Morgunblaðið - 05.08.1987, Side 56

Morgunblaðið - 05.08.1987, Side 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1987 Líttu i/ið, það borgarsig Ki" Einar Farestveit &Co.hf. Borgartúni 28, símar 91-16995, 91-622900. Árni S. Gunnars- son - Minning höfum engin tök á því. Við getum ekki fært tímann aftur á bak. En eitt getum við gert. Við höfum möguleika á því að nýta tímann vel í okkar stutta lífí. Með því að lifa og elska tökum við á okkur ábyrgð og áhættu. Við úppskerum líka, því má aldrei gleyma. Okkur er mögu- legt að veita birtu og yl í lífínu. Það eigum við að kappkosta. Nógu er lífíð erfítt samt á stundum. Ljóð Einars Ben. úr Einræðum Starkaðar á erindi til allra. Tvö erindi, sem koma svo mjög við kviku manns, fara hér á eftir: . Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Svo oft leyndist strengur í brjósti, sem brast við biturt andsvar, gefið án saka. Hve iðrar margt líf eitt augnakast, sem aldrei verður tekið til baka. Kær, ungur frændi er nú kvadd- ur. Okkur mæðgur langar með örfáum orðum að kveðja Ama Sig- urð. Við Edda Júiía eigum þess eigi kost að sýna virðingu okkar og væntumþykju með því að vera með fjölskyldu okkar á kveðjustund. Við vildum gjaman geta verið heima og styrkt unnustu, foreldra, systk- ini, ömmu og aldraðan afa. Við hefðum kosið að halda utan um allt þetta fólk. En við eigum ekki kost á því að velja. Þegar við kveðjum kæran, ungan frænda okkar er margt að þakka fyrir. Okkur frændfólki Áma Sig- urðar þótti alltaf innilega vænt um hann. Við vomm líka afar stolt af honum. Því verður eigi á móti mælt. Það var fylgst mjög grannt með framgöngu hans í íþróttum, enda er fjölskylda hans öll afar virk á þeim vettvangi. Þau fylgdust nokkum veginn að í aldri frænd- sjstkinin. Minnisstæð er fæðing Áma frænda 25. nóvember 1968. Þann 10. janúar 1969 fæddist ann- ar frændi. Fylgdust þeir frændumir talsvert að og stuttu seinna tvær litlar frænkur. Atvik höguðu því þannig að vegalengdir hömluðu mjög nánum samskiptum frænd- systkinanna þegar fram liðu stundir. Reglulegar fréttir bámst af hinum stórefnilega, unga íþrótta- manni, sem frændsystkinin, við íjölskyldan og síðast en ekki síst móðurbróðurinn, vomm svo inni- lega stolt af. Hann var okkur alls staðar til sóma. Okkur er ógleyman- legt hversu Ijúfur Ámi Sigurður var alltaf með fallega brosið sitt. Frændsystkinin hittust oft í tengsl- um við sameiginleg áhugamál, íþróttimar. Það vom alltaf sömu góðu fréttimar sem okkur bámst af Áma Sigurði. Fyrir góðu minnin- gamar megum við þakka. Ekkert nema góðar minningar eigum við um ungan frænda okkar. Við von- um heilshugar að það megi hjálpa og styrkja ástvini hans, sem nú eiga um sárt að binda. Héðan frá Svíþjóð sendum við mæðgur okkar hjartans kveðjur og biðjum góðan guð að vemda ykkur. Lundi, Edda Júlía og Edda Sigrún. Kveðja frá félögum í meistaraflokki Körfuknattleiksdeildar ÍR Okkur setti hljóða þegar við frétt- um það fyrir rúmri viku að hann Ámi Siggi væri dáinn. Hvemig getur þetta gerst? Af hveiju er lífíð svona óréttlátt? Þessum spuming- um og öðmm um tilgang lífsins verður sjálfsagt