Morgunblaðið - 23.04.1987, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
C 41
Stiörnu-
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Vanlíöan
Ég ætla í dag að fjalla um
fyrirbæri sem allir þekkja,
en það er þjáning og vanlíð-
an. Reyndar er þetta víðtækt
mál og því mun ég ijalla um
afmarkaðan þátt, eða það
sem við getum kallað ónauð-
synlega og óþarfa vanlíðan.
Ytri aÖstœÖur
Mannleg þjáning er marg-
slungin. Ytri og oft óviðráð-
anlegar aðstæður geta kallað
þjáningu yfir einstaklinga.
Má þar nefna slys, náttúru-
hamfarir, styrjaldir eða
dauðsföll nátengdra ættingja
og vina. Fátt er til vamar
slíku mótlæti, annað en að
gera það besta úr málinu,
s.s. að styðja þá sem hafa
orðið fyrir skakkaföllum.
Lifsstíll
Síðan er til önnur tegund
þjáningar, sem oft á tíðum
er ónauðsynleg. Slíka þján-
ingu má uppræta, enda er
orsakir hennar yfirleitt að
finna ( vondum lífsstíl okkar
sjálfra.
Þreyta
Þegar ég var yngri var ég
alltaf þreyttur og reyndist
hvert lítið verk erfitt. Ég
miklaði fyrir mér flest það
sem ég. þurfti að takast á
við, var óánægður og leið oft
iila. Þegar ég lít til baka sé
ég að þessi vanlíðan var sjálf-
sköpuð. Lífsstfll minn, lifnað-
arhættir og mataræði kölluðu
á vanlíðan. Það vissi ég hins
vegar ekki og því var sem
var.
Orsakir
Orsakir slíkrar vanltðunar
geta verið nokkrar. í fyrsta
lagi líkamlegar. Þar má
nefna mataræði, neysluvenj-
ur og hreyfingu eða hreyfing-
arleysi. í öðru lagi geta
orsakir verið sálrænar. Óupp-
gerð mál geta legið á sálarlífi
okkar. í þriðja lagi er það
lífsstfllinn. Hugsanlega bein-
um við orku okkar inn á
rangar brautir. I fjórða Iagi
geta orsakir vanlíðunar verið
andlegar, þ.e. okkur getur
skort tilgang með lifi okkar.
Hugsunarleysi
Sennilega er aðalorsök van-
hðunar sú að við hugsum
ekki út í það að við burfum
að vinna með eigjð Ííf. Við
látum smyija bflinn reglu-
lega, en gleymum okkur
sjálfum. Við látum hvað sem
er ofan í okkur, en notum
fyrsta flokks bón á bflinn.
Við látum hendingu ráða í
hvaða starfi við lendum. Við
horfum fram hjá því að gera
fortíð okkar upp. (Það er
helst á fylleríi sem við grát-
um við öxl vina og vanda-
lausra.) Hvað varðar
andlegar þarfir spyijum við:
„Hvað er nú það?“ Þegar öllu
þessu er safnað saman er þá
nokkur furða þó mörgum líði
illa?
Sjálfsrœkt
Hin sjálfskapaða þjáning er
óþörf. Við getum upprætt
hana ef við viljum. Við þurf-
um einungis að viðurkenna
að líf okkar krefst vinnu. Að
við þurfum að hugsa um
neysluvenjur, líkama, sál og
anda. Við þurfum síðan að
gefa okkur tíma. Viðurkenna
að slíkur tími er ekki síður
mikilvægur en brauðstritið.
Við getum þurft að leggja
einhveija peninga I
gönguskó, skfði eða bók um
næringarfræði. Við þurfum
að ski(ja að slíkum peningum
er vel varið. f stuttu máli
verðum við að breyta við-
horfum okkar lftillega, gefa
okkur tíma og sýna þolin-
mæði, því það tekur tíma að
breyta um lifnaðarhætti og
stfl. Verðlaunin eru há. Góð
heilsa, ánægja og vellíðan.
GARPUR
GRETTIR
DYRAGLENS
EITUJ?- \ e/tf
þu GBJUR. SAtoT
1 i BAhXK-
AUUM \?A€>
UOSKA
:::::::::
15 THERE ANVTHIN6 I
CAN DO AROUND THE
HOUSE TODAY TO
JU5TIFY MY EXI5TENCE?
THE MOUTH 15 QUICKER
THAN THE BRAIN!
Góðan dag, öll sömul!
Get ég gert eitthvað í hús- Þú getur farið
inu sem sannar tilverurétt
minn?
Orðið er hvatara en hugs-
nninl
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Vesturspilaramir í Daihatsu-'
mótinu voru ánægðir með spilin
sín í 9. umferð.
Suður gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ 743
♦ G2
♦ KG108
♦ D1082
Vestur Austur
♦ K65 ♦ Á102
♦ ÁKD108743 ♦ 965
♦ Á ♦ 96
♦ 7 ♦ ÁK965
Suður
♦ DG98
♦ -
♦ D75432
♦ G43
Sjö grönd er glæsilegur samn-
ingur á spil AV, og allmörg pör
komust þangað. Eftir sterka
kröfuopnun vesturs og jákvætt
svar austurs, fóru margir vestur-
spilarar út í ása- og kóngaspum-
ingar ogtöldu svo upp í 13 slagi.
Það var svo hægt að leggja
upp strax eftir útspilið og taka
næsta spil úr bakkanum:
Austur gefur; allir á hættu.
Norður
♦ G9842
V1072 f
♦ -
♦ K10542
Vestur Austur
♦ Á ♦ KD1065
♦ Á4 VKD65
♦ ÁK107542 ♦ 3
♦ Á83 ♦ G97
Suður
♦ 73
VG983
♦ DG986
♦ D6
Sumir opnuðu á einum spaða
á spil austurs, og eftir það héldu
vestri engin bönd. Fæstir spiluðu
minna en sex grönd. Fræðilega
er besti samningurinn sex tíglar,
sem þolir laufútspil ef tíglamir
em 3—2. I reyndinni var best
að fara ekki upp fyrir þijú grönd,
því tígullegan og samgangs-
vandræðin gera 10. slaginn
meira að segja langsóttan.
w
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á danska meistaramótinu f
ár kom þessi staða upp í skák
alþjóðlega meistarans Carsten
Höi, sem hafði hvítt og átti leik,
og Lars Schandorff. Svartur
lék síðast illa af sér, 21. He8 —
b8, en eins og kemur í Ijós var
21. Ha8 — b8 mun betri leikun
22. Hxe7! - Dxe7, 23. Rg4! -«
Dc5, 24. Rxf6+ - Bxf6, 25.
Bxf6 — Dh5, 26. Dxh5 — gxh5,
27. He5! og hvíta sóknin er enn
óstöðvandi, þrátt fyrir að svartur
hafi náð uppskiptum á drottn-
ingum. (Svartur gaf eftir 27. —
Kf8, 28. Hxh5 - Ke8, 29. Hxh7
- Bc8, 30. Be5 - Ke7, 31.
Bxb8 - Hxb8).