Morgunblaðið - 26.03.1987, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ
71
Morgunblaðið/Júlíus Sigurjónsson
• Guðjón Skúlason, hinn eldsnöggi bakvörður ÍBK brunar fram völl-
inn í leiknum við Val f gœrkvöldi. Guðjón átti góðan leik og skoraði
20 stig.
Valur áfram
eftir hörkuleik
„MÉR er svo sem sama hverja
við fáum í undanúrslitum, en ég
vil fá Víking f úrslitaleik," sagði
Geir Sveinsson fyrirliði Vals er lið
hans hafði unnið UBK, 30:28, eft-
ir framlengdan leik f Digranesi.
Grikkir
náðu jöf nu
HOLLAND og Grikkland gerðu
jafntefli, 1:1, í 5. riðli Evrópu-
keppni landsliða f Rotterdam í
gœrkvöldi.
Grikkir náðu óvænt forystunni
strax á 6. mínútu með marki Sara-
vakos og þannig var staðan í
hálfleik. Arnold Muhren bjargaði
svo heiðri heimamanna er hann
jafnaði á 55. mínútu.
Staðan í 5. riðli er þessi:
Grikkland 6 3 1 1 11:7 7
Holland 4 2 2 0 4:1 6
Pólland 2 1 1 0 2:1 3
Ungverjaland 2 0 0 2 1:3 0
Kýpur 3 0 0 3 3:9 0
Hoddle
skoraði
Frá Bob Hennessy á Englandi.
TOTTENHAM gerði jafntefli við
Newcastle, 1:1, á útvielli f ensku
1. deildinni í knattspyrnu f gær-
kvöldi. Glenn Hoddle skoraði fyrir
Tottenham og Goddard fyrir
heimamenn.
Önnur úrslit í 1. deild í gær-
kvöldi voru þau að Aston Villa og
Watford gerðu jafntefli, 1:1 og
Leicester sigraði QPR, 4:2. Stoke
og Ipswich gerðu markalaust jafn-
tefli í 2. deild.
Eftir venjulegan leiktíma var stað-
an 25:25 en í leikhléi 11:15.
Valsmenn höfðu undirtökin
lengst af en frábær markvarsla
Þóris Siggeirssonar hjá UBK varð
til þess að þeim tókst að jafna
undir lok leikins. Þórir varði þá tvö
vítaköst auk þess sem Valsmenn
skutu framhjá úr því þriðja.
Blikar voru frekar slakir að
þessu sinni. Vörnin léleg og skyt-
turnar náðu sér aldrei á strik.
Hjá Val var Jakob Sigurðsson
sterkur og Stefán Halldórsson var
einnig góður og lét hróp áhorf-
enda, sem reyndu að taka hann á
taugum, ekkert á sig fá. Valdimar
Grímsson lék einnig vel og Páll
Guðnason varði þokkalega eftir að
hann kom í markið.
Markahæstir hjá Val voru Stefán
sem skoraði 10 mörk, jakob gerði
8 og Valdimar 7. Hjá Blikum skor-
aði Jón Þórir Jónsson 11 og Þórður
Davíðsson 6.
Evrópukeppnin:
Rúmenar efstir
RÚMENAR komust f efsta sæti f
1. riðli Evrópukeppni landsliða f
knattspyrnu með þvf að vinna
stórsigur á Albanfu, 5:1, í Búkar-
est í gærkvöldi.
Leikmenn Evrópumeistaranna,
Steaua Búkarest, voru í aðalhlut-
verki og skoruðu öll mörk Rúmena.
Piturca skoraði starx á fyrstu
mínútu. Muca jafnaði fyrir Albani
en Boloni og Hagi, úr vítaspyrnu,
náðu aftur forystunni fyrir heima-
menn. Belodedici og Bumbescu
bættu svo tveimur mörkum við í
seinni hálfleik.
