Morgunblaðið - 26.03.1987, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ
íslenskar Brrmður!
- því það er stutt
úr bökunarofnunum okkar
á borðíð tíl þín.
Félagsráðgjöf
á Geðdeild
V-
■
* >
* •<
-
eftirSigrúnu
Júlíusdóttur
Breytt þjóðfélag —
breytt þjónusta
Fyrir 15 árum var félagsráðgjöf
lítt þekkt starfsgrein í íslensku þjóð-
félagi. í greininni voru innan við 10
félagsráðgjafar. Nú eru á annað
hundrað félagsráðgjafar starfandi í
heilbrigðis- og félagsmálaþjónustu,
í skóla- og dómsmálakerfi. Þeir
starfa bæði hjá ríki og sveitarfélög-
um, en örfáir starfa jafnframt að
hluta í einkaþjónustu. Á hvaða sviði
sem er eiga félagsráðgjafar það
sameiginlegt að þeir vinna að félags-
legri velferð og tilfinningalegri
velliðan einstaklinga og fjölskyldna.
Starfsgreinin félagsráðgjöf hefur
þróast samstiga örum þjóðfélagsleg-
um breytingum, sem hafa haft í för
með sér nýjar aðstæður fyrir ein-
staklinga og flölskyldur. Áður fyrr
leysti fólk vanda sinn sjálft, eða
hann var alls ekki leystur. í dag eru
gerðar síauknar kröfur til fólks um
menntun, skilvirkni og fæmi á flest-
um sviðum. Margir eiga fullt í fangi
með að standast þessar kröfur. Þeir
verða flárhagslega, félagslega eða
tilfínningalega undir í baráttunni.
Fjölskyldutengslin valda oft von-
brigðum, verða ijötur um fót eða enn
ein krafan í stað þess að veita stuðn-
ing eða bjóða upp á ný úrræði.
Þannig gera einstaklingar og ijöl-
skyldur vaxandi kröfur um þjónustu
og bætt úrræði af hálfu þjóðfélags-
ins. Heilbrigðis- og félagsmálaþjón-
usta fær æ fjölbreyttari viðfangsefni
og þjónustan verður sífellt sérhæfð-
ari. Það sem áður var í höndum
tveggja sérmenntaðra starfshópa í
geðheilbrigðisþjónustu — lækna og
hjúkrunarfræðinga — er nú á hönd-
um margra sérhæfðra starfsgreina,
því að við hafa bæst iðjuþjálfar,
sjúkraþjálfarar, sérkennarar, sál-
fræðingar, félagsráðgjafar o.fl.
FÆRIBANDA-
MÓTORAR
• Lokaöir.olíu-
kældir
og sjálfsmyrj-
andi
• Vatnsþétting-
IP 66
• Fyllsta gang-
öryggi,
lítið viðhald
= HEÐINN =
VÉLAVERSLUN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
Þessar starfsgreinar mynda sam-
fellda samstarfs- og meðferðarkeðju,
þar sem hver hlekkur hefur sitt mik-
ilvæga hlutverk í starfsferlinu. Allir
þessir faghópar hafa háskólamennt-
un að baki og sérstakan áhuga á
að vinna að andlegri, líkamlegri og
félagslegri velferð bama, foreldra,
hjóna, íjölskyldna og einstaklinga.
Jafnhliða meðferðarstarfmu vinna
þeir að rannsóknum í því skyni að
efla grein sína, þannig að betri
starfsaðferðir þróist og sem bestur
árangur megi nást. Margir hafa
bætt við sig framhaldsmenntun og
sérhæfíngu í ákveðnum verkefnum
eða aðferðum.
Þessar hjálparstéttir vinna störf
sín fyrst og fremst af áhuga og inn-
lifun og eiga oft á tíðum beinlínis
erfitt með að hugsa sér önnur störf,
þótt menntun þeirra gæti nýst á fjöl-
mörgum sviðum.
Það er einmitt þetta viðhorf til
manneskjunnar „að láta sig varða“,
að vilja og þora að „skipta sér af“,
svo að betur megi fara, sem gefur
þessum starfshópum sérstöðu. Þeir
verða oft uppteknari af starfinu
sjálfu og skjólstæðingum sínum, en
t.d. eigin kjarabaráttu og viðurkenn-
ingu. Hér hafa þó læknar náð lengra.
