Morgunblaðið - 07.03.1987, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MARZ 1987.
13
Nýir tímar í háskólaráði
eftir Valborgu Þ.
Snævarr
Á næstunni verður gengið til
kosninga meðal stúdenta í Há-
skóla Islands til stúdentaráðs og
háskólaráðs. Vaka, félag lýðræð-
issinnaðra stúdenta, býður fram
lista, þéttskipaðan fólki sem starf-
að hefur innan deildarfélaga
skólans. Fólki, sem hefur reynslu
af hagsmunabaráttu stúdenta á
öðrum vettvangi. Á því háskólaári
sem í hönd fer verða liðin þrjátíu
ár frá því að fyrsti fulltrúi stúd-
enta tók sæti í háskólaráði og þar
með þtjátíu ár frá því stúdentar
fengu að taka þátt í æðstu stjórn
háskólans. Var það Vökumaður-
inn og laganeminn Bjarni Bein-
teinsson sem var fyrstur til setu
í ráðinu. Nú, þrjátíu árum síðar,
skipar einnig laganemi fyrsta
sæti Vökulistans, en mikið eru
tímarnir breyttir! Nú eiga stúdent-
ar fjóra fulltrúa í háskólaráði og
á Vökulistanum skipa konur þtjú
efstu sætin.
Gott starf Vökumanna
Störf og skipan háskólaráðs eru
ákveðin í lögum 77/1979 og reglu-
gerð 78/1979 og eru þar margvís-
leg ákvæði um hin ýmsu störf
þess. Meginhlutverk þess kemur
fram í 2. mgr. 2. gr. en þar seg-
ir: „Háskólaráð hefur, svo sem lög
mæla og nánar segir í reglugerð-
um, úrskurðarvald í málefnum
háskólans og háskólastofnana og
vinnur að þróun og eflingu
þeirra." Þar eiga sæti auk rektors
deildarforsetar, fulltrúar háskóla-
kennara og stúdenta. Stúdentar.
hafa þar fullt málfrelsi, tillögurétt
og atkvæðisrétt. Eins og Ijóst er
af framansögðu skiptir það venj-
legu máli hveijir veljast inn í
háskólaráð sem fulltrúar stúd-
enta. Sem dæmi um starf stúdenta
innan ráðsins vil ég nefna tvær
tillögur sem bornar voru fram af
fulltrúum Vöku sl. vetur og hlutu
jákvæðar undirtektir háskólaráðs-
manna. Ber þar fyrst að nefna
tillögu um stofnun sáttadóms, en
sáttadómur skal vera einhvers
konar hlutlaus „dómstóll" sem
stúdentar geta leitað til er upp
kemur ágreiningur við kennara.
Ljóst er að meðferð slíkra mála í
deildarráðum er ákaflega við-
kvæmt mál og erfitt fyrir þá er
þar sitja að taka hlutlausa afstöðu
í málum er varða starfsfélaga eða
nemendur og fyrir fulltrúa stúd-
enta, félaga. Þarna myndi sátta-
dómur vera lausn sem allir aðilar
ættu að geta sætt sig við. Annað
mál sem nefna má er tillaga um
aðgerðir gegn kennurum sem ekki
skila prófum af sér innan tilskilins
frests, sem er, skv. 49 gr. háskóla-
laga, þijár vikur. Ljóst er að
dráttur á vitneskju um gengi í
prófum er óþolandi fyrir stúdenta,
sem þurfa að geta skipulagt líf
sitt rétt eins og annað fólk. Því
miður eru þess dæmi að menn
hafi þurft að bíða í fleiri mánuði
eftir vitneskju um hvort þeir hafi
staðist próf eða ekki, og þar með
þurft að endurtaka próf á tíma
sem hefur komið sér illa fyrir þá
með tilliti til próftöku í öðrum
greinum. Bæði þessi mál sem hér
voru nefnd eru ákaflega mikilvæg
og mikil rcttlætismál fyrir stúd-
enta.
