Morgunblaðið - 23.04.1987, Síða 31
MORGUNBLABIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
C 31
Ávarp til Reyknesinga
eftir Gunnar G.
Schram
Nú á laugardaginn mun það
verða ákveðið hvemig íslandi verð-
ur stjómað næstu árin. Sú ákvörðun
er örlagarík og valið er í þinni
hendi.
Síðustu árin hefur náttúran verið
gjafmild við okkur íslendinga, bæði
til lands og sjávar, og flest hefur
gengið okkur í haginn. En góðærið
er ekki síður því að þakka að við
höfum kunnað að nýta okkur það
betur en oftast áður.
Það er þess vegna sem þjóðar-
tekjur okkar og kaupmáttur launa
hefur vaxið meira á íslandi en í
nokkm öðru landi Evrópu. Það er
þess vegna sem þjóðarsátt hefur
náðst á vinnumarkaðnum og
víðtækt samkomulag um þau mál
sem skipta heimilin í landinu meim
en flest annað — nýskipan í hús-
næðismálum og nýtt og réttlátara
skattakerfi.
Með atkvæði þínu á laugardaginn
hefur þú það í hendi þér hvort hald-
ið verður áfram á þessari sömu
braut til bættra lífskjara — eða
hvort stefnan verður tekin út í
óvissuna.
Loforð og efndir
Það er gjaman sagt, að fyrir
kosningar lofi flokkamir öllu fögm
en gleymi fyrirheitunum strax að
þeim loknum. Þess vegna skulum
við líta örlitla stund fjögur ár aftur
í tímann. Fyrir 4 ámm sögðum við
sjálfstæðismenn: Ef við fáum traust
þjóðarinnar ætlum við að gera
þrennt öðm fremur. í fyrsta lagi
að kveða niður verðbólgudrauginn,
sem hér hefur riðið húsum áratug-
um saman. í öðm lagi að létta
drápsklyfjar unga fólksins sem
eignast vill þak yfir höfuðið. Og í
þriðja lagi afnema tekjuskattinn af
almennum launatekjum og koma á
réttlátu skattakerfi.
Og nú, fjómm ámm seinna, er
rétt og sjálfsagt að spyija: Hvernig
hefur Sjálfstæðisflokkurinn
staðið við stóru orðin? Verðskuld-
ar hann traust okkar í framtíðinni?
Aldrei meiri kaupmáttur
Eg ætla ekki að fjölyrða um þann
árangur sem náðst hefur í efna-
hagsmálum. í þeim efnum þurftu
allir launþegar landsins að færa í
upphafi miklar fómir og skert kjör
um stundarsakir. En þær fórnir
vom ekki færðar til einskis. Kaup-
máttur heimilanna er nú meiri en
nokkm sinni fyrr og verðbólgan
komin úr 130% í 13% á síðasta ári,
viðskipahallinn horfinn og erlendar
skuldir loksins á niðurleið.
2,5 millj. kr. íbúðalán
Fyrir fjórum ámm gátu þeir sem
vildu eignast eigin íbúð aðeins feng-
ið 17% af verðgildi hennar að láni
hjá Húsnæðismálastjóm. Nú fá
þeir, sem em að byggja eða kaupa
í fyrsta sinn, allt að 70% að láni
af verði meðalíbúðar eða 2,5 millj-
ónir króna. Vextir og afborganir
af þessu láni em þó ekki nema um
10 þús. kr. á mánuði þar sem
lánstíminn er orðin 40 ár. Það er
mun lægri upphæð en venjuleg
mánaðarleiga eins og allir vita. Lán
til kaupa á notuðu húsnæði hafa
verið hækkuð að sama skapi í
12—1700 þúsund krónur.
Með þessu nýja húsnæðislána-
Gunnar G. Schram
„ Að mínu mati eru hin
nýju skattalög stærsta
skrefið sem stigið hefur
verið í átt til réttlátara
þjóðfélags, þar sem
hagur hinna efna-
minnstu situr í fyrir-
rúmi. Þau eru
sannkölluð bylting,
bylting sem öll heimili
í landinu munu njóta
góðs af á næstu árum.“
kerfi hefur drápsklyijum skamm-
tímaskuldanna verið létt af herðum
unga fólksins í landinu.
