Morgunblaðið - 26.03.1987, Síða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ
t
Maðurinn minn,
JÓN SIGURÐSSON,
trésmiður,
Austurbrún 4,
lést í Borgarspítalanum þriðjudaginn 24. mars.
Guðríöur Einarsdóttir.
t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
LÁRUS SALÓMONSSON, fyrrum yfirlögregluþjónn,
lést 24. mars.
Ármann J. Lárusson, Björg Árnadóttir,
Grettir Lárusson, Ólavía Þórðardóttir,
Kristján H. Lárusson, Brynja Lárusdóttir, Lárus Lárusson, Sigurlaug E. Björgvinsdóttir, Júlfus Einarsson, Agnes T ryggvadóttir,
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR RÓSINKARSSON,
ísaflrði,
lést á Landakoti þriðjudaginn 24. mars.
Sölvey Jósefsdóttir,
Bergmann Ólafsson, Ardís Gunnlaugsdóttir,
Guðmundur K. Ólafsson, Stefanía Eyjólfsdóttir,
Margrét B. Ólafsdóttir, Eirikur Krlstófersson,
Jakob R. Ólafsson, Ingibjörg Þorvarðardóttir,
barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
EINAR HJÖRLEIFSSON,
Melabraut S, Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavik föstudaginn 27.
mars kl. 10.30.
Guðrún V. Einarsdóttir,
Hjörleíf Elnarsdóttir,
Sveinbjörn Þ. Einarsson,
tengdabörn og barnabörn.
t
Móðir mín,
GÍSLÍNA GUÐRÚN EYJÓLFSDÓTTIR,
Reynivöllum 3,
Selfossi,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 28. mars kl. 14.00.
Fyrir hönd ættingja hinnar látnu,
Guðrún Ásbjörnsdóttir.
" Móðir okkar og tengdamóðir, h
GUÐNÝ RÓSA JÓNASDÓTTIR
frá Bakka í Hnffsdal,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 31. mars kl. 13.
30. -
Jónas Elfasson, Halldór 1. Elíasson, Ásthildur Erlingsdóttir, Björg Cortes Stefánsdóttir,
Þorvarður Elfasson, Elías B. Elfasson, Margrét Elíasdóttir. Inga Rósa Sigursteinsdóttir, Rannveig Lind Egilsdóttir,
t
Eiginkona mín og móðir,
HILDUR ÞURÍÐUR BÓASDÓTTIR,
er lést þann 20. þ.m. veröur jarösungin frá Fossvogskapellu föstu-
daginn 27. þ.m. kl. 15.00 síðdegis. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaöir en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á
Styrktarfélag lamaðra og fatlaöra.
Hlöðver Kristinsson,
Hermann Hlöðversson.
Lokað
verður fyrir hádegi á morgun, föstudaginn 27. mars,
vegna jarðarfarar EINARS HJÖRLEIFSSONAR.
Smjörlíki — Sól hf.
Sigurbjörg Gunnars-
dóttir — Minning
Fædd 8. desember 1913
Dáin 18. mars 1987
Miðvikudagsmorguninn 18. mars
sl. lést í Norðfjarðarspítala tengda-
móðir mín Sigurbjörg Gunnars-
dóttir. Hún fæddist 8. desember
1913 á Egilsstöðum í Fljótsdal,
dóttir hjónanna Gunnars Sigurðs-
sonar og Bergljótar Stefánsdóttur.
Um bemsku hennar veit ég lítið,
en örlögin höguðu því þannig að 7
ára var hún látin í fóstur til hjón-
anna á Arnaldsstöðum í Suðurdal,
Helgu Torfadóttur og Páls Ólafs-
sonar.
Ef hugsað er um aðstæður nú
og þá koma manni í hug ýmsar
sögur sem fóru af bömum sem lát-
in vom í fóstur. Sum voru heppin
en önnur vansæl. Um vist Sigur-
bjargar á Amaldsstöðum veit ég
lítið en það hef ég fundið í gegnum
árin að til Páls stjúpa síns bar hún
hlýhug.
Systkinin á Egilsstöðum voru 14
en eru nú 7 á lífí. Handlagni og
dugnaður einkenndi þau sem ég hef
kynnst, auk hæfíleika sem ég hef
ekki vit á að tala um.
Einum degi eftir lát Sigurbjargar
barst okkur dánarfregn úr Fljóts-
dalnum. Guðfínna, systir hennar,
hafði orðið bráðkvödd þar sem hún
var við bústörfín, en hún bjó á
Egilsstöðum ásamt fjórum systkin-
um sínum.
í systkinahópinn á Egilsstöðum
hefur verið höggvið stórt skarð á
undanfömum árum. Þau sem ég
vil sérstaklega minnast eru Sigurð-
ur, Stefán og Sigríður.
Sigurði kynntist ég best þar sem
hann þurfti að dvelja í Reykjavík
vegna veikinda af og til í tvö ár.
Aðdáunarvert var það þrek og
seigla sem Sigurður sýndi á þessum
árum.
Sigríður var sú kona sem enginn
kom að óvörum. Þar komu best í
ljós hæfíleikar hennar á æðri svið-
um.
Þessi fátæklegu orð mín áttu að
verða í minningu tengdamóður
minnar, en svo sterk bönd tengjast
fólkinu á Egilsstöðum eins og við
köllum það að mér er ljúft að
minnast þeirra.
Um tvítugt fór Sigurbjörg í Hús-
mæðraskólann á Hallormsstað.