Staðan:
Rúmenla 3 2 0 1 9:2 4
Spánn 2 2 0 0 3:1 4
Austurríki 2 10 1 3:4 2
Albanfa 3 0 0 3 2:10 0
Stórleikur Gylfa
- þegar Keflvíkingar unnu Val
LEIKMENN ÍBK tolleruðu Gylfa
Þorkelsson er þeir höfðu sigrað
Valsmenn með 84 stigum gegn
73 í öðrum leik liðanna f undanúr-
slitunum um íslandsmeistaratitil-
inn f körfuknattleik f gærkvöldi.
Tryggðu Keflvfkingar sór þvf au-
kaleik, sem verður hreinn úrslita-
leikur um það hvort liðið leikur
gegn UMFN um íslandsmeistara-
titilinn. Fer hann fram f Keflavík
kl. 14 á laugardag.
Það var ekki að ástæðulausu
sem leikmenn ÍBK tolleruðu Gylfa
því hann átti stórleik og stærstan
þátt í sigri liðsins. Leikurinn var
annars stórskemmtilegur og vel
leikinn frá upphafi og gífurleg bar-
átta í leikmönnum beggja liða,
enda mikið í húfi. Skemmtu áhorf-
endur í troðfullu húsinu sér
konunglega.
Keflvíkingar byrjuðu af krafti og
náðu strax 10 stiga forystu, en
Valsmenn fundu svar við leik þeirra
og komu í veg fyrir að skotmenn
þeirra fengju að athafna sig seinni
10 mínútur fyrri hálfleiks. Söxuðu
þeir jafnt og þétt á forskot ÍBK og
komust yfir 32:31 þegar rösk
mínúta var til leikhlés.
í seinni hálfleik var ennþá meiri
spenna í leiknum. Seig þó á ógæfu-
hliðina hjá Valsmönnum er Torfi
Magnússon fékk fjórðu villuna er
16 mínútur vorg eftir. Var hann
tekinn útaf í 10 mínútur og það
var þá sem losnaði um Gylfa. Stóð-
ust varnarmenn Vals honum ekki
snúning og skoraði hann án afláts.
Þegar rúm mínúta var til leiksloka
var staðan 76-73 fyrir ÍBK og Vals-
menn seilingarfjarlægð frá úrslita-
sætinu, því þeir unnu fyrsta leik
liðanna með þremur stigum,
69-66. Brást þeim þó hittni það
sem eftir var og varnaraðferð
þeirra gekk ekki upp í lokin. Sluppu
Keflvíkingar hvað eftir annað burt
frá þeim og skoruðu 8 stig á lok-
amínútunni við gífurlegan fögnuð
stuðningsmanna sinna, sem fjöl-
menntu til Reykjavíkur til að hvetja
sína menn til dáða.
-ágás
Bikarkeppni HSÍ:
FH úr leik
FRAM tryggði sér sæti í undanúr-
slitum bikarkeppni HSÍ með því
að vinna FH, 25:24, í jöfnum og
spennandi leik í Laugardalshöll í
gærkvöldi. Staðan í hálfieik var
14:13 fyrir Fram.
FH-ingar byrjuðu betur og höföu
oftast frumkvæðið í fyrri hálfleik,
en Framarar voru aldrei langt und-
an og náðu að jafna og komast í
fyrsta sinn yfir rétt fyrir leikhlé. I
seinni hálfleik var sama upp á ten-
ingnum FH náði að jafna aftur og
leit lengi vel út fyrir að þeir færu
með sigur að hólmi. Þeir höfðu
tveggja marka forskot, 21:19, þeg-
ar um 10 mínútur voru til leiksloka
en þá fór allt í baklás og Fram
náði yfirhöndinni og sigraði. FH-
ingar fengu þó tvívegis möguelika
á að jafna undir lokin.
