Morgunblaðið - 05.08.1987, Page 24

Morgunblaðið - 05.08.1987, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1987 Þorsteinn hengir jakka sinn á bak forsætisráð- herrastólsins í fyrsta sinn Texti undir forsíðumynd í Morgunblaðinu 9. júlí 1987 eftirSímon Steingrímsson Hinn 7. júlí birtist í Morgun- blaðinu stefnuyfirlýsing og starfsá- ætlun ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar á tveimur opnum, en í greininni eru þetta kölluð drög. Hinn 10. júlí segir Þorvaldur Gylfason að málefnasamningurinn sé í mörgum greinum skynsamleg- ur, skilmerkilegur og með kunn- áttubrag nema í landbúnaðarmál- um. Þetta fannst mér líka við fyrsta yfirlestur, en við fjórða lestur tók ég eftir því að fyrir utan fyrstu aðgerðir, sem eru að mestu skattaá- lögur eru á þessum fjórum blaðsíð- um aðeins sex atriði, sem hægt er að hrinda í framkvæmd. Þau eru eftirfarandi: 1. Sjálfstæðis-, Framsóknar- og Alþýðuflokkur hafa náð sam- komulagi um myndun nýrrar ríkisstjómar. 2. Gengi krónunnar verði haldið stöðugu. 3. Kjamfóðurskattur verður lagður á til að styrkja innlenda fóður- framleiðslu. 4. Staðgreiðsla beinna skatta kem- ur til framkvæmda í ársbytjun 1988. 5. Stofnsettur verði sjávarútvegs- skóli þar sem sameinuð verði kennsla í sjávarútvegsfræðum. 6. Ríkisstjómin mun koma á sam- ræmdu lífeyrissjóðskerfi fyrir alla landsmenn, er taki gildi á grundvelli frumvarps til laga um starfsemi lífeyrissjóða. Bætt verði í frumvarpið ákvæðum þess efnis að ekkja/ekkill haldi lífeyrissjóðsréttindum maka hafí þau verið meiri en hans/hennar. Sama gildir um fólk í óvígðri sambúð sem jafna má til hjú- skapar. Já loksins erum við búin að fá líflegan kirkjumálaráðherra! En var ekki búið að ákveða staðgreiðslu skatta. Fátt kemur á óvart í fyrstu að- gerðum stjómarinnar. Að vanda hefur Alþingi svikist um að gera raunhæf fjárlög svo á miðju ári þarf að gera ráðstafanir. í málefna- samningum kemur fram oftrú á vaxtahækkun í stað þess að tak- marka peningamagn í umferð. Minnst er á einföldun skattkerfis- ins. Eg hnaut nú um 4 kr. gjald á hvert kíló af bifreiðum. — Um Cal- igula keisara segir: „Hann lagði skatt á allt sem heiti hefur, meira að segja . . .“ Önnur atriði er eru öllu losara- legTÍ. Orðið endurskoðun eða myndir af því koma fyrir liðlega 40 sinnum, enn auk þess: að örva — að athugað verði — auka gæði — auka hagkvæmni — auka sparn- að — að auka veg og virðingu — átak verði gert — beita sér fyrir — bæta rekstur — bæta hag — dregið verði úr — flýtt fyrir — fylgst náið með — leggja áherslu á. — gera einfaldari — gera kleift — gera réttlátari — gerðar verði breytingar — greitt verði fyrir — í auknum mæli — lagður grunnur — leitað leiða — litið verður á — mæta vanda — samræmt verður — sem minnst — sem hest — stefnt að — stuðla að jafnari — styrkja samkeppnis- stöðu — tekjustofnar verði almennir og skattlagning hlut- Iaus — unnið verði að — undirbúið verði — veita aðhald — verða treyst- ar — verði aukið — verði bætt — verði breytt — verði efld — verði fækkað — verði réttlátari — verði unnin skipulega — vinna að aðlögun — örva vöruþróun. Auðvitað hlýtur málefnasamn- ingur oft að vera almennt orðaður, en þessi einkennist töluvert af því að menn hafa ekki heldur heildar- sýn yfir þau vandamál sem við er að etja, en eiga þess í stað í hand- raðanum allskonar meðöl sem þá langar til að prófa. Málefnasamn- ingurinn er skilmerkilega kafla- skiptur, en ég mun hér á eftir drepa á nokkur af þeim vandamálum, sem mér fínnst blasa við í íslensku þjóð- félagi. 