Morgunblaðið - 26.03.1987, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ
4-
Aðalfundur Eimskipafélags Islands
Hagiiaður af rekstri
239 milljónir á síðasta ári
Flutningar fé-
lagsins þeir
mestu í sögu þess
HAGNAÐUR að upphæð 239
miiyónir króna varð af rekstri
Eimskipafélags íslands á árinu
1986. Þessi hagnaður er 6,5% af
veltu félagsins á árinu. Tvö ár
þar á undan varð samtals 154
milljóna króna tap á rekstri fé-
lagsins á verðlagi ársins 1986.
Rekstrartekjur á árinu voru sam-
tals 3.665 mil^'ónir króna og var
hækkun tekna milli ára 35% en
hækkun verðlags milli ára var
um 25% svo nærri lætur að raun-
vöxtur umsvifa félagsins sé um
7%. Þetta kom fram í ræðu Hall-
dórs H. Jónssonar stjómarfor-
manns Eimskipafélags íslands á
aðalfundi félagsins sem haldinn
var í gær á Hótel Sögu.
Heildarflutningar Eimskips á
síðasta ári námu 792 þúsund tonn-
um sem er það mesta í sögu
félagsins og 13% aukning frá
síðasta ári. Halldór sagði það eink-
um vera vegna þess góðæris sem
ríkti á árinu og vegna þess að Haf-
skip hætti rekstri í lok ársins 1985
en Eimskip fékk 55-60% af þeirra
flutningum. Aðrar skýringar á hag-
Frá aðalfundi Eimskipafélags íslands sem haldinn var á Hótel Sögu í gær.
Morgunblaðið/Ól.K.M.
stæðri afkomu félagsins sagði
Halldór vera að olíuverð hefði lækk-
að og að verðlag var stöðugt á árinu
og jákvæð þróun í efnahags og at-
vinnulífí þjóðarinnar. Norður-Atl-
antshafsflutningar félagsins hefðu
einnig skilað viðunandi afkomu en
þar sem samkeppni hefði harðnað
verulega á þeim markaði að undan-
fömu og flutnignsgjöld lækkað ríkti
nokkur óvissa um framtíð þeirra
flutninga.
Halldór sagði að góð og traust
staða Eimskips endurspeglaðist í
efnahagsreikningi félagsins þar
sem eigið fé í árslok að meðtöldu
hlutafé nam 1.315 milljónum króna
en var 904 milljónir króna í árslok
1985. Eigið fé félagsins sem hlut-
fall af heildarfjármagni er 38%.
Halldór rakti í ræðu sinni helstu
verkefni Eimskips á síðasta ári.
Félagið seldi 5 skip á árinu, keypti
4 og þurrleigði 1. Aðalbreyting á
þjónustu félagsins var vegna vax-
andi útflutnings á ferskum físki frá
Evrópu en einnig vegna mikils inn-
flutnings frá Evrópu. Strandflutn-
ingaþjónusta félagsins var einnig
aukin með nýju skipi. Félagið opn-
aði tvær nýjar skrifstofur erlendis,
í Hamborg og Gautaborg og rekur
nú fjórar skrifstofur erlendis. Hall-
dór rakti skipulagsbreytingar sem
orðið hafa hjá félaginu og einnig
kom fram hjá honum að áætlun um
þróun tölvuvinnslu félagsins til
næstu ára var gerð á árinu.
Halldór sagði síðan þrátt fyrir
jákvæða afkomu félagsins hefðu
Ijárfestingar verið varfærnar á ár-
inu eða samtals 255 milljónir króna
sem er minna en árið á undan. Þar
var langmest fjárfest í vöruaf-
greiðslu félagsins og í gámum.
Einnig var talsverður hluti fjárfest-
inganna hlutabréfakaup í nokkrum
fyrirtækjum, þar sem hæst bar
hlutabréfakaup í Verzlunarbanka
íslands og Pólstækni. Halldór sagði
að vaxtamöguleikar í flutninga-
starfsemi væru ekki ótakmarkaðir
hér á landi og því væri það vel í
samræmi við hugsjón stofnenda
Eimskipafélagsins að félagið sé
þátttakandi í nýsköpun íslensks at-
vinnulífs. Taldi Halldór að Eim-
skipafélagið myndi á næstu árum
verða mun virkari þátttakandi í
nýrri atvinnustarfsemi en þegar er
orðið.
