Morgunblaðið - 05.08.1987, Page 60

Morgunblaðið - 05.08.1987, Page 60
f8Rr TfiúoÁ .z stsöM'TArvmit- MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. AGUST 1987 > t t HELGA STEINUNN HANSEN GUÐMUNDSDÓTTIR lést 1. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Jón Pótursson og börn hinnar látnu. t Eiginmaður minn, PÉTUR DANÍELSSON, Svalbaröi 4, Hafnarfirði, lést í Borgarspítalanum mánudaginn 3. ágúst. Jóna Eiríksdóttir. t Móðursystir mín og fósturmóðir okkar, MARÍA S. HJARTAR, andaðist á Hrafnistu 31. júlí. Svava Proppó, Ólafia Ágústsdóttir, Hans Bjarnason. t Elskulegur sonur minn, JÓN SIGURHANS GUÐNASON, arkitekt, lést á heimili okkar, Asparfelli 12, laugardaginn 1. ágúst. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Ragnhildur Á. Jónsdóttir. t Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaöir, ÁRNIÁRNASON frá Kópaskeri, lést í Landspítalanum 31. júlí sl. Árni H. Árnason, Gunnar Árnason, Ástfriður Árnadóttir, Einar Árnason, Jón Árnason, Kristveig Jónsdóttir, HlínP.Wium, Sólveig Jóhannesdóttir, Þorsteinn Helgason, Metta Helgadóttir. t Bróðir okkar og mágur, ÓLAFUR PÉTURSSON frá Hrossholti, veður jarðsunginn frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 6. ágúst kl. 13.30. Hólmfrfður Pótursdóttir, María Pótursdóttir, Þóra Jenný Pótursdóttir, Ágúst Eiríksson. t Útför sonar okkar og bróður, HERMANNS GESTSSONAR, Strandgötu 79, Hafnarfirði, verður gerð frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði í dag miðvikudaginn 5. ágúst kl. 15.00. Auður Hermannsdóttir, Gestur V. Gestsson, Gestur G. Gestsson, Ragnheiður Kristin Gestsdóttir. t Maðurinn minn, PÁLL GUÐJÓNSSON frá Slóttu í Reyðarfirði, Arahólum 2, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju, miðvikudaginn 5. ágúst kl. 15.00 Sesselja Pálsdóttir, börn, barnabörn og aðrir ættingjar. t Amma okkar og móðursystir, JÓNÍNA HELGA SNORRADÓTTIR, verður jarðsungin frá Aðventukirkjunni miðvikudaginn 5. ágúst kl. 13.30. Kolbrún Baldursdóttir og fjölskylda, Margrót Einarsdóttir, Óskar Einarsson, Sigrfður Einarsdóttir, Ágústa Einarsdóttir. Minning: Ingólfur Hafsteinn Guðjónsson Fæddur 16. júlí 1935 Dáinn25.júlí 1987 Dáinn, horfínn, harmafregn. Harmafregn fyrir okkur öll sem þekktum til Hafsteins Guðjónssonar og góðvildar hans. Hafsteinn var vinur í raun og vildi allt fyrir alla gera. Ungur að árum fór hann í Heymleysingjaskólann ásamt Her- vöru systur sinni og er henni og skólasystkinum mikill missir að Hafsteini. Hann var gæddur góðri frásagnargáfu og talaði fallegt táknmál sem allir skildu. Var gam- an að fylgjast með honum segja frá. Hafsteinn tók virkan þátt í störf- um Félags heymarlausra frá stofnun þess. Var honum annt um félagið og var ötull við fjáröflun í þágu þess. Hann hlaut viðurkenn- ingu fyrir það árið 1982. Hafsteinn var mikill útiverumaður og stundaði sund og gönguferðir. Hann hafði ánægju af því að ferðast í góðra vina hópi og tók mikið af ljósmynd- um í þeim ferðum sem hann sýndi síðan í félaginu okkar, öllum til ánægju. Hafsteinn var ungur að árum þegar kallið kom, aðeins fimmtíu og tveggja ára gamall. Hans verður minnst sem dyggs félagsmanns og trausts vinar af öllum sem til hans þekktu. Félag heymarlausra sendir fjöl- skyldu Hafsteins samúðarkveðjur. Félag heymarlausra í dag, 5. ágúst, fer fram útför Ingólfs Hafsteins Guðjónssonar, sem venjulega gekk undir nafninu Haf- steinn. Þegar Hervör systir hans hafði samband við mig fyrir nokkrum dögum í gegnum símtæki okkar heymarlausra og tilkynnti mér lát hans, var mér mjög brugðið. Minn gamli skólabróðir og góði vinur fall- inn frá langt fyrir aldur fram. Hvílík harmafregn. Aðeins fyrir fáeinum vikum hitti ég Hafstein rólegan og bjartsýnan, en nú er hann látinn eft- ir stutta sjúkdómslegu. Hafsteinn fæddist heymarlaus að Hesti í Önundarfírði 16. júlí 1935. Foreldrar hans voru Guðjón Gísli Guðjónsson, bóndi og síðar trésmið- ur, og Guðbjörg Sveinfríður Sigurð- ardóttir. Þau eignuðust 13 böm en nú eru 6 á lífi, öll