Morgunblaðið - 26.03.1987, Page 28

Morgunblaðið - 26.03.1987, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ Kvótinn í stærstu ver- stöðvunum minnki um 44% Byggðastofnun reiknar út tillögnr Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og Framsóknar eftir Gunnar G. Schram Á síðustu dögum þingsins varð það uppskátt að frumvarp sem Al- þýðuflokkurinn, Alþýðubandalagið og Framsóknarflokkurinn fluttu hefði haft í för með sér að nær helmings minnkun þorskkvótans í mörgum stærstu verðstöðvum landsins. Útgerð legðist víða niður Að beiðni sjávarútvegsnefndar neðri deildar reiknaði Byggðastofn- un það út hve áhrif frumvarpsins yrðu og niðurstaðan var þessi. Þess- ar furðulegu tillögur voru bomar fram í frumvarpi Karvels Pálmason- ar, Jóns Baldvins Hannibalssonar, Hjörleifs Guttormssonar og Ólafs Þ. Þórðarsonar á þingskjali nr. 86. Fjallar frumvarpið um tilfærslu kvótans milli byggðarlaga. Sú til- færsla myndi hafa það í för með sér samkvæmt útreikningunum að útgerð og fískvinnsla víða um land myndi leggjast í rúst. Lagði sjávar- útvegsnefnd til að þessari aðför að mörgum stærstu útgerðarbæjum landsins yrði afstýrt með því að fella frumvarpið. Þannig eru tillögur Alþýðu- flokksins, Alþýðubandalagsins og Framsóknarflokksins um lausn á vanda sjávarútvegsins á íslandi. Þær munu verða framkvæmdar að loknum kosningum ef þessir flokkar fá að ráða. Niðurstaða Byggðastofnunar Með þessari grein er birt tafla yfír útreikninga Byggðastofnunar á jpví hve þorskkvótinn myndi minnka í hinum einstöku verstöðvum um allt land, ef þríflokkamir kæmu fram vilja sínum f sjávarútvegsmál- um. Meðaltalsminnkunin er 44,4% á öllum þeim stöðum þar sem árs- verk í sjávarútvegi eru minna en 35% á hverjum stað. Ahrifin víða um land Það myndi hafa það í för með sér að þorskkvótinn yrði minnkaður í Keflavík, Njarðvíkum og Vogum um alls 6.325 tonn svo dæmi sé tekið. í Hafnarfirði myndi hann minnka um 4.566 tonn. í Reykjavík myndi hann minnka um 9.993 tonn, á Akranesi um 4.243 tonn og á ísafirði um 5.658 tonn. Ekki yrði ástandið betra annars staðar um landið. Kvótinn myndi minnka um 4.658 tonn á Akureyri og um 4.017 tonn á Siglufírði. í augum uppi liggur að slík stefna og slík framkvæmd myndi boða gjaldþrot fyrirtækjanna á þessum stöðum, sem á undanfömum árum hafa verið að vinna sig út úr erfíð- leikum síðustu ára. Er það með ólíkindum að þrír af stjómmála- Karvel Pálmason Hjörleifur Guttormsson flokkum þjóðarinnar skuli láta sér hugkvæmast að leysa vanda sjávar- útvegsins á slíkan hátt. Og biðja um umboð í þessum kosningum til að framkvæma þessa stefnu! Lausn Alþýðuflokks- ins á Suðurnesjum Mikið hefur verið rætt um þann vanda sem sjávarútvegurinn á Suð- umesjum hefur átt við að stríða á síðari árum. Rætur þess vanda liggja til þeirra ára er framsóknar- og alþýðuflokksmenn fóru með embætti sjávarútvegsráðherra. Eigenda- skipti á hárgreiðslu- stofu VALGERÐUR Jóhannsdóttir tók nýlega við rekstri hár- greiðslustofu Gunnþórunnar