Morgunblaðið - 23.04.1987, Síða 22
22 C
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
I þágn for-
eldra og bama
Aþreifanlegur sigur heilbrigðisráðherra á Alþingi
eftirHelgu
Hannesdóttur
Eitt merkasta velferðarmál í
stjórnartíð núverandi ríkisstjórnar
á því kjörtímabili sem er að ljúka
er án efa ný lög um fæðingarorlof,
fæðingarstyrk og fæðingardag-
peninga, sem gera ráð fyrir 6
mánaða greiðslum frá almanna
tryggingum til foreldra vegna fæð-
ingar bama. Vissulega marka þessi
lög tímamót í velferðarþjóðfélagi
okkar enda hefur lengt fæðingar-
orlof verið eitt helsta áhugamál
foreldra og flestra stjómmála-
manna til margra ára.
Langnr aðdragandi
Árið 1975 stóðu sjálfstæðismenn
fyrir lögum um fæðingarorlofsrétt
kvenna samkvæmt ákvæðum kjara-
samninga eða á gmndvelli laga um
atvinnuleysistryggingar. Ókostur-
inn við þessi lög var sá, að rétturinn
náði nær eingöngu til þeirra mæðra,
sem vom fullgildir félagar í verka-
lýðsfélögum og vom útivinnandi.
Ný lög vom samþykkt um fæðing-
arorlof í stjómartíð Svavars Gests-
sonar árið 1980. Það markverðasta
með lögunum frá 1980 var að öllum
foreldmm var tryggt þriggja mán-
aða fæðingarorlof úr lífeyrisdeild
Tryggingastofnunar ríkisins, að
vísu fengu heimavinnandi húsmæð-
ur aðeins þriðjung af þeim greiðsl-
um, sem mæður fengu sem vom í
fullu starfi.
Fljótlega fóm að berast gagnrýn-
israddir um fæðingarorlofslögin frá
1980. Einkum og sér í lagi var
þetta áberandi eftir að umtalsverð
lenging var gerð á fæðingarorlofs-
lögum í Svíþjóð, Noregi og
Danmörk. í Svíþjóð hefur fæðingar-
orlof verið 9 mánuðir undanfarin
ár, lengst allra Norðurlanda. Gagn-
rýnin beindist einnig að ýmsu öðm
svo sem að greiðslur væm tengdar
atvinnuþátttöku á undanfömum
mánuðum og að nauðsynlegt væri
og mikilvægt að mæður væm með
böm sín á brjósti lengur en þijá
mánuði auk annarra uppeldisþarfa
bama á fyrsta ári.
Aðgerðir ríkisstjórnar
eru fyrirbyggjandi
Til þess að börn þroskist eðlilega
þurfa þroskamöguleikar þeirra,
Helga Hannesdóttir
„Hversu vel frumvarpi
heilbrigðisráðherra um
fæðingarorlof var tekið
á Alþingi og hversu
skjóta afgreiðslu það
fékk bendir á mikilvægi
málsins.“
fyrstu ævimánuðina, að vera góðir.
Mikilvægasti sálarþroskinn á fyrstu
ævimánuðum er tengslamyndun
við foreldra. Hegðun bams á fyrstu
ævimánuðum einkennist af því að
bamið grætur, grípur í, horfir í
kringum sig, brosir og sýgur. For-
eldrar þurfa að vera meðvitaðir um
þessi viðbrögð og alla aðra hegðun
bamsins og koma til móts við fmm-
þarfir barnsins strax til að ná sem
bestum tilfinningatengslum.
Btjóstagjöf þarf helst að halda
áfram í 5 til 6 mánuði til að bera
vemlegan árangur að áliti sérfróðra
manna. Böm sem em á bijósti fá
jafnframt viðbótarmótefni frá móð-
ur í gegnum bijóstamjólkina og em
þar af leiðandi betur varin gegn
smitnæmum sjúkdómum en pela-
börn. Vamarkerfí ungra barna er
mjög veikburða gegn smitnæmum
sjúkdómum og þar af leiðandi mikil-
vægt að auðvelda mæðmm að hafa
barn sitt á bijósti sem lengst til að
bæta líkamlegt heilsufar þeirra.