mikið dugnaðar- fólk. Guðjón og Sveinfríður fluttu til Reykjavíkur fyrir um það bil 30 árum, en þau féllu frá árið 1980 með stuttu millibili. Hafsteinn bjó alla tíð hjá góðri systur sinni, Maríu, sem reyndist honum vel. 16 ára gamall hóf hann klæðskeranám hjá Vigfúsi Guð- brandssyni klæðskerameistara og lauk því með ágætum árangri. Hann hlaut sveinsbréf í þeirri iðngrein. Hann starfaði síðan um árabil hjá Vigfúsi. Frá 1961 hefurhann starfað í Mjólkurstöðinni í Reykjavík, þar sem honum líkaði mjög vel. Haf- steinn var samviskusamur og dug- legur maður. Hann var virkur í Félagi heymarlausra og þar var hann kos- inn maður ársins 1983. Eitt af hans helstu áhugamálum voru ferðalög. Hann ferðaðist m.a. víða um á sínum eigin bíl og hafði mikla ánægju af. Um leið og ég vil þakka fyrir allar góðar samverustundir með Hafsteini senda ég og fjölskylda mín systkin- um, ættingjum og öðrum aðstand- endum hans innilegar samúðarkveðj- ur. Blessuð sé minning hans. Grétar í dag fer fram frá Fossvogs- kapellu útför mágs míns, Ingólfs Hafsteins Guðjónssonar, sem lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans eftir stutta veru þar. Hafsteinn var fæddur á Hesti í Önundarfírði, sonur hjónanna Guð- bjargar Sveinfríðar Sigurðardóttur og Guðjóns Gísla Guðjónssonar, sem þar bjuggu. Ólst hann þar upp í stór- um systkinahópi, en sjö bama þeirra hjóna komust til fullorðinsára. Alls voru systkinin þrettán, sex bamanna dóu í frumbemsku. Hafsteinn var næstyngstur þeirra systkina er nú kveður þessa jarðvist. Tvö af efnileg- um bömum þeirra hjóna höfðu fæðst heymarskert, Hafsteinn, sem hér er kvaddur hinstu kveðju, og stúlka, sem er eiginkona undirritaðs. Það má því fara nærri um þá erfiðleika sem sigrast varð á til að koma bama- hópnum upp og senda tvö bama sinna frá sér sex ára gömul til náms í heymleysingjaskóla, sem var í öðr- um landshluta. Hefur það ekki verið sársaukalaust ungum hjónum sem einnig stóðu í því að bæta húsakost jarðarinnar, rækta og auka við bú- stofn svo framfærsla heimilisins bjargaðist. Saga þessa fólks var hörð lífsbar- átta, sem mótaði það í uppvexti. En þolgæði ásamt nægjusemi á lífsins gæði og trú á almættið gerði því kleift að komast yfír erfíðleika. En margir voru til að létta undir á þess- um tíma, bæði heima í sveitinni og fyrir sunnan. Hjá Ágústu, systur Guðjóns, sem þá bjó á Bergþómgöt- unni áttu systkinin jafnan vísan samastað í skólafríum. Þessi gjafmilda kona, sem bjó ein með bömum sínum, var þó ekki rik á veraldarvísu. En á þeim bæ var hjartarúm húsráðenda svo mikið að enginn fann til húsþrengslanna. Það voru því allir gestir og gangandi' settir að veisluboði sem aufúsugest- ir. Þegar Hafsteinn kom í bæinn til að vistast í heymleysingjaskólanum hafði Hervör systir hans verið þar í nokkur ár. Því var gott að bera upp við hana vandamál ef upp komu. Hún kunni tökin á að hugga, gleðja og veita litla bróður öryggi í and- streymi lífsins. Þegar Hafsteinn hafði lokið skyldunámi í skólanum hóf hann nám í klæðskeraiðn hjá Vigfúsi Guð- brandssyni og co. Lauk hann þar sveinsprófí. Hafsteinn starfaði. um nokkurra ára skeið að iðn sinni hjá Vigfúsi. En árið 1961 hóf hann störf hjá Mjólkurstöðinni og starfaði þar þar til hann veiktist 21. síðastliðins mánaðar. Hafsteinn vann af áhuga þau störf er honum voru falin og komst þá ekkert að nema starfíð. Það var honum kappsmál að vinna vel og sýna árangur og trúnað í starfí, enda fundu menn fljótt að hér var maður sem óhætt var að treysta. Hafsteinn var alla tíð hinn hljóð- láti og hlédrægi félagsmaður í Félagi heymarlausra. Þó hann hafí ekki valist í ábyrgðarstörf innan félagsins var hlutur hans í uppbyggingu fé- lagsheimilis fyrir Félag heymar- lausra það mikill að ef hans hefði ekki notið við, hefðu kaup á fyrsta félagsheimilinu á Skólavörðustíg 21 verið ókleif. En dugnaður Hafsteins í happdrættismiðasölu fyrir félagið gerði kaupin möguleg og síðar festi félagið kaup á stórhýsinu á Klapp- arstíg 28. Fyrir þetta