Jónsdóttur í JL-húsinu við Hringhraut 121, 2. hæð. Menna er hið nýja nafn stof- unnar. Hárgreiðslustofan verður opin alla daga frá kl. 09.00 til 18.30, föstudaga til kl. 20.00 og laugar- daga frá kl. 10.00 til 16.00. A stofunni er öll almenn hár- Valgerður Jóhannsdóttir eigandi greiðsluþjónusta veitt. hárgreiðslustofunnar Mennu. En nú hafa þessir flokkar fundið upp herbragð sem duga á til þess að rétta við útgerð og fískvinnslu á þessum stöðum. Tillögur þríflokkanna fela í sér að þorskkvótinn í Keflavík myndi minnka um 5.024 tonn. í Njarðvík- Jón Baldvin Hannibalsson Ólafur Þ. Þórðarson um mjmdi hann minnka um 773 tonn og í Vogum um 528 tonn. Á undanfömum vikum hefur Steingrímur Hermannsson og fram- bjóðendur Alþýðuflokksins og Alþýðubandalagsins haldið fundið á Suðumesjum og lýst því yfír að þeir ættu þá ósk heitasta að endur- reisa sjávarútveginn á þessum stöðum. Þeir hafa hins vegar vand- lega þagað yfír því hvaða aðferð þeir ætluðu að beita við þá endur- reisn. Nú liggur hún fyrir svart á hvítu í frumvarpi til laga nr. 86, sem þessir flokkar fluttu á Alþingi í vetur. Töfralausnin felst í því að svipta þessar stóm verstöðvar á Suður- nesjum nær helmingi af þorskkvóta sínum. Þannig ætla þeir að leysa vanda sjávarútvegsins á Suðumesj- um! Ekki má seinna vera að fbúar þessara staða átti sig á því hver stefna þessara flokka er í lífshags- munamálum þeirra. Þeir geta ráðið því í komandi kosningum hvort þessi aðför að framtíð Suðumesja tekst eða ekki. Kvótinn í Hafnar- firði helmingaður En það á ekki aðeins að svipta þessar stóru verstöðvar á Suður- nesjum nær helmingi kvóta sinna, sem var ærið naumur fyrir. Samkvæmt frumvarpi þríflokk- anna myndi þorskkvóti Hafnar- fjarðar minnka úr 10.276 tonnum í 5.710 tonn eða alls minnka um 4.566 tonn. Sennilega telja Al- þýðuflokksmenn í Hafnarfírði að þetta yrði mikil lyftistöng fyrir út- gerðina í bænum. Og í Kópavogi myndi kvótinn minnka um 735 tonn eða um nær helming frá því sem hann nú er. Ekki yrðu áhrifín í Reykjavík betri. Það myndi kvótinn minnka um 10.000 tonn ef tillögur Al- þýðuflokksins, Alþýðubandalagsins og Framsóknar ná fram að ganga. Fróðlegt væri að heyra álit físk- vinnslufólks og sjómanna á öllum þessum stöðum á þessari nýju „upp- byggingarstefnu" þríflokkanna í atvinnumálum allra þessara byggð- arlaga. Bæjarstjórn Keflavíkur fagnar skerðingunni! En hvemig skyldu nú bæjaryfír- völd á þeim stöðum, sem horfa fram á svo stórfelldan niðurskurð kvót- ans, taka slíkum ódæmum? Synd væri að segja að krata- meirihlutinn í bæjarstjóm Keflavík- ur hefði af því miklar áhyggjur. í umsögn bæjarstjómar Keflavíkur, sem prentuð er sem fylgiskjal með framvarpinu, segir svo orðrétt: „Fagna ber þessu frumvarpi, því kvótakerfíð hefur komið mjög illa við útgerð og fískvinnslu í Keflavík og Garðinum." Þá vita menn það að Alþýðu- flokksmenn í Keflavík fagna tillög- unni um að skerða kvóta Keflavíkur um 5.024 tonn. Alþingi tók í taumana Sem betur fer lagði sjávarútvegs- nefnd