Morgunblaðið - 05.08.1987, Side 62

Morgunblaðið - 05.08.1987, Side 62
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1987 fclk f fréttum Liz Taylor ótt- ast um líf sitt Afkomandi leitar uppi flóttastað forfeðranna Kvikmyndstjaman Liz Taylor hefur gripið til þess ráðs að ganga í skotheldu vesti eftir að hafa fengið endurteknar morð- hótanir frá óþekktum aðila í Hollywood. Er henni hótað lífláti ef hún hætti ekki baráttu sinn gegn útbreiðslu eyðni, en hún hefur tekið virkan þátt í fjársöfn- un og öðru sjálfboðastarfi til að hjálpa eyðnisjúklingum og efla rannsóknir á þessum skæða sjúk- dómi. Lögreglan heldur því fram að sá sem standi að baki morðhótun- unum hljóti að vera haldinn fordómum og hatri í garð samkyn- hneigðra karlmanna sem hvað verst hafa orðið fyrir barðinu á eyðni og þá jafnframt hatri og ótta fólks í við sjúkdóminn. Auk þess að ganga í skotheldu vesti hefur leikkonan ráðið til sín lífvörð sem vaktar hana nótt sem dag. Morgunblaðið/Einar Falur Cheryl Stephansson Redmond og faðir hennar Norman Stephansson sem nú eru stödd hér á landi til að minnast þess að langafi og -amma hennar flúðu vestur um haf til að mega lifa saman. Ast í meinum Hér á landi er nú stödd merki- leg kona ásamt foreldrum sínum og um þijátíu ættingjum öðrum frá Kanada og Bandaríkjun- um. Þau eru öll að móðirinni undanskildrí Vestur-íslendingar, en þekktu ekki ættingja sína í gamla landinu fyrr en fyrir þremur árum. Konan er Cheryl Stephansson Redmond. Hún ólst upp í bænum Flin Flon í Manitoba í Kanada, en þar var faðir hennar, Norman Step- hansson, læknir. Cheryl vissi alla tíð að hún var af íslenskum ættum, en áður en hún fæddist voru afi hennar og langafí — t dánir og með þeim möguleg vitn- eskja um ættingja í gamla landinu. Fjölskyldan hafði því afar litla hug- mynd um það hvort hún ætti ættingja þar enn. En árið 1984 lét hún og foreldrar hennar verða af því að fara til íslands. Áður skrif- aði hún gömlum skólafélaga úr háskóla, Bimi Bjamasyni hagfræð- ingi, og spurði hann hvort hann gæti orðið nokkurs vísari um ætt- ingja hennar hér á landi. Hann brást svo vel og skjótt við að innan skamms fékk hún frá honum pakka sem innihélt upplýsingar um 800 ættingja hennar á Islandi. Þau dvöldust hér í aðeins tólf daga, en að þessum fáu dögum liðnum var Cheryl komin með nöfn um 1000 ættingja sinna. Þegar hún var kom- in til baka til Vesturheims vann hún úr þessum nöfnum á einkatölvuna sína. En hana vantaði meiri upplýs- ingar svo hún fór til íslands aftur ári síðar, árið 1985, og bætti þá við úm 500 ættingjum á ættartréð. Með bréfaskriftum hefur hún síðan bætt við enn um 400 manns þannig að ættartréð telur nú um 1900 áður ókunna ættingja. Þar af eru um 100 búsettir vestanhafs. Fjölskyld- an hefur því stækkað ótrúlega fyrir þau Cheryl, föður hennar og aðra ‘ættingja þeirra í Vesturheimi. Flúðu til Vesturheims Upphafið að þessari týndu fjöl- skyldu er ljúfsárt og heillandi. Það er dæmi um hina sígildu uppsprettu skálda, ást í meinum. En þetta var engin hugarsmíð skálds, heldur at- burðir sem áttu sér stað hér á íslandi í veruleikanum í