Morgunblaðið - 26.03.1987, Qupperneq 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ
Fjárhagsbókhald
Viðskiptamenn — skuldunautar
Viðskiptamenn - lánadrottnar^
Birgðabókhald
Söluaðilar
EinarJ. Skúlason hf., Grensásvegi 10, Reykjavík, s.: 686933
Rafreiknir hf., Ármúla 40, Reykjavík, s.: 681011
Skrifstofuvélar hf., Hverfisgötu 33, Reykjavík, s.: 20560
Atlantis, Skúlagötu 51, Reykjavík, s.: 621163
Heildi - Níels Karlsson, Steinbergi, Akureyri, s:. 96-25527
Rúnir
Skólavörðustíg 42,
101 Reykjavík, símar 91-22243 og 26282.
í dag og á morgun
verður Kjötmarkaður SS í Nýjabœ. Þar
fœrð þú nýtt, týrsta flokks nautakjöt
á hagstœðu tilboðsverði.
m
NYl
wm
VÖRUHÚSIÐ EIÐISTOfíG/
Utsýn er feti framar
Ég og fjölskylda mín erum ein
þeirra fjölmörgu, sem höfum notið
þeirrar tilbreytingar og ánægju að
eyða sumarleyfinu í útlöndum. Þar
höfum við átt dásamlega daga á
sólarströnd og komið endumærð
og úthvíld til baka að takast á við
hin hversdagslegu störf heima.
Okkur finnst sérstök ástæða til að
þakka Ferðaskrifstofunni Útsýn
hennar góðu störf að ferðamálum.
Það er mín sannfæring, og mæli
ég þar áreiðanlega fyrir hönd fjöl-
margra, að Útsýn standi feti framar
öðrum, bæði sakir reynslu og kunn-
áttu í að búa sem best að farþegum
sínum. Mín reynsla er sú, að þar
reyndist verðið líka lægst í hlutfalli
við gistiaðstöðu, þjónustu og öryggi
í öllum hlutum.
Við flölskyldan dvöldum á Costa
del Sol síðastliðið sumar á íbúðar-
hótelinu Benal Beach sem er það
glæsilegasta þar á ströndinni bæði
utan sem innan. Þökk sé Útsýn
fyrir að hafa tryggt okkur gistingu
á þessum stað. Ef ég ætla með fjöl-
skylduna í sumarleyfi þá vel ég að
sjálfsögðu Ferðaskrifstofuna Út-
sýn, vegna þeirrar frábæm reynslu
sem ég hef af þeirra ferðum. Með
tilkomu FRÍ-klúbbsins er enn verið
að auka á ánægju dvalarinnar í
sólarferðum, með uppákomum og
skemmtilegheitum. Eg vil að lokum
þakka Útsýn fyrir að hafa tryggt
okkur glæsilega gistiaðstöðu í ferð-
um sínum á frábæm verði, einnig
fararstjómm og starfsfólki, sem
vinnur sín verk af öryggi, festu og
umhyggju fyrir viðskiptavinum
sínum. Mín reynsla er að allar upp-
lýsingar og loforð um tilhögun
ferðar hafa staðist fullkomlega og
í sumum tilfellum gott betur.
Eitt atriði að lokum þessara
skrifa, sem ég held að segi nokkuð
um ágæti Ferðaskrifstofunnar Út-
sýnar, að ég kynntist einum af
eigendum hótels á Costa del Sol
fyrir tilviljun og sagði hann mér
að Útsýn væri einn af þeirra virt-
ustu og bestu viðskiptavinum og
samskipti þeirra við starfsfólk og
farþega Útsýnar væri til fyrirmynd-
ar.
Þökk sé forstjóra og starfsfólki
Ferðaskrifstofunnar Útsýnar.
Bestu sumarleyfískveðjur til allra
sem þrá sól og sumaryl.
Ingi Björgvin Konráðsson,
Arahólum 2, Reykjavík,
4567-5408.
