Morgunblaðið - 26.03.1987, Page 57

Morgunblaðið - 26.03.1987, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ 57 í sundfélaginu Ægi. Þær systur urðu mjög þekktar sundkonur og unnu mörg afrek á því sviði. Þegar fjölskylda mín flutti úr Laugamesi slitnuðu að mestu þau bönd er tengdu okkur því ágæta fólki sem bjó á Laugamessvæðinu. Sveina giftist seinna mannkosta- manni, Bimi Pálssyni sjúkraflug- manni, en hann fórst í flugslysi eins og flestum er kunnugt og var hann öllum harmdauði sem hann þekktu. Um það þarf ekki að ræða hversu mikil raun það hefír verið nánustu aðstandendum, eiginkonu og böm- um. En Sveina var ekki sú manngerð að láta bugast. Hún taldi sig alltaf mikla hamingjukonu, bömin öll gáfað og duglegt fólk, sem ásamt mökum sínum bám hana á höndum sér. Ég endumýjaði kunningsskapinn við Sveinu, sem varð að vináttu, í gegnum Jóhönnu (Öddu) systur mína, en þær vom miklar vinkonur á siðustu ámm. Sveina var með afbrigðum skemmtileg kona og eig- um við Heiga ógleymanlegar minningar um samvemstundir með henni og hennar samheldnu §öl- skyldu. Sveina var mjög músíkölsk, hún sótti alla tónleika sem hún komst yfír að fara á, var fastagestur á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinn- ar og átti mikið af úrvals tónlist á plötum. Ég hefí tæplega áttað mig á því enn að Sveina sé farin frá okkur. Við Helga og Adda vottum allri fjöiskyldunni innilega samúð. Rögnvaldur Siguijónsson Einn af kirkjunnar þjónum hafði á orði að homsteinn lífshamingj- unnar væri þakklæti. Hvort sú sannfæring samrýmist þeirri hug- mynd að íslendingar séu hamingju- samasta þjóð veraldar skal ósagt látið. En víst er að orðin eiga við um tengdamóður mína. Jafnvel um áramótin síðustu er hún stóð and- spænis alvarlegum sjúkdómi vék þakklætið ekki úr huga hennar. Þakklæti fyrir hvem þann dag sem hún átti með ættingjum og vinum, þeim stóra hópi sem hún lagði rækt við alla tíð. Móðurhlutverkið skipaði æðstan sess í lífí Sveinu, öðram til gæfu og henni til ánægju og lífsfyllingar. Glaðværðin var ráðandi og tónlistin í hávegum. Ungir sem aldnir vora jafningjar í samvistum við Sveinu. Undanfama þijá mánuði dvaldist Sveina á heimili okkar Heiðu. Við voram svo lánsöm að búa í stóru húsi sem gat rúmað þriðju kynslóð- ina, og brátt tók að lifna yfír vistarveram. Ýmist hringdi síminn eða dyrabjallan nema hvora tveggja væri og „Dopþa" hafði ekki við að gelta. Það var ekki laust við að húsbóndinn væri stoltur yfír tíðum mannaferðum heim traðimar. Sveina tók á móti gestum og mannlífíð blómgaðist. í ljós kom að hafí húsið verið stórt fyrir reyndist það aldrei eins óþarflega stórt og nú. Allir vora saman komnir inni hjá Sveinu og oft þurfti að fara langar leiðir til að ná í símann. Stofumar stóðu auðar nema ef húsbóndinn dró sig í hlé og sofnaði fyrir framan sjónvarpið. Þannig gekk um hríð og amma Sveina hafði yfírhöndina í baráttunni sem háð var í bakgranni. Smám saman færðist erfitt stíð í forgrann, en Sveina og böm hennar létu ekki bilbug á sér fínna. Kjarkurinn og lífsviljinn var ótrúlegur og mann- legri reisn var haldið til hinstu stundar. Svo kom að ekki varð leng- ur við ráðið og Sveina var flutt í spítalann. Þar átti hún skamma viðdvöl og getur allt eins hugsast að sjúkraflugmaðurinn Bjöm Páls- son hafí bragðist skjótt við og bjargað eiginkonu sinni yfir til sín I betri heim. Þakklæti fyllir hugann fyrir að hafa fengið að njóta alls þess sem Sveina veitti af örlæti sínu og lífsgleði. Guð blessi og varðveiti minningu Sveinu Sveinsdóttur. Tengdasonur