Morgunblaðið - 23.04.1987, Qupperneq 20
20 C
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
Kjósið, krakkar, kjósið!
fáein orð til nýrra kjósenda
eftírdr. Þór
Jakobsson
Hvaða einkunn fá
sljórnmálin?
Ýmsum kynni að þykja yngstu
kjósendumir vera ávarpaðir heldur
óvirðulega í fyrirsögninni, en ég hef
mér til afsökunar að ég kalla krakk-
ana mína ennþá „krakka" þótt
komin séu yfír tvítugt. Ganga þau
nú ásamt jafnöldrum sínum að kjör-
borði við Alþingiskosningamar í
fyrsta sinn.
Ekki veit ég, hvort spurt hafi
verið í einhverri skoðanakönnuninni
undanfarið um áhuga yngstu kjós-
endanna á kosningunum. Spurt
hefur verið: hvað ætlarðu að kjósa?
En hefur verið spurt: fínnst þér
stjómmál skemmtileg, gáfuleg,
heimskuleg, asnaleg? Finnst þér
vert að gefa þeim gaum — hvað
þá meira? Era þau ekki frekar
óvirðuleg iðja miðað við það þunga
efni, sem þú, ungi kjósandi, hefur
verið að læra undanfarin ár eða
miðað við þau skipulegu vinnu-
Útvegsbanki íslands:
Þrír menn
í matsnefnd
VIÐSKIPTARÁÐHERRA hefur
skipað matsnefnd til að meta eig-
infjárstöðu Útvegabanka íslands
hinn 1. mai næstkomandi er
bankinn verður lagður niður og
Útvegsbankinn hf tekur við.
Nefndin skal skila niðurstöðu
eigi síðar en fyrir lok þessa árs.
Amljótur Bjömsson, prófessor,
er formaður matsnefndarinnar.
Aðrir í nefndinni era Ragnar Haf-
liðason, viðskiptafræðingur, til-
nefndur af Seðlabanka íslands og
Stefán Svavarsson, löggiltur endur-
skoðandi, tilnefndur af Fiskveiða-
sjóði íslands.
brögð, sem þú hefur lært að temja
þér í vinnunni? Gerðu svo vel að
láta í ljós álit þitt á stjómmálunum
með einkunn frá einum upp í tíu!
Ruglingsleg
flokksbrotabrot
Mikill flaumur orða og yfirlýs-
inga hefur að vonum riðið yfír í
kosningabaráttunni, klögumálin
ganga á víxl eins og er til siðs á
slfkum stundum, menn miklast
nokkuð af verkum sínum, enda veit-
ir ekki af að leiðrétta andstæðing-
ana sem sækja að úr öllum áttum
og kunna ekki gott að meta.
Flokkar, flokksbrot og einstakl-
ingsframboð era á boðstólum, listi
fyrir hvem fíngur beggja handa og
nú nálgast stund ákvörðunar óð-
fluga. Kjósendur streyma senn á
kjörstað og krossa við besta kostinn
að sínum dómi.
Skiljanlegt er að bramboltið allt
þyki frekar ógáfulegt hjá fólki með
ungar og ferskar heilaframur. Sum-
ir era að vísu vissir í sínu vali nú
þegar, en æði margir era enn að
hugsa ráð sitt og enn aðrir láta sér
fátt um fínnast: „Það tekur því
ekki að velja á milli þessara fram-
bjóðenda. Þetta er allt sama
tóbakið."
Nú segi ég við unga fólkið sem
nennir að lesa þessar línur mínar:
það er þrátt fyrir allt sjálfsagt að
taka þátt í kosningunum — jafnvel
þótt þið að þessu sinni lítið á heim-
sókn ykkar í kjörklefann á laugar-
daginn einungis sem þátttöku í
misheppnuðum samkvæmisleik.
Næstu árin getiði svo fylgst með
þeim sem þið krossuðuð við, ef
þeir komast á hið langþráða Al-
þingi, og dæmt um hvort listinn
eigi skilið annan kross og stuðning
við næstu kosningar.
Kjósið Alþingi!
