Morgunblaðið - 26.03.1987, Page 44

Morgunblaðið - 26.03.1987, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ Kjamorkufríðlýst Norðurlönd: Framlag Islands skiptir máli eftir Álfheiði Ingadóttur Þessa dagana ræðst það hér í Reykjavík hver verður framtíð um- ræðunnar um kjarnorkufriðlýst Norðurlönd — hvort íslendingar taka áfram þátt í undirbúningi málsins eða verða viðskila við frændþjóðir sínar í þessu mikils- verða máli. Sjálfstæðisflokkurinn með utan- ríkisráðherra í broddi fylkingar hefur tafíð framgang málsins mán- uðum saman með því að hindra skipan embættismannanefndar, sem ætlað er að vinna samhliða þingmannanefnd frá öllum þjóð- þingum Norðurlanda. Til þessa óþurftarverks hefur Sjálfstæðis- flokkurinn notið liðsinnis miðju- flokkanna beggja allt eftir því sem þótt hefur henta hverju sinni — ýmist í krafti stjómarsamvinnu Framsóknar og Sjálfstæðisflokks eða í krafti meirihluta Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks í utanríkis- málanefnd Alþingis. Forysta þessar ji>riggja flokka hefur farið sínu fram þvert gegn meirihlutavilja Islend- inga, sem legið hefur fyrir allt frá 1983. Sá vilji var ítrekaður nú í byijun mars, þegar 90% kjósenda lýstu stuðningi við kröfuna um kjamorkufriðlýst Norðurlönd. Að kaupa sér frið Þegar þetta er skrifað er ekki vitað hver verður niðurstaðan á fundi utanríkisráðherra Norður- landa hér í Reykjavík, en margt _ bendir þó til þess að Matthías A. Mathiesen kaupi sér frið og sam- þykki að íslendingar eigi fulltrúa í embættismannanefndinni. Astæð- umar em næsta augljósar. Yfirlýsingar benda til þess að hin Norðurlöndin fjögur muni halda sínu striki og undirbúa friðlýsingu Skandinavíu fyrir kjamavopnum þó ísland skerist úr leik. Mönnum þyk- ir töfín sem íslenski ráðherrann hefur staðið fyrir orðin ærið löng og vita trúlega sem er að skipan embættismannanefndarinnar er átylla sem hann notar til að þæfa málið. Þess vegna var ekki fallist á að fresta ákvörðuninni fram yfír kosningar á íslandi. Á Norðurlöndunum er mörgum líka ósárt um að ísland verði ekki með, þar sem herstöðvar Banda- ríkjamanna hé_r flækja málið óumdeilanlega. í því sambandi er rétt að minna á að þegar skriður komst á þessi mál 1980 var einmitt ætlunin að útiloka ísland á þeirri forsendu. Það tókst ekki, enda ekki annarra en íslendinga að taka ákvörðun um hvort þeir verða með eða ekki. En ef ísland skerst úr leik núna er ljóst að Færeyjar, Grænland og þar með Norður- Atlantshafíð verða útilokuð um leið. Slíkt væri mikið hættuspil og gæti hæglega endað með því að Island yrði nýr Kólaskagi vestan jám- tjalds. Jafnvel hörðustu andstæð- inga hugmyndarinnar um kjamorkufriðlýst Norðurlönd hryllir við þeirri tilhugsun að ísland verði eitt utan slíks svæðis. í öðm lagi er býsna erfítt fyrir Matthías Á. Mathiesen, a.m.k. svona kortéri fyrir kosningar, að ganga þvert gegn nýítrekuðum vilja þjóðarinnar og meirihluta kjósenda Sjálfstæðisflokksins, því sú stað- reynd að fundur utanríkisráðherr- anna er haldinn hér á landi setur kastljósið beint á hann. Þá er betra að kaupa sér frið og kyngja nefnd- inni og það trúi ég að ráðherrann muni gera. Spumingin er hins vegar hvert framhaldið verður. í leiðara Morg- unblaðsins sl. sunnudag segir berum orðum að ef embættis- mannanefndin eigi að vera „eins konar skjalageymsla, er ekki skynsamlegt að stöðva það öllu lengur að hún verði skipuð". Þar með hefur tónninn verið sleginn og næsta víst að eftir honum verður dansað í nýrri ríkisstjóm Sjálfstæðisflokks með Framsókn eða Alþýðuflokki. En er það í samræmi við vilja íslensku þjóðarinnar að stofna til e.k. skjalageymslu og láta málið rykfalla þar? Svarið er nei. Álfheiður Ingadóttir „Fær ný viðreisn um- boð kjósenda til að breyta norrænu emb- ættismannnaefndinni í „skjalageymslu“ og láta hugmyndina um kjarn- orkufriðlýst Norður- lönd rykfalla þar?