Morgunblaðið - 23.04.1987, Side 6
6 C
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
Lágkúra kvennalistans
eftir Jóhönnu
Sigurðardóttur
Heiðarleiki skiptir máli í stjóm-
málum. Kvennalistakonur hafa
hvað eftir annað fallið á því prófi.
Það er vissulega lágkúra sem
ekki er hægt að sitja undir þegar
Kvennalistakonur ætla að afla sér
atkvæða á þeirri forsendu að önnur
stjómmálaöfl hafí ekki áhuga á
kvenna- eða fjölskyldumálum — eða
að þau hafí ekki forgang hjá öðmm
flokkum.
Hver rangfærslan
af annarri
Kvennalistakonur halda því fram
að enginn setji málefni fjölskyld-
unnar á oddinn nema Kvennalist-
inn. Ein þingkona Kvennalistans
orðaði það svo í Morgunblaðinu, að
Kvennalistinn væri einn um það
íslenskra stjómmálaafla að setja
málefni kvenna í öndvegi, heima-
vinnandi sem útivinnandi. Þetta er
rangt. í þessari sömu grein var því
haldið fram að Kvennalistinn væri
einn um það að hafa lagt til á þingi
að gagngert endurmat fari fram á
störfum kvenna. Þetta er líka rangt.
Meira að segja er svo langt gengið
að látið er að því liggja að þær
konur veldust helst til áhrifa hjá
hinum stjómmálaflokkunum, sem
ekki hefðu sérstakan áhuga á
kvenna- eða fjölskyldumálum. Út
yfír tók síðan þegar Kvennalista-
konur héldu því fram í útvarpi fyrir
skömmu að mál sem flutt vom á
síðasti þingi — og vom samþykkt,
en þær vom ekki flutningsmenn að,
væri að þakka vem þeirra á Al-
þingi. Er þar m.a. átt við fmmvarp
um fæðingarorlof og tillögu um
lífeyrisréttindi heimavinnandi fólks.
Það væri vissulega verðugt við-
fangsefni að gera samanburð á
störfum þeirra og tillöguflutningi á
Alþingi samanborið við Alþýðu-
flokkinn. Ósanngjam málflutningur
þeirra og vinnubrögð gefa vissulega
tilefni til þess.
„Okkar mál em aftarlega á for-
gangslista hinna flokkanna," sagði
ein Kvennalistakona í útvarpi fyrir
skömmu.
Má ég rifja upp eftirfarandi fyrir
þessari Kvennalistakonu og öðmm,
sem reyna að villa svo um fyrir
kjósendum.
Endurmat á
kvennastörfum
Það er alrangt og óheiðarlegt að
halda því fram að Kvennalistinn
hafí einn flokka lagt til á þingi að
endurmat fari fram á störfum
kvenna. Alþýðuflokkurinn hefur í
mörg ár haft forystu fyrir fmm-
varpi sem flutt hefur verið um þetta
mál á þingi og kappkostað að ná
um það breiðri samstöðu með því
að fá flutningsmenn úr öllum flokk-
um á það fmmvarp. Kvennalistinn
kom fyrst fram með tillögu um það
á sl. þingi og gerði ekki tilraun til
að ná samstöðu um þá tillögu hvorki
með öðmm flokkum, né að fá allar
konur á Alþingi til liðs við sig um
að flytja þá tillögu.
Launakjör kvenna
1980 var samþykkt þingsályktun
frá Alþýðuflokknum um að ítarleg
úttekt yrði gerð á tekjuskiptingu
og launakjömm í landinu. Þessari
úttekt var sérstaklega beint að því
að upplýsa misréttið í launakjömm
kvenna og karla. Alþýðuflokkurinn
fékk einnig samþykkt lög sem
skyldaði ríkisvaldið til að leggja
árlega fram sundurliðun á risnu
bifreiða og ferðakostnaði hjá ríkinu.
Þessar upplýsingar hafa m.a. leitt
í ljós að konur fá aðeins innan við
10% af bifreiðastyrk og fastri yfír-
vinnu sem ríkið greiðir, og höfum
við á Alþingi reynt að knýja á um
breytingu á þessu. Árið 1980 fluttu
þingmenn Alþýðuflokksins fmm-
varp um að í þeim starfsgreinum
þar sem karlar væm í meirihluta
ættu konur tímabundið hafa for-
gang til starfs að því tilskyldu að
þær hefðu sömu hæfileika og
menntun til að bera og karlar sem
sæktu um starfíð. Akvæði sem
heimilar tímabundin forréttindi
kvenna var siðan lögleitt 1985.