Mest er um vert, að með því að
lq'ósa sýna menn áhuga á Alþingi
og stjóm landsins. Þrátt fyrir allt
er Alþingi mikilvægara en nokk-
ur einstakur stjórnmálaflokkur.
Þingflokkar stjómmálaflokkanna
era fulltrúar ólíkra sjónarmíða og
að styrkja Alþingi
stofnun landsins.
á ný, æðstu
Lokalota: októpusar
og gorkúlur
Eins og þið hafíð orðið vitni að
undanfarið era miklir flokkadrættir
í landinu. Þeir eiga rót sína að rekja
til þjóðfélagslegrar þróunar og
gömlu góðu flokkamir virðast vera
mismikið á skjön við þróunina. Fólk
ráfar um og leitar að samheijum —
og gerir sér á hinn bóginn upp
ágreining við aðra, sem það að réttu
lagi ætti samleið með.
Gömlu flokkamir era samkvæmt
lýsingum flóttamanna þaðan og
annarra eins og áttarma októpusar
með valdamikla leyniarma langt út
í ókunna kima þjóðfélagsins. Nýju
flokkamir spretta upp eins og gor-
kúlur og óvíst, hve lífseigir þeir
verða.
Þór Jakobsson
Óreiða og endurreisn
Það er því ekki beysið val sem
ykkur er boðið upp á, unga fólk:
að velja einhvem kolkrabbann aftan
úr öldinni eða einhveija gorkúluna
með sína óráðnu framtíð! En veljið,
veljið fyrir alla muni, og hafíð áhrif
á þróunina: hið gamla veðrast nú
og molnar, en við tekur endumýjun
og tækifæri til að móta nýtt skipu-
lag upp úr mulningnum.
Stefnið að þvi að styrkja AI-
þingi með nýju fyrirkomulagi og
þar með sjálfstæði íslands. Takið
þátt í félagsmálum þegar tími
vinnst frá námi og störfíim og fylg-
ist eins og tök era á með stjóm-
málamönnum og fulltrúum ykkar á
Alþingi. Dæmið um, hvort þeir eigi
skilið áhrifastöðu í þjóðfélaginu.
Fleira hef ég að segja en ég
stytti mál mitt svo að grein mín
verði frekar lesin. Gangi ykkur svo
vel í prófum og öðra sem þið hafíð
fyrir stafni. Með föðurlegri kveðju.
Páskadagsmorgun, 19. apríl 1987.
Höfundurer veðurfrseðingur.
Nú veikist Alþingi þessi UlH ffllllldroða,!
árin og horfir illa. Það
mun koma í ykkar hlut,
sem kjósið nú í fyrsta
sinn, að styrkja Alþingi
á ný, æðstu stofnun
landsins.
hagsmuna í þjóðfélaginu, en þrátt
fyrir allt era þeir minni og óæðri
einingar en sjálft Alþingi. Þar era
lögin sett og þar er hin valdamikla
ríkisstjóm landsins sett á laggimar,
sú sem ræður ríkjum næstu árin.
Þar starfar stjómarandstaðan, sem
ætlað er mikilvægt hlutverk í lýð-
ræðisríkjum.
Stjómmálaflokkar sækja fast sín
mál og góður stjómmálamaður ger-
ir svo í lengstu lög þar til hann sér
þann kost vænstan fyrir málstaðinn
að slaka á ögn og komast að mála-
miðlun við anstæðinginn. Þennan
leik verður að stunda utan þings
sem innan, en samt má ekki gleym-
ast hagur Alþingis.
Nú veikist Alþingi þessi árin og
horfír illa. Það mun koma í ykkar
hlut, sem kjósið nú í fyrsta sinn,
uucii
Þjóðsljóm
eða ósljóm?
Jú, þetta er sami maðurinn!
S
ÞETTA ER OTRULEGT
Nú eru komnir bártoppar fra Amenku með flettuðum festingum, sem er algjör
nýjung hér á landi. JL
Þeir haggast ekki, hvað sem á gengur. HARSNYRTISTOFAN
Og hreytingin hún er hreint ótrúleg.
