Morgunblaðið - 26.03.1987, Page 39

Morgunblaðið - 26.03.1987, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ 39 Háskólabíó sýnir „Guð gaf mér eyra“ HÁSKÓLABÍÓ hefur hafið sýn- ingar á myndinni „Guð gjaf mér eyra“ sem gerð er eftir leikriti Mark Medoffs. Leikstjóri mynd- arinnar er Randa Haines. Will- iam Hurt fer með annað aðalhlutverkið en hann fékk Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í myndinni „Kiss of the Spider- woman“. Marlee Matlin fer með hitt aðalhlutverkið en þetta er jafnframt hennar fyrsta kvik- myndahlutverk. í frétt frá kvikmyndahúsinu seg- ir að myndin fjalli í stuttu máli um kennarann James Leeds sem hefur kennslu í heymleysingaskóla. Kennsluaðferðir hans vekja hrifn- ingu nemendanna en reiði skóla- stjórans. James hrífst af Söru sem er nemandi í skólanum. Hún er ijar- læg og dularfull stúlka og lætur sér fátt um hrifningu hans finnast. Svo þegar hamingja þeirra virðist I höfn verður þeim sundurorða og Sara dregur sig á ný inn í skel sína. Mynd þessi hefur verið tilnefnd til fimm Óskarsverðlauna, m.a. besta kvikmyndin, besti karlleikar- inn og besti kvenleikarinn. Morgunblaðið/Bára Neyðarsendar í gúmbjörgun- arbátum Guðbjartur Gunnarsson, leið- beinandi við Slysavamaskólann, vakti athygli Morgunblaðsins á villu i frásögn af björgunaræf- ingu um borð i varðskipinu Óðni, sem birtist í blaðinu síðastliðinn miðvikudag. Þar kom fram í myndatexta að neyðartalstöðvar væru um borð í gúmbjörgunar- bátum. Guðbjartur sagði að þetta væri rangt, þvi þessar neyðartal- stöðvar væru yfirleitt í brúm bátanna, en neyðarsendar i gúm- bátunum. Á myndinni sýnir Guðbjartur muninn á þessum tækjum, neyðartalstöðin er stærri en neyðarsendirinn minni. 'ÉLAG ÍSL.FNSKHA ÖTIÐNADARMANNA STOFN A 0 Núverandi stjóm Félags islenskra kjötiðnaðarmanna. Félag íslenskra kjötiðnaðarmanna: Heiðursfélagar útnefndir á 40 ára afmæli Félags íslenskra kjöt- iðnaðarmanna i febrúar sl. Frá vinstri: Einar Sigurðsson, Sigur- bjöm Sigurbjömsson og Marius Blomsterberg. Sýning og ráðstefna á Hótel Sögu um helgina SÝNING og ráðstefna á vegum Félags íslenskra kjötiðnaðar- manna verður nk. laugardag og sunnudag, 28. og 29. mars. Sýningin er haldin í tilefni 40 ára afmælis Félags íslenskra kjötiðnaðarmanna. Á sýning- unni verða kynntar vörar og þjónusta, sem tilheyra kjötiðn- aði. Á ráðstefnunni sem haldin er samhliða sýningunni verða bæði innlendir og erlendir fyr- irlesarar. Sýningin og ráðstefn- an verða í ráðstefnusal Hótels Sögu og hefjast kl. 13.00 báða dagana og standa til kl. 18.00. Á ráðstefnunni verður fjallað um hin ýmsu atriði kjötiðnaðar. Meðal þeirra sem taka til máls eru Hans Kristian Olesen frá Slagteriskolen í Roskilde, Peer Funk Johannesen sem fjallar um hreinlæti í matvælaiðnaði, Jón Gíslason frá Hollustuvemd ríkis- ins sem talar m.a. um væntanlega reglugerð um aukaefni og Guðjón Þorkelsson frá Rannsóknastofnun landbúnaðarins sem ræðir um kælingu, meymun og geymsluþol kjöts. Afmælissýningin og ráðstefnan er opin öllum þó hún sé sérstak- lega ætluð kjötiðnaðarmönnum, kaupmönnum og verslunarmönn- um í matvömverslunum og öðmm þeim sem starfa við matvælaiðn- að. Þrífum skúm úr skotum stjórnmálanna og hleypum vindlareyknum út! Látum lífssýn kvenna blómstra! Reykjaneskjördæmi Kvennalistinn á erindi við þig. Kvenna- listakonur koma á vinnustaði, í saumaklúbba eða hvert sem er, sé þess óskað. Hafið samband við kosningaskrifstofuna Reykjavíkurvegi 68, Hafnarfirði, símar: 651250, 652011, 651835. Kvennalistinn I Reykjaneskjördæmi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.