Morgunblaðið - 05.08.1987, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 05.08.1987, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1987 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fróttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 550 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 50 kr. eintakiö. Stórhelgi og útvarpsstöðvar * Islendingar hafa yfirhöfuð yndi af ferðalögum. Talið er að utanferðir þeirra verði vel yfír eitt hundrað þúsund á þessu ári. Þrátt fyrir allar þessar utanreisur ferðumst við mjög mikið — og í vax- andi mæli — um heimaslóðir. Þó kastar fyrst tólfunum fyrstu helgi ágústmánaðar — verzlunarmannahelgina — þegar lunginn úr þjóðinni leggur land undir fót. Senni- lega fara ekki fleiri einstakl- ingar eða farartæki í annan tíma en þessa stórhelgi út á akvegi landsins. Það er ekki að ástæðulausu sem uggur er í bijósti fólks þessa miklu umferðarhelgi. Bitur reynsla hefur fært okk- ur heim sanninn um það að umferðin tekur sinn toll í slys- um: eignatjóni, meiðslum og mannslífum. Meðaltalstölur sýna að hver umferðarmánuð- ur kostar um það bil eitt mannslíf, auk meiðsla fjölda fólks, oft örkumla. Og oft eru frumorsakir slysa „mannleg mistök" eða vanbúin ökutæki, nema að hvort tveggja sé. Þjóðin andar nú léttar eftir stórslysalausa verzlunar- mannahelgi, ef marka má fjölmiðla, sem færa okkur þær fréttir, að á heildina litið hafí helgarumferðin komið þokkalega út, þrátt fyrir nokkur umferðaróhöpp. Fjölmiðlar, ekki sízt útvarp og sjónvarp, eiga tvímæla- laust sinn stóra þátt í því, hve umferðin gekk greiðlega fyrir sig. Síbylja varnaðarorða, sem dægurstöðvar héldu að fólki þessa daga, seytlast inn í hugi þess, og höfðu ríkuleg áhrif á umferðarhegðan fólks almennt. Sama máli gegnir raunar um umgengni ferða- manna við náttúru landsins. Það er full ástæða til að þakka þessa árvekni útvarpsmanna og hvetja þá til að ástunda hana áfram undir svipuðum kringumstæðum. Útvarps- stöðvarnar áttu sinn mikla þátt í fyrirbyggjandi slysa- vömum um verzlunarmanna- helgina. Að því leyti var frammistaða þeirra frábær. Hinsvegar má sitthvað setja út á dagskrá dægur- stöðvanna um verzlunar- mannahelgina sem stundum áður. í fyrsta lagi er leiðigjörn ofnotkun símtalsþátta vax- andi en ekki rénandi. Þessir þættir hafa fá einkenni vand- aðs eða vel undirbúins út- varpsefnis og oftar en ekki hálfgerðan hallærissvip. í annan stað er framburði móðurmálsins, sem skiptir engu minna máli en réttritun þess, frá málvemdarsjónar- miði, oftlega ábótavant. Málvillur og lélegur fram- burður em agnúar á dag- skrám fjölmiðla hins talaða máls, einkum dægurstöðv- anna, sem leggja þarf kapp á að sníða af. Móðurmálsvernd er veigamikill þáttur í viðvar- andi baráttu fyrir menningar- legu sjálfstæði þjóðarinnar. Loks var val hljómlistar umdeilanlegt. Tónlistar- smekkur fólks er að vísu mjög mismunandi og eðlilegt að útvarpsstöðvar leitist við að mæta óskum sem flestra. Það fór hinsvegar ekki hjá því, þegar hlustað var á hljómlist dægurstöðva um verzlunar- mannahelgina, að í hugann kæmu fræg ummæli Laxness um „óskalög sjúklinga" fyrr á tíð, þ.e. að þátturinn sýndi að það kæmi varla fyrir að músíkölsk manneskja legðist á sjúkrahús!! Mergurinn málsins er þó sá að mesta umferðarhelgi ársins er að baki án stórslysa, sem er fagnaðarefni. Almenn tillitssemi í umferðinni fer