Morgunblaðið - 26.03.1987, Page 46

Morgunblaðið - 26.03.1987, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ Glórulaus málflutn- ingur sjálfstæðismanna eftir Guðjón V. Guðmundsson Sjálfstæðismennimir hamast allt hvað af tekur þessa dagana á síðum Morgunblaðsins í taumlausum og stundum algerlega glórulausum árásum á Alþýðuflokkinn og forystu hans og þá fyrst og fremst for- manninn og ef að líkum lætur mun þessu ekki linna í bráð. Það er al- Veg kostulegt að glugga í þessar ritsmíðar, skriffínnamir keppast við hver um annan þveran að lýsa því hve gersamlega ómögulegt allt þetta fólk er, þetta séu ekkert ann- að en innantómir gasprarar ef ekki bara algerir bjánar og þá vitaskuld málflutningurinn og stefnumálin í samræmi við það. Hvemig í ósköp- unum stendur þá á því, að þeir sjálfstæðismenn skuli vera að eyða svo miklum tíma og rúmi sem raun ber vitni í þennan pínulitla vonlausa flokk og þá fáráðlinga, sem eru að burðast við að tala máli hans. Halda þeir virkilega, að íslenskir kjósend- ur séu svo skyni skroppnir, að þeir fari í einhveijum mæíi að greiða þessum ómerkingum atkvæði sitt. Þetta er gróf móðgun við íslend- inga, einhveija gáfuðustu og best upplýstu þjóð í veröldinni. Fólk al- mennt hefur verulega andstyggð á svona fáránlegum og lágkúmlegum málflutningi. Þetta er víðsfjarri venjulegum gmndvallarreglum heiðarlegrar kosningabaráttu. Svona iðju stunda aðeins mjög hræddir menn í vanda við að veija vondan málstað og þá er ævinlega gripið til lyginnar og alls konar útúrsnúninga og rangfærslna til þess að reyna að koma höggi á andstæðinginn og leiða athyglina frá sínum eigin stjómmálalega ves- aldómi. Allar þessar ógeðfelldu skeytasendingar munu því hrökkva aftur heim til föðurhúsanna og valda því engum öðmm en höfund- um sínum tjóni. Alþýðuflokkurinn er sterkari en nokkm sinni og for- ysta hans prýðisfólk sem vitanlega vill þjóðinni aðeins það allra besta. Formaðurinn, Jón Baldvin, er glæsi- legur foringi enda jafnaðarmenn mjög stoltir af honum. Það bókstaf- lega sópar að manninum hvar sem hann kemur fram. Andstæðingamir lyppast niður. Allur málflutningur þuingmannsefna flokksins er í alla staði heiðarlegur og málefnalegur út í ystu æsar, stefna flokksins er skýr og afdráttarlaus á öllum svið- um, þannig að það fer ekkert á milli mála hvað flokkurinn ætlar að gera fái hann brautargengi í komandi kosningum og hvemig eigi að standa að því að framkvæma stefnumálin. í skoðanakönnunum síðustu mánuði hefur komið í ljós mjög ört vaxandi fylgi Alþýðu- flokksins, þetta sýnir að fólkið í landinu hefur kynnt sér rækilega hvað flokkurinn hefur fram að færa í landsmálunum og vill að það nái fram að ganga. Þegar áhrif jafnaðarmanna fara að verða vemleg og varandi í þessu þjóðfélagi mun hinn almenni vinn- andi maður geta lifað góðu lífí af átta stunda vinnudegi. Þá verður gott að lifa í þessu landi. Jafnaðarstefnan er göfugasta Öryggi við hvert fótmál SINDRA STALHR Pósthólf 880, Borgartúni 31, 105 Reykjavík, sími: 27222. Allar nánari upplýsingar veita: Helgi Gústafsson, tæknifræöingur sími 27222 Siguröur Jónsson, tæknifræöingur sími 27222 WELAND rístarefni og stigar WELAND áviö ... • Þegar þið hanniö eöa smíöiö stigapalla, stiga milli hæöa, stiga á tanka eða land- göngubrýr. • Þegar ykkur vantar ristarefni þar sem loft og Ijós þarfaö komast á milli hæða. • Þegar gæta þarf fyllsta öryggis varðandi þrep og palla utan dyra, t.d. vegna snjóa og hálku. • Alls staðarþarsem aðstæðureru erfiðar. WELAND: Ristarefni, stigaþrep, hringstigar, álristar, handrið, öryggisútbúnaður. Efni vegna sérverkefna og sérsmíða. Efnisgæði: Stálristar St. 52-3 Annað efni St. 37-2 Yfirborð: Svart, málað, galvaniserað. Bætt vinnuaðstaða og aukið öryggi starfs- fólks eru góð fjárfesting. Þegar við bætast efnisgæði og hagstætt verð eru kostir WELAND enn augljósari. HÖNNUÐIR VERKTAKAR VELSMIDJUR ! Guðjón V. Guðmundsson „Formaðurinn, Jón Baldvin, er glæsilegur foringi enda jafnaðar- menn mjög stoltir af honum.“ hugsjón sem nokkm sinni hefur komið fram, eða hvað getur betra og fegurra en jöfnuður, friður og réttlæti meðal manna? Eins og skáldið segir á einum stað: Allt skal fijálst, allt skal jafnt, réttan skerf sinn og skammt á hvert skap- arans bam allt frá vöggu að gröf. í komandi kosningum verða það íhaldsöflin sem kalla sig Sjálfstæð- isflokk og jafnaðarmenn undir merkjum Alþýðuflokksins sem munu takast á. Sjálfstæðismennimir fínna það og skynja alls staðar eins og aðrir, að straumurinn liggur til Alþýðu- flokksins og einmitt þess vegna er djöfulgangur þeirra slíkur, sem raun ber vitni, þeir em þegar komn- ir á hnén og munu aldrei rísa aftur upp til fulls, dagar þeirra em tald- ir, drottnunarvaldi þeirra er lokið. Jafnaðarmenn hafa það að leiðar- ljósi, að meðan íhaldið brýst um á hæl og hnakka, bölvar og stynur, þá era þeir á réttri leið. Fegurra mannlíf á íslandi. X-A 25. apríl nk. Höfundur er sjúkraliði. Kvennalistinn; Stjórnvöld endur- meti störf kvenna MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá Kvenna- listanum: „Fundur Kvennalistans á Hótel Borg laugardaginn 21. mars lýsir yfír fullum stuðningi við þær fjöl- mörgu starfsstéttir, sem nú heyja baráttu við ríki og borg fyrir bætt- um kjöram. Það vekur sérstaka athygli að konur em þama í miklum meirihluta enda launakjör þeirra slík að til auðnar horfir í fjölmörg- um kvennastörfum. Fundurinn skorar á stjómvöld að ganga nú þegar til samninga og hefjast handa um gagngert endur- mat á störfum kvenna, sem hafí það að leiðarljósi að sú ábyrgð, sem felst í þessum störfum er mikil.“ Occult-klúbb- ur stofnaður STOFNFUNDUR nýs klúbbs sem nefnist Occult-klúbbur verður nk. sunnudag 29. mars kl. 16.00 í Djúpinu. Klúbbur þessi mun fjalla um hin fomu vísindi þar sem sviðin verða fyrst og fremst maðurinn og um- hverfi hans í endalausum lífshring. (Fréttatilkynningj

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.