Morgunblaðið - 26.03.1987, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. ^ARZ
3
Isfirðingar
einangraðir
ÍSAFJÖRÐUR hefur verið svo tíl
einangraður frá því á fimmtudag
í síðustu viku en þá tókst Flug-
leiðum að halda uppi áœtlunar-
flugi þangað síðast. Vegna snjóa
hafa samgöngur á landi einnig
legið niðri að mestu, en varðskip
kom til bæjarins í vikubyijun og
flutti þaðan farþega á suðurfirð-
ina. Þess má geta að bæjarstjór-
inn á ísafirði hefur verið
veðurtepptur í Reykjavík síðan á
föstudag.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Magnús Reynir Guðmundsson bæj-
arritari á ísafírði að vegna dimm-
viðris og sviptivinda hefðu flugvélar
Flugleiða ekki getað lent á ísafjarð-
arflugvelli síðustu viku þrátt fyrir
nokkrar tilraunir. Ekki væri heldur
hægt að nota flugvöllinn á Þing-
eyri sem varaflugvöll því Breiða-
dalsheiði væri ófær vegna snjóa.
Magnús sagði að þetta ástand
sýndi þörfina á að bæta samgöngur
á Vestfjörðum svo þær yrðu viðun-
andi á nútímavísu.
Samkomuhús
V estmannaeyja:
Stuðmenn
meðal nýrra
eigenda
Vestmannaeyjum.
STUÐMENN eru í hópi hluthafa
í nýju hlutafélagi sem stofnað
var i Vestmannaeyjum um helg-
ina. Félagið heitir Stórhöfði hf.
og er stofnað til að kaupa og
reka Samkomuhús Vestmanna-
eyja.
Það er hlutafélag þeirra Stuð-
manna, Sýrland hf. sem er skráð
fyrir hlut í félaginu. Meðal hluthafa
í þessu nýja félagi er Pálmi Lórens-
son veitingamaður og hótelstjóri
sem á skemmtistaðina Gestgjafínn
og Skansinn og Hótel Gestgjafínn.
Einnig eru hluthafar nokkrir ein-
staklingar í Eyjum og í Reykjavík.
Pálmi Lórensson segir í viðtali
við vikublaðið Fréttir að það liggi
fyrir að taka húsið í gegn og um-
bylta því en hönnunarvinna arki-
tekts mun taka um tvo mánuði.
Fram kemur hjá Pálma að kaup-
verð hússins sé 29 milljónir króna.
Samkomuhúsið var í eigu Sjálf-
stæðisfélagana í Eyjum, Kvenfé-
lagsins Líkn og nokkurra einstakl-
inga. Enginn rekstur hefur verið í
húsinu í marga mánuði og það ve-
rið undir uppboðsbeiðnum.
-hkj.
Einar Birkir Guðbergsson
Lést af slysförum
LITLI drengurinn, sem lést af
slysförum á mánudag, hét Einar
Birkir Guðbergsson, til heimilis
að Hraunbæ 164.
Einar Birkir lést er hann varð
undir járnhurð. Hann var á fjórða
ári, fæddur 17. júlí 1983.
Dramaten til Is-
lands í lok apríl?
VIÐRÆÐUR hafa staðið yfir
að undanförnu milli Þjóðleik-
hússins og Kungliga Dramat-
iska Teatern í Stokkhólmi, um
að fá „En liten ö i havet," söng-
leik Hans Alfredson, til Islands.
Söngleikurinn er gerður eftir
sögu Halldórs Laxness, Atóm-
stöðinni.
Áætlað hefur verið að frumsýna
söngleikinn hér í Þjóðleikhúsinu
23. apríl næstkomandi í tilefni af
85 ára afmæli Halldórs Laxness.
Síðan hefur verið áætluð sýning
24. apríl og tvær þann 25. apríl.
Þegar Morgunblaðið leitaði
staðfestingar á heimsókn Dra-
maten til Þjóðleikhússins, kváðu
forsvarsmenn hússins leikhópinn,
sem telur 46 manns, reiðubúinn
að koma. Hinsvegar hefði ekki
verið tekin endanleg ákvörðun,
þar sem allt flug væri fullbókað
frá Stokkhólmi á þessum tíma.
Söngleikurinn mun vera sýndur
nokkuð þétt í Stokkhólmi við
mikla aðsókn og þyrfti hópurinn
því að koma hingað 22. apríl og
fara aftur þann 26. apríl. Ekki
munu vera nema 10—15 sæti laus
til íslands á þessum tíma, svo
ekki er útséð um hvort íslending-
ar fá að beija söngleik þennan
augum.
Síðustu sendingar af
okkar vinsælu femángaifötum
komnar
Föt kr. 7490.-
Skyrtur m/prjóni kr. 1890.-
Leðurjakkar kr. 14.800.-
Stakar buxur kr. 2790.-
Bindi frá kr. 690.-
Bindi og klútar og margt fleira.
Hægt að fá staka prjóna í skyrtur.
REYKLAUS uhuur
A MORGUAI
TakmarfcaerroyMausthnrf
(Í^í KARNABÆR
P Laugavegi 66, sími 45800
JL Austurstræti 22