Lögð hefur verið mikil áhersla á
að foreldrar annist böm sín reglu-
bundið og svari líkamlegum og
tilfinningaþörfum bama sinna, þeg-
ar í stað fyrsta æviárið. Þannig em
meiri líkur á að tilfinningatengsl
myndist milli foreldris og bams og
að bömin verði heilbrigðari, líkam-
lega og andlega. „í nútímasam-
félagi virðist æði mörgum
foreldmm það ofviða að sinna bæði
maka sínum og barni samtímis að
loknum löngum vinnudegi. Enn-
fremur virðist það æ algengara að
báðir foreldrar láti vinnu sitja í fyr-
irrúmi fyrir uppeldi barna þeirra
og gæslu heimilis. Til þess að breyta
þessu og að foreldrar geti sinnt
frumþörfum bama sinna þurfa fyr-
irbyggjandi aðgerðir af hálfu stjórn-
valda að beinast að fmmþörfum
foreldra, t.d. með lengingu á fæð-
ingarorlofi og fæðingardagpening-
um, til að koma í veg fyrir
fjárhagserfiðleika foreldra og
tryggja samfellda samvem foreldris
og bams á fyrstu mánuðum eftir
fæðingu. Því færri sem annast bar-
nið á fyrstu ævimánuðum því meiri
líkur em á eðlilegri tilfinninga-
tengslum milli barns og foreldris.
Þess vegna ber sérstaklega að
lofa árangursríka framgöngu heil-
brigðisráðherra, Ragnhildar
Helgadóttur, á Alþingi nú rétt fyrir
þingslit og góðar undirtektir ann-
arra þingmanna. Sérstaklega ber
að vitna í orð Haraldar Ólafssonar
alþingismanns, sem „kvað þetta
vera mikið réttlætismál og mál sem
allir flokkar ættu að samþykkja“.
Hvað er framundan?
Eins og fram hefur komið í
greinaskrifum í Morgunblaðinu um
fæðingarorlofið er um tvenns konar
greiðslur að ræða; fæðingárstyrk,
sem greiðist öllum fæðandi konum
í 4 mánuði frá komandi áramótum,
5 mánuði frá ársbyijun 1989 og 6
mánuði frá ársbyijun 1990 og fæð-
ingardagpeninga, sem greiðast
aðeins þeim sem verða af launatekj-
um vegna bamsburðar og þá er
tekið mið af atvinnuþátttöku við-
komandi. Gagnrýnisraddir hafa
verið í greinaskrifum um málið
vegna þess að ósamræmi hefur ver-
ið á réttindum þeirra kvenna sem
starfa annars vegar hjá hinu opin-
bera og hins vegar þeirra kvenna
sem starfa á almennum vinnumark-
aði. Verkefni stjórnvalda í framtíð-
inni verður að draga úr þessu
ósamræmi með ýmsum aðgerðum.
Heilbrigðisráðherra hefur m.a.
lagt til að stofnaður verði sérstakur
fæðingarorlofssjóður, sem Trygg-
ingastofnun annast vörslu á og
daglega afgreiðslu. Fjármagna
mætti slíkan sjóð með iðgjöldum
atvinnurekenda og með framlögum
ríkissjóðs. Alþingismenn þurfa að
beita sér fyrir að samráð náist milli
aðilja vinnumarkaðarins um þetta
mál en það er tvímælalaust í þágu
atvinnurekenda að fá aftur reynslu-
ríka starfskrafta í þjónustu sína að
fæðingarorlofí afstöðnu. Hversu vel
frumvarpi heilbrigðisráðherra um
fæðingarorlof var tekið á Alþingi
og hversu skjóta afgreiðslu það
fékk bendir á mikilvægi málsins.
Eðlilegt er að um áfangasigra í
svona stóru máli verði að ræða, því
aðdragandinn hefur verið það lang-
ur eða frá 1975.
Að lokum langar mig sérstaklega
að þakka undirbúningsnefnd og
formanni hennar, Ingibjörgu Rafn-
ar, fyrir framúrskarandi vel unnin
störf.
Vinningaskrá happdrættis
Slysavarnafélags íslands
14. apríl 1987
2 íbúðir að eigin vali
að verðmæti kr. 2.000.000 hvor
28518 175046
4 Subaru 1800
að verðmæti kr. 600.000 hver
87936 88090 125432 136935
18 Subaru Justy
að verðmæti kr. 350.000 hver
17150
52705
78244
144720
172830
26638
58278
110698
160246
178432
39989
70581
121541
161986
44589
74881
136974
168486
Slysavarnafélagið þakkar landsmönnum
stuðninginn
Höfundur er barnageðlœknir.