Morgunblaðið - 26.03.1987, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 26.03.1987, Qupperneq 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ Þau eru ekki að um neitt! biðja eftírÁsdísi Skúladóttur í síðustu viku barst mér bréf frá | Landssamtökum þroskahjálpar og Öiyrkjabandalagi íslands. Þar í var hefti sem nefnist „Hver kýs hvað?“ með upplýsingum um stöðu mála og helstu áherslur í málefnum fatl- aðra og bréf með spumingum til frambjóðenda. Ég settist niður með plöggin og hugsaði eitthvað á þá leið hvort þau myndu nú skjóta yfir markið í kröfugerð eins og oft er nauðsynlegt til þess að á sé hlust- að. Þó vissi ég harla vel að það hefur svo sannarlega ekki verið háttur fatlaðra í baráttu sinni fyrir réttlætinu. Ég las heftið allt vandlega yfir og spumingalistann sem með fylgdi. Að lestrinum loknum skammaðist ég mín fyrir hugrenn- ingar mínar. Eg sá að nú sem oft áður eru þau ekki að biðja um neitt. Þau era einungis að biðja um það enn og aftur að fá að njóta grundvallarmannréttinda í samfé- laginu og þess að farið sé að lögum. Lágmarks lífsgæði ★ Þau fara fram á að staðið verði við fjárveitingar til Fram- kvæmdasjóðs fatlaðra sam- kvæmt lögum um málefni fatlaðra. ★ Þau biðja um að fötluð böm fái þjálfun og kennslu við hæfi í uppeldis- og menntastofnunum. ★ Þau fara fram á að fötluð ung- menni eigi þess kost að fá þjálfun og kennslu eftir að grannskóla lýkur. ★ Þau fara fram á að eiga kost á húsnæði við hæfí. ★ Þau fara fram á að starfsgeta fatlaðra sé nýtt ogþeim sé sköp- uð aðstaða til starfa sjálfum sér til heilla og samfélaginu til gagns. ★ Þau fara fram á að komast leið- ar sinnar um mannvirki og útivistarsvæði. ★ Þau fara fram á að staðið verði við það loforð að öryrkjar njóti samsvarandi fyrirgreiðslu við kaup á bifreið og var fyrir tolla- lækkunina 1986. ★ Þau fara fram á að þjónusta við fötluð böm og aðstandendur þeirra verði bætt í víðtækum skilningi. ★Þau fara fram á að flýtt verði endurskoðun á almannatrygg- ingakerfínu. Of stutt skref Það var sannarlega gleðiefni þeg- ar lög um málefni fatlaðra gengu í gildi og margur horfði bjartari augum til framtíðarinnar. Enda fór það svo að mikil hreyfíng komst á þessi mái í upphafí og það skal metið sem vel hefur verið gert af hálfu opinberra aðila og svæðis- stjóma. Hitt er annað mál að það er óralangur vegur að því markmiði sem lögin setja. En um markmið þeirra segir svo m.a. í 1. gr.: „Markmið þessara laga er að tryggja fötluðum jafn- rétti og sambærileg lífskjör við aðra þjóðfélagsþegna og skapa þeim skilyrði til þess að lifa eðlilegu lífí og hasla sér völl í samfélaginu þar sem þeim vegnar best...“ Það er auðvelt að skilja vonbrigði fatlaðra og aðstandenda þeirra þegar litið er til framkvæmda laga um málefni fatlaðra. Það er líka auðvelt að taka undir afdráttarlausa kröfu þeirra um að staðið verði við þau loforð sem þau fela í sér. Linnulaus barátta Eins og sjá má af framantöldu er af mörgu að taka þegar rætt er um úrbætur í málefnum fatlaðra. En mig langar sérstaklega til að minnast á það erfíða hlutverk sem foreldrar og aðstandendur fatlaðra bama og unglinga standa andspæn- is. Vinnuálag þessa fólks er ólýsan- legt. í ágætri grein sem Ásta B. Þor- steinsdóttir skrifaði í Morgunblaðið 21. þessa mánaðar era aðalþættir þessa máls raktir á mjög skýran hátt. En hún segir m.a. í grein sinni: „Meir en 400 fatlaðir bíða eftir úrræðum í húsnæðismálum. Foreldrar fatlaðra bama era marg- ir hveijir að kikna undir því álagi, líkamlegu og andlegu, sem því fylg- Ásdís Skúladóttir * „Eg sá að nú sem oft áður eru þau ekki að biðja um neitt. Þau eru einungis að biðja um það enn og aftur að fá að njóta grundvallar- mannréttinda í sam- f élaginu og þess að farið sé að lögum.