1. Stjórnkerfi Megin vandamál íslenska stjórn- kerfisins er að hér er nánast engin skipting í löggjafar- og fram- kvæmdavald. Alþingi er, eftir að ríkisstjórn hefur verið mynduð, auð- mjúkur þjónn ríkisstjórnarinnar, nema fjárveitinganefnd, sem fer þó nánast með framkvæmdavald. Þeg- ar stefnumörkun og framkvæmd stefnu falla saman fellur niður það aðhald sem hvor þarf að veita öðr- um. Stefnan er mótuð eftir því hvemig framkvæmdum miðar og ef framkvæmd fer úrskeiðis koma menn sér upp nýrri stefnu. Þetta kemur glöggt fram þegar sett em lög, en síðan ér ekkert hugað að kostnaðinum og þau em jafnvel ógild vegna þessa. Innan Alþingis er einnig mikil- vægt að skipta störfum fjárvéiting- arnefndar í tvennt, þ.e. í heildar fjáröflun og fjárveitingar innan ein- stakra málaflokka. Þarna örlar á skilningi í grein 4.2.5. í málefna- samningnum, en eftir er að sjá að Alþingi sýni sjálfu sér þennan aga. Margir hafa nefnilega gaman að sitja báðum megin við borðið. Þá er nauðsynlegt að banna út- gáfu bráðabirgðalaga til lengri tíma en einnar viku. Það er óþolandi vorverk í þingræðisríki að ríkis- stjórnin sendi Alþingi heim þegar þingmenn em hræddir við að gera eitthvað. Þáð er einnig óþolandi að ný- kjörnir þingmenn sem búnir em að lofa gulli og grænum skógum kom- ist upp með að láta reikna út nýjan efnahagásannleika eftir kosningar, og þurfi ekki að standa kjósendum sínum skil í atkvæðagreiðslu á Al- þingi fyrr en eftir dúk og disk. 2. Hagrir almenningfs í því góðæri sem nú ríkir horfir almenningur gjarnan á fjögur atriði fyrir utan laun. 1. Matarkostnaður: Lengi hefur verið vitað að matarkostnaður er hér óheyrilega hár miðað við lægstu laun. Þetta á sér margvíslegar or- sakir, m.a. háan framleiðslukostnað á landbúnaðarvömm. Einnig virðist skorta mjög á skilning stjórnvalda á að ódýr matvara er ein af'undir- stöðum þess að láglaunafólk njóti nokkurs jafnréttis. Ein frægasta mgludolla landsins, sem gerði dmllusokkinn að skjaldarmerki mannsins síns hefur nýlega verið að gefa góð ráð um ódýran mat og fleiri hafa tekið þátt í umræðunni. En eitt virðist flestum gleymast, sem sýna lága búreikninga, en það er 'hve oft fjölskyldumeðlimirnir mæta í mat. Það er nefnilega orðið vemlegt kjaramál hvort menn geta étið sig metta á vinnustað og sá litli kostnaður sem menn borga þar fer ekki á matarreikninginn í JL- húsinu. Og það fer hann heldur Símon Steingrímsson „ Auðvitað hlýtur mál- efnasamningur oft að vera almennt orðaður, en þessi einkennist tölu- vert af því að menn hafa ekki heldur’heild- arsýn yf ir þau vanda- mál sem við er að etja, en eiga þess í stað í handraðanum allskon- ar meðöí sem þá langar til að prófa.“ ekki ef menn borða hjá Gauki á Stöng. 2. Húsnæðiskostnaður: Versta óhappaverk síðustu ríkisstjómar vom ráðstafanir hennar í húsnæðis- málum. Há lán út á gamlar íbúðir urðu til þess eins að stórhækka allt íbúðaverð í landinu og em undir- staða þeirrar verðbólguöldu sem nú er risin. Nauðsynleg afskipti ríkis- valds af húsnæðismálum em mjög einföld. í samvinnu við sveitarfélög þarf að tryggja jafnt framboð á lóðum og veita meginhluta fjár- magns húsnæðislánakerfisins til verktaka er bjóði fram nýjar íbúðir í samkeppni við gamlar. Minnihátt- ar fyrirgreiðslu mætti veita þeim sem kaupa íbúð í fyrsta sinn til að kaupa gamlar íbúðir. En það er gagnslaust fyrir húsnæðiskerfið í landinu að ausa fé í að staðgreiða erfingjum hlut sinn í íbúð látinna foreldra. 