Morgunblaðið - 26.03.1987, Page 22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ
REKSTUR OG STJÓRNUN
FYRIRTÆKJA I
CANADA DRY
■—..= 4
Sigurður Agúst
Jensson
markaðsstjóri
Ingimundur
Magnússon
rekstrar- og áætl-
anafræðingur
Dr. Jakob Smári
sálfræðingur
Ólafur Stephensen
forstjóri
Gunnlaugur
Sigmundsson
forstjóri
Námid tekur 1 mánudi og kennt er á hverjum degi frá kl. 8.15 til
12.15. I>ad hefist með kynningarfundi laugardaginn 4. apríl kl. 17.00.
Innritun og nánari upplýsingar eru ve’rttar í síma 686790.
a- _ i
Borgartúni 28.
Morgunblaðið/Bjami
Kvennalistakonur kynntu stefnuskrá sína fyrir blaðamönnum í gær.
Frá vinstri á myndinni eru: Kristin Ástgeirsdóttir, Guðrún Agnars-
dóttir, Björg Einarsdóttir, Sigrún Jónsdóttir starfsmaður þingflokks-
ins og Sigriður Dúna Kristmundsdóttir.
Stefnuskrá Kvennalistans:
Reynsla kvenna
verði metin sem
stefnumótandi afl
KVENNALISTINN hefur lagt
fram stefnuskrá sína fyrir kom-
andi alþingiskosningar og er þar
lögð áhersla á að reynsla og
menning kvenna verði metin sérs-
taklega sem stefnumótandi afl í
samfélaginu.
Kvennalistakonur boðuðu til
blaðamannafundar til að kynna
stefnuskrá sína og sagði Sigrún
Jónsdóttir, starfskona þingflokks-
ins, að undirbúningur stefnuskrár-
innar hefði hafist í maí á sl. ári og
hefðu konur um allt land lagt hönd
á plóginn. Reynt hefði verið að
haga málum þannig að konur um
allt land hefðu fengið að koma
sínum sjónarmiðum á framfæri.
Guðrún Agnarsdóttir sagði að
stefnuskráin stæði á grunni þeirrar
stefnuskrár, sem gengið var með
til kosninga árið 1983. Nú væru
málefnin hinsvegar miklu fleiri sem
vinna þyrfti að þar sem hagur
kvenna færi síversnandi. „Kjör
kvenna hafa versnað á síðustu fjór-
um árum, ekki bara á íslandi heldur
alls staðar í heiminum þar sem at-
vinnuleysið hefur helst bitnað á
konum."
í stefnuskránni segir meðal ann-
ars: „Kvennalistinn vill varðveita
og þróa hið jákvæða í lífssýn kvenna
og nýta það í þágu samfélagsins
alls. Kvennalistinn vill breyta sam-
félaginu og setja virðingu fyrir lífí
og samábyrgð í öndvegi." Kvenna-
listakonur leggja áherslu á að störf
kvenna verði endurmetin og það
verði haft að leiðarljósi að leiðrétta
launamisrétti karla og kvenna.
Kvennalistinn er nýorðinn fjög-
urra ára og er fólk nú loksins farið
að gera sér grein fyrir að hann er
alvöruafl, að sögn Guðrúnar.
Kvennalistinn mun nú bjóða fram
í öllum kjördæmum landsins, en
bauð aðeins fram í þremur kjör-
dæmum í síðustu kosningum. í gær
var gengið frá framboðslista
Kvennalistans í Norðurlandskjör-
dæmi vestra og hefur þá hringnum
verið lokað. Listinn verður birtur
síðar.
Kvennalistinn vill húsnæðis-
stefnu, sem virðir frelsi fólks til að
velja hvort það býr í eigin húsnæði
eða leigir. Að sett verði heildarlög-
gjöf um umhverfismál. Hlúð verði
að menningu og listum um land
allt. Ríkisútvarpið verði opnað al-
menningi. Jafnrétti til náms verði
virt í raun með markvissri upp-
byggingu grunnmenntunar alls
staðar á landinu og nægjanlegt fjár-
magn verði tryggt til öflugs skóla-
starfs. Þá vilja Kvennalistakonur
utanríkisstefnu, sem byggir á frið-
samlegum samskiptum við aðrar
þjóðir og aukið lýðræði, sem felst
í aðild starfsfólks og neytenda að
stjóm ýmissa stofnana samfélags-
ins.
i
á
d.
HF. ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON
Hagnýtt nám fyrir eigendur og stjórnendur fyrirtækja sem vilja læra
að notfæra sér nútímaþekkingu og tækni við að reka fyrirtæki.
Kennd eru þau atrið sem skipta mestu máli við að reka fyrirtæki með
góðum árangri.
Tilvalið námskeið fyrir þá sem ekki hafa langa skólagöngu að baki
en vilja kynnast kjarna málsins á stuttu námskeiði.
Á námskeiðinu halda nokkrir þekktir athafnamenn gestafyrirlestra
og svara fyrirspurnum.
Dagskrá:
☆ Stofnun fyrirtækja. lög og reglugerðlr. ☆
☆ Rekstrarform fyrlrtækja. ☆
☆ Stjórnun og mannleg samskipti ☆
☆ Verslunarrelkningur. vixlar. verðbréf o.fl. ☆
☆ FJármagnsmarkaðurinn í dag. ☆
☆ Tilboðs- og samningagerð. ☆
☆ Notkun bókhalds til ákvarðanatöku og ☆
stjórnunar.
☆ Grundvallaratriði við skattaálagningu fyrir-
tækja.
Arðsemis- og framlegðarútreikningar.
FJárhags- og rekstraráætlanir.
Notkun tölva vlð áætlanagerð.
Sölumennska og kynningarstarfsemi.
Samskipti við fjölmiðla.
Auglýslngar.
Gestafyrirlestrar.
Leiðbeinendur:
Friðrik Halldórsson
viðskiptafræðingur
Haraldur
Gunnarsson
viðskiptafræðingur
Eiríkur Tómasson
hæstaréttar-
lögmaður
Halldór Kristj-
ánsson
verkfræðingur
ÓskarB. Hauksson
verkfræðingur