Morgunblaðið - 26.03.1987, Page 4

Morgunblaðið - 26.03.1987, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ Yfirlýsing frá sljórn læknaráðs Landspítalans: Stefnir í algert neyðarástand STJÓRN læknaráðs Landspít- alans lýsir yfir vaxandi áliyggj- um vegna verkfalla og uppsagna starfsfólks á Ríkisspí- tölunum. Staðan er þegar orðin alvarleg vegna verkfallsins. Þann 1. apríl bætast svo við uppsagnir yfir 300 sérhæfðra starfsmanna. Þar með stefnir í algert neyðarástand. Málið verður að Ieysa og það strax. Verkfallslög gilda ekki um það sérmenntaða starfsfólk Ríkisspitalanna, sem ætlar að hverfa til annarra starfa eftir 1. apríl. Ekki verður því hægt að beita lagaákvæðum um neyðarþjónustu gagnvart þessu fólki. Ekki er heldur unnt að ráða nýtt fólk í þær stöður sem losna. Það hefur þegar verið reynt árangurslaust. Liðnir eru 6 mánuðir síðan þessar uppsagnir fóru að berast. Þær eru óháðar yfirstandandi verkföllum og eiga einfaldlega rætur að rekja til þess að sér- menntað starfsfólk Ríkisspítal- anna býr við verulega lakari kjör en því býðst í öðrum opinberum stofnunum svo að ekki sé talað um einkafyrirtæki. Mörgum hafa þegar boðist betur launuð störf. Stjóm Ríkisspítalanna hefur verið öll af vilja gerð til að leiðrétta þetta alvarlega misræmi en er í reynd valdalaus. Hún hefur ekki fengið til þess brautargengi hjá fjármálaráðuneytinu sem ræður ferðinni. Stjórn læknaráðs telur að hér sé um að ræða hina verstu miðstýringu. Ákvörðunarvaldið er hjá þeim, sem ekki virðast vita hvað raunverulega er að gerast. Vitanlega ætti það að vera hjá stjómendum Ríkisspítalanna. Stoðunum er kippt undan mikil- vægustu heilbrigðisstofnun lands- ins og heilbrigðisþjónustunni stefnt í hreinar ógöngur. Meðal annars mun starfsemi Blóðbank- ans lamast. Þar með verða skurðlækningar að mestu aflagð- ar á öllum sjúkrahúsum lándsins. Einnig blóðgjafir fyrir slasaða og sjúklinga með krabbamein. Þess- ari vá verður að bægja frá. VEÐURHORFUR í DAG: YFIRLIT á hádegi í gær: Yfir norðaustanverðu Grænlandi er 1030 millibara hæð en víöáttumikil 982 millibara djúp lægð er um 500 km suðsuövestur af Reykjanesi og þokast austur. SPÁ: Noröaustanátt um allt land, víða strekkingsvindur (6 vind- stig). Él um nórðan- og austanvert landið en skýjað og sæmilega bjart'um vestanvert landið. Hiti rétt um eða yfir frostmarki. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: FÖSTUDAGUR og LAUGARDAGUR: Norðan- og norðaustanátt og kalt í veðri. Él á norður- og austurlandi en víða léttskýjaö á suður- og vesturlandi. 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus Skúrir * V El = Þoka — Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur Þrumuveður TAKN: Q Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað y, Norðan, 4 vindstig: " Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri hhi 2 veóur úrkomafgr. Reykjavík 4 skýjaó Bergen 6 skýjað Helsinkí 1 skýjað Jan Mayen Kaupmannah. 2 vantar þokumóða Narssarssuaq 4 moldrok Nuuk -9 snjókoma Osló -1 skýjað Stokkhólmur 1 þokumóða Þórshöfn 4 rigning Algarve 17 skýjað Amsterdam 12 rlgning Aþena 13 skýjað Barcelona 17 þokumóða Bertfn 12 mistur Chicago 6 alskýjað Glasgow Feneyjar Frankfurt 10 vantar vantar rígning Hamborg 10 þokumóða Las Paimas 22 hálfskýjað London 10 súld Los Angeles 8 heiðskírt Lúxemborg 11 rignlng Madrfd 12 þokumóða Malaga 16 rignlng Mallorca >;.