Dómararnir, Hákon Sigurjóns-
son og Guðjón Sigurðsson, voru
mjög slakir og settu svip sinn á
leikinn með furðulegri dómgæslu
og ættu að kynna sér betur leik-
reglurnar. Bestu leikmenn Fram
voru Per Skaarup, Júlíus Gunnars-
son og Guðmundur JÓnsson,
markvörður. Hjá FH var Héðinn
Gilsson og Pétur Petersen bestir.
MÖRK FRAM: Júlíus Gunnarsson 5, Agn-
ar Sigurðsson 5/3, Birgir Sigurðsson 4,
Per Skaarup 4/2, Ragnar Hilmarsson 3
og Tryggvi Tryggvason og Hermann
Björnsson eitt mark hvor.
MÖRK FH: Héðinn Gilsson 7, Pétur Pet-
ersen 5, Óskar Ármannsson 5/2, Þorgils
Óttar 4, Gunnar Beinteinsson 2 og Guðjón
Árnason 1.
FE
Leikurinn
í tölum
íþróttahús Seljaskóla úrvalsdeildin í
körfuknattleik, undanúrslit, 25. marz
1987.
Valur-ÍBK 73:84 (86:38)
6:9, 7:18, 15:25, 21:29, 27:29, 32:31,
33:38, 36:38 og 40:40, 40:46, 47:49,
53:61,62:63,64:71, 68:76, 73:76 73:84.
STIG VALS: Tómas Holton 28, Sturla
Örlygsson 16, Einar Ólafsson 12, Leifur
Gústafsson 10, Torfi Magnússon 3, Bjöm
Zöega 2 og Páll Amar 2.
STIG ÍBK: Gvlfi Þorkelsson 21, Guðjón
Skúlason 20, Olafur Gottskálksson 17,
Sigurður Ingimundarson 12, Hreinn Þor-
kelsson 8 og Jón Kr. Gíslason 6.
Létt hjá
Stjörnunni
STJARNAN átti ekki í erfiðleikum
með að sigra Fylki, 31:22, i 8-liða
úrslitum bikarkeppni HSI í Laug-
ardalshöli í gærkvöldi. Garð-
bæingar höfðu yfir í leikhléi,
15:10.
Fylkismenn byrjðu betur og ko- •
must í 7:5, en Stjarnan svaraði
fyrir sig með sjö mörkum í röð og
eftirleikurinn því auðveldur fyrir þá.
Of mikill munur var á þessum lið-
um enda Fylkir í neðri hluta 2.
deildar en Stjarnan að berjast fyrir
Evrópusæti í 1. deild.
Hannes Leifsson var markahæstur
í liði Stjörnunnar með 10 mörk,
Gylfi Birgisson kom næstur með 6
mörk. Hjá Fylki var Einar Einarsson
markahæstur með 7 mörk og
Magnús Sigurðsson gerði sex.
FE
Gummersbach vann
KRISTJÁN Arason gerði 3 mörk
er Gummersbach sigraði Mil-
bertshofen, 23:22, í vestur-þýsku
Bundesligunni í handknattleik í
gærkvöldi.
Steinar Birgisson gerði 4 mörk
fyrir Kristjansand er lið hans tap-
aði fyrri leik sínum í úrslitakeppn-
inni um norska meistaratitilinn
gegn Stavanger,28:22, í gær-
kvöldi.
Mikill hasar í
Vestmanneyjum.
ÞAÐ var sannkölluð bikar-
stemmning í íþróttahöllinni í
Vestmanneyjum í gærkvöidi þeg-
ar heimamenn léku við Víking.
Gífurleg harka, hraði og hiti f leik-
mönnum. Leiknum lauk með
21:18 sigri Vfkinga eftir að staðan
í ieikhléi hafði verið 13:13.
Leikurinn var í járnum allan fyrri
hálfleik en Víkingar höfðu þó ávalt
frumkvæðið. Eyjólfur Bragason
jafnaði á stórglæsilegan hátt fyrir
ÍBV fyrir leikhlé.