“ ir að annast mjög fatlað bam fram á fullorðinsár. Urræði, svo sem skammtímavistun fyrir fötluð böm, sem veitt gætu fjölskyldum þeirra stutta hvíld era því miður af alltof skomum skammti." Þessi stutta setning felur í sér mikinn sannleik og er neyðaróp um þjónustu sem þarf að koma á í ríkari mæli og það nú þegar. For- eldrar fatlaðra bama sem ekki fá nema lítinn stuðning geta ekki sagt og segja ekki einn daginn: „Nú er- um við orðin uppgefín og getum ekki meir.“ Nei, foreldramir beijast áfram þar til orkuforðinn er búinn. Oft er fjölskyldan öll komin á fé- lagslega heljarþröm. Þennan þátt er einfaldlega hægt að leysa með því að veita meira fjármagni í skammtímavistir og I sambýli og skapa samhliða þær ytri félagslegu aðstæður sem þarf til að létta álagið sem þessar fjöl- skyldur búa við. Smánarblettur í bréfí því sem ég minntist á í upphafi er m.a. spurt á þennan veg: „Vissir þú að sumir fatlaðir og íjölskyldur þeirra lifa lífí sem þú gætir ekki hugsað þér fyrir þig og þína fjölskyldu?" Þessarar spumingar er ekki spurt að ástæðu- lausu og það þarf t.d. ekki langan starfstíma á félagsmálastofnun til að uppgötva þann sannleik. Ég ætla hér einungis að nefna eitt lítið peningadæmi. Ef þú ert öryrki færð þú í bætur á mánuði 22.523 kr. Lífeyrirv/75%örorku kr. 7.371 Full tekjutrygging kr. 10.801 Heimilisuppbót kr. 4.351 Samtals kr. 22.523 Mundir þú vilja lifa af þessum tekjum? Eða ætti ég kannski að orða spuminguna á þennan veg: Gætir þú lifað af þessum tekjum? Þessar tölur era smánarblettur á samfélagi sem kennir sig við lýð- ræði, jöfnuð og siðmenningu. Að afmá hann með öllu er fyrst og fremst spuming um pólitískan vilja þeirra sem stjóma. Höfundur er félagafræðingur við Félagsmálastofnun Kópavogs og skipar þriðja sæti G-tistans í Rcykjaneskjördæmi. Gildi stangveiði á laxi og silungi Frá Meðalfellsvatni í Kjós. eftír Einar Hannesson Allir sem veiðiskap stunda era sammála um að það sé hressandi endumæring og gleði sem fylgi þeirri iðju, að fara með veiðistöng. Þeim tómstundum er því vel varið, sem menn eyða við ár og vötn. Það sama má vissulega segja um ýmsa aðra holla þætti útivera, sem menn iðka í frítíma sínum. Auk þess að vera hvíld frá amstri daganna. Rík veiðigleði Skoðun þessa um ágæti veiði- skapar má sjálfsagt rekja til þeirrar góðu hreyfíngar, spennu og eftir- væntingar, sem grípur veiðimann- inn, auk ánægjunnar við að njóta náttúrafegurðar. Þá eykur það einnig gildi veiðiferðar að vera í glöðum hópi góðra félaga. Eftir- máli veiðiferðar er oft ekki síður skemmtilegur, þ.e. að rifja upp með frásögn af velheppnaðri veiðiferð í íjölskylduranni eða öðrum vinahópi að vetrinum. Þá er silungsveiðin góð fjölskylduskemmtun. 20% landsmanna stunda stangveiði í könnun sem Félagsvísinda- stofnun Háskólans gerði 1981 á tómstundaiðju landsmanna, kom í ljós að um 20% íslendinga stunduðu stangveiði meira eða minna reglu- lega. Þeir sem svöraðu spuming- unni játandi stunduðu stangveiði frá 2—22 daga á ári. Rúmlega helmingur þeirra stunduðu einungis | silungsveiði, tæplega 17% eingöngu laxveiði og um 26% bæði lax- og Við laxveiðar í Elliðaánum undir brúnni á þjóðvegi. „Þeim tómstundum er því vel varið, sem menn eyða við ár og vötn. Það sama má vissulega segja um ýmsa aðra holla þætti útiveru, sem menn iðka í frítíma sínum.“ silungsveiði. Flestir veiðimenn stunduðu veiðar með einhveijum öðram, þ.e. fjölskyldumeðlimum eða vinum, vinnufélögum, eða tæp- lega 80%. Helstu annmarkar við að stunda stangveiði töldu tæplega 50% vera tímaskort, en bara 4,5% gáfu upp að kostnaðurinn væri of hár. Af úrtaki þeirra sem svöruðu í þessari könnun Félagsvísindstofnunar vora um 67% launþegar, atvinnurekend- ur vora um 21% og um 3% blandað. Mikil verðmæti Margt sem fylgir veiðiskapnum er unnt að meta til Qár. En annað, svo sem vægi hans fyrir manninn sjálfan sem stundar stangveiði, er erfítt að verðleggja, enda mælistika til þess vart fyrir hendi. Sumir segja