Morgunblaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 30
30 C
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
IÞINGHLÉI
_______________________\
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
62% af umferð
á bundnu slitlagi
Fjárframlög til vegagerðar hafa
nýtzt betur en áður
VEGAAÆTLUN 1987: SKIPTING ÚTGJALDA
Milj.kr
Stjórnun og undirbúningur ................................... 135
Viðhald þjóðvegá .............................................875
Sumarviðhald 671
Vetrarviðhald 204
Til nýrra þjóðvega ...........................................847
1. Stofnbrautir 676
Skiptist þannig: 1.1 Almenn verkefni 251
l.2Sérstökverkefni 193
1.3 Bundið slitlag 174
1.4 Ó-vegir 38
1.5 Reykjavikursvæðið 20
2. Þjóðbrautir 133
3. Bundið slitlag á þjóðvegum í kaupstöðum og kauptúnum 24
4. Girðingar og uppgræðsla 14
Stærstu verkefni: Ölfusá hjá Óseyrarnesi, Reykjanesbraut (verklok)
og .Norðurlandsvegur um Eyjafjarðarleirur (verklok)
Til þjóðvega íkaupstöðum og kauptúnum ....................... 124
Til sýsluvega ............................................. 75
Til brúargerða ................................................66
Stærstu verkefni: Fossá, Guðlaugsvikurá, Vatnsdalsá, Dynjandisá,
Fróðá og Hofsá á Hofsósi.
Tilfjallvegao.fi...............................................18
Tiltilrauna ...................................................10
SAMTALS ....................................................2.150
Samkvæmt vegaáætlun 1987
verður tveimur milljörðum eitt
hundrað og fimmtiu milljónum
króna (2,150 m.kr.) varið til
vegagerðar á árinu. Þar af
ganga 875 m.kr. til viðhalds
þjóðvega, 847 m.kr. til nýrra
þjóðvega, 124 m.kr. til vega í
kaupstöðum og kauptúnum, 75
m.kr. til sýsluvega, 66 m.kr. til
brúargerða og smærri fjár-
hæðir til annarra verkþátta
(fjaUvega, tilrauna o.fl).
Stærstu verkefni - nýj-
ar framkvæmdir
- Framkvæmdafé til stofnbrauta
1987 skiptist þannig: almenn
verkefni 251 m.kr., bundið slitlag
174 m.kr., sérstök verkefni 193
m.kr., Ó-vegir (m.a. undirbúning-
ur jarðganga um Ólafsfjarðarm-
úla) 38 m.kr., Reykjavíkursvæðið
20 m.kr.
Þjóðbrautir fá 133 m.kr., bund-
ið slitlag á þjóðvegi í kauptúnum
og kaupstöðum 24 m.kr., girðing-
ar og uppgræðsla 14 m.kr. og
vegaviðhald 875 m.kr.
Stærstu verkefni nýrra fram-
kvæmda 1987 verða:
* 1) Ölfusá hjá Óseyramesi.
* 2) Reykjanesbraut (verklok).
* 3) Norðurlandsvegur um
Eyjafjarðarleirur (verklok).
Stærstu verkefni 1988-1990:
* 1) Suðurlandsvegur um Mýr-
dalssand.
* 2) Amameshæð.
* 3) Norðurárdalur - Holta-
vörðuheiði.
* 4) Dýrafjörður.
* 5) Göng um Ólafsíjarðarm-
úla.
* 6) Oddsskarð.
Brýr á vegaáætlun 1987 eru:
Fossá, Litlaá, Fróðá, Vatnsdalsá,
Dynjandisá, Guðlaugsvíkurá,
Hofsá við Hofsós.
Sérstök fjárveiting er til verk-
efna við Öífusárós og Vegaskála.
Stórátak í vegagerð
Á sl. ári vóm lagðir um 280
km. af nýju, bundnu slitlagi. Á
því kjörtímabili, sem nú er á enda
(fjórum árum), hafa verið lagðir
200 km. bundins slitlags að með-
altali á ári. Að auki hefur verið
lagt „einbreitt" bundið slitlag á
um 233 km. af umferðarminni
vegum. Breidd þess er 3,8 m. í
stað 5,5-6 m. á umferðarmeiri
vegum. Reynslan af þessum fram-
kvæmdum hefur verið jákvæð.
í árslok 1986 hafði verið lagt
bundið slitlag á um 1422 km., sem
er rúmlega þriðjungur allra stofn-
brauta.
Matthías Bjarnason, sam-
gönguráðherra, sagði í þingræðu
er hann mælti fyrir vegaáætlun
1987-1990, að kostnaður við
bundið slitlag skili sér undrafljótt
í minna vegaviðhaldi, spamaði í
eldsneyti bifreiða og lengri end-
ingu þeirra. Orðrétt sagði hann:
„Þá er talið að fyrir fólksbif-
reið sparist 15% í brennsluefni við
það að fara af vondu malarslitlagi
yfir á bundið slitlag, 38% í sliti á
bfl og 33% í viðhaldskostnaði.
Fyrir vöruflutningabfla er spam-
aðurinn enn meiri...