“ Nýrrar öryggis- stefnu er þörf Framtíð mannkyns krefst nýrra leiða í afvopnunarmálum. Það er lífsnauðsyn að stöðva kjamorku- vopnakapphlaup stórveldanna, hætta tilraunum og framleiðslu kjamavopna og eyða þeim áður en sprengjan fellur og áður en kapp- hlaupið um að vígvæða geiminn verður stjómlaust. Risaveldin hafa fengið tækifæri í bráðum hálfa öld til að bægja kjarnorkuógninni frá, en árangurinn er enginn. Herská hugmyndafræði þeirra um gagn- kvæma fælingu byggða á fleiri og fleiri og fullkomnari og fullkomnari kjamavopnum hefur gengið sér til húðar. Það er komið að öðrum að hafa frumkvæði og fara nýjar leið- ir. Kjamorkuógnin er ekki einkamál þeirra Reagans og Gorbachevs, NATÓ eða Varsjárbandalagsins. Hún snertir hvem einasta einn. Á fyrstu afvopnunarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 1979 var hvatt til kjarnorkufriðlýsingar ein- stakra svæða sem lið í allsherjar afvopnun, nákvæmlega eins og í samþykkt Alþingis um „Stefnu ís- lendinga í afvopnunarmálum", 23. maí 1985. Frumkvæði smáþjóða og samstarf þjóða um nýja öryggis- stefnu byggða á kjamorkufriðlýs- ingu og gagnkvæmum samningum, sem risaveldin yrðu að ábyijast, er sú nýja leið í öryggismálum sem nýtur vaxandi fylgis um allan heim. ísland, sem sett var í sviðsljós friðarviðleitni sl. haust, má ekki lengur vera dragbítur í slíku sam- starfí eða sitja hjá. Við eigum samleið með Norðurlandaþjóðunum í þessu efni sem í svo mörgu öðru. Sameiginlega geta Norðurlöndin ráðið miklu um þróun Evrópu og heimsins alls, ekki síst í afvopnun- ar- og friðarmálum. Til þess stendur líka vilji íslensku þjóðarinnar svo og frændþjóða okkar í Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnladi, Álands- eyjum, Færeyjum og Grænlandi. Aldrei kjarnavopn á Islandi En hvaða rök ber forysta Sjálf- stæðisflokks og Alþýðuflokks fram með andstöðu sinni við kjamorku- friðlýsingu Norðurlanda? Þau eru einkum tvenn og stangast illilega á. Í fyrsta lagi segja þessir menn að á Islandi og hinum Norðurlönd- unum séu engin kjamavopn og því sé þetta ástæðulaust hjal. í öðru lagi segja þeir að slíkt tal sé ábyrgð- arlaust, því kjamorkufriðlýst Norðurlönd myndu auka ófriðar- hættu í okkar heimshluta, raska jafnvægi, auka á spennu, snúast upp í andstæðu sína. Ógnarjafn- vægið og óbreytt ástand sé forsenda friðarins og því megi ekki hrófla við. Þetta þýðir einfaldlega að í hinu gagnkvæma fælingarkerfi — ógn- aijafnvæginu — sé fólginn mögu- leiki á að flytja kjamavopn til Norðurlanda. Og það er einmitt mergurinn málsins. Þessi rök- semdafærsla afhjúpar nefnilega það, sem þessir sömu menn vilja forðast að tala um og helst gleyma — að Bandaríkin og NATÓ áskilja sér rétt til að flytja kjarnavopn til íslands, Dan- merkur og Noregs, telji þeir þess þörf. Það em til áætlanir um slíka flutninga á ófriðartimum, fjölda og tegundir vopna og svo geta menn velt því fyrir sér hvort og þá hvem- ig stjómvöld yrðu beðin um leyfi til þeirra. Ef litið er til þessarar mótsagna- kenndu röksemdafærslu — að hér séu ekki kjamavopn en megi ekki fyrirbyggja að þau verði flutt hing- að einhvem tíma í framtíðinni er ekki nema skiljanlegt að yfírlýst stefna Sjálfstæðisflokks og Al- þýðuflokks nýtur ekki nema 10% stuðnings meðal kjósenda rúmum mánuði fyrir kosningar. Krafa hinna er skýr: Aldrei kjamavopn á íslandi. Hvað gerist eftir kosningar? Ákvörðun um kjamorkufriðlýs- ingu Norðurlanda, með eða án íslands, verður tekin á næstu 4 ámm. Það verður því næsta ríkis- stjóm, sem tekur endanlega ákvörð- un um hvert verður framlag íslands í afvopnunar- og friðarmálum — hvort fylgt verður vilja þjóðarinnar og annarra Norðurlandabúa eða hvort leiðir skiljast og ísland situr eitt eftir í andrúmi kalda stríðsins. Kosningaúrslitin 25. apríl nk. ráða hér öllu um. Þó utanríkisráðherra fallist nú á að skipa í embættismannanefnd til að kanna forsendur kjamorkufrið- lýsingarinnar er ljóst að þar fylgir hugur ekki máli. Ef Sjálfstæðis- flokkurinn fær einhveiju ráðið eftir kosningar verður sú nefnd