Morgunblaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 38
38 C
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
Svo segirí elstu
fundargerða bók
félagsins________
Vorboða:_________
„Að tilhlutan
nokkurra_________
áhugaríkra_______
sjálfstæðis-_____
kvenna í_________
Hafnarfirði hefur
verið umtalað og
orðið að_________
samkomulagi, að
koma á fótfélagi
sjáifstæðis-_____
kvenna í_________
Hafnarfirði. “
Fremri röð: Sigríður Ólafsdóttir, gjaldkeri, Sólveig Eyjólfsdóttir, Ásta Michaelsdóttir, formaður, Kristjana Gísladóttir, ritari. Aftari röð:
Asgerður Hjörleifsdóttir, Rannveig Sigurðardóttir, Sólveig Ágústsdóttir, varaformaður, Bergþóra Björnsdóttir og Elín Jóhannsdóttir.
Sj álfstæðiskvennafélagið
Yorboðinn í Hafnarfírði 50 ára
eftir Sólveigu
Eyjólfsdóttur
Því var boðað til stofnfundar
þessa félagsskapar föstudaginn 23.
apríl 1937 kl.8:30 e.m. að Hótel-
Bjöminn.
Fundinn setti frú Jakobína Mat-
hiesen með hressilegu ávarpi. Að
því loknu bauð frúin orðið laust.
Tók þá til máls frú Rannveig Vig-
fúsdóttir og sagðist eindregið vera
fylgjandi því að stofnað yrði til fé-
lagsskapar sjálfstæðiskvenna hér í
bænum.
þess skal getið að fund þennan
sóttu allar stjómarkonur í sjálf-
stæðiskvennafélaginu „Hvöt“ í
Reykjavík, að undanskildum for-
manni þeirra, frú Guðrúnu Jónas-
son, sem ekki gat komið vegna
veikinda.
Fröken María Maack bar fundin-
um kveðju frá frú Guðrúnu og
skýrði frá stofnun „Hvatar" og var
gerður mjög góður rómur að máli
hennar.
Frú Jakobína Mathiesen hafði
tekið að sér að semja tillögu að
félagsstofnun þessari. Las frúin til-
Sólveig Eyjólfsdóttir
löguna upp fyrir fundarkonum og
fer hún hér á eftir:
Fundurinn samþykkir að stofna
sjálfstæðiskvennafélag hér í Hafn-
arfírði, er hafí á stefnuskrá sinni
að vinna að eflingu Sjálfstæðis-
flokksins á gmndvelli einstaklings-
framtaksins, til aukinnar
velmegunar og velferðar fyrir allan
landslýð.
Auk þess beini félagið starfí sínu
að því, að heilbrigðis- og heilsu-
vemd þjóðarinnar verði aukin — og
uppeldismálin tekin til rækilegrar
rannsóknar — og þau færð til þess
horfs að einstaklingseðli og sjálf-
stæð hugsun bama og unglinga nái
að þroskast sem best — og ennfrem-
ur að glæða ættjarðarást þeirra og
virðingu fyrir þjóðlegri menningu á
öllum tímum.
Tillagan var síðan borin upp til
atkvæða og einróma samþykkt, fé-
lagið stofnað og kosin stjóm.
Kosningu hlutu: form. frú Rann-
veig Vigfúsdóttir, varaform. frú
Jakobína Mathiesen, ritari fröken
Sólveig Eyjólfsdóttir, gjaldkeri fr.
María Ólafsdóttir.
Meðstjómendur: frú Geirlaug
Þorgilsson, frú Guðbjörg Kristjáns-
dóttir, fröken Guðrún Eiríksdóttir,
frú Jóhanna Símonardóttir, frú
Ragnheiður Magnúsdóttir, frú
Halldóra Jóhannsdóttir, frú Soffía
Sigurðardóttir og frú Valgerður
Erlendsdóttir.
Endurskoðendur: frú Helga Jón-
asdóttir og frú Halldóra Zoéga.
Auk Rannveigar Vigfúsdóttur
hafa gegnt formennsku í Vorboða:
frú Jakobína Mathiesen, frú Laufey
Jakobsdóttir, frú Elín Jósefsdóttir,
frú Helga Guðmundsdóttir, frú
Ema Sveinbjamardóttir Mathiesen
og frú Ema S. Kristinsdóttir.
Núverandi formaður er frú Ásta
Michaelsdóttir.
Á 2. fundi félagsins var því gefíð
nafnið — Vorboði — það var hin
mæta kona frú Guðrún Einarsdóttir
í Gunnarsbæ sem átti uppástung-
una að því nafni sem var einróma
samþykkt.
í fundargerðabók stendur skrifað
orðrétt:
„Svo sem nafnið bendir til, þá
vonum við svo innilega að félags-
stofnun þessi fái því áorkað að það
verði einmitt vor með komandi
sumri og sól á hvert einasta hafn-
fírzkt heimili."
Á þennan fund barst okkur
kveðja frá öldruðum sjálfstæðis-
manni og hún er svona:
Setjið lög og semjið frið,
sjálfstæðinu bjargið við.
Ánauð hatið engu glatið,
öllum samleik veitið lið.
Vísukomið er ekki fyrirferðar-
mikið við fyrstu sýn, en felur í sér
gildan sannleik sem höfðar í raun
til hvers einasta íslendings.
Þann 23. apríl 1937 var stofn-
dagur Vorboða og nú þann 23.
apríl 1987 er Vorboði 50 ára.
Öll hin gengnu 50 ár hafa mikið
og margt að geyma sem vert væri
að minnast, sem ekki verður við-
komið í stuttri blaðafregn.
Enn í dag starfa Vorboðakonur
af miklum áhuga — félagsfundir
haldnir í hveijum mánuði yfír vetr-
artímann. Fundarsókn er með
ágætum, enda lögð áhersla á að
hafa fundina eftirsóknarverða, þar
sem margt er flutt bæði til fróðleiks
og skemmtunar.
Vorboðakonur ætla að minnast
merkra tímamóta í félagi sínu með
hófí í veitingastaðnum Skútunni á
sumardaginn fyrsta.
Höfundur er einn af stofnendum
Vorboðana og hefur átt sæti í
stjóm féiagsins fri upphafi.