Morgunblaðið - 26.03.1987, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ
Yfirlýsing frá sljórn læknaráðs Landspítalans:
Stefnir í algert
neyðarástand
STJÓRN læknaráðs Landspít-
alans lýsir yfir vaxandi áliyggj-
um vegna verkfalla og
uppsagna starfsfólks á Ríkisspí-
tölunum. Staðan er þegar orðin
alvarleg vegna verkfallsins.
Þann 1. apríl bætast svo við
uppsagnir yfir 300 sérhæfðra
starfsmanna. Þar með stefnir
í algert neyðarástand. Málið
verður að Ieysa og það strax.
Verkfallslög gilda ekki um það
sérmenntaða starfsfólk
Ríkisspitalanna, sem ætlar að
hverfa til annarra starfa eftir
1. apríl. Ekki verður því hægt
að beita lagaákvæðum um
neyðarþjónustu gagnvart þessu
fólki. Ekki er heldur unnt að
ráða nýtt fólk í þær stöður sem
losna. Það hefur þegar verið
reynt árangurslaust.
Liðnir eru 6 mánuðir síðan
þessar uppsagnir fóru að berast.
Þær eru óháðar yfirstandandi
verkföllum og eiga einfaldlega
rætur að rekja til þess að sér-
menntað starfsfólk Ríkisspítal-
anna býr við verulega lakari kjör
en því býðst í öðrum opinberum
stofnunum svo að ekki sé talað
um einkafyrirtæki. Mörgum hafa
þegar boðist betur launuð störf.
Stjóm Ríkisspítalanna hefur verið
öll af vilja gerð til að leiðrétta
þetta alvarlega misræmi en er í
reynd valdalaus. Hún hefur ekki
fengið til þess brautargengi hjá
fjármálaráðuneytinu sem ræður
ferðinni. Stjórn læknaráðs telur
að hér sé um að ræða hina verstu
miðstýringu. Ákvörðunarvaldið er
hjá þeim, sem ekki virðast vita
hvað raunverulega er að gerast.
Vitanlega ætti það að vera hjá
stjómendum Ríkisspítalanna.
Stoðunum er kippt undan mikil-
vægustu heilbrigðisstofnun lands-
ins og heilbrigðisþjónustunni
stefnt í hreinar ógöngur. Meðal
annars mun starfsemi Blóðbank-
ans lamast. Þar með verða
skurðlækningar að mestu aflagð-
ar á öllum sjúkrahúsum lándsins.
Einnig blóðgjafir fyrir slasaða og
sjúklinga með krabbamein. Þess-
ari vá verður að bægja frá.
VEÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi í gær: Yfir norðaustanverðu Grænlandi er 1030
millibara hæð en víöáttumikil 982 millibara djúp lægð er um 500
km suðsuövestur af Reykjanesi og þokast austur.
SPÁ: Noröaustanátt um allt land, víða strekkingsvindur (6 vind-
stig). Él um nórðan- og austanvert landið en skýjað og sæmilega
bjart'um vestanvert landið. Hiti rétt um eða yfir frostmarki.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FÖSTUDAGUR og LAUGARDAGUR: Norðan- og norðaustanátt og
kalt í veðri. Él á norður- og austurlandi en víða léttskýjaö á suður-
og vesturlandi.
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V El
= Þoka
— Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
TAKN:
Q Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri hhi 2 veóur úrkomafgr.
Reykjavík 4 skýjaó
Bergen 6 skýjað
Helsinkí 1 skýjað
Jan Mayen Kaupmannah. 2 vantar þokumóða
Narssarssuaq 4 moldrok
Nuuk -9 snjókoma
Osló -1 skýjað
Stokkhólmur 1 þokumóða
Þórshöfn 4 rigning
Algarve 17 skýjað
Amsterdam 12 rlgning
Aþena 13 skýjað
Barcelona 17 þokumóða
Bertfn 12 mistur
Chicago 6 alskýjað
Glasgow Feneyjar Frankfurt 10 vantar vantar rígning
Hamborg 10 þokumóða
Las Paimas 22 hálfskýjað
London 10 súld
Los Angeles 8 heiðskírt
Lúxemborg 11 rignlng
Madrfd 12 þokumóða
Malaga 16 rignlng
Mallorca >;.« 17 skýjað
Miami 23 alskýjað
Montreal 4 heiðskfrt
NewYork 6 heiðskfrt
Parfs 11 rigning
Róm 17 lóttskýjað
Vfn 16 skýjað
Washington 7 léttskýjað
Winnipeg 0 skýjað
Olafsvíkingar
fagna 300 ára afmæli
ÓLAFSVÍKINGAR fagna því í
dag að 300 ár eru liðin síðan
bærinn varð fyrsti löggilti versl-
unarstaðurinn á Islandi. Hefst
þar með afmælishátíð sem standa
mun út árið. Póstur og Sími
minnist afmælisins með útgáfu
frímerkis með mynd af kaup-
farinu „Svanurinn" sem Hans
A. Clausen verslunarmaður i
Ólafsvík átti.
