Morgunblaðið - 23.04.1987, Side 14
14 C
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
Tefla skal til sigurs
eftirBjörgu
Einarsdóttur
Framundan eru nú afdrifaríkar
kosningar til Alþingis. Farsælu
stjómartímabili tveggja flokka,
Sjálfstæðis- og Framsóknar-, er að
ljúka. Tekist hefur að halda efna-
hag landsmanna í böndum og ná
stjóm á verðbólgunni, gera spamað
eftirsóknarverðan og hagnýta góð-
æri til lands og sjávar til að grynnka
á erlendum skuldum landsmanna.
Ringnlreið og óvissa
Ætla hefði mátt að fólk vildi
fylgja þessu eftir með því að styrkja
þær stjómmálafylkingar sem fyrir
era í landinu til að koma okkur enn
betur á kjöl. En þá bregður svo við
að upp spretta flokkabrot fólks sem
annaðhvort hefur ekki þolinmæði
til að drífa stjómmál eftir meginlín-
um eða fær sér tylliástæður til
framboðs.
FVamboðsflóran, eins og hún
birtist íslenskum kjósendum fyrir
þess£r Alþingiskosningar, býður
heim dreifíngu atkvæða í þeim
mæli að íjöldi þeirra getur fallið
gagnslaus niður. Auðvelt er að sjá
fyrir ringulreið og óvissu um land-
stjómina eftir kosningar þegar
þvílíkur málatilbúnaður er fyrir
þær.
Glundroði af því tagi sem íslensk-
ir kjósendur standa nú frammi fyrir
er ekki vænlegur til festu í stjómar-
háttum né líklegur til að draga fram
þjóðarviljann í kosningunum.
Jón Þorláksson
Breiðfylkingin —
miklir foringjar
Sjálfstæðisflokkurinn var stofn-
aður 1929 og hefur lengst af þeim
tíma verið breiðfylking landsmanna
um sjálfstæði, frelsi og öryggi þjóð-
arinnar, ræktun einstaklinganna og
samvinnu stéttanna, dreifingu
valdsins og varðveislu lýðræðis
meðal borgaranna. Aðal sjálfstæð-
isstefnunnar er mannúð og mildi
vegna þeirra sem höllum fæti
standa og hennar metnaður varð-
staða um íslenska tungu og
menningararf þjoðarinnar.
í þessu felst sá grandvöllur sem
nútíma samfélag íslenskt byggir á
og það hefur borið gæfu til að efla
Þorsteinn Pálsson
með sér stóran og sterkan stjóm-
málaflokk sem hefur lagt áherslu á
að sameina lýðræðisöflin í landinu.
Og gæfa Sjálfstæðisflokksins, og
þjóðarinnar um leið, er hversu mik-
ilhæfir menn hafa valist til forystu
í flokknum þau tæp sextíu ár sem
liðin era frá stofnun hans. Nægir
í þvi efni að nefna nöfn formanns
Sjálfstæðisflokksins svo kunnir era
þeir af verkuum sínum: Jón Þor-
láksson, Ólafur Thors, Bjami
Benediktsson, Jóhann Hafstein,
Geir Hallgrímsson og frá árinu
1983 Þorsteinn Pálsson.
Pólitískt hugrekki
Þorsteinn Pálsson var yngstur
sinna forvera að áram þegar hann
W
Attu enn eftir að
múra og mála?
Hefur þú hugleitt verðmunínn á heföbundnum
frágangi með pússningu og málningu og
sléttri yfirborðsmeðhöndlun með Thoro
efnum? Þeir hjá Hagvangi hf. sýndu
fram á 40% verðmun Thoro í vil og tíl
eru húsbyggjendur sem náð hafa 60%
sparnaði með því að nota Thoro efní
Ertu að byggja
og enn í vafa?
Þeir sem önnuðust frágang,
fegmn og vatnsþéttingu á
Htigvísíndahúsí Háskólans,
Fjölbrautaskóla Suðurlands
Selfossl, LaugardalshöII og
fjölda einbýlishúsa vissu að
þeir völdu fljótlegasta og
endingarbesta fráganginn.
Þeir völdu Thoro. Ættír
þú ekki að slást í hópinn?
Gerðu verðsamanburð
steinprýfli
Stangarhyl 7. s. 672777
Útsölustaðir:
BYKO
B.B. BYGGINGAVÖRUR
HÚSASMIÐJAN
var valinn formaður Sjálfstæðis-
flokksins. Einurð hans og festa í
eldraun síðustu vikna hafa vakið
verðskuldaða athygli og pólitískt
hugrekki hans aðdáun margra.
Skyldu sinnar vegna hlaut hann að
láta atvik til sín taka sem snertu
ráðherra úr hans eigin flokki og
gerðir viðkomandi sem samrýmdust
ekki ráðherrastarfi. Málefni þessi
hafa að undanfömu margsinnis
verið rakin í fjölmiðlum og því öllum
kunn sem á annað borð fylgjast
með gangi þjóðmála (sem raunar
flestir íslendingar munu gera).
Formaður Sjálfstæðisflokksins
vék aldrei um hársbreidd frá máls-
atvikum í samskiptum sínum við
ráðherrann sem afgreiddi gerðina
með því að óska lausnar frá ráð-
herradómi. Málalok sem eiga sér
fá fordæmi hér á landi en era þekkt
hjá nágrannaþjóðum okkar þegar
svipað stendur á. Þetta snerti ekki
framboðsmál vegna komandi Al-
þingiskosninga, þar átti ráðherrann
sitt vísa sæti sem efsti maður lista
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík,
fjölmennasta kjördæmi landsins,
eins og niðurstöður prófkjörs höfðu
leitt til. Um þetta vora þeir sam-
mála flokksformaðurinn og ráð-
herrann fráfarandi. En eins og
hendi væri veifað hófust fimin. Al-
bert Guðmundsson sté upp af
listanum, stofnaði til nýs stjóm-
málaflokks og fór í framboð á hans
vegum í Reykjavík.