3. Barnaframfærsla: Eftir að kon- ur hættu að líta á heimilisrekstur sém aðalatvinnu sína og vinna beggja foreldra varð undirstaða sómasamlegrar afkomu almenns launafólks em bamabætur í ein- hverri mynd eitt megin kjarajöfnun- aratriði. Bein ríkisfyrirgreiðsla vegna framfærslu bama er í engu hlutfalli við framfærslukostnað þeirra. Sveitarfélög greiða að mestu bamagæslu fyrir takmarkaðan for- gangshóp, og heilbrigðisþjónustan fyrir hluta starfsmanna sinna. Það sýnir sig hjá heilbrigðisþjónustunni að starfsmenn meta ekki þessa stór- felldu fyrirgreiðslu á við laun og er það nokkur þversögn, en stór- auknar bamabætur eða skattaaf- sláttur er eitt megin kjarajöfnunar- atriðið. 4. Eftirlaun er eitt atriði sem nokk- ur loforð em gefin um í stjórnar- sáttmálanum og er stórmál. Er vonandi að menn beri gæfu til að losa ríkið sem mest út úr þeim greiðslum en láta einstaklingana sjálfa tryggja sér lífeyri með greiðslum af launum, en greiða mætti í lífeyrissjóð húsmæðra með barnabótum. Þær konur sem eru heimavinnandi til að stjana við einn kall þurfa ekki slíkar greiðslur. Oftast gleyma menn undirstöðu hagsældar almennings: menntun, heilbrigðisþjónustu og atvinnu- öryggi. Það er furðulegt hve óprúttnir stjórnmálamenn hafa á undanförnum ámm átt auðvelt með að sá fræum tortryggni um heil- brigðis- og menntakerfi og reyna að gera starfsmenn skóla og sjúkra- húsa að blórabögglum um fyrir það sem úrskeiðis gengur í þjóðfélaginu. 3. Landbúnaðarmál Doktor Benjamín segir í grein í Mbl. 9. júlí. „Bændur eru ekki agaður lýður“. Enginn sem notið hefur þeirra forréttinda að alast upp í sveit og ganga þar til fjölbreyttra verka getur tekið undir þessi orð, en á annað er að líta. Landbúnaður er í dag ekki beinlínis atvinnuvegur heldur lífshættir. Öll umræða um landbúnaðarmál er á trúboðsstigi. Nú tala allir um offramleiðslu sem megin vandamál landbúnaðarins, en líklega sér nú fyrir endann á henni. Það eru í rauninni aðeins tvö vandamál í íslenskum land- búnaði. Hár framleiðslukostnað- ur og ótrygg gæði kjöts. Hár framleiðslukostnaður leiðir til þess að afurðirnar em allstaðar óseljan- legar nema á lokuðum heimamark- aði. Léleg kjötgæði koma fram í því að fólk snýr sér frá lambakjöti og nautakjötsmarkaðurinn er fullur af smygli. Ástæðan fyrir að svo er komið í íslenskum landbúnaði er að með lögum hafa markaðsöflin verið gerð útlæg úr landbúnaði, en stundaður ríkisstyrktur einkarekstur. Enn em íslenskii' bændur með tilstyrk lög- gjafarvaldsins að berjast á móti atvinnuháttum Thors Jensens. At- vinnugrein sem kaupir aðföng sín, áburð og fóðurbæti á tilbúnu verði og selur afurðir sínar, mjólk og kjöt á tilbúnu verði, getur engum raun- hæfum framfömm tekið. — Þeir em meira að segja búnir að uppgötva þetta í Sovétríkjunum. — Með síðustu ráðstöfunum í landbúnaðar- málum er bústærð flestra bænda orðin svo óhagkvæm að fram- leiðslukostnaður hlýtur enn að hækka. Það verður því ekki lengur kom- ist hjá lífsháttabreytingu í land- búnaðarmálum. Það verður að fella niður einkarétt fjölskyldubúanna og miðstýringuna og hleypa markaðs- öflunum að. Það er hins vegar misskilningur hjá Eyjólfi Konráð og fleirum að sérstök kaupfélög fyrir Sjálfstæðismenn breyti þarna einhveiju um. 4. Sjávarútvegiir Tímabundið hefur tekist að leysa vandamál sjávarútvegsins með kvóta á skip, og allir viðskiptahætt- ir með fisk em orðnir miklu fijáls- legri. Til lengri tíma getur svona ríkisúthlutun til einstaklinga ekki gengið. Hinsvegar mætti með því að einskorða afskipti ríkisvaldsins af fiskveiðum við það að úthluta kvóta til sveitarfélaga sem hefðu þá möguleika til að úthluta skipum, frystihúsum, einstaklingum hvar á landi sem væri, fá nýtt líf í málið, því með því ynnist: 1. Að dregið væri úr smásmuguleg- um ríkisafskiptum. 