Þingmenn Kvennalistans vildu ekki
gerst flutningsmenn að því fmm-
varpi með stjómarandstöðunni.
Menntunarmál
Alþýðuflokkurinn hefur sl. 4 ár
lagt til á þingi að endurmenntun
Iaunafólks verði tryggð, sérstaklega
í þeim starfsgreinum þar sem at-
vinnuöryggi er í hættu vegna
tæknivæðingar. Þar er ekki síst um
að ræða margar hefðbundnar
kvennastarfsgreinar, en lagt var til
að launafólk héldi sínum launum
meðan á endurmenntun stendur.
Einstæðir foreldrar
Alþýðuflokkurinn fékk því fram-
gengt að einstæðir foreldrar aldrað-
ir og öryrkjar fá nú menntunar-
framlög vegna bama sinna 18—20
ára. Fyrir framgangi þessa máls
hefur hart verið barist sl. 4 ár, en
það var loks samþykkt á sl. Al-
þingi. Ég varð aldrei vör við að
Kvennalistakonur ýttu á eftir þessu
máli úr nefnd, eða sýndu því sér-
stakan áhuga.
Heimavinnandi fólk
Við slit á óvígðri sambúð hafa
konur oftast farið Qárhagslega hall-
oka. Alþýðuflokkurinn hefur í 8 ár
barist fyrir Iífeyrisréttindum heima-
vinnandi og fékk samþykkta tillögu
þar að lútandi á sl. Alþingi. Kvenna-
listinn kom fyrst fram með það mál
Morgunblaiið/Theodór
Þroskahjálp á Vesturlandi
Jóhanna Sigurðardóttir
„Það er alrangt og
óheiðarlegt að halda
því fram að Kvennalist-
inn hafi einn flokka
lagt til á þingi að endur-
mat fari fram á störf-
um kvenna. Alþýðu-
flokkurinn hefur í
mörg ár haft forystu
fyrir frumvarpi sem
flutt hefur verið um
þetta mál á þingi og
kappkostað að ná um
það breiðri samstöðu
með því að fá flutnings-
menn úr öllum flokkum
á það frumvarp.“
á sl. Alþingi. Alþýðuflokkurinn hef-
ur einnig flutt tillögu um réttar-
stöðu heimavinnandi fólks, þar sem
lagt er til að úttekt verði gerð á
þjóðhagslegu gildi heimilisstarfa og
að heimavinnandi fólki verði tryggð
ýmis félagsleg réttindi sem aðrir
hafa.
Réttarstaða fólks
í óvígðri sambúð
Alþýðuflokkurinn hefur einn
flokka barist fyrir réttarstöðu fólks
í óvígðri sambúð og fengið sam-
þykkta þingsályktun og frumvarp
sem tryggja á betur réttindi í
óvígðri sambúð. Þessi mál kostuðu
harða baráttu að ná fram á þingi.
Ég varð aldrei vör við liðsinni
Kvennalistakvenna í þeirri baráttu.
Málefni barna
í kjölfar þess að Samband al-
þýðuflokkskvenna lagði fram ítar-
lega stefnuskrá í málefnum bama
sem samþykkt var á flokksþingi
Alþýðuflokksins 1978, fluttu þing-
menn Alþýðuflokksins undir forystu
Ama Gunnarssonar ítarlega tillögu
á þingi um umbætur í málefnum
bama. Tillaga þessi fól m.a. í sér
6 mánaða fæðingarorlof, umboðs-
mann bama, og greiðslur til for-
eldra vegna íjarveru af vinnumark-
aði vegna veikinda bama. Um
svipað leyti flutti Magnús H. Magn-
ússon þáverandi félagsmálaráð-
herra frumvarp um aukið
fæðingarorlof og sem tryggði
heimavinnandi fólki í fyrsta sinn
fæðingarorlof.
