Morgunblaðið - 05.05.1987, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 05.05.1987, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1987 39 atx/innzz o/ i/inn& — ntx/inr r Cl u tx/inna — — atvinna — — atx/inna CtlVU II ict Cff w f f i 1 « mÍ CltVH II l t vii ii id dlVU 11 Id “• — dtvií lí id 1 15 50 Steindór Sendibílar Viltu gerast sendibílstjóri? Vegna mikillar vinnu ætlum við að bæta við nokkrum greiðabílum. Skilyrði: meirapróf og góðir bílar. Einnig nokkrum stærri sendibílum. Skilyrði: góðir bílar og almennt ökupróf. Upplýsingar á skrifstofunni Skólavörðustíg 42, sími 29566 frá kl. 10.00 til kl. 12.00. R'NÐGJÖF OG RADNINC7\R Matráðskona Við leitum að matráðskonu fyrir traust fyrir- tæki í Kópavogi. Vinnutími 3-4 klst. á dag. Ábendi, Engjateigi 7, sími 689099. Nanna Christiansen Ágústa Gunnarsdóttir Þórunn Felixdóttir HAMRAR SF. NÝBÝLAVEGI 18 - 200 KÓPAVOGI SfMI 91-041488 Verkamenn athugið! Okkur vantar menn í handlang á stór- Reykjavíkursvæðinu sem fyrst. Umsækjendur leggi inn umsóknir á auglýs- ingadeild Mbl. merktar: „H — 2167“ fyrir kl. 12.00 8. maí. Framtíðarstarf Fyrirtæki í ferðaþjónustu óskar eftir að ráða í starf skrifstofustúlku. Um er að ræða fjöl- breytt starf er krefst góðrar kunnáttu í almennum skrifstofustörfum. Tungumálakunnátta (enska, danska, þýska) nauðsynleg. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf alveg á næstunni. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 10. maí merktar: „Framtíðarstarf — 2404“. Múrarar Vantar 2-4 múrara strax. Upplýsingar í síma 75096. Húsaflsf. Verkamenn Vantar nú þegar nokkra verkamenn í vinnu. Upplýsingar í síma 53999. g § HAGVIBKI HF SfMI 53999 Trésmiðir Vantar nú þegar nokkra trésmiði í vinnu. Upplýsingar í síma 53999. HAGVIRKI HF SfMI 53999 Hárgreiðslu- — snyrtifræðingur Sölustarf Heildverslun með heimsþekktar hársnyrti- vörur vill ráða hársnyrtifræðing til sölu og kynningarstarfa hálfan eða allan daginn. Þarf að hafa bíl til umráða og geta unnið sjálfstætt. Góð enskukunnátta nauðsynleg ásamt einhverju Norðurlandamáli. Erum með einkaumboð fyrir hársnyrtivörur á Norðurlöndum. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu okkar frá kl. 13.00-18.00. Pyramid, Skóiavöröustíg 12, sími623333. Sumarstarf — leikfangaverslun Óskum eftir að ráða nú þegar ábyggilegan og reglusaman starfskraft til almennra versl- unar- og afgreiðslustarfa. Umsóknir ásamt uppl. sendist auglýsinga- deild Mbl. fyrir 11. maí merktar: „S — 2169". Sumarvinna Fyrirtæki í Reykjavík óskar eftir að ráða starfskraft við innkaup og tiltekt á matvöru. Nokkur helgarvinna. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrri 8. maí merktar: „Sumarstarf — 2403“. Veiðivörður Staða veiðivarðar með veiðiám í Austur- Húnavatnssýslu er laus til umsóknar. Veiðitímabilið er frá 1. júní til 20. sept. Laun samkvæmt launakerfi ríkisins. Umsóknir sendist Pétri Hafsteinssyni, Hólabæ, 541 Blönduósi, fyrir þriðjudagskvöld 12. maí, sími 95-4349. l LIND Ritari Lind hf. tók til starfa í október 1986 og er í eigu Banque Indosuez, Samvinnubanka ís- lands hf. og Samvinnusjóðs íslands hf. Tilgangur fyrirtækisins er að stunda fjár- mögnunarleigu jafnframt annarri fjármála- starfsemi, s.s. útvegun lána og ábyrgða, fjármálaþjónustu fyrir innlend og erlend fyrir- tæki og stuðla að viðskiptasamböndum þeirra á milli. Einnig að vera umboðsaðili Banque Indosuez á íslandi o.fl. Banque Indosuez er einn stærsti banki Frakklands og einn af 60 stærstu bönkum heims. Starfar hann í yfir 70 þjóðlöndum. Bankinn á eitt stærsta og elsta fjármögnun- arleigufyrirtæki í Evrópu, Locafrance, stofn- að 1961 og starfar það í um 15 þjóðlöndum. Locafrance veitir Lind hf. alla tæknilega að- stoð og hefur Lind hf. meðal annars tekið í notkun sérstakan hugbúnað sem hannaður var og þróaður af Locafrance. Starfsmenn hjá Lind hafa hlótið þjálfun hjá Locafrance. Eigið fé Lindar hf. er 110 milljónir og starfs- menn fyrirtækisins eru fjórir. Vegna vaxandi umsvifa þarf nú að bæta við ritara. Starfssvið ★ ritvinnsla ★ skjalavistun ★ móttaka ★ alm. aðstoð á skrifstofu Ritarinn þarf að vera menntaður á verslunarsviði og hafa góða reynslu af skrifstofustörfum. Færni í tölvuvinnslu, íslensku og ensku áskil- in. Ritarinn þarf að hafa góða framkomu, vera skipulagður og geta unnið sjálfstætt. Vera reiðubúinn að ganga í margvísleg störf og leggja sitt af mörkum til að hlutirnir gangi upp. Vegna náins samstarfs þarf viðkomandi að eiga auðvelt með að umgangast aðra. Starfið er laust í júlí eða ágúst. Skriflegar eiginhandarumsóknir sem tilgreina náms- og starfsferil skulu sendar FRUM hf. c/o Holger Torp fyrir 11. maí nk. Nánari upplýsingar eru eingöngu veittar hjá FRUM hf. Starfsmannastjómun Ráðningaþjónusta [a—J [ Sundaborg 1-104 Reykjavík - Símar 681888 og 681837 Afgreiðslumaður Reglusaman og duglegan afgreiðslumann vantar í byggingavöruverslun sem er sér- hæfð í pípulagningavörum. Umsækjendur um starfið sendi upplýsingar til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 9. maí merkt: „Byggingavörur — 8234“. Málmiðnaðarmenn Óskum að ráða vélvirkja, rennismið og raf- suðumenn. Við greiðum góð laun. Véiaverkstæöi Sig. Sveinbjörnssonar hf., Skeiðarási, Garðabæ, símar52850 og 52661. Innflutningur Starfsmaður óskast til að annast innflutnings- pappíra, bankamál, leysa vörur úr tolli og fl. Vélaverkstæöi Sig. Sveinbjörnsonar hf., Skeiðarási, Garðabæ, sími52850. Verksmiðjuvinna Óskum að ráða nú þegar nokkrar stúlkur til verksmiðjustarfa. Kexverksmiðjan Frón hf., Skúlagötu 28.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.