aldrei svarað til neinnar fullnustu. Trúin á þennan tilgang má þó aldrei bregðast og verður að vera okkur til huggunar þegar við nú sjáum á bak ungum og góðum félaga. rMivtal ÁRÍÐANDITTLKYNNING OFNKO í Kópavogi hefur yfirtekið einkaumboð fyrir PMIVtal á íslandi. Verslið þar sem gæðin gilda. ✓ PMIVtal etvtÁauvH&oð á 'l&CciMcli Smárahvammi, Kópavogi. Símar 40922 og 44210. Nýja mjúka heimilistækjalínan er komin Blomberg kynna fyrstir heimilistækja- framleiðenda glæsilegu mjúku línuna Blomberg býður stærra og glæsilegra úrval íinnbygging- artækjum en nokkur annar. Verið velkomin, við höfum tímafyrirþig. Mercedes Benz og BMW riðu á vaðið, svo komu húsgagna- framleiðendurnir. Nú kynna Blomberg fyrstir heimilistækjaframleiðenda þessa gullfallegu línu. UE614 gufugleypir. X:r:rr.~T.. BA2334 glerhelluborð Kraftmikill en lágvær. með rofum. Auðvelt í Vvrí*0’! þrifum. : 9/VOl'V 1 KE2520kæliskápur til innbyggingar með eða án frystihólfs. BO2230 Ofn með blæstri, grilli og yfir- og undirhita. Blomberg Þetta er örlítið sýnishorn af tækjum. Fæddur 25. nóvember 1968 Dáinn 26. júlí 1987 Þeir sem guðirnir elska deyja ungir var það fyrsta sem mér kom í huga er mér var tilkynnt þetta hönnulega slys. Árni Sigurður var sonur hjón- anna Jóhönnu Sigurðar og Gunnars Ámasonar rafvirkja, sem lengi bjuggu í Borgamesi en fluttu síðan til Reykjavíkur. Áma Sigga þótti alltaf vænt um Borgames og því kom hann aftur og starfaði hér í sumar ásamt því að þjálfa og spila með knattspymudeild Skallagríms. Fyrir um það_ bil ári síðan felldu þau hugi sama Ámi Siggi og Guðný dóttir okkar. Síðan var hann eins og einn af fjölskyldunni og reyndist okkur eins og besti sonur. Alltaf var hann tilbúinn að aðstoða ef ein- hver þurfti þess með. Þá var hann sérlega bamgóður. Alltaf hafði hann tíma til að fara með litlu vin- konu sína að veiða, á völlinn eða bara í bíltúr og fyrir það viljum við þakka en nú er hann horfínn og söknuðurinn er mikill en minningin um góðan dreng mun lifa. Að loknum þessum fátæklegu orðum viljum við votta foreldrum hans og systkinum innilegustu sam- úðarkveðjur okkar. Élsku Guðný mín, við biðjum góðan Guð að gefa þér styrk í sorginni. Blessuð sé minning hans. Anna og Sigurður Már Lífíð er flókið samspil atburða. Það ber í sér svo marga óskiljan- lega þætti sem bæði færa mikla gleði en oft á tíðum óbærilega kvöl og sorg. Við mannfólkið stöndum agndofa, hjálparlaus og fyrst og fremst skilningsvana er slys eða veikindi eiga sér stað sem hafa í för með sér ökuml og stundum missir kærs ástvinar. Þegar ungt fólk á í hlut lýstur það með miklu stærra höggi. Ung- ar, yndislegar mannverur sem eru að byija að fóta sig í ólgusjó lífsins. Ungt fólk í blóma, fullt af orku og krafti til þess að takast á við lífíð og vera með í lífsbaráttunni. Allt í einu eins og hendi sé veifað er reitt til höggs. _Við höfum ekkert val. Við ráðum svo sáralitlu varðandi þá atburði sem skipta sköpum í lífí okkar, ráð- um oft engu um. Við kysum svo gjaman að geta ráðið og valið, en þá haga atvik því þannig að við

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.