Það var um miðjan vetur
Fyrir nokkm var fyrirspum í
Velvakanda frá Ingibjörgu Jóns-
dóttur um gamlar Reykjavíkurvísur
sem hún mundi úr æsku. Nokkrir
aðilar sem könnuðust við vísumar
höfðu samband við Velvakanda og
kann hann þeim bestu þakkir fyrir.
Líklega em vísumar eftir Jón Ólafs-
son, ritstjóra.
Það var um miðjan vetur,
og veður heldur svalt,
að létt féll niður lognmjöll,
úr lofti og fuðrið kallt.
Við skólapiltar skemmtum oss,
á skautum niður á Tjöm.
Og fyöldi af öðm fólki,
bæði fullorðnir og böm.
Loks var ég orðin lúinn,
og leið að skólatíð,,
á skautum hélt í hendi,
þar heim ég gekk um síð.
Þá mætti ég ungra meyja hóp
og mér heilsuðu þær,
svo ungar og fríðar allar,
og ein sem mér var kær.
Hún bað mig skautan betur
sinn binda á hægri fót.
Mer lætur lítt á skautum,
hin ljúfa mælti snót.
Og áþekkt er með hinar,
þær hafa nóg með sig.
Svo leiðist þeim nú líka,
að leiða og styðja mig.
Mér blossaði bál í kinnum,
mér bmnnu á vömm orð.
En þó ei nota þorði,
ég þögull kraup á storð.
Og skautann á hægra fæti fljóðs
ég festi en skjótt varð séð,
að varlegra var að laga
þá vinstri skautann með.
Ó, ef ég aðeins mætti,
hve indælt fyrir mig.
Létt og ljúft mér þætti,
að leiða og styðja þig.
Ef mætti ég um allt æviskeið,
þú ástmey, kæra bam.
Þig leiða ljúft ég vildi,
um lífsins kalda hjam.
Minn arm svo fögm fljóði,
ég fram mun rétta þá.
Svo leiddi ég hana
hálu við hjami mnnum á.
Þó félli mjöll á fölvan ís,
þá fann ég til þess ei.
Ég rann í dvala draumi,
með dýrri engismey.
Og meira en hundrað manna,
auk mín var skautum á.
En hana af öllum hópnum,
já, hana ég eina sá.
Og tíminn leið hvað lengi,
með ljúfri rann ég mey.
Hvort ég var hér í heimi,
eða hinum veit ég ei.
En eitt ég veit og ávallt,
að ég fór víða um heim.
Um fjöll og fagrar sléttur,
um fold og laga geim.
Um norður svala heimskaut hált,
um heita suðurgmnd.
Sú skautaferð í fögmm draum,
mér fylgdi í vöku og blund.
Víkverji skrifar
Leikfélag Akureyrar býður
landsmönnum öllum upp á sér-
stakar leikhúspakkaferðir til
Akureyrar. Svokallaðar pakkaferðir
til Akureyrar hafa verið á boðstól-
unum hjá Flugleiðum og þá frá
Reykjavík, en nú býður Leikfélag
Akureyrar með tilstyrk Flugfélags
Norðurlands öðmm Norðlendingum
og fólki af Austurlandi og frá Vest-
fjörðum að slást í hópinn. Skilyrði
þessara ferða er að menn kaupi
miða á sýningu Leikfélags Akur-
eyrar á Kabarett, en auk þess er
þjónusta ellefu annarra aðila á
Akureyri í boði, hótela, veitinga-
staða og skíðastaða svo dæmi séu
nefnd.