lok 19. ald- ar. Þannig var að ungur vinnumað- ur á Meiðastöðum í Garði á Reykjanesi, Stefán Björnsson, og ein dætra bónda, Kristín Ámadótt- ir, felldu hugi saman. Þau voru langafi og langamma Cheryl. En bóndi hafði aðrar og jarðbundnari hugmyndir um ráðahag dóttur sinnar. Vildi hann að hún gengi að eiga vel stæðan bónda þar í sveit- inni, enda ólíkt meira vit í því en að giftast fátækum vinnumanni. Varð honum ekki þokað. Elskend- umir tóku þá það til ráðs að flýja, til að þau mættu njótast. Það var árið 1881. Sögðust þau ætla rak- leiðis til Vesturheims. Var það því trú manna lengst af, að þangað hefðu þau farið. En nú er ljóst af Vesturfaraskrá að þau fóm ekki af landi brott fyrr en sex ámm síðar eða árið 1887. Vom þau þá með tveggja ára sveinbam sem Ámi hét. Er því margt á huldu um dval- arstað þeirra og líf á þessum ámm, en líklegt talið að þau hafi.búið hjá ættingjum Stefáns norður í Skaga- firði. Er þau komu vestur um haf settust þau að í Manitoba í Kanada. Þar fæddist þeim annar sonur, Stef- án, sem er afi Cheryl. Þau virðast hafa haft mjög lítið samband við ættingja heima fyrir og með þeim leið það alveg undir lok, hafi það verið nokkuð. Gunnar Magnúss rithöfundur, sem er náskyldur Cheryl, hefur skrifað söguna Þrepin þrettán um þennan dramatíska flótta þeirra Stefáns og Kristínar. Þegar Cheryl var komin með svo mikið efni um ættina var fólk sífellt að hvetja hana til að skrifa bók um hana segir hún. Þar sem að í ár er öld liðin frá því að elskendumir stigu á skipsfjöl og héldu til Vestur- heims, ákvað hún að láta verða af því að skrifa bókina. Hún er nú komin út hjá forlagi liennar sjálfs og mannsins hennar og heitir Meiðastaðaætt - ættarsaga. Er bók- in öll á tveimur tungumálum, ensku og íslensku, og er til sölu í ein- hveijum bókabúðum hér á landi. í tilefni af útkomu bókarinnar hefur Liz Taylor ásamt Reagan Bandaríkjaforseta, þar sem þau sátu fjár öflunarkvöldverð í þágu eyðnirannsókna í Washington verið ákveðið að halda veglegt ætt- armót um næstu helgi á Akranesi og styrkja bönd þessarar fjölskyldu sem nú hefur fundið sjálfa sig með dyggilegri aðstoð Cheryl Stephans- son. ' Morgunblaðið/Sigurgeir Sigurðsson Kisi gægist undan fótstigum aðstoðarflugmannsins í stjórnklefa vélarinnar og er ekkert á því að treysta því sem hann sér. Hann var mjög var um sig og fylgdist með hverri hreyfingu. Kötturinn fljúgandi Það var ekki mikið pláss fyrir greyið undir stjórnborðinu, innan um odskyns rafmagnsleiðslur, en þó nægilegt til að fara i felur. Kattargrey nokkurt villtist um borð í eina þotu Flugleiða í síðustu viku, eins og sagt var frá í dagblaði, og flaug að líkindum ekki minna en þijár ferðir yfir Atlantshafíð endurgjaldslaust. Réttara væri þó kannski að segja að hann hafi goldið með lífi sínu, því för hans endaði á Keflavíkur- flugvelli þar sem flugvirkjar eltust við hann um borð í vélinni í marga klukkutíma og var hann aflífaður þegar þeir loks náðu honum, eins og lög gera ráð fyrir. Morgun- blaðið hefur krækt sér í þessar skemmtilegu myndir af laumufar-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.