vaxandi, ár frá ári, þó að mörg sé þar brotalömin enn- þá. Batinn rekur rætur í ýmsar áttir. Betri vegir. Betri ökutæki. Þá stóðu lögreglu- menn vakt sína með prýði og síðast en ekki sízt hafa fjöl- miðlar, bæði prentmiðlar og ljósvakamiðlar, haldið stanzlítið uppi fyrirbyggjandi slysavörnum í umferðinni misserum saman. Um helgina er leið héldu útvarpsstöðvar, gamlar og nýjar, vöku sinni með þeim hætti að ástæða er til að meta og þakka sérstak- lega. Útihátíðir um verslunarmannhelgina Vestmannaeyjar: Sjö þúsund á Þjóð- hátíð í Herjólfsdal Vestmannaeyjum. TALIÐ er að um 7000 manns hafi verið á Þjóðhátíðinni i Vest- mannaeyjum um helgina. Erfitt er að fá uppgefnar nákvæmar tölur um fjölda samkomugesta því unglingar undir fermingar- aldri og fólk 67 ára og eldra þarf ekki að greiða aðgangseyri. Ekki var rukkað inn á sunnudag- inn. Það er samdóma álit mótshaldara og lögreglu að há- tíðin hafi farið vel fram og ekki urðu nein teljandi slys á fólki. Það var Knattspyrnufélagið Týr sem að þessu sinni sá um hátið- ina. Lögreglan handtók um helgina 8 menn með fíkniefni og eru öll mál- in upplýst og fullrannsökuð. Tveir lögreglumenn úr fíknefnadeild lög- regunnar í Reykjavík komu til liðs við lögregluna í Eyjum og unnu þeir sleitulaust alla helgina við leit að fíkniefnum. „Það kom okkur mjög á óvart hvað mikið var hér um fíkniefni, við höfum ekki átt slíku að venjast á Þjóðhátíð. Það má segja að þetta hafi verið eini skugginn sem bar á hátíðina. Þetta sýnir að þörf er á góðu eftirliti og að menn séu ávallt vel vakandi fyrir þessum málum,“ sagði Geir Jón Þórisson, settur yfir- lögregluþjónn í Eyjum í samtali við fréttaritara Morgunblaðsins. Geir Jón sagði að þeir sem teknir voru hefðu verið með hass, eitthvað af amfetamíni, efnisleifum og tækjum til neyslu efnanna. Ekki var um mikið magn að ræða. Lögreglan leitaði hjá fleirum sem grunaðir voru um að hafa fíkniefni undir höndum en ekkert fannst hjá þeim. Þjóðhátíðargestir í Eyjum. Ölvun var talsverð, en þó ekki meiri en vant er á Þjóðháíiðum og Séð hefur þjóðhátíðarsvæðið í Heijólfsdal. Fj ölsky lduf ólk á bindindismóti Bindindismót var að venju haldið í Galtalæk um helgina og var stærstur hluti gestanna þar fjölskyldufólk. „Við erum ekkert yfir okkur ánægð með þátttökuna en getum þó sæmilega vel við unað“ sagði Guðni Bjömsson sem sat í undir- búningsnefnd hátíðarinnar í samtali við Morgunblaðið. „Það var ljóst fljótlega fyrir helgina að fólk ætlaði ekki í útilegu um þessa helgi sökum fjárhagsörðugleika eða annarra örðugleika. Fimm þús- und manns er ekki svo slæmt þegar miðað er við að sex þúsund komu í fyrra og það var metár“ sagði Guðni. Guðni var spurður hvort bind- indismótið hefði staðið undir nafni sem slíkt og kvað hann svo vera. „Mótið hefur undanfarin ár ver- ið auglýst sem fjölskyldu- og bindindismót og alltaf staðið undir nafni sem slíkt. Svo var einnig í ár en það verður að viðurkennast að alltaf er einhver ölvun á svæð- inu“. Guðni sagði að veður hefði verið gott allan tímann og engin teljandi slys eða óhöpp átt sér stað. Hann sagði að ekki væri búið að gera dæmið upp en bjóst við að útkom- an yrði með betra móti. „Þetta kemur allt í ljós á uppskeruhátíð- inni í haust en þá verður skýrt frá endanlegu uppgjöri fyrir hátíðina“ sagði Guðni. Mót bindindismanna í Galtalæk.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.