að þessi þáttur sé ómetanlegur. Áugljóst er þó, að miklir Qármun- ir era í þessari grein útilífsiðkunar bæði hvað varðar tæki og búnað veiðimannsins, ferðir, gistingu og fæðiskostnað. Þá er ótalið veiðileyf- ið, sem er mjög breytilegt hvað verð snertir. Gildir það ekki síst í sambandi við hvar veiðiskapurinn fer fram og á haða tíma sumars. Þannig getur kostnaður við eina stöng á dag í silungsveiði verið frá hundraðum króna og upp í tvo tugi þúsunda, ef um dýrari laxveiðileyfí er að ræða. Breiður þjóðfélags- hópur í veiðinni Því er oft haldið fram, að aðeins Qársterkir aðilar geti stundað lax- veiði á stöng hér á landi. Það má segja að þetta sé að hluta til rétt, ef dýrastu veiðileyfí era sýnd. En á hinn bóginn stenst það ekki al- mennt, vegna þess að svo þjóð- félagslega séð er sá hópur breiður þar sem era íslenskir stangveiði- menn, sem laxveiði iðka. Að þessu tilefni má minna á til samanburðar ýmislegt annað en veiðiskap sem menn taka sér fyrir hendur í frítíma sínum, tímabundið eða á ársgrandvelli. Athafnir sem þeir eru tilbúnir að borga töluvert fyrir, án þess að það sé haft á orði, að aðeins efnaðir menn geti leyft sér slíkt. Stangveiddur lax á 5.300 krónur í athugun sem höfundur greinar þessarar gerði á leigutekjum 21 laxveiðiár víðsvegar um land árið 1985, kom í ljós að meðaltalsverð á hveijum veiddum laxi í heild í öllum þessum ám var 5.300 krónur til veiðieigenda. Lögð var til grand- vallar þessum útreikningi meðal- veiði á ári á tíu áram frá 1976—1985, sem ætla verður að gefí nokkuð rétta mynd af árlegri veiði í fyrrgreindum ám. Lægsta verð á meðaltalslaxinum í einstök- um ám var 1.600 krónur, en hæsta verð um 8.100 krónur. Á þessu má sjá, að verðmæti laxveiðihlunninda er býsna hag- stætt, hvað varðar laxveiði á stöng. Má segja að verðið hafí verið um fímmfalt betra en meðalverð á net- veiddum físki fyrrgreint ár og er þá miðað við krónuverð á laxi. Þá á eftir að draga frá kostnað við netaveiðina frá téðri fjárhæð. Er því munurinn í raun enn meiri. Laxveiðiárnar 3.800 km á lengd Til nánari fróðleiks um íslensku laxveiðiámar má geta þess, að líklegt er, að heildarlengd beggja bakka þeirra sé um 7.600 km á lengd. Hér er um gróft mat á þessu að ræða, sem tekur í heild til um 102 vatnakerfa sem ná til 134 lax- veiðiáa. Hins vegar má gera ráð fyrir, að heildarlengd allra lax- og göngusilungsáa í landinu muni vera um 11 þúsund km séu báðir bakkar taldir. Þá era ótalin hundrað sil- ungsvatna, stór og smá, víðsvegar um land. Það er því yfirleitt rúmt um veiðimennina við ámar og vötn- in okkar. Sem fyrr greinir, verður niður- staðan sú þegar skoðuð er lauslega heildarlengd íslensku laxveiðiánna, að hún sé um 3.800 km. Hins veg- ar er lengd þess hluta þeirra, sem laxinn kemst um, líklega nálægt 1.900 km eða 50% af heildarlengd þeirra. Hlutfall þetta er breytilegt eftir landshlutum. Þannig er það hagstæðast í Reykjavik og Reykja- neskjördæmi, eða 74% af heildar- lengd laxveiðiánna, en lægst á Norðurlandi. eystra og á Vestfjörð- um, 35% í hvoram landshluta. Mikill munur er á lengd einstakra vatnsfalla, eins og eðlilegt er. Sama gildir um meðallengd straumvatna í landshlutum. Þannig er hún mest á Norðurlandi eystra, eða 59 km, en minnst á Reykjanesi, 8 km. Meðallengd er hins vegar 28 km á landinu í heild. | Nú styttist óðum í sjóbirtings- veiðina, en veiðitíminn hefst 1. apríl. Flestir laxveiðimenn eru Iíklega þegar búnir að tryggja sér veiðileyfí á næsta sumri, því flestum leyfum er ráðstafað með mjög góð- um fyrirvara. Hins vegar er auðvelt að komast í silungsveiði mjög víða í stöðuvötnum hér og þar um landið. Handbækur Landssambands veiði- félaga, „Vötn og veiði", era mjög gagnlegar fyrir þá, sem stefna í silungsveiði í sumar. Höfundur er skrifstofustjóri VeiðimAIastofnunar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.