« 17 skýjað Miami 23 alskýjað Montreal 4 heiðskfrt NewYork 6 heiðskfrt Parfs 11 rigning Róm 17 lóttskýjað Vfn 16 skýjað Washington 7 léttskýjað Winnipeg 0 skýjað Olafsvíkingar fagna 300 ára afmæli ÓLAFSVÍKINGAR fagna því í dag að 300 ár eru liðin síðan bærinn varð fyrsti löggilti versl- unarstaðurinn á Islandi. Hefst þar með afmælishátíð sem standa mun út árið. Póstur og Sími minnist afmælisins með útgáfu frímerkis með mynd af kaup- farinu „Svanurinn" sem Hans A. Clausen verslunarmaður i Ólafsvík átti. í kvöld hefst afmælisveislan með hátíðarfundi bæjarstjórnar kl. 20.00 og verður þá tilnefndur fyrsti heiðursborgari Olafsvíkur. Að því búnu býður afmælisnefndin til sam- sætis þar sem flutt verða erindi um sögu bæjarins og afhent verðlaun í samkeppni um skjaldamerki hans. Þá verður opnuð sögusýning í Grunnskóla Ólafsvíkur. Hófínu lýk- ur með kaffisamsæti í boði nefndar- innar. Sjá grein um Ólafsvík á bls. 14-16. 26 félög ríkis- starfsmanna með lausa samninga Tíu hafa boðað eða eru í verkfalli SAMNINGAVIÐRÆÐUR samninganefnda félagsráðgjafa og sjúkra- þjálfara og samninganefndar ríkisins gengu vel í gær, að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar ríkissáttasemjara. Ekki var þó gengið frá endanlegum samningum, en samninganefndimar koma til funda í dag. Félagsráðgjafar hafa boðað verkfall i kvöld og sjúkraþjálfar eru í verkfalli. Samninganefnd múrara, málara, pípulagningarmanna og veggfóðr- ara fundaði með viðsemjanda í gær. Nýr fundur hefur ekki verið boðaður. Þá voru einnig viðræður í kjaradeilu símamanna. Samninga- nefnd félags matvæla- og næring- arfræðinga og félags íslenskra náttúrufræðinga kemur til fundar með samninganefnd ríkisins í dag. Ekki hefur verið boðað til nýrra funda í deilum Hins íslenska kenn- arafélags og háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga og ríkisins. Samningar hafa ekki tekist á milli ríkisins og sextán félaga innan Bandalags háskólamanna. Fjögur félög eru í verkfalli, félög kennara frá 16. mars, sjúkraþjálfara og há- skólamenntaðra hjúkrunarfræðinga frá 19. mars og sálfræðinga frá 24. mars. Fimm félög til viðbótar hafa boðað verkfall, verkföll félaga iðju- þjálfara og félagsráðgjafa sem hefst í kvöld, náttúrufræðinga sem hefst 31. mars, matvæla- og nær- ingarfræðinga sem hefst 1. apríl og bókasafnsfræðinga sem hefst 2. aprfl. Þegar er búið að semja við 7 félög innan BHM, auk tæknifræð- inga sem standa utan BHM. Ríkið er búið að semja við eitt af þeim félögum sem eru innan BSRB, hjúkrungarfræðinga, en ósamið er við 10 félög. Póstmanna- félagið hefur boðað verkfall þann 9. aprfl, eitt félaga innan BSRB. Lárus Salómonsson lögregluþjónn látinn LÁRUS Salómonsson, fyrrum lög- regluþjónn lézt í Reykjavík síðastliðinn þriðjudag eftir lang- varandi veikindi. Hann var 86 ára gamáll. Lárus var fæddur 11. september árið 1905 á Laxárbakka í Kolbeins- staðahreppi. Hann var sonur hjón- anna Salómons Sigurðssonar, bónda og konu hans, Lárúsínu Fjelsted. Farið Lárusar dó er hann var þriggja ára og eftir það tvístraðist fjölskyldan víða um land. Lárus var um tíma á ísafírðí, en síðar lá leið hans til Reykjavíkur, þar sem hann starfaði sem hafnarverkamaður. Árið 1935 varð hann lögregluþjónn í Keflavík. Nokkrum árum síðar varð hann lög- reglumaður í Reykjavík og síðast á starfsferlinum, sem lauk árið 1975, var hann yfirlögregluþjónn á Sel- tjamamesi. Lárus var kvæntur Kristínu Gísladóttur frá Haugi í Flóa. Hún er látin fyrir nokkru, en þeirra varð 6 bama auðið og lifa 5 þeirra. Lárus'- var mikill áhugamaður um glímu, Hann var glímukóngur íslands þijú ári í röð, 1932, 33 og 34 og einn- Lárus Salómonsson ig þjálfaði hann glímu hjá Ung- mennafélagi Reykjavíkur. Hann starfaði að félagsmálum í Skautafé- lagi Reykjavíkur og Skotfélagi Reykjavíkur og hjá Slysavamafélagi íslands. Lárus var hagyrðingur og eftir hann komu út tvær ljóðabækur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.