2. Að sveitarfélögunum væri í raun fenginn auðlindaskattstofn. 3. Að sveitarfélögin gætu haft mik- il áhrif á eigin atvinnumál. 4. Að markaðsbúskapur gæti aukið hagkvæmni í útgerð. 5. Heilbrigðismál Ég held að allir heilbrigðisráð- herrar, sem setið hafa hafi lent ofan í hálfgerðum nornapotti og fáir náð miklu valdi á málaflokkn- um. I heilbrigðismálum er mikil sjálfstýring. Vandinn er að almenn- ingur vill kaupa góða heilsu, en aðeins heilbrigðisþjónusta er föl. I rekstri heilbrigðisþjónustu eins og öðrum greinum er hægt að koma við almennum hagræðingaraðgerð- um til að bæta rekstur og er víða gert. Vegna upplýsingaskorts er ekkert vitað um hagkvæmni ein- stakra fyrirtækja í heilbrigðisþjón- ustunni hér á landi þar sem mismunandi rekstrarform eru. Þrennt kann að hafa aukið kostnað heilbrigðisþjónustunnar á undan- förnum árum, en það er: 1. Óþarflega miklar sjúkrahús- byggingar. 1. Offramleiðsla á læknum, sem þó hafa margir farið til útlanda. 1. Léleg heimaþjónusta við aldr- aða. Líklega þarf á næstu árum helst að vera á varðbergi gagnvart einka- réttartilhneigingum, sem starfs- stéttir innan heilbrigðisþjónustunn- ar hafa reynt að koma á. Kostnaður við heilbrigðisþjónustu í nokkrum löndum er nú talinn þessi: Bandaríkin 11% af þjóðarframl. Svíþjóð 10% af þjóðarframl. Þýskaland 9% af þjóðarframl. Bretland 7% af þjóðarframl. ísland 7%af landsframl. Þessar tölur munu vera sambæri- legar. Þjóðhagsstofnun telur út- gjöldin á Islandi nú liðlega 7% af vergri landsframleiðslu, en fyrir nokkrum árum var búið að segja okkur að þau væru komin upp und- ir 10% af vergri þjóðarframleiðslu, en þá munu bætur almannatrygg- inga hafa verið taldar með. Vaxandi kostnaður við heilbrigðisþjónustu er sumum áhyggjuefni, þó mér finn- ist ekki tölurnar sýna það. En bætt heilbrigðisþjónusta er mörgum gleðiefni. Miklar hræringar hafa verið í rekstri heilbrigðisþjónustu í Banda- ríkjunum og Bretlandi undanfarið og óljóst um árangurinn. Banda- ríkjamenn tala mikið um ábyrgð einstaklingsins sem lausnarorð, en samt hafa þeir dýrustu þjónustuna og skilja marga eftir útundan. Sum- ar fyrirbyggjandi — og forvarnar aðgerðir hafa skilað árangri svo sem tannburstun og reglubundið eftirlit hjá tannlækni. ,En menn gæta sín á að allskonar eftirlit get- ur orðið atvinnubótavinna hjá heilbrigðisstarfsmönnum. Líklega eru brýnustu viðfangsefnin í dag: 1. Að bæta heimaþjónustu við aldr- aða. 2. Að upplýsa almenning um skað- valda svo sem áfengi og tóbak og hreyfingarleysi og draga úr streitu í þjóðfélaginu með því að bæta hag almennings eins og rætt er hér í kafla 2. 3. Að hafa uppi einhveija heilsu- ræktar- og manneldisstefnu (raunar nefnt í 11. kafla mál- efnasamningsins) og skal hér bent sérstaklega á að áróður fyrir auknu kjetáti er ekki á þeirra línu. 4. Að bæta umhverfi þannig að dragi úr slysum og atvinnusjúk- dómum. 5. Að takmarka greiðslur ríkisins fyrir dýr lyf þar sem sambærileg ódýrari lyf eru til. 6. Að auka starfsemi göngudeilda sjúkrahúsanna til að draga úr innlögnum og stytta legutíma. 7. Að reyna að koma upp einhveiju virku eftirliti sem metur árangur heilbrigðisstofnana. 6. Menntamál Það er sama hvaða verk á að vinna hér á landi. Alltaf kemur mönnum fyrst í hug að kalla til smiði og byggja hús. Þessi þrá-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.