Morgunblaðið - 05.05.1987, Side 46

Morgunblaðið - 05.05.1987, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1987 Ingibjörg Norð- fjörð — Minning Fædd 22. marz 1911 Dáin 23. apríl 1987 Elskuleg frænka mín, Ingibjörg Norðfjörð, er kvödd hinstu kveðju í dag. í æsku fékk hún gælunafnið Sútta og var hún í mínum huga og okkar frændsystkinanna aldrei ann- að en Sútta frænka. Veikindi hennar hófust fyrir 2 árum, er hún gekkst undir mikla skurðaðgerð. Ekki kvartaði hún né æðraðist, en hélt f lengstu lög í vonina um batn- andi heilsu. Undanfarið ár hefur hún að mestu verið rúmliggjandi, ýmist heima eða í Landspítalanum. Dætumar Didda og Nanna og syn- imir Sverrir og Ottar hafa sýnt henni alveg sérstaka umhyggju og elsku þennan erfíða tíma. Miklar áhyggjur hafði hún þegar Sverrir sonur hennar veiktist alvarlega, og á tímabili lágu mæðginin á sömu deild og gátu hist daglega. Sverrir hefur fengið heilsu aftur. Þegar móðir mín lærbrotnaði og var lögð á deildina á næstu hæð fyrir ofan var Sútta ekki lengi að láta keyra sig í hjólastól til hennar. Þær höfðu ekki sést í marga mánuði vegna lasleika beggja og voru glaðar að hittast þótt við þessar aðstæður væri. Fyrstu spítalalegur Súttu voru með sérstökum blæ. Hún eignaðist vini á hverri stofu sem hún gisti og hreif þá með sér í ótrúlega gleði og bjartsýni og trú á betri heilsu. Það tók mig sárt að sjá hversu mátturinn þvarr og vanlíðanin varð meiri, en enginn gat tekið frá henni góða skapið og umhyggjuna fyrir öðrum. Sútta var dóttir Vilhelms Bern- höft tannlæknis og konu hans Kristínar Johnson. Systkini hennar eru Kristín (Bútta), Guido, Gotfred faðir minn, sem lést 1964, og Sverr- ir. Mikill kærleikur var með systkin- unum og fyrir utan að vera systur voru Sútta og Bútta bestu vinkon- ur. Sútta giftist Agnari Norðfjörð hagfræðingi og heildsala. Hann lést árið 1982. Þeirra börn eru: Sverrir arkitekt, Kristín lögfræðingur og húsmóðir, Ingibjörg Nanna flug- freyja og húsmóðir og Óttar við- skiptafræðingur, sem tók við heildsölu föður síns. Hann bjó með móður sinni og annaðist hana sér- staklega vel í veikindum hennar. Þegar ég lít til baka streyma minn- ingamar frá æskuárum mínum fram og átti Sútta stóran þátt í þeim ánægjulegustu. Ég minnist eftirmiðdaganna þegar amma og Sútta sátu við hannyrðir og ég skrapp í heimsókn, en stutt var á milli okkar. Þær saumuðu ýmist veggteppi, púða, stóla eða klukku- strengi. Allt með mikilli smekkvísi og listfengi. Stundum komu pabbi og bræðumir eftir vinnu og þá var nú fjörugt. Þá var líka alltaf sól og allir í góðu skapi, ekkert stress. Ég minnist fermingarveislna bam- anna. Þar lék Sútta á als oddi og naut þess að bera fram góðar veit- ingar og útbúa pakka sem voru vinningar í bingó. Mér fannst það frábært að fara í fermingarveislu og koma svo sjálf heim með pakka. Einkenni á veislunum var hvað öll- um þótti gaman og leið vel saman í ijölskyldunni. Þótt Sutta kæmist ekki í jólaboðið okkar um síðustu jól, þá upplifði hún það í frásögnum okkar og eins þegar hún sá það á myndbandi daginn eftir. Amma Kristín og afi Vilhelm bjuggu við Vonarstræti 4, en afí lést árið 1939 í Kaupmannahöfn. Var hann þá í heimsókn hjá Búttu og Gunnlaugi sem bjuggu þar um nokkurt skeið. Sama ár giftust Sútta og Agnar og keyptu þau ásamt ömmu og Sverri, sem þá var ógiftur, húsið á Kjartansgötu 6. Sverrir giftist árið 1943 og stofnaði heimili. Heimilisbragurinn á Kjart- ansgötunni var alveg sérstakur. Amma og Sútta voru svo sam- rýndar að ekki var hægt að nefna aðra svo ekki væri minnst á hina. Einnig var Agnar ömmu mjög kær og virtu þau hvort annað, svo aldr- ei bar skugga á. Þama var gott að koma og alltaf voru Sútta og amma vísar á heimilinu þegar