Morgunblaðið - 05.05.1987, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 05.05.1987, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1987 37 Stiörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson „Hæ, hæ Gunnlaugur. Ég hef mikinn áhuga á þáttum þínum og bið þig þess vegna að svara bréfí mínu. Ég er fædd klukkan 21 í Reykja- vík, 18. desember 1974, og er því 12 ára. Mig langar að vita' allt það helsta um mig. Þórunn Erla.“ Svar: Þú hefur Sól, Merkúr og Mars/Neptúnus í Bogmanni, Tungl í Vatnsbera, Venus í Steingeit, Ljón Rísandi og Hrút á Miðhimni. Lífog hreyfing Til að viðhalda lífsorku þinni og lífsgleði þarft þú að lifa skemmtilegu og fjölbreyti- legu lífi. Þú þolir ekki vanabindingu og stimpil- klukkuvinnu, en þarft hreyf- ingu og ákveðið ftjálsræði. Þú veist það best sjálf að þegar þú þarft að sitja lengi kyrr verður þú óróleg og leið. Best verður því fyrir þig að vinna við fjölbreytileg störf, sem fylgja að þú þarft að fara frá einum stað til ann- ars. Yfirvegun Tungl í Vatnsbera táknar að þú leggur áherslu á að vera tilfinningalega sjálfstæð og yfirveguð. Þér er heldur illa við að sýna öðrum tilfinning- ar þínar. Það er allt í lagi, en þú þarft að passa þig og gæta þess að segja það sem þér finnst. Ef þú ert t.d. hrif- in af einhverri manneskju og segir ekkert þá veit hún ekki að þú vilt kynnast henni og ekkert gerist. EirÖarleysi Merkúr í Bogmanni táknar að þú ert opin og hreinskilin í hugsun, en jafnframt eirð- arlaus og forvitin. Þú hefur tilhneigingu til að fara úr einu í annað. Best er fyrir þig í sambandi við skólanám, að læra í hálftíma til klukku- tíma og skreppa síðan smá stund út og hreyfa þig á milli. Annars er hætt við að þú verðir leið. Varkárni Venus í Steingeit táknar að þú ert heldur dul og varkár í ástamálum. Eins og áður sagði þarft þú að gæta þess að segja það sem þér finnst. Glaölyndi Ljón Rísandi táknar að þú ert hlý, opin og glaðleg í framkomu. Þú ert ákveðin, vilt hafa áhrif á umhverfi þitt og vera áberandi. Hrútur á Miðhimni táknar að síðar meir vilt þú vera sjálfstæð í þjóðfélaginu, t.d. í starfi. -millifsLeiklist Ég held að gott væri fyrir þig að vera í leiklist, dansi, tónlist og öðru slíku. Þú hef- ur listræna og skapandi hæfileika og þarft að fá út- rás fyrir orku þína. Þó að þú gerist kannski ekki leik- ari eða dansari er hollt að taka þátt í slíku, það er þroskandi og skemmtilegt. Það gæti líka verið gott fyr- ir þig að læra tungumál. Skipulag Það sem þú þarft helst að læra er að skipuleggja þig. Mars/Neptúnus saman og ótengdur Satúrnus bendir til þess að þú getir verið óskipu- lögð, fljótfær og svolítið utan við þig í framkvæmdum. Hressileiki Þegar á heildina er litið má segja að þú sért hress og jákvæð stelpa, bjartsýn, fé- lagslynd og glaðlynd. Þér ætti því að ganga prýðilega í framtíðinni. GRETTIR DÝRAGLENS UOSKA ÉS HEFALPKEI J 'RDíVUP HÉR FyRR FERDINAND Það stendur hérna að jörð- Snýst jörðin kringum sól- in snúist kringnm sólina ina? einu sinni á ári. Ertu viss? Ég hélt hún snerist kring- um mig! Umsjón: Guðm.’ Páll Arnarson Gráðug íferð i hliðarlit kostaði sagnhafa fímm slagi í eftirfar- andi spili. Það kom upp í Daihatsumótinu. Vestur gefur; enginn á hættu. Norður ♦ K10954 VK3 ♦ ÁD10732 ♦ - Vestur Austur ▲ /?p lllll! ♦ 95 ♦ ÁK10972 ♦ G87 ¥ 10984 ♦ KG ♦ D864 Suður ♦ ÁD3 ¥ ÁG72 ♦ 864 ♦ G53 Algengasta lokasögnin var Qórir spaðar í norður. Þar sem vestur hafði sagt lauf kom aust- ur þar út. Flestir sagnhafar spiluðu þannig; stungu fyrsta slaginn, tóku þrisvar tromp og lögðu svo niður tígulás. Það er öryggisspilamennska til að draga úr hættunni á að gefa tvo slagi á tígul. Éinn sagnhafí að minnsta kosti ákvað hins vegar að láta öll öryggissjónarmið lönd og leið. Eftir að hafa trompað útspilið, tekið þrisvar spaða og endað í blindum, spilaði hann tígli og svínaði drottningunni. 'Austur fékk á kónginn og tók nú síðasta trompið af norðri með því að spila laufí. Sagnhafí var nú í slæmu máli. Hann tók hjartakóng, fór inn á hjartaás og spilaði tígli. Örlagastundin var runnin upp. Annaðhvort fengi hann 12 slagi eða 7!! Hann lét tíuna eftir nokkra umhugsun, austur fékk á gosann og spilaði laufí. Og þá gat vestur lagt upp í vöminni. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á stórmótinu í Brussel í apríl kom þessi staða uþp í skák þeirra Nigels Short og Ljubo- mirs Ljubojevic, sem hafði svart og átti leik. Síðasti leikur Englendingsins var herfílegur afleikur, 28. Khl — gl??, honum virðist alveg hafa yfírsézt hótun svarts: 28. - Dxg2+!, 29. Kxg2 - Bc6+ og Short gafst upp, því eftir 30. Kgl — Hxb4 kemst hann ekki hjá því að tapa peði til viðbótar. Short var alveg heillum horfínn í Bmssel og varð næstneðstur, en Ljubojevic sigr- aði hins vegar á mótinu ásamt Kasparov. Á IBM-mótinu hér í Reykjavík sigraði Short hins vegar ömgglega, en Ljubojevic varð í næstneðsta sæti ásamt tveimur öðmm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.