Halldór sagði að lokum að ekk-
ert benti til annars en árið 1987
verði árangursríkt. Vinnudeilur þær
sem félagið hefði staðið í settu þó
nokkum skugga á reksturinn og
óvíst hvaða áhrif þær hefðu á af-
komuna.
Verðmætahlutfall skipanna
af eignum minnkar stöðugt
Halldór H. Jónsson stjórnarformaður Eimskips í ræðustól á aðal-
fundi félagsins. Fremst á myndinni eru, talið frá vinstri, Davíð
Oddson sem var fundarstjóri, Hörður Sigurgestsson forstjóri Eim-
skips og Indriði Pálsson varaformaður stjómar félagsins.
VERÐMÆTI skipa Eimskips, í
hlutfalli við aðra varanlega
rekstrarfjármuni félagins, var
25% á sfðasta ári og hefur aldrei
verið minna f sögu félagsins.
Árið 1981 var þetta hlutfall 57%.
Þetta kom fram í skýringum
Harðar Sigurgestssonar for-
stjóra Eimskips við ársreikninga
á aðalfundi félagsins í gær, og
sagði Hörður að þetta undirstrik-
aði þær grundvallarbreytingar
sem orðið hafa í flutningastarf-
seminni.
í ársreikningum félagsins kemur
fram að skipastóll þess árið 1986
er metinn á 492 milljónir króna en
var metinn á 605 milljónir króna
Hlutaféð aukið um 90 milljónir
TILLAGA um 50% aukningu á
hlutafé Eimskips með útgáfu
jöfnunarhlutabréfa var sam-
þykkt á aðalfundi félagsins og
var hlutaféð aukið úr 180 milþ'-
ónum króna í 270 milljónir
króna. Verður hluthöfum afhent
jöfnunarhlutabréfin endur-
gjaldslaust í réttu hlutfalli við
skrásetta eign þeirra.
Gunnar Ragn-
ars nýr í stj ór n
HALLDÓR H. Jónsson var endur-
kjörinn stjómarformaður Eim-
skipafélagsins og Indriði Pálsson
var endurkjörinn varaformaður
félagsins á fyrsta fundi stjómar
félagsins eftir aðalfund þess.
Fjórir menn voru' á aðalfundinum
kosnir til tveggja ára í stjóm Eim-
skips og voru Halldór H. Jónsson,
Pétur Sigurðsson, Jón Ingyarsson og
Jón H. Bergs endurkjömir. Til eins
árs voru kjömir þeir Thor Ó. Thors
og Gunnar Ragnars. Thor Ó Thors
tók sæti í stjóm félagsins á liðnu ári
en Gunnar var kjörinn í stjóm í fyrsta
skipti.
Fyrir í stjóm Eimskipafélagsins
vom Indriði Pálsson, Benedikt
Sveinsson og Hjalti Geir Kristjánsson.
Frá síðasta aðalfundi félagsins
féllu frá tveir menn í stjóm félags-
ins, þeir Thor R. Thors aðalræðismað-
ur og Axel Einarsson hæstaréttarlög-
maður. Halldór H. Jónsson minntist
þeirra í ræðu sinni á aðalfundinum
og einnig tveggja starfsmanna fé-
lagsins sem létust á síðasta ári, þeirra
Svend Dipo-Petersen skristofustjóra
Eimskips í Kaupmannahöfn frá 1964
til 1978, og Jóns Jónssonar verka-
manns í vöruafgreiðslu félagsins í
Reykjavík.
í ræðu Halldórs H. Jónssonar
stjómarformanns Eimskipafélags-
ins kom fram að félagið hefur gefíð
út jöfnunarhlutabréf nokkuð reglu-
lega undanfarin ár. Gerð hefur verið
athugun á verðgildi hlutafjár Eim-
skips frá stofnun félagsins fram til
ársloka 1986 og það borið saman
við breytingu á neysluvísitölu sem
Hagstofa Islands reiknar, en það
er eini mælikvarðinn sem til er fyr-
ir allt það tímabil. Þannig reiknað
verður verðgildi hlutafjár samtals
258 milljónir króna og sagði Halld-
ór það vera í samræmi við tillögu
um útgáfu jöfnunarhlutabréfa nú.
Þá samþykkti aðalfundurinn til-
lögu félagsstjórnarinnar um að
greiddur verði 10% arður af hlutafé
fyrir árið 1986.
Þá voru breytingar á fjórum
greinum samþykkta Eimskipafé-
lagsins samþykktar á aðalfundin-
um. Þama var um að ræða
breytingar sem gerðar voru eftir
að ríkið seldi hlutabréf sín í félaginu
og voru breytingamar lagðar fyrir
síðasta aðalfund. Þá var fundarsókn
ekki næg til endanlegrar afgreiðslu
breytinganna og því voru þær bom-
ar aftur undir aðalfund.
