Morgunblaðið - 26.03.1987, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ
ERFIÐ
SALA/
AUÐVELD
SALA
Hér eru nokkur sérstök
atriði, sem þú munt læra á
Dale Carnegie sölunámskeiðinu
■ Meginreglurnar, sem eru ráðandi við allar hugsan-
legar söluaðstæður
■ Að nota sérstaka tækni fyrir hvert skref sölunnar
■ Að meta kaupgetu væntanlegs viðskiptavinar
■ Að ná og halda athygli væntanlegs viðskiptavinar
■ Að ákvarða hin raunveruiega áhuga og það sem
hvetur viðskiptavininn til að kaupa
■ Að skilja hin fimm skref sölunnar
■ Að kynna einkenni og eiginleika vöru þinnar með
þeim hætti, að hagnaður kaupanda verði Ijós
■ Að fá væntanlegan kaupanda til að vilja kaupa núna
(Ijúka sölunni)
■ Að hafa á valdi þínu margreyndar aðferðir til að
reka smiðshöggið á söluna
■ Að setja markmið
■ Að meðhöndla mótbárur
■ Að skilja sjálfan þig og aðra
■ Að taka persónulegum þroska
Námskeiðið fer fram á föstudögum
kl. 9-12.30 f.h.
Sölunámskeiðið kemur saman á tólf fundi, og tekur
hver þeirra þrjár og hálfa klukkustund. Til þess að fá
inngöngu á námskeiðið verður þú að vera sölumaður,
sem þegar hefur öðlast góða þekkingu á vörum og
þjónustu fyrirtækis þíns. Innritaðu þig í dag og taktu
stórt skref í áttina til meiri árangurs, sjálfum þér til
82411
handa.
Innritun og upplýsingar í síma:
O
STJÓRIMUINIARSKÓLIIMIXI
9í> Konráð Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Carnegie námskeiðin'
Dimitri Sgouros, píanóleikari:
Tónlistin verður
alltaf vinnan mín
PÍANÓLEIKARINN Dimitri
Sgouros leikur einleik með Sin-
fóníuhljómsveit íslands á auka-
tónleikum sveitarinnar í
Haskólabíói í kvöld. Á efnis-
skránni eru Píanókonsert nr. 3
eftir Rachmaninov, 40. sinfónía
Mozarts og svítan Gæsamamma
eftir franska tónskáldið Ravel.
Þetta er í annað skipti sem Sgo-
uros leikur með Sinfóníuhljóm-
sveit íslands, en hið fyrra var
fyrir rétt rúmu ári. Blaðamaður
Morgunblaðsins átti stutt spjall
við Sgouros og spurði hann hvað
hann hefði verið að gera frá því
hann var siðast á íslandi.
„Það er ákaflega margt. Ég hef
verið í 3. tónleikaferð minni um
Japan. Ég hef líka verið í tónleika-
ferð í Bandaríkjunum, en þangað
Nýju kosn-
ingalögin
VEGNA fréttar í Morgunblað-
inu 25. mars um nýju kosninga-
lögin vill Jón Ragnar Stefáns-
son, dósent i stærðfræði við
raunvísindadeild háskólans, að
fram komi, að af hans hálfu
liggi fyrir opinberlega tvær
greinargerðir um þetta mál,
annars vegar greinargerðin
„Um úthlutun þingsæta" frá
árinu 1984, og hins vegar
„Reiknireglur kosningalag-
anna frá 1984“, en hún var lögð
fram nú í vetur.
Fyrri greinargerðin var lögð
fram í aprílmánuði árið 1984, þeg-
ar frumvarp til nýrra kosningalaga
var tii fyrstu meðferðar í þing-
nefnd, og er meginhluti hennar
almenn lýsing á eiginleikum út-
hlutunaraðferða, annars vegar
reglu d’Hondts, sem kosningalög-
gjöf okkar hefur verið byggð á,
og hins vegar reglu stærstu leifar.
Svo sem fram kom hér í blaðinu
á þeim tíma var í þessari greinar-
gerð eindregið ráðið frá, að lög-
festar yrðu þær reiknireglur, sem
fólust í frumvarpinu.
Síðari greinargerðin, „Reikni-
reglur kosningalaganna frá 1984",
var lögð fram í nóvembermánuði
sfðastliðnum, og fylgdi henni jafn-
framt heildartillaga ásamt greinar-
gerðum um úthlutun þingsæta
samkvæmt ákvæðum stjómar-
skrár, en hvort tveggja hafði
þingnefndin fengið áður í hendur.