Ábyrg- þátttaka
í stjórn HÍ
Athyglisvert er að fulltrúar
Vöku og háskólarektor lögðu
þessar tillögur fram í sameiningu.
Sýnir það vel að fulltrúar Vöku
hafa notið trausts innan háskóla-
ráðs, verið ábyrgir þátttakendur
í æðstu stjórn háskólans. Á sama
tíma barðist meirihluti Vöku og
Stíganda fyrir því í stúdentaráði
að útiloka pólitíska umræðu frá
stúdentaráði og að þar færi ein-
ungis fram umræða sem beint
snerti hagsmuni stúdenta. Eg held
að stúdentar vilji almennt slíka
markvissa hagsmunabaráttu og
ábyrga forystu sem tekst á við
þau mál sem stúdenta varða, í
stað þess að eyða orkunni í
pólitískt fjas sem engan árangur
ber. Nái ég kjöri sem fulltrúi stúd-
enta í háskólaráði vil ég beijast
fyrir hagsmunum stúdenta á sama
grundvelli og gert var í vetur. Það
verður erfitt að taka sæti Eyjólfs
Sveinssonar, fráfarandi fulltrúa,
sem naut einstaks trausts jafnt
stúdenta sem annarra. Frambjóð-
andi til háskólaráðs getur í raun
aðeins gefið eitt raunhæft kosn-
ingaloforð: Að standa vörð um
hagsmuni stúdenta í þeim málum
er fyrir ráðið kemur og þá varða,
að undirbúa sín mál af kostgæfni
og vanda til kynningar þeirra fyr-
ir ráðinu. Því ekki má gleyma að
það eru margir sem þarf að sann-
færa til að mál nái samþykki í
háskólaráði, st.údentar eru þar í
minnihluta.
Heilsugæsla og
bókaforlag
Þau mál sem ég hef sérstakan
áhuga á að vinna að eru t.d. stofn-
un Heilsugæslustöðvar háskólans
og stofnun Bókaforlags háskól-
ans. Tillaga var lögð fram í
háskólaráði um hið fyrrnefnda í
vetur af fulltrúum stúdenta og
hlaut hún góðar undirtektir þar.
Kæmi þetta sérstaklega þeim
sfudentum til góða sem koma utan
af landi. Einnig ættu læknanemar
að njóta góðs af starfsþjálfun
Valborg Þ. Snævarr
þeirri sem þeir gætu fengið á slíkri
háskólastofnun. Tengt þessari til-
lögu er sú hugmynd mín að
stúdentar og starfsmenn háskól-
ans nytu forgangs að tannlækna-
þjónustu þeirri er tannlæknadeild
stendur fyrir með verkþjálfun
stúdenta þar. Þannig myndu þeir
miklu fjármunir sem fara til
tækjakaupa í þeirri deild einnig
nýtast öðrum stúdentum, þótt á
óbeinan hátt sé (eða einmitt bein-
an??). Þessu máli vildi ég gjarnan
fá tækifæri til að vinna að. Hitt
málið sem ég nefndi, stofnun há-
skólaforlags, er ekki nýtt af
nálinni. Slíkar hugmyndir hafa
oftlega borið á góma bæði meðal
stúdenta og kennara. Ljóst er að
ástand í námsbókamálum er alls
ekki gott, og jafnvel afleitt í sum-
um deildum. Erfitt er fyrir marga
fræðimenn háskólans að fá útgef-
in rit sín og takist það eru ritlaun
oftlega lítil sem engin. Slíkt getur
varla haft hvetjandi áhrif á menn
til að skrifa kennslurit. Sú hlið
er snýr að stúdentum er ekki
betri. Erfitt er oft að ná í
kennslubækur, þær eru uppseldar,
úreltar eða í versta falli hafa aldr-
ei verið skrifaðar. Þetta er alger-
lega óviðunandi ástand.
Tölvutæknin opnar nýjar leiðir í
sambandi við bókaforlagið. Nú eru
margir prófessorar „tölvuvæddir",
háskólinn á laser-prentara sem
hægt er að nýta í þessu skyni —
nú er hægt að gefa út bækur með
tiltölulega litlum tilkostnaði.
