Morgunblaðið - 23.04.1987, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
C 45
Landssamband smábátaeigenda:
Óska eftir fulltrúa í verð-
lagsráð sj ávar útvegsins
STJÓRNARFUNDUR var hald-
inn 13. apríl sl. í stjórn Lands-
sambands sniábátaeigenda á
Hótel Loftleiðum. Mættir voru
stjórnar- og varastjórnarmenn
LS auk tveggja fulltrúa frá Sam-
tökum grásleppuhrognafram-
leiðenda, en samþykkt var á
aðalfundi LS sl. haust að boða
jafnan tvo aðila frá SGHF á
stjómarfund LS. Viðræður um
sammna þessa tveggja félaga
stendur yfir.
Arthur Bogason formaður setti
fundinn og bauð fundarmenn vel-
komna og gat þess að það sem
mest brennur á smábátasjómönnum
nú er hver framvinda verður í
stjórnun fískveiða. Hann gat þess
að greinilega yrði að þeim sótt varð-
andi veiðiheimildir á hausti
komanda.
Framkvæmdastjóri, Öm Pálsson,
flutti skýrslu yfir rekstur LS. Þar
kom fram að tekjur LS af 0,5% á
síðasta ári voru rúmar 2 milljónir
króna. Hann greindi frá samningi
fyrir núlíðandi ár við Trygginga-
miðstöðina hf. um slysa- og örorku-
tryggingu smábátasjómanna. Með
honum er tryggt að allir þeir sem
greitt hafa inn í greiðslumiðlunar-
kerfíð á þessu ári verði sjálfkrafa
slysatryggðir frá 16/1—15/12
þessa árs. Þá eru og ákvæði í samn-
ingnum sem taka til áhafnatrygg-
ingar í fyrsta róðri. Samningurinn
nær einungis til þeirra sem ekki eru
slysatryggðir en ekki þeirra sem
eru það fyrir þannig að ekki er um
tvítryggingu að ræða. Einnig tekur
hann mið að því hversu langt út-
haldið er.
Þá kom það fram hjá fram-
kvæmdastjóra að um 200 aðilar
hafa óskað eftir að LS sjái um
slysa- og örorkutryggingu fyrir þá
og fá þeir aðilar 10% afslátt af
þeirri tryggingu.
Þá upplýsti Öm að 1. júlí gengju
að öllum líkindum í gildi nýjar regl-
ráðunaut, og Njörður, fæddur 6.
júní 1939, arkitekt í Reykjavík,
kvæntur Sigurbjörgu Snorradóttur.
Afkomendumir eru 9 talsins.
Af framangreindu má glögglega
sjá, að Óðinn Geirdal hefír komið
víða við sögu og lagt gjörva hönd
á margt. Ætla mætti að maður, sem
hefir haft svo mörg jám í eldinum
eins og raun ber vitni um hvað
Óðinn snertir, að hann hefði ein-
hvers staðar hlotið að kasta til
höndunum og jafnvel hætta við
hálfnað verk. En því er ekki þannig
farið. Þvert á móti. Öll sín störf án
undantekningar hefír Óðinn unnið
af slíkri alúð, vandvirkni og fádæma
dugnaði, að þar mundi vart á betra
kosið. Alls staðar hefír hann gengið
„heill að hollu verki", sannur og
trúr í smáu og stóm.
Óðinn er einlægur trúmaður,
rækir kirkju sína af mikilli kost-
gæfni og á sitt fasta sæti á kirkju-
bekk. Þátttakan í guðsþjónustunni
er honum mikils virði. I henni öðl-
ast hann uppbyggingu, styrk og
sanna blessun. Hann hefír verið
mikill gæfumaður í lífí sínu, ekki
síst vegna þess, að honum hefír
auðnast að strá svo mörgum og
björtum geislum gleði og gæfu á
vegferð þeirra, sem hann hefír átt
samleið með.
í dag er sumardagurinn fyrsti.
Og enn horfí ég á myndina af Óðni
Geirdal eins og ég sá hann fyrst í
sólskininu í Húsafellsskógi. Mætti
sú dýrðarbirta umvefja þig, vinur,
bæði í eiginlegri og óeiginlegri
merkingu, allt til leiðarloka. Heill
þér, bróðir og vinur, á heiðursdegi.
Guð blessi þig og ástvini þína alla
daga, allar stundir.
Oðinn hefír opið hús í Oddfellow-
heimilinu að Kirkjubraut 54—56 á
morgun, 24. apríl, kl. 17—19.
Björn Jónsson
ur um mælingu báta. Verður þá í
framtíðinni ekki hægt að mæla
báta niður með svokölluðum
„bandamælingum".
Akvörðun um banndaga í júní,
ágúst og október.
Ákveðið var að fara fram á það
við sjávarútvegsráðuneytið að lög-
skipaðir banndagar í júní, ágúst og
október yrðu sem hér segir: 13.
júní til og með 19. júní. Frá 30.
júlí til og með 8. ágúst. 25. okt. til
og með 31. okt.
Samþykkt var að leita eftir út-
boðum á húftryggingu smábáta,
fyrir þá félagsmenn sem þess óska,
fyrir næsta ár.
Fundurinn ræddi um friðun inn-
fjarða og landhelgi við Vestmanna-
eyjar.
Samþykkt var að mótmæla nú-
verandi stefnu stjórnvalda á veiðum
með dragnót og að tillögur drag-
nótanefndar frá aðalfundi LS
síðastliðið haust skildu ítrekaðar.
Þá var ákveðið að efna til undir-
skriftarherferðar um land allt tillög-
unum til frekari áréttingar.
Þá ræddu fundarmenn um
nýsmíði og fiskveiðistefnu komandi
árs.
Að lokum samþykkti stjórnar-
fundurinn að fara þess á leit við
rétta aðila að LS sem hagsmunaað-
ili í sjávarútvegi fengi fulltrúa í
Verðlagsráði sjávarútvegsins.
Notaðu FIRMAIg$
og fitan ferl^fe
Fæst í apótekinu
Vaxtarræktin - Nóatún 17 - Sími 19900
✓
Jón Baldvin Hannibalsson
EFTIR KOSNINGAR þurfum við SAMHENTA ríkisstjórn. Formaður Alþýðu-
flokksins hefur sýnt það í verki að hann kann að leiða fólk til samstarfs. EINING-
IN ER AÐALSMERKIALÞÝÐUFLOKKSINS. Til þess að styrkja liðið - fá til
liðs viðurkenndan hæfileikamann — gaf Jón Baldvin kost á sér í þriðja sæti A-
LISTANS. JÓN BALDVIN leggur því pólitískt líf sitt að veði fyrir árangri AL-
ÞÝÐUFLOKKSINS. Vogun vinnur — vogun tapar. Þau eru mörg, sem ekki mega
til þess hugsa að missa JÓN BALDVIN úr framvarðasveit íslenskra stjórnmála.
Það jgetur oltið á ÞÍNU atkvæði. Og þar með, hvort við fáum starfhæfa ríkisstjórn
- ABYRGA STJÓRN í ANDA JAFNRÉTTIS - EFTIR KOSNINGAR.
5.
>
>
cn
7K.
Með einu símtali er hæqt að
breyta innheimtuaðferðinni.
Eftir það verða áskriftargjöld-
in skuldfærð á viðkomandi
greiðslukortareikning mánað-
VERIÐ VELKOMINI ---
GREIÐSLUKORTA-
VIÐSKIPTI.