Morgunblaðið - 26.03.1987, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ
69
—<'
I
I
i
Atli Heimir Sveinsson skrifar um sí-
gilda tónlist í blaðið. Hann er í hópi
kunnustu og hæfustu tónsmiða í land-
inu.
Elín Edda dýfir fjööur á síður Helgar-
póstsins þegar listdanssýningar eru á
döfinni. Hún er sjálf dansari og mynd-
listarkona.
Friðrik Þór Guðmundsson blaða-
maður. Hann hefur starfað við blaða-
mennsku um árabil. Friðrik er mennt-
aður í stjórnmálafræðum.
Guðbergur Bergsson er myndlistar-
gagnrýnandi HP og braut blað í umfjöll-
un um þessa listgrein þegar hann hóf
skrif í blaðið fyrir fimm árum. Guðberg-
ur er kunnur rithöfundur og þýðandi.
Guðmundur Arnlaugsson hefur
skrifað um skák í blaðið frá fyrsta tölu-
blaði þess. Hann er virtur skákdómari.
Gunnar Smári Egilsson blaðamaður.
Hann hóf störf í blaðamennsku fyrir
nokkrum árum og var á Tímanum áður
en hann kom á HR
* -
r
i
f;
r
4.
tt
Helgi Skúli Kjartansson gagnrýnir
fræðirit af ýmsu tæi fyrir blaðið, auk
annarra bókmennta. Helgi Skúli er
kunnur sagnfræðingur.
Hermann Lárusson er sérfræöingur
HP í bridge. Hermann er sjálfur liðtækur
í íþróttinni og þekktur spekúlant í fræð-
unum.
Jim Smart Ijósmyndari hefur unnið við
blaðið nánast frá byrjun. Hann er af
mörgum talinn færasti portrett-ljós-
myndari á landinu.
Jóhanna Sveinsdóttir blaðakona
skrifar nú um mat fyrir HP, eins og hún
hefur gert af og til síöustu ár. Matkráka
hennar er rómuð fyrir óvenjulega frum-
legar og góðar uppskriftir.
Jón óskar myndlistarmaður, er útlits-
teiknari HP. Hann hannaði útlit blaðsins
í upphfi og sneri fyrir allnokkru aftur til
starfa á HP eftir myndlistarnám í New
York.
Jón örn Marinósson og Jónsbók
hans birtast lesendum HP á annarri síðu
blaðsins. Jón örn er einn flinkasti penni
landsins. Hann er tónlistarstjóri Ríkisút-
varp§ins.
ólafur Angantýsson kvikmynda-
gagnrýnandi. Ólafur lagði stund á kvik-
myndafræði jafnhliöa fjölmiðlafræði viö
Stokkhólmsháskóla og lauk þar námi
1985.
óskar Guðmundsson blaðamaður.
Hann er gamall haukur í fréttum og hef-
ur komið víða við á löngum fjölmiðla-
ferli.
Sigmundur Ernir Rúnarsson rit-
stjórnarfulltrúi kom til HP haustið 1983
eftir störf á DV og áður Vísi. Hann er
kunnur fyrir viðtöl sfn og greinar, auk
innlits í Sjónvarpið í fyrra.
Sigurður A. Magnússon hefur skrif-
að um leiklist fyrir Helgarpóstinn. Sig-
urð er óþarft að kynna, svo rómaður rit-
höfundur sem hann er.
Sölvi Sveinsson gagnrýnir barnabæk-
ur fyrir HP, en blaöið var reyndar fyrst
fjölmiöla til að leggja sérstaka áherslu á
þá umfjöllun. Sölvi er íslenskukennari
við Fjölbraut í Ármúla.
Vernharður Linnet skrifar um djass í
blaöið og hefur gert frá upphafi. Fáir is-
lendingar eru honum fróðari um þessa
geggjuðu tegund tónlistar eins og
reyndar hefur glöggt mátt sjá í pistlum
hans í HP í fjölmörg ár.
/%