Morgunblaðið - 26.03.1987, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ
61
Ung og á uppleið
MUnchen, frá Berg^ótu Friðriksdóttur,
fréttaritara MorgunblaðBÍns.
Mikið hefur verið rætt og ritað
um vestur-þýsku tennis-
stjömuna Boris Becker og er það
vel. En Vestur-Þjóðvetjar eiga aðra
unga tennisstjömu sem minna hef-
ur verið í sviðsljósinu, af einhverjum
sökum. Það er hin 17 ára gamla
Steffí Graf, sem á örskömmum tíma
hefur tekist að komast upp í þriðja
sætið á listanum yfir bestu tennis-
leikara heims. Og í Grand-Prix-
keppninni, sem haldin var í
Bandaríkjunum fyrir skömmu, náði
Steffi þeim frábæra árangri að
leggja að velli gömlu kempumar
Martinu Navratilovu og Chris
Evert-Lloyd. Að þeirri keppni lok-
inni lýsti Navratilova því jrfír að
Steffi væri besti kventennisleikari
heims.
Ekki amaleg ummæli það og fað-
ir Steffí, Peter Graf, sem jafnframt
er þjálfari hennar og framkvæmda-
stjóri, er að vonum ánægður með
árangur dóttur sinnar. Steffi þykir
búa yfir geysilegum hæfíleikum, er
snör í snúningum og bæði forhönd
og uppgjöf framúrskarandi góðar.
Peter Graf segir dóttur sína ein-
staklega hlýðinn og agaðan tennis-
leikara.
Steffí er geysilega taugasterk og
yfirvegaður leikmaður og kemur
það greinilega fram á tennismótum.
Sjaldan sést hún bregða svip þó
eitthvað bjáti á og aldrei hefur hún
kastað tennisspaða sínum í jörðina,
eins og tíðkast hjá tennisleikumm
þegar eitthvað fer miður. Er Boris
Becker engin undantekning þar á.
Og þrátt fyrir frábæran árangur
að undanfömu er Steffi ekkert
nema hógværðin þegar fréttamenn
gerast aðgangsharðir.
En hvemig hefur Steffí Graf tek-
ist að komast svo langt á svo
skömmum tíma. í viðtali við þýska
vikutímaritið Stem er haft eftir
Steffí að síðustu árin hafí ekki liðið
sá dagur að hún hafi ekki gripið
til tennisspaðans. Hún kveðst lifa
ákaflega hollu og heilbrigðu lífi sem
miðar að því að komast í fyrsta
Steffi Graf eftir hinn sögufræga
sigur í Grand-Prix-keppninni í
Bandaríkjunum.
sætið _yfir bestu tennisleikara
heims. A kvöldin og um helgar þeg-
ar jafnaldrar hennar bregða sér í
bíó eða á dansleik, situr Steffi
heima í faðmi fjölskyldunnar ásamt
hundunum sínum tveimur. Hún seg-
ist ekki eiga marga vini enda
keppnisferðir um heiminn tíðar og
því lítill tími til að sinna einkalífinu.
Margar gagnrýnisraddir hafa
sagt að hið nána samband Steffi
við föður sinn og fjölskyldu sé óeðli-
legt fyrir 17 ára gamlan ungling.
Steffí lætur slíkt sem vind um eyr-
un þjóta og kveðst ánægð með lífið
og tilvemna. „Það eina sem skiptir
mig máli er tennis," segir hin unga
og efnilega tennisstjama sem er á
góðri leið með að vinna sér meira
álit og traust meðal þýsku þjóðar-
innar en Boris Becker hefur nokkm
sinni tekist.
Steffi ásamt föður sínum,
Peter, sem jafnframt er
þjálfari hennar og fram-
kvæmdastjóri.
Bowie
í heims-
reisu
Breska rokkstjaman David Bowie
kom á þriðjudag til Rómaborgar og
var það fyrsti áfangi á hljómleika-
för hans um heimin. Á Leonardo
da Vinci flugvelli var ströng örygg-
isgæsla og fyldu lögreglumenn
Bowie að bifreið sem beið hans fyr-
ir utan flugstöðina.
Reuter.
Díana krónprinsessa af Wales og
fatnaður sá er hún klæðist vekur
jafnan athygli. Á þriðjudag tóku
hún og eiginmaður hennar, Karl
ríkisarfi Bretaveldis, á móti Fahd,
konungi Saudi-Arabíu, er hann kom
í opinbera heimsókn til Bretlands
og kepptust ljósmyndarar þá við
að taka myndir af prinsessunni í
þessari nýju dragt er hún hafði
ekki klæðst áður opinberlega.
Espadrillur
með uppfylltum hæl
kr.790
Litur: Sv., hv., rautt,
blátt.
St. 35-41, lágur hæll.
Litur: Hv.,
St. 35-41,
hár hæll.
5% staðgreiðsluafsláttur.
sv., rautt.
TOPP,
S
21212
SKDem
VELTUSUNCH 1
POTTÞÉTT
PÚSTKERFI!
Pústkerfi frá Bosal og Stuðlabergi.
í allar gerðir bifreiða.
Straumur bíleigenda liggur í Borgartún 26.
Þar er úrvalið mest í bílinn! Láttu sjá þig sem
fyrst. Þú og bíllinn þinn njótið góðs af
heimsókninni.
BORGARTÚNI 26, SÍMI 62 22 62
Stórmarkaður bíleigenda
ARGUS/SlA