Aldraðir og öryrkjar
Alþýðuflokkurinn átti frumkvæði
að stofnun Framkvæmdasjóðs ör-
yrkja, sem stofnaður var 1980, en
framlög úr þessum sjóði hafa tryggt
framkvæmdir í þágu fatlaðra
víðsvegar um landið, svo sem vemd-
aða vinnustaði, meðferðarheimili,
sambýli, endurhæfíngarstöðvar o.fl.
Árið 1984 flutti Alþýðuflokkur-
inn fmmvarp sem varð að lögum
1985, sem þrefaldaði makabætur
til þeirra sem eru bundnir heima
við vegna langvinns sjúkdóms
maka.
Alþýðuflokkurinn fékk einnig
samþykkta tillögu 1985 um um-
bætur í málefnum aldraðra, en
markmið hennar er að tryggja bet-
ur en nú er gert félagslegt öryggi
og fjárhagsafkomu aldraðra, sem
og húsnæðisaðstöðu og atvinnu við
hæfi aldraðra sem þess óska. Ekki
fór mikið fyrir aðstoð Kvennalistans
að ná þessum málefnum úr nefnd.
Húsnæðismál — skatta-
mál — heilbrigð-
ismál o.fl.
Alþýðuflokkurinn hefur einn
flokka lagt til að kaupleiguíbúðir
komist til framkvæmda sem gagn-
ast mun sérstaklega láglaunafólki
og einstæðum foreldrum, en þar
hefur fólk val um leigu eða kaup á
íbúðum með viðráðanlegum mánað-
argreiðslum. Hér er ekki síst á
ferðinni mikið hagsmunamál
kvenna í láglaunastörfum, því þetta
er hagstæðasti kostur sem nokkur
flokkur hefur sett fram í húsnæðis-
málum.
Af öðrum málum má nefna jöfn-
un á skattbyrði hjóna, sérstök
lánakjör fyrir einstæða foreidra hjá
Húsnæðisstofnun, — aukna heima-
þjónustu og heimahjúkrun fyrir
aldraða í heimahúsum, lög um eftir-
laun til aldraðra, lög um greiðslur
út atvinnuleysistryggingasjóði til
18 ára aldurs bama.
Þá er að geta þingsályktunar um
skipulagðar aðgerðir gegn ólögleg-
um innflutningi og dreifingu fíkni-
efna sem var samþykkt og tillögu
um stóraukin framlög til aðgerða
gegn fíkniefnum hafa verið fluttar
við hveija fjárlagagerð. Frumvörp
um að færa tannlækningar meira
undir tryggingakerfíð og tillögur til
að lækka tannlæknakostnað hafa
hvað eftir annað verið fluttar,
ásamt ítarlegri tillögu um nýja
stefnumótun í heilbrigðismálum.
Að lokum skal hér nefnt, að eng-
inn flokkur á Alþingi hefUr barist
eins hart gegn skattsvikum og Al-
þýðuflokkurinn sem fékk sam:
þykktar tvær tillögur í því máli. í
fyrsta lagi tillögu um úttekt á um-
fangi skattsvika, sem sýndi að
skattaundandráttur var um 6,5
milljarðar á árinu 1985, og ítarlega
tillögu um hertar aðgerðir gegn
skattsvikum. Alþýðuflokkurinn
mun leggja á það höfuðáherslu
komist hann í ríkisstjóm, að skatta-
undandrátturinn skili sér í ríkissjóð,
því þá peninga þurfum við í þau
fjölmörgu umbótamál sem við ætl-
um að setja á oddinn fyrir fjölskyld-
ur og heimili í þessu landi.
Þessi mál ættu að nægja til að
sýna að Alþýðuflokkurinn setur
málefni kvenna, bama og flölskyld-
unnar allrar á oddinn og að þau
hafa haft forgang hjá Alþýðu-
flokknum. Það sem á vantar er
stjómaraðild Alþýðuflokksins til að
koma þeim málum áfram sem hann
hefur ekki fengið framgengt í
stjómarandstöðu. Þetta taldi ég
nauðsynlegt að fram kæmi, því
kjósendur hljóta að gera sömu kröf-
ur til Kvennalistans og annarra að
hafa það sem sannara reynist.
Konur rata rétta leið?