Stofnun bókaforlags er því hug-
mynd sem athuga þyrfti gaum-
gæfílega aftur, í ljósi breyttra
aðstæðna. Fleiri málum mætti
hreyfa við en hér verður látið við
sitja.
Víðsýni og frjálslyndi
Vaka er félag lýðræðisinnaðra
stúdenta, félagsskapur sem stofn-
aður var m.a. í þeim tilgangi að
efla víðsýni og fijálslyndi í stjórn-
málaskoðunum meðal stúdenta.
Fulltrúi Vöku í háskólaráði hlýtur
að starfa í samræmi við þetta.
Hann hlýtur að starfa í þágu stúd-
enta samkvæmt sinni bestu
samvisku, með hagsmuni stúd-
enta að leiðarljósi. Þar mega engin
önnur sjónarmið, pólitísk eða eigin
hagsmunir liggja að baki. Máli
mínu til skýringar vil ég nefna
nýlégt dæmi af vettvangi háskól-
aráðs um fjökiatakmarkanir í
tannlæknadeild. Nýlega kom til
kasta háskólaráðs að ákveða hvort
fjölga ætti þeim stúdentum sem
fá að setjast á annað námsár í
þeirri deild. Nú er það yfírlýst
stefna Vöku að vera á móti íjölda-
takmörkunum. Ég sem Vökumað-
ur tek undir þá stefnu og myndi
beijast grimmt gegn slíkum að-
gerðum ef þær bæri á góma
varðandi flestar deildir háskólans.
En í tannlæknadeild eiga önnur
sjónarmið við. Þar er kennsla að
miklu leyti verkleg, kennslutæki
stór og dýr og því takmarkaður
fjöldi sem aðgang getur háft að
þeim. Fjölgun umfram það sem
deildin getur annað myndi því
hafa neikvæð áhrif á aðbúnað
stúdenta í deildinni og jafnvel á
gæði náms þeirra. Þannig fjölgun
þjónaði því varla hagsmunum
þorra stúdenta deildarinnar og því
hefði ég greitt atkvæði gegn fjölg-
un í slíku tilviki í samræmi við
það sem að framan sagði. Þetta
er ábyrg og víðsýn afstaða og á
þennan hátt teldi ég mig best
vinna í anda þeirra hugsjóna sem
vaka byggir á.
Vaka er valið
Að lokum vil ég hvetja stúdenta
til að fjölmenna á kjörstað hinn
12. mars og greiða atkvæði um
það hvernig standa eigi að þeirra
eigin hagsmunabaráttu. Munið að
hlutimir gerast ekki sjálfkrafa,
það skiptir máli hveijir veljast til
forystu í þessari baráttu. En hafíð
í huga að þeir sem vilja framhald
á þeirri málefnalegu hagsmuna-
baráttu sem stúdentaráð stóð fyrir
í vetur, velja Vöku. Þeir sem eru
hlynntir ópólitískum 1. des.-há-
tíðahöldum, velja Vöku. Þeir sem
vilja sterka forystu manna sem
reynslu hafa af störfum innan
deildanna, velja Vöku. Þeir sem
vilja ábyrga þátttöku stúdenta í
háskólaráði, sjálfstæðan tillögu-
flutning og sjálfstæða afstöðu
stúdenta, velja Vöku.
Höfundur er laganemi og skipar
1. sæti Vökulistans til háskólaráðs.
NISSAN SUNNY
SÝNING LAUGARDAG OG SUNNUDAG FRÁ KL. 14-17
54ra manna dómnefnd bílagagnrýnenda íJapan
kaus einróma
NISSAN SUNNY
bíl ársins 1987
Hinn mikli tónsnillingur Jónas Þórir held-
ur uppi stuðinu á Roland píanói frá Rín.
M 1957-1987^1/
% 30 B
|H INGVAR HELGASON HF.
■■■ Sýningarsalurinn Rauðagerði, simi 33560.