En á það má minna, að þeir eru
nánast eina hjálparstéttin, sem ekki
er kvennastétt. Þeir eiga sér lengsta
sögulega hefð og hafa náð að skapa
sér félagslegan virðingarsess, sem
aðrar hæfar og mikilvægar sam-
starfsstéttir í geðheilbrigðisþjónustu
eiga á sama hátt eftir að ná, þegar
fram líða stundir. Ráðamenn líkt og
almenningur virðast þurfa sinn tíma
til að viðurkenna breytingar og sigr-
ast á fordómum gegn því óþekkta
og nýja, þ.e. þessum nýju stéttum.
En það ásamt eigin kröfuleysi á trú-
lega drýgstan þátt í lélegri launa-
stöðu þeirra.
Hvað gera félags-
ráðgjafar?
í íslenskri geðheilbrigðisþjónustu
starfa nú u.þ.b. 20 félagsráðgjafar,
þar af nokkrir, sem hafa framhalds-
menntun og sérhæfmgu á sviði
einstaklings- og fjölskyldumeðferð-
ar. Af þessum hópi eru 15 við
geðdeild Landspítalans. Störf þeirra
spanna stórt svið. Þeir veita þjón-
STÝRILIÐAR
SEGULROFAR
YFIRÁLAGSVARNIR
STJORNUÞRI-
HYRNINGSROFAR
TIMALIÐAR
ROFAHUS
gæði
Hagstættverð
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRPANTANIR-ÞJÓNUSTA
Sigrún Júlíusdóttir
„Gildur þáttur í starfi
félagsráðgjafa á geð-
deild er félagsleg
endurhæf ing. A und-
anförnum árum hafa
félagsráðgjafar lagt æ
ríkari áherslu á þennan
þátt starfsins og sjá nú
nokkrir félagsráðgjaf-
ar fyrst og fremst um
að undirbúa skjólstæð-
inga með geðræn
vandamál undir virka
þátttöku í atvinnu- og
félagslífi, ásamt því að
efla færni þeirra til
sjálfstæðs lífs.“
ustu á almennum móttöku- og
meðferðardeildum geðdeildarinnar
við meðferð vímuefna- og áfengis-
sjúklinga, á bamageðdeild og síðast
en ekki síst við endurhæfingar- og
göngudeildarþjónustu, þ.e. við eftir-
meðferð og forvamarstarf. Félags-
ráðgjafar vinna öll störf sín undir
faglegri umsjón yfirfélagsráðgjafa,
til að tryggja viðeigandi þjónustu
og _að faglegum aðferðum sé beitt.
Á öllum þessum þjónustusviðum
vinna félagsráðgjafar ýmist sem sér-
fræðingar um félagsleg málefni í
samstarfí við aðra sérfræðinga, eða
þeir vinna sjálfstætt að einstökum
málum einstaklinga og fjölskyldna.
Þar getur verið um að ræða ýmist
hagnýtar upplýsingar og aðstoð eða
beint meðferðarstarf. Félagsráðgjaf-
ar sjá um að halda fræðsluerindi
fyrir sjúklinga og annað starfsfólk.
Gildur þáttur í starfi félagsráðgjafa
á geðdeild er félagsleg endurhæfing.
Á undanfömum ámm hafa félags-
ráðgjafar lagt æ ríkari áherslu á
þennan þátt starfsins og sjá nú
nokkrir félagsráðgjafar fyrst og
fremst um að undirbúa skjólstæð-
inga með geðræn vandamál undir
virka þátttöku í atvinnu- og fé-
lagslífi, ásamt því að efla fæmi
þeirra til sjálfstæðs lífs. Höfuðvið-
fangsefni félagsráðgjafa hér er að
þróa samfellda atvinnuendurhæf-
ingu með starfsþjálfun, starfsmati
og starfsmiðlun. Þar koma til vemd-
aðir vinnustaðir og náið samstarf
við ráðningarskrifstofur, miðlun og
almennan vinnumarkað. Ennfremur
að vinna að því, oftast í samvinnu
við félagsmálastofnanir, að koma á
fót áfangastöðum og sambýlum,
skipuleggja rekstur þeirra og hafa
eftirlit og umsjón með starfseminni.
Aðstaða til sjálfstæðrar búsetu,
atvinna og verkefni við hæfi, félags-
þjálfun og persónulegur stuðningur
em allt þættir, sem em grundvöllur
andlegs- og félagslegs heilbrigðis
skjólstæðinga og þeir mynda óijúf-
anlega heild í starfí félagsráðgjafa.