Við verðum með erlendan sérfrceðing
á stofunni ncestu daga.
GREIFIM
HRINGBRAUT 119 «22077
eftir Ásgeir Hannes
Eiríksson
Skjótt skipast veður í lofti, er
stundum sagt, og era það orð að
sönnu. Einkum era hinir pólitísku
vindar fljótari að blása úr öðram
áttum en aðrir vindar. Það má nú
segja.
Sex flokka þjóðráð
Eftir þingkosningamar árið 1983
var Geir Hallgrímssyni falin stjóm-
armjmdun, enda var hann þá
formaður Sjálfstæðisflokksins þó
hann sæti ekki á þingi sjálfur. Geir
tók sér góðan tíma til að kanna
hljóðið fyrir þjóðstjóm allra þing-
flokka. En þá vora þingflokkamir
sex að tölu með samtals sextíu þing-
menn.
Þama þurfti því að hóa saman
sextíu mismunandi þingmönnum úr
sex mismunandi flokkum með mis-
munandi skoðanir ef að líkum
lætur. Bræða saman þessar skoðan-
ir í eina málefnaskrá með eina
stefnu fyrir eina ríkisstjóm. Þetta
þótti mörgum manninum ærið verk-
efni á þeim tíma þó að Geir Hall-
grímssyni yxi það ekki í augum og
þætti þjóðráð. Enda fóra svo leikar
að dæmið gekk alls ekki upp og
Steingrími Hermannssyni tókst loks
um síðir að mynda þá ríkisstjóm
sem nú skilar af sér. Blessuð sé
minning hennar.
En því er þessi tilraun Geirs
Hallgrímssonar tii þjóðstjómar
nefnd hér til sögunnar að þá þótti
öllum helstu framheijum Sjálfstæð-
isflokksins ekki tiltökumál þó
margir flokkar ynnu saman að
stjóm þessa lands. Fleiri flokkar
en þrír og fleiri flokkar en fjórir
og fleiri flokkar en fimm. En nú
er öldin önnur.
Þriggja flokka óráð
Borgaraflokkurinn kom til sög-
unnar um daginn með því að fijáls-
lyndi flokkurinn kvaddi íhaldsflokk-
inn í Sjálfstæðisflokknum. Tók
saman höndum við fijálsiynt fólk
úr öllum áttum til átaka fyrir betra
þjóðfélag gegn flokksræði. Eftir
öllum sólarmerkjum að dæma verð-
ur Borgaraflokkurinn ráðandi afl í
ísienskum stjómmálum eftir kosn-
ingar og vel í stakk búinn til að
leiða næstu ríkisstjóm. En þá varð
íjandinn laus.
Margir helstu ljóðabiskupar úr
Sjálfstæðisflokknum era nú á sjó
dregnir til að benda fólki á hættuna
Ásgeir Hannes Eiríksson
„Margir helstu ljóða-
biskupar úr Sjálfstæð-
isflokknum eru nú á sjó
dregnir til að benda
fólki á hættuna af
þriggja flokka stjórn
eftir kosningar og þyk-
ir óráð.“
af þriggja flokka stjóm eftir kosn-
ingar og þykir óráð. Nú er draumur
Geirs Hallgrímssonar um sex flokka
þjóðstjóm löngu gleymdur og graf-
inn. Enda era þrír flokkar nú taldir
mun lakari kostur en sex flokkar
þóttu vera fyrr á þessu kjörtíma-
bili. Þrem flokkum fylgir nú meiri
glundroði en sex flokkum áður.
Svart er því ljósara en hvítt og
hvítt mun dekkra en svart. Eða
svoleiðis. Þeir sem skilja þessa nýju
söguskoðun betur en ég era vinsam-
lega beðnir að gefa merki.
Svona slq'ótt skipast nú veður í
lofti. Það er ekki sama hvaðan vind-
urinn blæs í pólitík. Úr Valhöll eða
ekki úr Valhöll. Og ekki orð um
það meir.
Höfundur er verslunnmutður og
skipar B. sæti á listn Borgsra-
flokksins í Reykjavík.