Sveina Sveinsdóttir á Rauðalæk 6 í Reykjavík andaðist að morgni laugardagsins 21. mars sl. 70 ára að aldri. Þar lauk ævidegi konu, sem verður eftirminnileg öllum þeim, sem kynntust henni. Og víst er, að í henni mun margur sakna góðs vinar, vegna þess að hún var mikill vinur vina sinna. Þar var engin hálfvelgja á ferðum. Sveina fæddist á Ásláksstöðum á Vatnsleysuströnd 9. maí 1916 dóttir hjónanna Sveins Einarssonar múrarameistara og Amheiðar Bjömsdóttur. Sveinn var sonur hjónanna Einars Bjamasonar og Ragnhildar Jónsdóttur að Heiði á Síðu. Amheiður var dóttir hjónanna Bjöms Magnússonar og Amdísar Erlendsdóttur i Þjóðólfshaga í Holt- um. Þannig var Sveina komin af sunnlensku bændafólki í báðar ætt- ir. Hinn skaftfellski upprani hennar leyndi sér ekki. Sveina var óvenju- lega glæsileg kona, hávaxin og myndarleg og yfír henni var sérstök reisn. Þessi reisn átti sér djúpar rætur í skaphöfn hennar og við- horfum hennar til lífsins og samferðarmanna. Hún vissi, hvað það er að vera maður. Hún var mjög eindregin í afstöðu sinni til alls og meðalmennskan átti ekki uppá pallborðið hjá henni. Hún var mjög stolt af sér og sínum og sagði, að ekki væri hægt að ætlast til þess að aðrir bæra virðingu fyr- ir manni, ef maður gerði það ekki sjálfur. Sveina ólst upp á Vatnsleysu- strönd og síðar í Laugamesinu með systram sínum, þeim Þórunni, Am- heiði og Jónu tvíburasystur sinni. í Laugamesinu bjó fjölskyldan lengst af að Heiði. í nafrigift hússins fólst ræktarsemi föður hennar við heima- slóðir sínar, en slík ræktarsemi var einmitt eitt af höfuðeinkennum Sveinu. Aðeins fátt fólk hef ég heyrt tala af jafnmiklum innileik og djúpri virðingu um foreldra sína og hana tengdamóður mína. í samræmi við það kölluðu þau Bjöm húsið sitt í Mosfellssveit að Heiði. Og sagan Fædd 12. júní 1918 Dáin 8. mars 1987 Ingibjörg Jónsdóttir fæddist á Þingeyri 12. júní 1918. Hún var dóttir hjónanna Jóns Sigurðssonar skósmiðs og Valgerðar Tómasdótt- ur. Þeim hjónum varð 6 bama auðið. Þegar Ingibjörg var innan fermingar flutti hún með foreldram sínum að Gili í Mýrarhreppi í Dýra- firði, þar sem Oddur bróðir hennar býr nú. Eftir fermingaraldur fór Ingi- björg til Reykjavíkur. Fyrstu árin var hún í vist, en síðan hóf hún störf í sælgætisverksmiðjunni Víkingi, þar sem hún vann í 17 ár. Ingibjörg kynntist eftirlifandi manni sínum, Jóni Vilhjálmssyni vélstjóra, árið 1946. Þau giftu sig árið 1947 og hófu búskap. Síðar keyptu þau kjallaraíbúð í Blönduhlíð sem þau innréttuðu sjálf og bjuggu í allt til 1970 en þá eignuðust þau einbýlishús í Hlíðarhvammi 7 í Kópavogi, þar sem þau bjuggu síðan. Ingibjörg vann fyrir heimilinu á meðan Jón fór í Vélskólann. Þá naut fólk ekki námslána, en með samhjálp, vinnusemi og seiglu kom- ust þau vel af. Þegar Jóhannes og Tómas bræð- ur hennar vora ungir menn í námi hér syðra nutu þeir aðstoðar Jóns og Ingibjargar. í garðinum í Hlíðarhvammi unnu þau mikið verk, enda fengu þau verðlaun fyrir verkið. Ingibjörg unni gróðri og tré og blóm náðu þroska í garðinum í Hlíðarhvammi svo undran sætti. Falleg beð, hleðslur og blómaskrúð vakti athygii allra, sem framhjá fóra. Frístundum sínum eyddu þau Jón og Ingibjörg flestum í ræktunarstarfið. í Hlíðarhvammi urðu þau ná- grannar foreldra minna, Láru Pálsdótt.ur og Einars Guðmunds- sonar. Með þeim tókst gott og mikið samband, eins og best verður milli endurtók sig oftast, því sömu virð- ingu og þvílíkan sess ávann hún sér í hugum barna sinna og bamabama og einnig tengdafólks og vina. Það voru