Mikil harka var í fyrri hálfleik og
var Hilmar Sigurgíslason útilokað-
ur eftir aðeins 13 mínútur fyrir að
sparka í markvörð Eyjamanna.
Síðari hálfleikur hófst eins og sá
fyrri, íslands- og bikarmeistararn-
arnir ávallt með eins til tveggja
marka forskot sem heimamönnum
tókst reyndar að jafna um miðjan
hálfleikinn.
Reynsluleysi leikmanna (BV fór
þá að segja til sín og gerðu þeir
sig seka um urn mörg afdrifarík
mistök sem Víkingar notfærðu sér.
Harkan í síðari hálfleik var engu
minni en í þeim fyrri og fengu
margir leikmenn beggja liða að
kæla sig. Guðmundur Guðmunds-
son og Árni Friðleifsson voru
meðal annars útilokaðir fyrir að
láta skapið hlaupa með sig í gönur
þegar mótstaða Eyjamanna fór í
taugarnar á þeim.
Þó munurinn hafi verið 3 mörk
gefur það ef til vill ekki alveg rétta
mynd af leiknum því leikmenn ÍBV
hefðu allt eins getað sigrað með
smá heppni og meiri reynslu.
Víkingar skoruðu til dæmis tvö
síðustu mörk leikins.
Jón Bragi Arnarson markvörður
ÍBV var bestur og varði oft
stórglæsilega. Þá var Þorsteinn
Viktorsson góður. Hjá Víkingum
skaraði enginn framúr og áttu þeir
í hinum mestu vandræðum með
að skapa sér færi gegn sterkri
vörn (BV sem tók hraustlega á
móti þeim.
Tyrkir unnu
A-Þjódverja
TYRKIR unnu Austur-Þjóðverja,
3:1, í vináttulandsleik í knatt-
spyrnu í Istanbul í gærkvöldi.
Tyrkir byrjuðu leikinn á því að
gera sjálfsmark en bættu svo um
betur og skoruðu þrjú mörk. Riza
Xalinbay jafnaði rétt fyrir leikhlé
og í seinni hálfleik bættu Kaynak
og Colak við tveimur mörkum.
Jógóslavar unnu Austurríki, 4:0,
í vináttulandsleik í knattspyrnu í
Banja Luka í Júgóslavíu í gær-
kvöldi. Mörkin gerðu Pancev 2,
Stojkovic og Tuce.
Eyjum
„Það sló leikmenn mína út af
laginu hversu harða mótspyrnu
þeir fengu," sagði Árni Indriða-
son þjálfari eftir leikinn og bætti
því við að sér hefðu þótt heima-
menn komast upp með of mikil
fólskubrögð í leiknum. Enda fengu
Víkingar þrjú rauð spjöld fyrir að
slá til leikmanna ÍBV eftir að leikur-
inn hafði verið stöðvaður. Gæti
þetta reynst þeim afdrifaríkt í loka-
baráttunni um bikarmeistaratitil-
inn.
Mörk ÍBV: Þorsteinn Viktorsson 6, Sig-
björn Óskarsson 3, Eyjólfur Bragsson 3,
Jóhann Pétursson 3/3, Sigurður Friðriks-
son, Óskar Freyr Brynjarsson og Páll
Scheving eitt mark hver.
Mörk Vfklngs: Bjarki Sigurðsson 5,
Karj Þráinsson 5/3, Siggeir Magnússon
3, Árni Friðleifsson 2, Arni Indriðason 2,
Guðmundur Guðmundsson 2, Hilmar Sig-
urgislason 1, Einar Jóhannesson 1.
-GMS
Jafntí
Magdeburg
Austur-Þýskaland og italía
gerðu markalaust jafntefli í und-
ankeppni Ólympfuleikana í knatt-
spyrnu í Magdeburg í gærkvöldi.
íslendingar eru f sama riðii og
þessi lið og leika fyrsta leik sinn
gegn ítalfu f næsta mánuði ytra.