framtak sitt hlaut Hafsteinn viðurkenningu og sæmdarheitið „Maður ársins" árið 1982 hjá Félagi heyrnarlausra. Hafsteinn bjó um tíma hjá bróður sínum, Þorvarði, og fór jafnan vel á með þeim. Þegar foreldrar Hafsteins bmgðu búi og fluttu suður til Reykjavíkur var hann heimilisfastur hjá þeim. Hafsteinn bjó síðast á Laugamesvegi 40 ásamt Maríu syst- ur sinni. Söknuðurinn er mikill hjá systkin- um og öðrum ættingjum. Ég þakka Hafsteini allar þær góðu stundir sem ég og fjölskylda mín höfum átt með honum. Blessuð sé minning hans. Guðmundur Egilsson Hverfum aftur um hálfa öld. Sögusviðið er lítill bær vestur á fjörðum, Hestur í Önundarfírði. Þar búa ung hjón, Guðjón Guðjónsson og Sveinfríður Sigurðardóttir. Lífíð er enginn dans á rósum en af mikl- um dugnaði og styrk stunda þau búskap og taka því mótlæti sem bamadauði og erfiðir tímar fela í skauti sér. Sjö bömum koma þau til manns. Tvö þessara bama em heymarlaus og eru því send snemma suður í Heymleysingja- skólann, fyrst stúlkan sem var eldri, þá drengurinn. Það er erfítt að vera sex ára, lifa í heimi þagnar og geta ekki tjáð tilfínningar sínar með tali. Hjartað var lítið þegar þurfti að standa á eigin fótum í henni Reykjavík. Það var því stúlkunni, sem er móðir okkar, mikill styrkur þegar drengurinn Hafsteinn var sendur suður. Æ síðar á lífsleiðinni veittu þau hvort öðm þennan styrk. í stómm systkinahópi var gott að geta dregið sig út úr hópnum, skriðið upp í fangið á Hadda og sofnað við titringinn af rödd hans í brjóstkassanum og fínna hlýjuna sem streymdi frá honum. Þá var engin þörf á að skilja röddina sem var frábmgðin öðmm mannsrödd- um. Fyrir okkur var hún eðlileg og hluti af því að skilja. Áfram í uppvextinum nutum við hlýju og áhuga Hadda, hvort sem var í starfí eða námi erlendis. Við þökkum samfylgdina og þá sérstaklega samfylgdina við móður okkar. Guð blessi minningu Hafsteins Guðjónssonar. Hervarar börn Oft gerast óvæntir atburðir í lífi manna, einnig váfréttir, sem tmfla hugsun, sú hugsun sem jafnar sig eftir þessa truflun festist í minning- unum. Þannig var um mig er ég fékk fregnir af láti góðs drengs, Ingólfs Hafsteins Guðjónssonar. Mér var bragðið og sat sem fastast og var algjörlega sljór í hugsun, en smátt og smátt skýrðist hugsunin og minningamar skutust fram með leifturhraða. Mér fannst það ótrú- legt að Hafsteinn væri allur, en veit samt um leið að örlaga- og lífshjólið snýst og mannlegur mátt- ur getur eigi stöðvað það. Haf- steinn, eins og hann var nefndur í daglegu tali, kom í Málleysingja- skólann 1941, þá 6 ára gamall. Þar var fyrir í skólanum systir hans, Hervör, 5—6 ámm eldri. Ég hætti í skólanum 1942 og man eftir Haf- steini þá. 1944 hætti frú Margrét Th. Bjamadóttir Rasmus skóla- stjóm Málleysingjaskólans. Við skólastjórn tók Brandur Jónsson. Hann breytti nafni skólans sem er nú betur þekktur sem heyrnleys- ingjaskólinn. Hafsteinn var dagfarsprúður maður, duglegur til allra verka og mjög bóngóður maður. Vegna heymarleysis bar hann sterkar til- fínningar til annarra sem var eins farið. Hann var einn af stofnendum Félags heymarlausra og bar hag þess sterklega fyrir bijósti. Hann var ötull við að selja happdrættis- miða félagsjns og var oft með þeim söluhæstu. I því sambandi var hann kosinn af félagsmönnum „Maður ársins" 1983. Ungur hóf hann klæð- skeranám og lauk því með prýði og fékk sveinspróf í faginu. Hann hóf störf hjá Mjólkurstöð Reykjavíkur 1961 og var þar til dauðdags. Ég læt öðmm það eftir að skrifa um uppvöxt og fjölskyldu hans, þeim sem betur til þekkja en ég. Oft fómm við saman með öðmm heymleysingjum í ferðalög sem hann hafði yndi af. Hann hafði ferð- ast til Vesturheims ásamt öðmm, einnig víða um Evrópu. Af mörgu er að taka til að segja frá um góðan dreng en ég læt stað- ar numið þótt fátæklegt sé. Ég bið Guð að blessa minninguna og ég þakka honum fyrir ótalmargt. Einn- ig bið ég Guð að blessa og styrkja fjölskyldu hans. Þ.M.F.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.