Loksins em því búin mannsæm-
andi lánakjör — loksins er þetta
stóra mál komið í heila höfn.
Skattaloforðin efnd
Þriðja málið sem ég ætla hér að
nefna em skattamálin. A liðnum
ámm hefur tekjuskatturinn verið
ranglátastur allra skatta — sann-
kallaður launamannaskattur.
Andstæðingamir hafa deilt á
okkur sjálfstæðismenn fyrir að af-
nema ekki tekjuskattinn allan í
heild sinni þegar á fyrsta ári eftir
síðustu kosningar.
Þessar ásakanir em ekki á rökum
reistar. Niðurfelling skattsins var
einvörðungu bundin við almennar
launatekjur og því var aldrei lofað
að framkvæma hana í einu vet-
fangi, heldur í áföngum á öllu
kjörtímabilinu. Við það höfum við
staðið. Með lögunum um stað-
greiðslu skatta höfum við í einu og
öllu efnt þau loforð sem við gáfum
fyrir 4 ámm um afnám tekjuskatts-
ins á almennum launatekjum. Það
er staðreynd sem andstæðingar
okkar geta ekki á móti mælt.
í hinum nýju skattalögum var
raunar gengið enn lengra, því nú
munu menn heldur ekki greiða út-
svar af almennum launatekjum.
60—80 þús. kr.
skattlausar
Dæmi: Vísitölufjölskyldan svo-
nefnda, hjón með tvö böm, mun
hvorki greiða tekjuskatt né útsvar
fyrr en tekjur hennar hafa náð 80
þús. kr. á mánuði.
Bamlaus hjón munu ekki byija
að greiða tekjuskatt eða útsvar fyiT
en tekjur þeirra em orðnar 66 þús.
kr. á mánuði.
Tökum þriðja dæmið: Einstætt
foreldri með tvö böm á framfæri
undir 7 ára aldri borgar hvorki
tekjuskatt né útsvar af mánaðar-
tekjum undir 60 þús. kr.
Þessi þijú dæmi sýna svart á
hvítu að Sjálfstæðisflokkurinn hef- -
ur staðið við þau fyrirheit sem hann
gaf um afnám tekjuskattsins á al-
mennum launatekjum. Hámarks-
skattprósenta verður nú 35%; sú
lægsta í nokkm landi Evrópu. Aður
var hún 63% og mönnum þannig
refsað fyrir að leggja á sig mikla
vinnu.
Helmingi færri
greiða útsvar
Þessi nýju lög hafa það líka í för
með sér að þeim landsmönnum sem
greiða útsvar mun fækka um helm-
ing eða um 60.000 og allar tekjur
og tryggingabætur elli og örorku-
þega verða skattfrjálsar.
Að mínu mati em hin nýju
skattalög stærsta skrefið sem stigið
hefur verið í átt til réttlátara þjóð-
félags, þar sem hagur hinna
efnaminnstu situr í fyrirrúmi. Þau
em sannkölluð bylting, bylting sem
öll heimili í landinu munu njóta
góðs af á næstu ámm.
*
Arangur eða upplausn
Á laugardaginn hefur þú það í
hendi þér, kjósandi góður, hvort við
búum áfram á þessu landi við
stefnufestu, fijálsræðis og mannúð-
ar eða hvort íslenska þjóðin heldur
út í óvissuna þar sem glundroðinn
bíður á næsta leiti.
Á laugardaginn velur þú milli
upplausnar eða öryggis.
Þitt er valið.
Höfundur skipar 5. sœti & fram-
boðslista Sjálfstæðisflokks í
Reykj&neskjördæmi.
Sólheimapenninn
Þú eignast nýtan grip og styður góðan málstað
>\ W ÆgM
EIMSKIP
FLUGLEIÐIR
BUNAÐARBANKINN
/
Arnesingaútibú
® lönaðaiDankínn
Gunnar Ásgeirsson hf
STYRKTARSJÓDUR
SÓLHEIMA