Morgunblaðið - 28.04.1987, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987
7
Myndþessi er byggð á sann-
sögulegum heimildum um
táningin, Rocky Dennis, og
litríka móðurhans. það er ekki
síst móðurinni að þakka að
Rocky lét engan bilbug á sór
finna, þrátt fyrirerfiðan sjúk-
dóm sem afmyndaði andlit
hans.
ÁNÆSTUNNI
■■■■■■■■■■■■■
immiinn
22:20
Mlövlkudagur
UST-
RÆNINQJARNIR
Nýr ítalskur spennumyndaflokk-
ur. Frægum listaverkum erstolið
víðs vegarum Ítalíu
23:45
fímmtudagur
CHARLEY HANNAH
(Charley Hannah). Þrautreyndur
lögreglumaður veitirþrem af-
brotaunglingum eftirför. Fyrir
slysni verður hann einum þeirra
að bana. Aðalvitnið imálinu er
með glæpamenn á hælunum og
Hannah tekurað sérað leysa
málið.
nll*
agy
Auglýsingasími
Stöðvar 2 er 67 30 30
Lykillnn færð
þúhjé
Helmllistsakjum
Heimilistæki hf
S:62 12 15
Marklkvartettmn
Kammermúsíkklúbburinn:
Márkl-kvartett-
ínn í Bústaðakirkju
Kammermússikklúbburinn
efnir til tónleika með Mftrkl
strengjakvartettinum i Bústaða-
kirkju á morgun, miðvikudag.
Eru þetta sjöttu tónleikar Kam-
mermúsíkklúbbsins á þessu
starfsári og hefjast þeir klukkan
20.30.
Á efnisskránni eru Strengja-
kvartett í C-dúr, ópus 76, númer
3, eftir Josef Haydn, Strengjakvint-
ett í G—moll, kv. 516, eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart og
Strengjakvartett númer 1, ópus 45,
eftir Wilhelm Kempff.
Kvartettinn skipa þeir Josef
Márkl, sem leikur á fiðlu, David
Johnson, sem leikur á fiðlu og lágf-
iðlu, Bemhard 011 leikur á lágfiðlu
og Manfred Becker á knéfíðlu. Enn-
fremur mun Ásdís Þorsteinsdóttir
Stross leika með þeim á fiðlu í
Strengjakvintett Mozarts.
Að sögn Þórarins Guðnasonar,
eins af forsvarsmönnum Kammer-
músíkklúbbsins er þetta í fjórða
skipti sem Márkl—kvartettinn kem-
ur til íslands. Hann kom hingað
fyrst árið 1976 og tók þátt í miklu
„prógrami" á vegum Kammer-
músíkklúbbsins, en klúbburinn stóð
þá fyrir flutningi á öllum strengja-
kvartettum Beethovens. Kvartett-
inn kom aftur hingað árið 1977 í
tilefni af því að 150 ár voru liðin
frá dauða Beethovens og flutti þá
Strengjakvartett ópus 135, sem er
talið síðasta verkið sem Beethoven
tókst að ljúka. Síðast kom kvartett-
inn svo til íslands í febrúar 1981.
Aðalfundur Félags viðskipta- og hagfræðinga:
Bertrand Jacquillat
flytur fyrirlestur
PRÓFESSOR Bertrand Jacquill-
at, bróðir hljómsveitarstjórans
Jean-Pierre Jacquillat, sem ís-
lendingum var að góðu kunnur,
er væntanlegur til landsins nú í
vikunni ásamt konu sinni. Bertr-
and Jacquillat er þekktur fræði-
maður og fyrirlesari og erindi
hans hingað er að flytja fyrirlest-
ur á aðalfundi Félags viðskipta-
fræðinga og hagfræðinga í
Domus Medica næstkomandi
fimmtudag, 30. april, kl. 16.00.
Fjallar flyrirlesturinn um það
hvort einkafyrirtæki eigi að selja
hlutabréf á almennum markaði
og þá hvemig og nefnist á ensku
„Should private companies go
public and how?“.
Bertrand Jacquillat er prófessor
í hagfræði við Parísar-Dauphine-
háskólann og starfar við rannsókn-
arstöðina HEC-ISA eða Haute
Etude Commercial. Hann er eftir-
sóttur og þekktur fyrirlesari víða
um heim og hefur m.a. verið gesta-
prófessor við Stanford-háskóla í 2
ár og verið fenginn til fyrirlestra-
halds við viðskiptadeildir í Burkley
háskóla, Vínar-háskóla og víðar.
Undanfarin 15 ár hefur birst eftir
hann fyöldi blaðagreina um efna-
hagsmál og hagfræði í fagblöðum
og tímaritum og verið gefnar út
rannsóknarskýrslur hans. Þá hefur
hann gefíð út 8 bækur um ýmsa
þætti stjómunar og fjármála.
Bertrand Jacquillat er 42ja ára
Bertrand Jacquillat
gamall. Hann stundaði nám við
Ecole des Hautes Etudes og við
Institut d’Etude Politique í París,
en hélt 1969 til Bandaríkjanna til
framhaldsmenntunar við Harvard-
háskóla. Doktor varð hann 1979
við Parísar Dauphine-háskólann.
Hann var prófessor við Lille-
háskóla 1980—82 og síðan lá leiðin
1983 til Parísar-Dauphine-háskól-
ans, þar sem hann tók við prófess-
orsstöðu. Hann hefur unnið mikið
að rannsóknum í sínu fagi og átt
sæti í nefndum og ráðum og m.a.
verið forseti Félags viðskiptafræð-
inga í Frakklandi og meðritstjóri
blaðs athafna- og bankamanna.
Sérfræðinganefnd ASÍ og atvinnurekenda:
Mati á samningunum að Ijúkja
STUTT er í að sérfræðmgar Al-
þýðusambandsins, Vinnuveit-
endasambandsins og Vinnumála-
sambandsins ljúki mati á hvort í
nýafstöðnum kjarasamningum
við ríkisstarfsmenn undanfarið
hafi orðið verulega hærri launa-
hækkanir en í kjarasamningum
sem gerðir voru í desember fyrir
almennan vinnumarkað .
ASÍ fór þess á leit við VSÍ og
VMSÍ 10. apríl síðastliðinn að jóla-
föstusamningamir svokölluðu yrðu
endurskoðaðir með hliðsjón af
kjarasamningum ríkisstarfsmanna.
Á það var ekki fallist en ákveðið
að sérfræðingar aðila skyldu meta
breytingamar á samningunum. í
samtali við Morgunblaðið í gær
sagðist Bjöm Bjömsson hagfræð-
ingur ASI búast við að því verki
lyki fljótlega og yrðu niðurstöður
þá birtar.
VINSAMLEGAST ATHUGIÐ
VEGNA MIKILLA ANNA HJÁ AMC VERKSMIÐJUNUM HAFA
ÞÆR TILKYNNT 0KKUR AD STAÐFESTA ÞURFIPANTANIR
Á HINUM VINSÆLU CHER0KEE- 0G WAG0NEER- BIFREIÐ-
UMFYRIR1.MAÍNK.
AFGREIÐSLUFRESTURINN
LENGIST VERULEGA
EFTIR1.MAÍ.
_ . - Smiðjuvegi 4,
n Jeep EGILL VILHJALMSSON HF. kóp.s.77200.