ég kom í heimsókn. Amma lést árið 1957. Hún var yndisleg kona. Sútta var fastur punktur í tilveru minni sem alltaf var gott að leita til ef leiði eða vandi steðjaði að. Eftir heim- sókn til Súttu varð alltaf aftur bjart og ég fór glaðari burt en ég kom. Jafnvel eftir að hún veiktist hafði hún lag á að sjá allt hið jákvæða og góða. Hún var elskuleg móðir og sann- ur vinur bama sinna sem kom best í ljós eftir að veikindi hennar steðj- uðu að. Hún var tryggur vinur systkina sinna og allra sem kynnt- ust henni og er hennar nú sárt saknað af okkur öllum. Þótt hún hafi verið lefup mikið veik þá lét hún ekki á þvi bera. Hún vildi allt- af vita hvað væri skemmtilegt að frétta og hvað aðrir hefðu upplifað og tók mikinn þátt í því öllu. Síðustu vikuna var mikið af henni dregið og vöktu böm hennar yfír henni. Lára systir mín, sem búsett er í Ameríku, kom til landsins eftir að mamma okkar veiktist og var í 10 daga. Hún kom daglega til Súttu og veit ég að henni þótti vænt um heimsóknir hennar. Agnar lést árið 1982 eftir langvarandi veikindi. Var hann rúmfastur í um tvö ár og annaðist frænka mín hann af ósér- hlífni sinni og elsku. Dætumar og Sverrir komu daglega og aðstoðuðu móður sína eftir getu. Nú þegar ég kveð frænku mína er tómarúm í hjarta mínu. Ég þakka fyrir að hafa átt hana fyrir frænku og vin- konu. Elsku Sverrir, Didda, Nanna og Óttar. Megi minningin um góða og umhyggjusama móður veita ykkur styrk í sorg ykkar. Blessuð sé minning hennar. Áslaug Að morgni sumardagsins fyrsta sofnaði vinkona mín, Ingibjörg Norðíjörð, svefninum langa. Hvíldin var henni líkn, þar sem hún hafði þjáðst í svo langan tíma að með ólíkindum er. En þrátt fyrir öll hennar veikindi var hún alltaf gef- t Eiginmaður minn og faðir okkar, ÖRNÓLFUR M. ÖRNÓLFSSÓN rafvirkjameistari, Gautlandi 1, lést á Mallorca 2. maí. Stefanía Guðmundsdóttir og börn. t Eiginkona mfn, móðir okkar og amma, GUÐRÚN INGIBJÖRG AUÐUNSDÓTTIR, Öldutúni 18, Hafnarfirði, lést i Landakotsspítala að kvöldi 1. maí. Konráð Bjarnason, Guðlaug Konráðsdóttir, Sverrir Konráðsson, Marta Ruth Guðlaugsdóttir, Ingi Torfi Sverrisson. t Móðir okkar, FRÍÐA GUÐMUNDSDÓTTIR, lést á Elliheimilinu Grund 3. maí. Gylfi Baldursson, Benný Ingibjörg Baldursdóttir. t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi, ÓLAFUR Þ. SIGURÐSSON, Nökkvavogi 3, andaðist í Borgarspítalanum 2. maí. Vegna mín og barna minna, Sigrfður Davíðsdóttir. t Móðir mín, ANNA GUÐNADÓTTIR, Smyrlahrauni 2, Hafnarfirði, lést í Landakotsspítala 4. maí. Kristinn Guðnason. t Móðir okkar og systir, MARGRÉT KRISTJÁNSDÓTTIR, lést 2. maí á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, Reykjavík. Ingunn Ó. Sigurðardóttir, Kristján Á. Slgurðsson, Einar Sigurðsson, Gunnþórunn Sigurðardóttir, Guðbjörg Kristjánsdóttir. t Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGURÐAR ÁRMANNS MAGNÚSSONAR stórkaupmanns, Barðaströnd 10, Seltjarnamesi, fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 7 maí kl. 13.30. Guðrún Lilja Halldórsdóttlr, Örn Ármann Sigurðsson, Kristfn Gunnarsdóttir, Halldór Ármann Sigurðsson, Hólmfrföur Valdimarsdóttir, Anna Sigurbjörg Sigurðardóttir, Magnús Ármann Sigurösson og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, EYJÓLFUR ANDRÉSSON, Miðvangi 41, Hafnarfiröi, verður jarösunginn frá Hafnarfjarðarkirkju miövikudaginn 6. maí kl. 15.00. Guðrún Stefánsdóttir, Erla Eyjólfsdóttir, Björn Guðmundsson, Stefanfa Eyjólfsdóttir, Óskar Konráðsson, Andrés Eyjólfsson, Rakel Benjamfnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, EDITH THORBERG JÓNSSON, Sólvallagötu 39, verður jarösungin frá Dómkirkjunni í dag, þriðjudaginn 5. mai, kl. 13.30. Trausti Thorberg Óskarsson, Dóra