neðri deildar til að þetta frumvarp væri fellt í áliti sínu 18. mars sl. Að því áliti stóðu allir nefndarmenn — nema fulltrúi Al- þýðuflokks, sem sá þann kost vænstan að vera íjarverandi, enda frumvarpið flutt af formanni flokks hans. Atlögunni að sjávarútvegi á Suð- umesjum hefur því verið bægt frá í bili. En hvað gerist á næsta þingi ef flutningsmenn þess fá að ráð? Það er spuming sem fróðlegt er að velta fyrir sér. Álit sjávar- útvegsnefndar Að lokum er rétt að birta hér orðrétt álit sjávarútvegsnefndar neðri deildar Alþingis um þetta ein- Gunnar G. Schram * „I augum uppi liggur að slík stefna og slik framkvæmd myndi boða gjaldþrot fyrir- tækjanna á þessum stöðum, sem á undan- förnum árum hafa verið að vinna sig út úr erf iðleikum síðustu ára. Er það með ólík- indum að þrír af stjórn- málaflokkum þjóðar- innar skuli láta sér hugkvæmast að leysa vanda sjávarútvegsins á slíkan hátt. O g biðja um umboð í þessum kosningum til að fram- kvæma þessa stefnu!“ Bjami Einarsson, aðstoðarfor- stjóri, og Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar, mættu hjá nefndinni og gáfu upplýsingar um hvaða áhrif 2. gr. frv. hefði haft á úthlutun kvóta einstakra byggðar- laga árið 1986 ef þá hefði verið eftir henni farið. Þær bera með sér að minnkun þorskkvótans hefði numið 44,4% í þeim byggðarlögum þar sem minna en 35% vinnuaflsins starfar við fiskveiðar og fískvinnslu, sbr. meðfylgjandi töflu. Ófyrirsjá- anlegt er hvaða áhrif það mundi hafa fyrir þau byggðarlög en hætt við að útgerð legðist þar af. Meiri hl. nefndarinnar leggur því til að frv. verði fellt." Fylgiskjal I Staðir þar sem sjávarútvegur er minni en 35% ársverka 1986. Úthlutaður þorskkvóti Hlutur útvegs Úthlutaður kvóti Hlutfall af kvóta 1986 minnkar um yrði Keflavík 16 11.306 3.8 5.024 6.282 Njarðvík 14 1.739 0.6 773 966 Vogar 25 1.188 0.4 528 660 Hafnarfyörður 8 10.276 3.4 4.566 5.710 Kópavogur 3 1.654 0.6 735 919 Reykjavík 3 22.489 7.5 9.993 12.496 Akranes 23 9.549 3.2 4.243 5.306 ísafjörður 34 12.733 4.3 5.658 7.075 Hvammstangi 15 1.192 0.4 530 662 Blönduós 7 210 0.1 93 117 Sauðárkrókur 16 6.047 2.0 2.687 3.360 Sigluflörður 34 9.041 3.0 4.017 5.024 Akureyri 10 10.482 3.5 4.658 5.824 Húsavík 26 6.885 2.3 3.059 3.826 Kópasker 12 778 0.3 346 432 Bakkafjörður 33 1.460 0.5 649 811 Borgarfjörður eystri 32 560 0.2 249 311 107.589 36.0 47.806 59.783 Landið 12 298.824 100.0 stæða framvarp þríflokkanna. Það er svohljóðandi: „Nefndin ræddi frv. á allmörgum fundum og bárast henni níu um- sagnir. í þeim öllum er mælt gegn samþykkt frv. nema í umsögn bæj- arstjómar Keflavíkur sem fagnaði frv. Umsagnimar fylgja með nefnd- aráliti sem fylgislg'öl. Útreikningar Byggðastofnunar sem sýna minnkun þorskkvótans í mörgum stærstu byggðarlögum landsins, ef tillögur Álþýðuflokks, Alþýðubandalags og Framsóknar- flokks næðu fram að ganga. Höfundur skipar 5. sætí á lista Sj&Ifstæðisflokksias i Reykjanes- kjördæmi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.