Myndir frá þeim tíma sýna að glæsi-
leg stúlka hefur lagt út á lífsbraut-
ina og er ekki að furða þó að Jón
Finnsson tengdafaðir minn hafí
rennt hýru auga til hennar, en þau
höfðu kynnst á Seyðisfírði þar sem
hún vann á sjúkrahúsinu. Þau giftu
sig 10. júlí 1937, hófu búskap á
Ágiskun
eða þekking á Guði
Getum við í raun og veru vitað nokkuð um Guð? Þegar
litið er á allar hugmyndir fólks og þessar mismunandi kirkj
ur og ólíku trúarbrögð þá virðist mér að þetta séu allt
ágiskanir um Guð.
Það er rétt að heimurinn er fullur af trúarbrögðum. Menn-
imir eru haldnir ólæknandi trúhneigð. Það er sama hvað
samfélagið er frumstætt, eða þróað, hugmynd um æðstu veru
er alls staðar fyrir hendi. Eg held þú hafir líka rétt fyrir þér í
því að trúarhugmyndirnar eru að mestu leyti ágiskanir manna
um Guð. Þegar Páll heimsótti Aþenu fann hann altari sem
helgað var „óþekktum guði“.
En getum við þekkt Guð og komist að raun um hvernig
hann er? Já! Og meira en það: Við getum þekkt hann með því
að eignast persónulegt samfélag við hann. Þetta er dýrlegur
sannleikur. Eg bið þess að þú komist sjálfur að raun um þenn-
an mikla sannleika.
Hvernig megum við þekkja Guð? Við getum þekkt hann
vegna þess að hann hefur ekki ætlað okkur að ráfa um kring
og velta vöngum í óvissu um sig. Nei, hann hefur þvert á
móti opinberast okkur.
Biblían segir að hann hafi birt sjálfan sig að nokkru leyti
í sköpunarverkinu. „Eilífur kraftur hans og guðdómleiki" (Róm.
1,20). En Biblían gengur lengra og segir að Guð hafi opin-
berast í sögu mannkynsins. Frásögurnar um það eru í Biblíunni.
Hún greinir frá því að mesta stórvirki Guðs hafi verið að
hann sendi son sinn Jesúm Krist í heiminn. Svo er ritað í
Biblíunni: „Enginn hefur nokkurn tíma séð Guð. Sonurinn ein-
getni sem hallast að bijósti föðurins, hann hefur veitt oss
þekking á honum“ (Jóh. 1,18).
Hvernig vitum við að Jesús var raunverulega sonur Guðs
og segir okkur sannleikann um Guð? Eg veit það vegna þess
að Jesús Kristur reis upp frá dauðum — og það greinir hann
frá öllum öðrum sem uppi hafa verið.
Þú getur þekkt Guð persónulega með því að vígja líf þitt
Jesú Kristi. Eg bið þess að þú stígir það trúarskref og sðan
vaxir þú í samfélagi við Guð er þú lærir um hann í Biblíunni.
Lokað
Prentsmiðjan verður lokuð eftir hádegi í dag, fimmtu-
daginn 26. mars, vegna útfarar frú SVEINU SVEINS-
DÓTTUR sem fram fer frá Dómkirkjunni kl. 13.30.
Steindórsprent hf.
Neskaupstað og hafa búið þar alla
tíð. Þeim varð 5 bama auðið: Erla
Margrét, Gunnar Sigfínnur, Finnur
Sigfús, Páll og Egill. Bamabömin
em 16 og bamabamaböm 5.
Margar stundir hefur Sigurbjörg
haft fyrir okkur bömin þegar farið
hefur verið lengri leiðir og gott
hefur verið að vita þau hjá henni.
Fyrir allt þetta þakka ég.
Veturinn 1955 kem ég í fyrsta
sinn á heimili tengdaforeldra
minna. Hef ég alla tíð síðan átt þar
góðar stundir. Austur í berin og
sólina hefur verið farið flest öll
sumur síðan.
Það verða öðmvísi beijaferðir hér
eftir. Það verður ekki sagt: „Silla,
getur þú lánað mér beijatínu og
poka?“
Um leið og ég sendi Jóni tengda-
föður mínum og öðmm ástvinum
hennar mínar samúðarkveðjur,
koma mér í hug ljóð Páls Ólafsson-
ar, en á þeim hafði Sigurbjörg
miklar mætur:
„Sjáðu drottins dýrð á bárum,
dýrð hans upp á tindunum.
Drekkum, sem á yngri árum,
enn úr vonarlindunum.
Trúum, þar til lífi lýkur;
líknarhöndin guðs er sterk.
Aldrei drottins auga svíkur,
aldrei drottins handaverk."
Hjörleifur Þórlindsson
Siguijón Hallgrúns-
son — Kveðjuorð
Fæddur 17. febrúar 1979
Dáinn 18. febrúar 1987
Okkur langar til að minnast Sig-
uijóns Svanbergs Hallgrímssonar
þótt með örfáum orðum sé.
Siguijón var okkur góður félagi
og vinur bæði í leik og starfi. Hann
var mjög duglegur í námi, með af-
brigðum vandvirkur og hafði mikla
listræna hæfíleika. Við erum þakk-
lát fyrir að hafa fengið að kynnast
þessum lífsglaða dreng.
Við sendum foreldrum Siguijóns,
litlu systur hans og öðrum aðstand-
endum innilegustu samúðarkveðjur.
Far þú í friði.
Friður guðs þig blessi.
Hafðu þökk fýrir allt og allt.
(V. Briem)
Inga Hjördís og bekkjar
systkin í Árbæjarskóla.