einfald- lega notuð til að stafla skjölum og láta þau rykfalla þar. Það sem kjós- endur ættu að hafa í huga er að það sama gildir um Alþýðuflokkinn; forysta hans er jafnvel herskárri gegn kjamorkufriðlýsingu Norður- landa en forysta Sjálfstæðisflokks- ins. Stefna Alþýðubandalagsins er kvitt og klán Við teljum að ísland eigi að taka þátt í og hvetja til samnings um að á Norðurlöndum öllum og í norrænum höfum verði umferð, geymsla og meðferð kjam- orkuvopna bönnuð um alla framtíð. Þessi stefna gerir ekki ráð fyrir neinum aukasetningum sem byija á ef, þegar eða nema! Hún byggist á því grundvallarstefnumiði okkar að ísland eigi að vera herlaust og friðlýst land utan hemaðarbanda- laga og að rödd íslands á alþjóða- vettvangi eigi að vera rödd friðar og sátta. Tími ógnaijafnvægisins er liðinn. Uppsöfnun kjamavopna er orðin ógn í sjálfu sér. Það þarf að ryðja nýja braut fyrir öryggi allra þjóða og allra manna og við íslendingar ættum að vera þar í fararbroddi. Takmarkið er heimur án kjamavopna og aldrei kjarna- ,vopn á íslandi. Valkostimir í kosningunum eru skýrir: Aðeins öflugur stuðningur við Alþýðu- bandalagið getur tryggt framgang þesa máls. Þar dugir ekki að treysta á aðra. Höfundur er blaðamaður og skíp- ar4. sæti G-listans íReykjavík. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Utankjörstaðaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins Valhöll, Háaleitisbraut 1,3. hæð Símar689004 - 689005 - 689006 Upplýsingar um kjörskrá og aðstoö við kjörskrárkærur. Utankjör- staðakosning fer fram hjá borgarfógetanum i Reykjavík, Skógarhlið 6, kl. 10.00-15.00 mánudaga til föstudaga. Sjálfstæðisfólk I Hafiö samband við skrifstofuna ef þiö verðið ekki heima á kjördag. Kópavogur — Kópavogur Bæjarmálaflokkurinn og Týr, félag ungra sjálfstæðismanna í Kópa- vogi býður öllum velunnurum Sjálfstæðisflokksins i opið hús laugar- daginn 28. mars kl. 21.00. Veitingar og skemmtiatriði. Keflavík Fundur verður haldinn í fulltrúaráði sjálfstæöisfélaganna i Keflav/k miðvikudaginn 1. apríl nk. kl. 20.30, í sjálfstæðishúsinu, Hafnargötu 46. Dagskrá: 1. Rædd verður fjárhagsáætlun Keflavikurbæjar. 2. Önnur mál. Stjórnin. Kópavogur — kosningaskrifstofa Kosningaskrifstofa Sjálfstæöisfiokksins í Kópavogi er í Sjálfstæöis- húsinu, Hamraborg 1, 3. hæð. Skrifstofan veröur opin alla virka daga frá kl. 9.00-19.00. Símsvari er opinn allan sólarhringinn, símí 40708, kosningasimar 44017 og 44018. Sjálfstæðisflokkurinn. Vestur-Húnvetningar Efstu menn D-listans verða á kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokks- ins, Brekkugötu 2 (gamla V.S.P.), Hvammstanga föstudaginn 27. mars 1987 kl. 17.00-19.00. Komið og fáið ykkur kaffi með frambjóð- endum. Allir velkomnir. D-listlnn. Skagaströnd Almennur stjórnmálafundur verður í félagsheimilinu Fellsborg fimmtudaginn 26. mars nk. kl. 20.30. Efstu menn D-listans mæta. Allir velkomnir. Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins Suðurland — kosningaskrifstofa Aðalskrifstofa Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi, Tryggvagötu 8, Selfossi er opin alla daga frá kl. 14.00-22.00. Sími 99-1899. Litið inn, ræðið málin og fáið ykkur kaffi. Umsjónarmenn skrifstofunn- ar eru Dagfríður Finnsdóttir og Ársæll Ársælsson. Kjördæmisráð. Mývetningar á réttri leið Almennur stjórnmálafundur í Myllunni hótel Reynihlíö laugardaginn 28. mars kl. 13.30. Frummælendur Halldór Blöndal, Björn Dagbjartsson og Vigfús B. Jónsson. Sjálfstæðisfólagið. Þjóðmálafundur íAratungu Boöað er til almenns stjórnmálafundar i Aratungu föstudagskvöldið 27. mars kl. 21.00. Rædd veröur staða og stefna þjóömála, hvað hefur áunnist og hvar úrbóta sé þörf. Framsögu flytja þingmennirn- ir Árni Johnsen, Eggert Haukdal og Arndís Jónsdóttir kennari. Síðan verða almennar umræöur. Fólk er hvatt til þess að mæta og leggja hönd á plóginn. Sjálfstæðisfólagið Huginn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.