Sigfúsdóttir, Elna Thorberg Stangeg&rd, Ole Stangegárd, Georg Thorberg Georgsson, Bylgja Óskarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. andi en ekki þiggjandi, sá alltaf björtu hliðamar á hveiju máli. Við fjölskyldan áttum því láni að fagna að verða næstu nágrannar þeirra hjónanna, Ingibjargar og Agnars Norðijörð, er við fluttum í Norðurmýri fyrir sextán árum. Vin- átta okkar Ingibjargar hófst á fögrum júlídegi, er ég var úti í garði með elzta bam okkar hjóna, en hún var hinum megin við girð- inguna, eitthvað að dútla í garðin- um, eins og hún kallaði það. Þann dag eignaðist ég dýrmætan vin. Ingibjörg var mikil fjölskyldu- manneskja, heimili hennar var miðpunktur fjölskyldunnar. Ekki held ég að sá dagur hafí liðið, að ekki kæmi einn eða fleiri af niðjum hennar, og eftir að hún missti Agn- ar, en hann lézt í janúar 1982, uppskar hún það, er hún hafði til sáð; bömin og þeirra fólk umvöfðu hana og í þessari erfíðu sjúkdóms- legu, er staðið hefur um árabil, hefur samband hennar og bamana verið einstakt. Við fjölskyldan kveðjum Ingi- björgu með söknuði, en vitum, að hvíldin var henni kærkomin, og vissan um, að vel hefur verið tekið á móti henni, er okkar huggun. Kvödd er dásamleg kona. Fari hún í friði. Dagný og fjölskylda. Það er eins og hann Doddi litli sagði, að sumardagurinn fyrsti er ekki alltaf bara happadagur. Þann dag dó amma hans. Hún var ekta Reykvíkingur og átti ættir sínar að rekja til sóma- fólks hvarvetna. Hún fæddist í Kvosinni og ólst þar upp. Mestan hluta ævinnar bjuggu þau Agnar í Norðurmýrinni og þar áttu þau fal- legt og hlýtt heimili þar sem allir vom velkomnir og þar sem þau nutu þess að vera gestgjafar. Hún var hefðarkona og hún hélt reisn sinni fram á sfðasta dag. Auðvitað vissi hún fyrir löngu að burtferðardagurinn gat verið skammt undan og það var lær- dómsrikt að vera í návist hennar, sem var alltof sjaldan. Það segir meira en mörg orð að nokkm fyrir andlátið ákvað hún að láta mála hjá sér og leggja ný teppi á gólf í húsinu. Hún vildi áreiðanlega ekki fara frá neinu „sjúskuðu". Tvennt var það í fari hennar sem vakti mesta athygli mína og aðdáun eftir að hún varð veik og það var æðruleysi hennar og stilling sem ávallt sat í fyrirrúmi. Hlýtt viðmót- ið og viljinn til að gera gestum og gangandi eins gott og unnt var minnkaði ekki eftir að hún var al- veg rúmföst og hafði ekki lengur fótavist af völdum sjúkdómsins. Og þegar halla tók vemlega und- an fæti og styttist í upphaf ferðar- innar yfír móðuna miklu þá naut hún sem fyrr ástúðar bama sinna fjögurra og annarra nánustu og þegar mest á reyndi sýndu dætur hennar, Nanna mín og Kristín, með ástríki, umhyggju og dugnaði, að þeim er ekki fisjað saman. Á sumardaginn fyrsta byrjar nýtt tímaskeið og þá „verður aftur hlýtt og bjart um bæinn", dagurinn verður lengri en fyrr og himinninn verður stærri og hann verður nærri en þegar myrkrið grúfír yfír. Hún verður því aldrei fjarri og minning- in um hana er björt og „Nú veit ég að sumarið sefur i sál hvers einasta manns". Jón Ásgeirsson Við, unga kynslóðin á Kjartans- götu, eigum eftir að sakna hennar Ingibjargar. Allt frá því að við vor- um rétt farin að geta klifrað upp tröppumar til hennar höfum við getað gengið að því sem vísu, að hægt væri að líta inn í heimsókn og þiggja eitthvert góðgæti. Alltaf gaf hún sér tíma til að tala við okkur og alltaf mætti okkur brosið hennar hlýja. Aldrei var viðmótið annað, jafnvel ekki þegar við stóð- um á tröppunum með blóm sem við höfðum í sakleysi okkar slitið upp I garðinum hennar og vildum færa henni. Það var okkur þungbært að fylgjast með langvinnri baráttu hennar við sjúkdóminn. Loks

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.