Kvennalistakonur! Þið segið í
stefnuskrá ykkar að „Konur rati
rétta leið“. Reynið líka að rata leið
sannleikans og heiðarleika í ykkar
málflutningi áður en þið fallið í
giyfju karlrembunnar.
Höfundur er einn af alþingis-
mönnum AJþýðuflokks fyrir
Reykjavíkurkjördæmi.
Kjósum gegn verðbólgu
Borgaraesi.
NÝLEGA lauk smíði húss, sem
félagið Þroskahjálp á Vestur-
landi lét reisa við bæinn Holt i
Borgarhreppi. Er þarna um að
ræða viðbót á þeirri aðstöðu, sem
félagið hefur fyrir á staðnum. í
sumar á að reka þama sumar-
dvalarheimili fyrir þroskaheft
böm á Vesturlandi. Byggingar-
starfið hefur verið styrkt frá ríki
og sveitarfélögum. Einnig stend-
ur Þroskahjálp á Vesturlandi
fyrir happdrætti til styrktar
starfseminni og verður dregið í
þvi þann 3. maí næstkomandi.
eftirJón Magnússon
Sérstæðri kosningabaráttu er að
ljúka. í þeirri baráttu hafa aukaat-
riðin skipað veglegan sess. Loforð
og yfírboð flæða af vömm stjóm-
málamannanna og getur að líta í
miklum fjölda áróðursbæklinga,
sem dreift hefur verið. Aðalatriðin
hafa því fallið í skuggann í öllu
orðagjálfrinu. Þau aðalatriði em að
við getum áfram búið við stöðug-
leika og uppbyggingu. Það er
forsenda betri lífskjara, innra ör-
yggis og allra þeirra góðu hluta sem
loforð stjómmálamanna í kosninga-
baráttu lúta að.
Án stöðugleika og uppbyggingar
versna lífskjörin og svigrúm stjóm-
valda minnkar. Þessar staðreyndir
em svo augljósar að óþarft er að
fjölyrða um þær.
Hver er forsenda stöðugleika og
uppbyggingar á íslandi? Við sem
höfum lifað og starfað í þjóðfélagi
óðaverðbólgu í meira en áratug vit-
um að verðbólgan er sá skaðvaldur
sem tafíð hefur framfarasókn þjóð-
arinnar. Við höfum séð eignir okkar
brenna á verðbólgubálinu. Þurft að
bera ok síhækkandi lána og horft
upp á stórkostlega eignatilfærslu
með öllu því þjóðfélagslega rang-
læti sem því fylgir. Við höfum líka
séð stöðnunina sem verðbólgunni
fylgir. Ný verðbólguskefla mundi
því bijóta margt niður sem við höf-
um verið að byggja upp á síðustu
ámm. Hvemig mundi fólkinu, sem
er að fjárfesta í húsnæði, reiða af,
ef þetta gerðist? Mundu atvinnufyr-
irtækin standast slíka árás? Þessara
og fleiri spuminga er eðlilegt að
spurt sé, þegar metið er hvaða
stjómmálaflokkur sé líklegastur til
að veijast þeirri verðbólguvá sem
er fyrir hendi. Við það mat er óhjá-
kvæmilegt að taka mark á gamla
máltækinu, að „reynslan sé ólygn-
ust“. Reynslan sýnir að einungis
einn stjómmálaflokkur, Sjálfstæð-
isflokkurinn, hefur náð árangri í
baráttunni við verðbólguna. Þegar
Sjálfstæðisflokkurinn er í ríkis-
stjóm dregur úr verðbólgu, en án
hans eykst hún. Skiptir þessi
reynsla ekki máli? í mínum huga
skiptir hún öllu. Það er enginn ann-
ar valkostur gegn verðbólgu en
kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Á laugar-
daginn hvílir ábyrgðin á herðum
okkar kjósenda. Þá ábyrgð verðum
við að axla og kjósa gegn verðbólgu
og upplausn.
Höfundur er lögmaður og skipar
8. sæti & framboðslista Sjálfstœð-
isflokks fyrir Reykjavíkurkjör-
dæmi.
Jón Magnússon
„ Sjálfstæðisf lokkurinn
hefur náð árangri í bar-
áttunni við verðbólg-
una. þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn er í
ríkisstjórn dregur úr
verðbólgu, en án hans
eykst hún. Skiptir þessi
reynsla ekki máli?“