árið 1985. Gámar, flutningatæki
og áhöld vom metin á 745 milljónir
króna árið 1986 en 734 milljónir
króna árið 1985, og fasteignir fé-
lagins vom metnar á 736 milljónir
króna árið 1986 en 651 milljón
króna árið 1985. í þessum tölum
kemur fram breytt hlutfall skipanna
í rekstrarfjármunum Eimskips.
í reikningunum kemur fram að
rekstrartekjur félagsins á síðasta
ári vom 3.665 milljónir króna en
vom 2.714 milljónir árið 1985.
Rekstrargjöld vom hinsvegar 3.329
milljónir á síðata ári en 2.705 árið
1985. Fjármagnsgjöld árið 1986
vom 65 milljónir króna en 62 millj-
ónir króna árið 1985 og munar
þama mest um lækkaða vexti af
skuldum og minni verðbólgu. 14,5
milljóna tap varð síðan af sölu skipa
og tækja á árinu og eftir eignar-
skatt varð hagnaður af rekstri
félagsins 239 milljónir króna árið
1986 á móti 47 milljóna króna tapi
árið 1985.
í efnahagsreikningi félagins kom
fram að veltufjármunir vom árið
1986 1,276 milljóniren 816 milljón-
ir árið á undan. Skammtímaskuldir
vom hinsvegar 846 milljónir árið
1986 en 845 milljónir árið 1985.
Hörður Sigurgestsson sagði að
veltuíjárhlutfall, það er hlutfall
veltufjármuna og skammtíma-
skulda, hefði verið 1,51% árið 1986
miðað við 0,96% árið á undan og
væri það mælikvarði á greiðslugetu
fyrirtækisins.
Eignir félagsins á síðasta ári
námu alls 3.449 milljónum króna
en skuldir námu alls 2.134 milljón-
um króna. Eigið fé félagins var því
1.315 milljónir króna og hafði það
aukist um 45% frá fyrra ári, en
Hörður sagði að raunaukning eigin
flár væri nálægt 24% frá árinu
1985.
Hörður sagði að raunávöxtun
eigin fjár félagsins frá 1981 hefði
verið að jafnaði 8,7% á ári. Það
hlyti að vera markmið stjómenda
hvers fyrirtækis að ávöxtun eigin
§ár sé á hveijum tíma ekki lakari
en almennt gerist um ávöxtun á
fjarmagnsmarkaði. í framtíðinni
hljóti menn að horfa á arðsemi eig-
in fjárs í félögum eins og Eimskipa-
félaginu og bera það saman við
arðsemi ijármagns á lánsmarkaði í
miklu ríkari mæli en þegar hefur
verið gert.
I reikningunum er einnig gerð
grein fyrir flármagnsstreymi fyrir-
tækisins og þar kemur fram að eftir
að fjármagni félagsins hafði verið
ráðstafað árið 1986 vom eftir 430
milljónir króna í veltufé en í árs-
byijun var veltufé fyrirtækisins
neikvætt um 30 milljónir króna.
Tillaga um vél-
knúna björgun-
arbáta í skipin
TILLAGA um að tveir vélknúnir
björgunarbátar, með stýrishúsi og
fullkomnasta björgunarbúnaði
innanborðs, skuli vera um borð í
öllum skipum félagsins var lögð
fram á aðalfundi Eimskips af
Árna Jóhannsyni.
Tillaga þes?i var ekki borin fram
með lögformlegum fyrirvara en fund-
urinn samþykkti eigi að síður að taka
hana til meðferðar. Hörður Sigur-
gestsson forstjóri sagði að það væri
nú orðin regla að ný skip skuli byggja
þannig að á þeim sé björgunarbátur
af þeirri gerð sem Ámi gerði grein
fyrir. Ekki væri krafa um að þannig
bátum væri komið fyrir á eldri skip-
um enda í sumum tilfellum ekki
hægt.
Hörður sagði á hverjum tima
þyrfti að gæta fyllsta öryggis í sigl-
ingum félagsins. Nú væru komin
björgunamet í öll skip þess og Eim-
skip hefði verið fyrst skipafélaga til
að setja flotbúninga um borð í skip
sín.
Hörður lagði síðan til að tillögu
Áma yrði vísað til stjómar félagsins
til umræðu og var það samþykkt.