa í skipunum sem sigldu
þessa leið fyrir tveimur öldum. Sjö-
undi hver þrælkunarfangi, sem
hýrðist í lestunum, var kvenkyns
samkvæmt „farmskírteinum". Ken
var spurður í fyrrgreindu blaðavið-
tali hvort hann ætti von á því að
hlutfallið yrði eitthvað svipað að
þessu sinni. Hann kvaðst fullviss
um að kvenhjörðin yrði jafnvel
stærri, enda gerðist kvenfólkið nú
svo sjálfstætt að það kærði sig koll-
ótt um hvað mönnum fyndist um
athæfi þess og uppátæki.