Um árabil hafa Flugleiðir boðið
upp á pakkaferðir til Reykjavíkur
og fyrmefndar helgarferðir frá
Reykjavík til Akureyrar. En það em
ekki bara Reykvíkingar og Akur-
eyringar, sem hafa setzt á rökstóla
og sett saman pakkaferðir til að
laða til sín ferðafólk. í sannleika
sagt, er ekkert þéttbýli nú staður
með stöðum, nema það bjóði ná-
grönnum sínum og sem flestum
landsmönnum upp á einhvers konar
pakkaferðir. Víkverji les í Eystra-
homi viðtal við hjón frá Djúpavogi,
sem em “í helgarpakka" á Höfn í
Homafírði, þar sem þau hafa meðal
annars setið sælkeraveizlu á Hótel
Höfn. Húsvíkingar hafa sett saman
dagskrá til að fylla upp í nokkurs
konar helgarpakka og í öðmm
sveitarfélögum hafa menn bmgðið
á það ráð að setja upp ferðaskrif-
stofu í Reykjavík og taka höndum
saman til þess að geta boðið þar
sem fjölbreytilegastan pakka. Nýj-
asta dæmið sem Víkveiji þekkir þar
um er samstarf aðila á Snæfellsnes-
inu utanverðu. Þar gegnir Jökullinn
sama hlutverki og Kabarett á Akur-
eyri og auðvitað em þar sælkera-
kvöld og vísast til boðið upp á annað
og meira en pakkasúpu í þeim helg-
arpakka.
Þannig er helgin orðin kabarett
fyrir norðan, sælkeraveizla fyrir
austan og Snæfellsjökull á hvers-
manns færi. Öðm vísi Víkveija brá,
þegar “Þingvallahringurinn“ var
eina helgarferðin, sem Jónas og
fjölskylda áttu um að velja.
XXX
Mikill fjörkippur virðist hlaup-
inn í útgáfu landsbyggðar-
blaða. Víkveiji vitnaði hér að
framan til Eystrahoms, sem gefið
er út á Höfn í Homafirði. Á Suður-
nesjum keppa Víkurfréttir og
Reykjanes um hylli lesenda og í
Vestmannaeyjum koma Fréttir nú
út tvisvar í viku. Víðar er blaðaút-
gáfa mikil og fínnst Víkveija
greinilegt, hversu mjög blaða-
mennskan hefur batnað hjá þessum
blöðum.
Eitt dagblað er gefið út utan
Reykjavíkur. Það er Dagur á Akur-
eyri og eins kom fram á Akur-
eyrarsíðu Morgunblaðsins í gær, er
Dagur sterkur fyrir norðan. Það var
Félagsvísindastofnun Háskóla ís-
lands, sem framkvæmdi skoðana-
könnun fyrir Dag um útbreiðslu
dagblaðanna á Norðurlandi.
Og Dagur hefur birt fleiri niður-
stöður skoðanakannana en um
dagblöðin. Þannig hefur blaðið
skýrt frá því, að núverandi stjómar-
mynztur sé vinsælast á Norðurlandi
og um leið vinsælla í Norðurlands-
kjördæmi vestra en því eystra. Hins
vegar er viðreisnarmynztrið vin-
sælla í Norðurlandskjördæmi eystra
heldur en vestanmegin, en heildar-
norðurlandsfylgi þessara stjómasr-
kosta eru 27 og 17%. Vinstri stjóm
fær aðeins 5% og aðrir kostir enn
minna, en vel að merka neita 3%
að svara og 32% segjast ekki vita
hvemig þeirra uppáhaldsstjóm er
skipuð.
Það eru svo kratamir fyrir norð-
an, sem sækja manna ákafast í
viðreisnina, en 55% þeirra vilja sam-
starf Alþýðuflokks og Sjálfstæðis-
flokks. Slíkt samstarf er þó ekki
efst á blaði hjá meirihluta sjálfstæð-
ismanna, því 41% þeirra vilja
áframhaldandi samstarf við Fram-
sóknarflokkinn og 36% viija skipta
um samstrafsflokk og fá kratana
með í viðreisn.
XXX
En það era ekki aðeins frétta-
blöð eins og framantalin sem
virðast blómstra. Stofnanir era
famar að leggja vaxandi áherzlu á
útgáfustarfsemi í formi fréttablaða
og sem Víkverji er að leggja frá
sér stflvopnið að þessu sinni berst
honum fyrsta eintakið af nýju
fréttablaði Iðntæknistofnunar.
Púlsinn heitir þetta blað og leysir
af hólmi fréttabréf, sem Iðntækni-
stofnun gaf áður út og hét einfald-
lega ITÍ - fréttir. Þannig liggur
þessi leið líka frá fréttabréfi til
fréttablaðs.