Fyrir þá sem hafa starfað með
Albert í Sjálfstæðisflokknum er
auðvelt að rifja upp hvemig hann,
að því er virtist af heitu hjarta, lýsti
sig sjálfstæðismann og fylgjandi
stefnu flokksins. í Sjálfstæðis-
flokknum sýndist hann vera innan
hirðar þar sem hann ætti heima og
þar átti hann mikið starf að baki.
Harma ber að hann skuli þannig
hafa snúist gegn flokki sínum og
vonandi að sagan beri í skauti sér
skýringar á þeim umskiptum.
Arfur Jóns
Þorlákssonar
Ekki mun ég vera ein um að
minnast hátíðahaldanna í Reykjavík
hinn 18. júní 1944 þegar höfuðstað-
arbúar fögnuðu lýðveldistökunni á
Þingvöllum daginn áður. Að kveldi
dags vora hátíðarsamkomur í flest-
um samkomuhúsum bæjarins og
Heimdellingar hópuðust saman til
fagnaðar í Oddfellowhúsinu. Þang-
að komu foringjar flokksins og
ávörpuðu ungliðana. Mér era
minnisstæðir þeir Sigurður Eggerz
og Ólafur Thors er þeir komu
samtímis að heilsa okkur tendraðir
af þeirri gleði að sjá hugsjónir sínar
rætast: Lýðveldið ísland fijálst og
fullvalda í fjölskyldu þjóðanna.
Ólafur ávarpaði okkur: „Ungu
vinir mínir" og sagði okkur af sinni
alkunnu glettni frá því þegar hann,
ungur maður sem var að he§a
stjómmálastarf, og Jón Þorláksson,
þáverandi formaður Sjálfstæðis-
flokksins, gengu yfir Tjamarbrúna
Björg Einarsdóttir
„Þorsteinn Pálsson var
yngstur sinna forvera
að árum þegar hann
var valinn formaður
Sjálfstæðisflokksins.
Einurð hans og festa í
eldraun síðustu vikna
hafa vakið verðskuld-
aða athygli og pólitískt
hugrekki hans aðdáun
margra.“
og leiddust undir hönd í ákafri
umræðu um málefni sem þá greindi
á um. Ráðleggingar Jóns vildi hann
fræða okkur um á stórri stundu.
Ef menn era sammála stefnu þess
stjómmálaflokks sem þeir starfa í
þá Ieysa þeir málin innan vébanda
flokks síns en ganga ekki gegn
honum — því jafnan era málefnin
manninum ofar.
Hér á enn frekar við, vegna kosn-
inganna 25. apríl nk., að tilfæra
orð Jóns Þorlákssonar úr Morgun-
blaðinu 30. maí 1934 þar sem hann
beinir eindreginni áskoran til allra
sjálfstæðiskjósenda „að þeir hver í
sínu kjördæmi skipi sér sem fastast
utan um frambjóðedur Sjálfstæðis-
flokksins og hafí það hugfast, að
þeir era ekki aðeins að lqósa þing-
mann fyrir kjördæmi sitt, heldur
einnig að greiða atkvæði um það,
hverjir skuli hafa á hendi stjóm
landsins næstu 4 ár“.
Leið til sigurs
Allir sjálfstæðiskjósendur í apríl
1987 verða að hafa það hugfast,
hvemig sem framtíðin kann að
verða, að Borgaraflokknum ný-
stofnaða er teflt gegn Sjálfstæðis-
flokknum í Alþingiskosningunum á
laugardaginn.
Eini leikurinn til sigurs í þeirri
skák fyrir raunveralega sjálfstæðis-
menn er að fylkja sér að baki
formanni sínum, Þorsteini Pálssyni,
og merkja í kjörklefanum, þar sem
menn era einir með Guði sínum, X
við D-listann.
Höfundur skipar 31. sœti á fram-
boðslista Sjáifstœðisflokksins í
Reykjavík ogátti sæti ímiðsljóm
Sjálfstæðisflokks 1981-1987.
Norræn menningarvika:
„ Allir á kreik
í léttum leik“
NORRÆN menningarvika verð-
ur 26. apríl til 3. mai nk. undir
yfirskriftinni „Allir á kreik í létt-
um leik“ og er þess vænst að
þeir sem starfa að listum, s.s.
leikfélög, lúðrasveitir, karlakór-
ar, kirkjukórar, popphljómsveit-
ir og fleiri geri eitthvað í þessari
viku. Það er Bandalag íslenskra
leikfélaga sem stendur fyrir
þessu hérlendis.
Tilgangur þessarar norrænu
menningarviku er m.a. að styrkja
norræna samvinnu, að kynna hin
ýmsu félög hvort fyrir öðru og örva
þau til áframhaldandi samstarfs,
og að vekja athygli yfirvalda og
almennings á gildi og umfangi lista-
starfs áhugafólks.
Þessi vika verður einnig kynnt á
hinum Norðurlöndunum og verða
það því Grænlendingar, Alandsey-
ingar, Norðmenn, Danir, Svíar,
Færeyingar og íslendingar sem
leika, spila, syngja og dansa í sömu
vikunni. Það er Norræna áhugaleik-
húsið (NAR) sem vinnur nú að
framgangi þessa máls.