í kvöld hefst afmælisveislan með
hátíðarfundi bæjarstjórnar kl.
20.00 og verður þá tilnefndur fyrsti
heiðursborgari Olafsvíkur. Að því
búnu býður afmælisnefndin til sam-
sætis þar sem flutt verða erindi um
sögu bæjarins og afhent verðlaun
í samkeppni um skjaldamerki hans.
Þá verður opnuð sögusýning í
Grunnskóla Ólafsvíkur. Hófínu lýk-
ur með kaffisamsæti í boði nefndar-
innar.
Sjá grein um Ólafsvík á bls.
14-16.
26 félög ríkis-
starfsmanna með
lausa samninga
Tíu hafa boðað eða eru í verkfalli
SAMNINGAVIÐRÆÐUR samninganefnda félagsráðgjafa og sjúkra-
þjálfara og samninganefndar ríkisins gengu vel í gær, að sögn
Guðlaugs Þorvaldssonar ríkissáttasemjara. Ekki var þó gengið frá
endanlegum samningum, en samninganefndimar koma til funda í
dag. Félagsráðgjafar hafa boðað verkfall i kvöld og sjúkraþjálfar
eru í verkfalli.
Samninganefnd múrara, málara,
pípulagningarmanna og veggfóðr-
ara fundaði með viðsemjanda í
gær. Nýr fundur hefur ekki verið
boðaður. Þá voru einnig viðræður
í kjaradeilu símamanna. Samninga-
nefnd félags matvæla- og næring-
arfræðinga og félags íslenskra
náttúrufræðinga kemur til fundar
með samninganefnd ríkisins í dag.
Ekki hefur verið boðað til nýrra
funda í deilum Hins íslenska kenn-
arafélags og háskólamenntaðra
hjúkrunarfræðinga og ríkisins.
Samningar hafa ekki tekist á
milli ríkisins og sextán félaga innan
Bandalags háskólamanna. Fjögur
félög eru í verkfalli, félög kennara
frá 16. mars, sjúkraþjálfara og há-
skólamenntaðra hjúkrunarfræðinga
frá 19. mars og sálfræðinga frá 24.
mars. Fimm félög til viðbótar hafa
boðað verkfall, verkföll félaga iðju-
þjálfara og félagsráðgjafa sem
hefst í kvöld, náttúrufræðinga sem
hefst 31. mars, matvæla- og nær-
ingarfræðinga sem hefst 1. apríl
og bókasafnsfræðinga sem hefst
2. aprfl. Þegar er búið að semja við
7 félög innan BHM, auk tæknifræð-
inga sem standa utan BHM.
Ríkið er búið að semja við eitt
af þeim félögum sem eru innan
BSRB, hjúkrungarfræðinga, en
ósamið er við 10 félög. Póstmanna-
félagið hefur boðað verkfall þann
9. aprfl, eitt félaga innan BSRB.
Lárus Salómonsson
lögregluþjónn látinn
LÁRUS Salómonsson, fyrrum lög-
regluþjónn lézt í Reykjavík
síðastliðinn þriðjudag eftir lang-
varandi veikindi. Hann var 86 ára
gamáll.
Lárus var fæddur 11. september
árið 1905 á Laxárbakka í Kolbeins-
staðahreppi. Hann var sonur hjón-
anna Salómons Sigurðssonar, bónda
og konu hans, Lárúsínu Fjelsted.
Farið Lárusar dó er hann var þriggja
ára og eftir það tvístraðist fjölskyldan
víða um land. Lárus var um tíma á
ísafírðí, en síðar lá leið hans til
Reykjavíkur, þar sem hann starfaði
sem hafnarverkamaður. Árið 1935
varð hann lögregluþjónn í Keflavík.
Nokkrum árum síðar varð hann lög-
reglumaður í Reykjavík og síðast á
starfsferlinum, sem lauk árið 1975,
var hann yfirlögregluþjónn á Sel-
tjamamesi. Lárus var kvæntur
Kristínu Gísladóttur frá Haugi í Flóa.
Hún er látin fyrir nokkru, en þeirra
varð 6 bama auðið og lifa 5 þeirra.
Lárus'- var mikill áhugamaður um
glímu, Hann var glímukóngur íslands
þijú ári í röð, 1932, 33 og 34 og einn-
Lárus Salómonsson
ig þjálfaði hann glímu hjá Ung-
mennafélagi Reykjavíkur. Hann
starfaði að félagsmálum í Skautafé-
lagi Reykjavíkur og Skotfélagi
Reykjavíkur og hjá Slysavamafélagi
íslands. Lárus var hagyrðingur og
eftir hann komu út tvær ljóðabækur.