hennar óviðjafnanlegu eigin- leikar til þess að láta fólki líða vel í návist sinni, sem löðuðu fólk að henni. Árið 1939 giftist Sveina Bimi Pálssyni, sem síðar varð lands- frægur flugmaður. Þau áttu §ögur böm, þau Svein, Sólrúnu, Amheiði og Bimu. Gestrisni þeirra hjóna og samheldni var mikil. Heimilið var stórt og fjölsótt af vinum og vanda- mönnum og var þar oft glatt á hjalla. Þáttur Sveinu í rekstri sjúkraflutningsins verður seint full- metinn, en í dag eru nákvæmlega 14 ár liðin frá því að Bjöm Pálsson fórst með flugvél sinni Vorinu. Á sínum jmgri árum var Sveina mikil sundkona og þær systur all- ar. Hún átti um langt skeið met í 100 metra bringusundi, sett í sjón- um við Örfírisey. Einn vetur var hún á Fáskrúðsfirði og stundaði þar sjóböð reglulega allan veturinn. Sundið átti mikil ítök í henni og stundaði hún það fram á síðustu mánuði ævi sinnar. Um áramótin kom í ljós, að hún var haldin alvarlegum sjúkdómi. Heilsu hennar hrakaði mjög fljótt. Hún tók þessu öllu af stakrí karl- mennsku og hélt reisn sinni til hins síðasta. Hún fór í óperana og á tónleika og fékk til sín vini og kunn- ingja. Aðdáunarverð ró hennar og æðruleysi verða minnisstæð okkur, sem þekktum hana. ' I dag kveðja ættingjar og vinir Sveinu Sveinsdóttur hinstu kveðju. Með þeim mun lifa minningin um einstaka konu. Hún er lögð til hinstu hvflu við hlið eiginmanns síns. Megi hún hvfla í friði og hafí hún þökk afkomenda sinna og sam- ferðarmanna fyrir allt. Blessuð sé minning Sveinu Sveinsdóttur. Viðar Ólafsson góðra granna. Móðir mfn og Ingi- björg skrappu gjarnan í kaffí hvor hjá annarri og gættu bús og vökv- uðu blóm, ef fara þurfti frá húsi. Þegar garðvinnan var í algleym- ingi um góðviðrishelgar á sumrin, gengu þau á milli garðanna, skipt- ust á góðum ráðum og vegsömuðu verkin. Ingibjörg var sjálfboðaliði í störf- um Garðyrlqufélags íslands og var heiðrað á 100 ára afmæli félagsins. Faðir Ingibjargar gerði eitt sinn verkfall í vinnu hjá Norðmönnum í hvalstöð í Dýrafírði. Hann vann þar félögum sínum sigur með einarðri en sanngjamri framgöngu sinni. Þetta sama fas hlaut Ingibjörg að erfðum og hafði vinskap og virð- ingu samferðamanna sinna. Ingi- bjöig var borin til grafar að viðstöddum nánum vinum og venslafólki fímmtudaginn 19. mars 1987. Þegar hún lést hafði hún sáð fyrstu fræjunum í Hlíðarhvammi. í vor munu þau bera verkum hennar fagurt vitni. Guðmundur Einarsson, alþmgismaður. Ingibjörg Jóns- dóttir - Minning É. A Flug/sigling - bíll 1987 - fjölmargir möguleikar - Bjóðum upp á námskeið fyrir ferðalanga sem hyggjast ferðast um Evrópu. 1. Undirbúningur ferðar. 2. Fjárhagsáætlun. 3. Skipulagning, áfangar og gististaðir. 4. Notkun korta og upplýsingaöflun. 5. Helstu sérákvæði í umferð erlendis. 6. Akstur á hraðbrautum. 7. Nokkrar hagnýtar ráðleggingar. Námskeiðið verður á Akureyri laugardaginn 28. mars, kl. 10.30-15.30 í „Fiðiaranum“. Ennfremur á Hótel Loftleiðum, Reykjavik, þriðju- daginn 31. mars kl. 17.45. Innifalið í námskeiðinu: Matur, kort og kennsla. Verð kr. 900,- (kr. 700,- fyrir félagsm. F.Í.B.). Afsláttur fyrir hjón. Nðnari upplýsingar og innritun á Ferðaskrif- stofu Akureyrar, sími 96-25000 eAa á skrif- stofu F.Í.B. í Reykjavík, sími 91-29999. FLUGLEIDIR FRI Feróaskrifstofa Ríkisins Námskeiðið er haldið ísamráði við Umferðarráð. FERMINGAR- NÁ TTKJÓLAR léttir og nýtískulegir náttkjólar. Margir litir — mikið úrval. Náttfatnaður fyrir allan aldur. 'M Glæsibæ Álfheimum 74 s: 33355

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.