I þessari greinargerð var reikniað-
ferð kosningalaganna borin saman
við þá úthlutunaraðferð, sem Jón
Ragnar hefur lagt fram, og var
samanburðurinn byggður á raun-
verulegum kosningaúrslitum
undanfama áratugi.
Píanóleikarinn Dimitri Sgouros
fer ég 2-3. á ári. í þetta skipti lék
ég í Chicago, San Fransiskó, í
Camegie Hall í New York með
Fílharmóníusveitinni þar. Ég hef
verið á Helsinkihátíðinni og fór
síðan í fyrsta skipti til Kóreu og
hélt tónleika þar. Síðan hef ég ver-
ið á Ítalíu. Spilaði þar meðal annars
í Torinó og í Róm spilaði ég á loka-
tónleikunum á Rómarhátíðinni
miklu undir stjóm Shostakovits,
sonar gamla Shostakovits. Ég hef
líka leikið í Hollandi, á Spáni og á
Luzemhátíðinni í Þýskalandi þar
sem ég lék með Sinfóníuhljómsveit
Kölnarútvarpsins.
Nýjasta hljómplatan mín hefur
nýlega verið gefín út. Það er sú
fjórða í röðinni og á henni spila ég,
ásamt Fílharmóníusveitinni í Lond-
on, tvö verk eftir Tchaikovsky.
Annað er Píanókonsert nr. 1 og
hitt er Fantasíukonsert opus 56, en
það verk hefur ekki verið hljóðritað
áður. I vor lýk ég svo námi í
menntaskóla, auk þess sem ég fer
í tungumálapróf, en ég læri þau
svona í hjáverkum í einkatímum.
Ég hef þegar lært ítölsku, spænsku,
portúgölsku, þýsku, frönsku og
ensku.
Ég er með fullbókað tónleikapró-
gram út árið 1989. Næsta haust
hyggst ég hefja nám í stærðfræði
við háskólann í Aþenu. Stærðfræði
er eitt af áhugamálum mínum. Ég
ætla ekki að læra hana til að fá
háskólagráðu eða einhver réttindi,
heldur verður þetta bara „hobbý."
Tónlistin er vinna mín. Ég veit að
ég á alla ævi eftir að starfa sem
tónlistarmaður eingöngu."
Móðir Sgouros, sem er hér á ferð
með honum, bætir því við að í
mars 1989 ætli Júgóslavar að halda
tónlistarhátíð sem kennd verður við
son hennar og kölluð Sgouroshátíð-
in og verður Dimitri Sgouros
einleikari þar.
Morgunblaðið/J úlius
Flotgirðing komin í kring um Arktis River þar sem það liggur við
Grandagarð í Reykjavíkurhöfn.
Rifur og dældir á
botni danska skipsins
DANSKA flutningaskipið Arktis
River, sem strandaði utan við
Rif aðfaranótt siðastliðins þriðju-
dags, er talsvert skemmt. Á botni
þess eru dældir og rifur upp í
LENI rúllurnar eru þéttvafnari, endast lengur og því ódýrari.
Gerðu þinn eigin verðsamanburð.
(
*
LENI
y
ELDHÚSRÚLLUR &
SALERNISPAPPIR
botntanka, en sjór hefur ekki
komist inn i lestar skipsins eða
vélarrúm. Sjópróf fara fram i
dag og í dag verður líka tekin
ákvörðun um hvort skipið sigli
með farminn, 570 tonn af salt-
fiski, til Portúgals eða hvort það
verður tekið i slipp hér.
Varðskipin Óðinn náði Arktis
River af strandstað rétt fyrir klukk-
an 2 í fyrrinótt, en skipið hafði þá
verið strandað í sólarhring. Síðdeg-
is á þriðjudag fór að hvessa á
þessum slóðum og var nokkur vind-
bára á strandstaðnum. Skipið
byijaði að velta á skerinu eftir mið-
nættið og fór varðskipið að toga í
það með vaxandi þunga eftir klukk-
an 1 og rétt fyrir klukkan 2 náðist
það út. Eftir að skipið náðist út
gekk illa að losa það aftan úr varð-
skipinu vegna þess hvað það rak
hratt að landi. I eitt skiptið munaði
2 metrum að það lenti á innsigling-
arvitanum.
Arktis River var síðan siglt til
Reykjavíkur og fylgdi Óðinn því
eftir. Þar könnuðu kafarar
skemmdir á botni skipsins, eins og
áður segir. Skipið liggur nú við
Grandagarð.