Ef dæmi er tekið er arðsemi
fjárfestingar af lögn slitlags á
vegum með 200 bfla umferð á dag
15-25%, með 500 bfla á dag
Samkvæmt langtímaáætlun
ívegagerðsem Alþingi
samþykkti að láta gera árið
1983 átti hlutur vegagerðar
aðverða2,4%afvergri
þjóðarframleiðslu frá og
með árinu 1985. Þessar hafa
efndirnarorðið:
1983 1,99%
1984 2,02%
1985 1,82%
1986 1,57%
1987 1,50%
Árin 1986 og 1987 renna
eingöngu markaðar tekjurtil
vegamála, þ.e. bensíngjald
og þungaskattur. Því er svo
komið að eingöngu notendur
veganna sjá þeim farborða.
36-60% og með 750 bíla á dag
50-90%. Efri og neðri mörk arð-
seminnar gefa til kynna hvort
farið er af góðum eða vondum
malarvegi yfir á budnið slitlag.
Áætlað er að árlegur akstur á
vegakerfinu sé tæplega 580 millj-
ón km. Af þeim eru í dag tæplega
220 millj. km. á malarslitlagi, þ.e.
62% af allri umferð eru á bundu
sljtlagi".
*
Aætlun o g fram-
kvæmdir
Með árinu 1986 lauk fyrsta
tímabili lagtímaáætlunar í vega-
gerð (1983-1986). Samkvæmt
áætluninni átti að veija 5,2 millj-
arði króna til vegagerðar á
tímabilinu. í raun var hinsvegar
„aðeins" varið 4,1 milljaðri til
vegagerðar, eða 78% af áætlaðri
fjárhæð. Hinsvegar hafa áætlaðar
framkvæmdir nokkum veginn
staðist, þrátt fyrir samdrátt fram-
kvæmdaíjár.
Samgönguráðherra sagði efnis-
lega í þingræðu að ijármunir til
vegagerðar hafí nýtzt betur síðast
liðin ár vegna hagræðingar í
skipulagi og störfum Vegagerðar-
innar, útboða á framkvæmdum,
sem skilað hafí mun meira á
hveija eyðslueiningu, auk þess
sem olíuverð (verð á asfalti) hafí
lækkað.-Þ’annig hefur verkáætlun
lítið raskast þótt fjárveiting á
tímabilinu hafi verðið milljarði
minni en upphaflega var ráð fyrir
gert.
Sem dæmi má nefna að á árinu
1985 vóru boðin út tæplega 100
verk, stór og smá, hjá Vegagerð-
inni. Áætlaður kostnaður þeirra
var um 418 m.kr. en tilboðsupp-
hæð aðeins 277 m.kr. eða 66%
af kostnaðaráætlun.
Æðakerfi samfélags-
ins
Samgöngur gegna stærra hlut-
verki fyrir atvinnulíf og félagsog
menningarsamskipti fólks í
landinu en menn gera sér grein
fyrir. Góðar samgöngur skipta
meginmáli fyrir stijálbýlið. Þær
gegna og vaxandi hlutverki fyrir
örtyaxandi ferðamannaþjónustu.
Á kjörtímabili því, sem nú er á
enda, hefur verið unnið þrekvirki
í vegagerð, m.a. með betri nýtingu
fjármuna en áður.
Vegaáætlun 1987-1990 ber og
vott um stórhug samgönguráð-
herra og yfirstjórar vegamála
varðandi vegaframkvæmdir á
næstu árum.
280 km
REYKJANES
201,4 km
BUNDIÐ SLITLAG
Á ÞJÓÐVEGUM LANDSINS
Það sem lagt hefur verið afbundnu
slitlagi ersamtals orðið um 1422 km
sem er um það bil lengd hringvegarins
þó svo að einungis um helmingur hans
sé nú lagður bundnu slitlagi. 1980 .80
’82 ’83 ’84 '85 ’86
Ungir sjálfstæðismenn í Mosfellssveit:
Stofna sjálfstæðis-
félag og opna
kosningaskrifstofu
UNGIR sjálfstæðismenn í Mos-
fellssveit hafa ákveðið að stofna
með sér flokksfélag. Ákvörðim
þessi kemur i framhaldi af kosn-
ingastarfi ungs sjálfstæðisfólks
í sveitinni, en það hefur nú opnað
sérstaka kosningaskrifstofu sem
einbeitir sér að þvi að fá unga
kjósendur til iiðs við Sjálfstæðis-
flokkinn.
í fréttatilkynningu sem Morgun-
blaðinu hefur borist kemur fram
að hin nýja skrifstofa ungra sjálf-
stæðismanna er í Bugðutanga 11
(sími: 66 75 13). Skrifstofa Sjálf-
stæðisflokksins er í Þverholtshúsinu
Á kosningaskrifstofu ungra sjálfstæðismanna í Mosfellssveit. F.v. Guðbjörg, Dagný, Gunnar, Ingibjörg
og Gunnar Páll.
í Mosfellssveit (sími: 66 75 11). sem fjarverandi verða á kjördag og þeir sem vilja vinna fyrir Sjálf-
Óskað er eftir því að þeir kjósendur hafi samband við skrifstofumar svo stæðisflokkinn á kjördag.