Morgunblaðið - 23.09.1987, Síða 4

Morgunblaðið - 23.09.1987, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1987 T Borgaraflokkurinn: Benedikt Boga- son býður sig fram til vara- formanns BENEDIKT Bogason verk- fræðingur hefur gefið kost á sér í stöðu varaformanns Borg- araflokksins sem kosið verður í á landsfundi flokksins um næstu helgi. Benedikt er þriðji maðurinn sem gefur kost á sér í þetta embætti en áður hafa Ásgeir Hannes Eiríksson versl- unarmaður og Július Sólnes alþingismaður gefið kost á sér. VEÐUR Benedikt segir í fréttatilkynn- ingu að allmargir stuðningsmenn Borgaraflokksins hafi haft sam- band við sig að undanfömu og óskað eftir að hann gæfi kost a sér í varaformannsembættið. Hann hafi ákveðið að gefa kost á sér í stöðuna eftir að hafa íhugað málið um nokkurt skeið og að höfðu samráði við sína nánustu stuðningsmenn. Morgunblaðið/Emilía Smeenkhjónin.Kristján og Nellie, með Þingvallarmynd Kjarvals á milli sín ásamt Huldu Valtýsdóttur formanni Menningarmálanefndar Reykjavíkurborgar sem tók við málverkinu. / DAG kl. 12.00: Heimild: Veðurstofa islands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær) Kjarvalsmálverk heim eftir 55 ára útivist DR. D.J. KUENEN, prófessor og fyrrum rektor Háskólans í Leid- en í Hollandi hefur fært Kjarv- alsstöðum málverk frá Þingvöll- um eftir Kjarval, sem honum var gefið af meistaranum sjálfum árið 1932. Málverkið, sem fylgt hefur eiganda sínum alla tíð síðan, laskaðist nokkuð í loftárás í stríðs lok. „Kuenen finnst rétt að málverkið komi til íslands á ný og nú er það hingað komið eftir 55 ára útivist," sagði Kristján Smeenk náttúru- fræðingur við náttúrufræðistofnun Háskólans í Leiden sem kom, ásamt konu sinni Nellie með málverkið til íslands. „Það var sumarið 1932 sem Kuenen kom til landsins ásamt 30 öðrum hollenskum námsmönnum. Þeir voru sendir sem vinnumenn á bæi víða um land og Kuenen sem þá var nemi í náttúrufræði, dvaldi á Hótel Valhöll ásamt Kjarval en vann á Brúsastöðum. Eitt sinn er Kuenen gekk um hraunið rakst hann á Kjarval og gaf sig á tal við hann. Þótt þeir töluðu sitt hvort tungumálið tókst þeim að skilja hvorn annan og svo fór að lokum, að Kjarval rétti Kuen- en léreftsstranga og gaf honum þar sem hann leit á hann sem fulltrúa þeirrar þjóðar er alið hafði Rembrant." Málverkið sem er af Hrafnar- björgum hefur fylgt Kuenen síðan og hékk á tilraunastofum hans víða í Hollandi þar til hann komst á eftir- laun. Arið 1944 laskaðist það lítil- lega í loftárás þegar Bandamenn börðust við Þjóðveija í Wilhelm- inadorp við Goes í Zeeland og má sjá för eftir sprengjubrot á bakhlið myndarinnar, sem gert hefur verið við. VEÐURHORFUR í DAG, 23.09.87 YFIRLIT á hádegi í gsen Austur af landinu verður víðáttumikil lægö en vaxandi hæð yfir Grænlandi og (slandi. SPÁ: í dag verður norðan- eða norðaustanátt á landinu, víðast kaldi, en stinningskaldi á stöku stað. Norðantil á Vestfjörðum og á annesjum Norðanlands verða slydduél og 2ja—5 stiga hiti, skúr- ir og 5—8 stiga hiti austanlands, en nokkuð bjart veður og allt að 10 stiga hiti sunnanlands og við Faxaflóa. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA FIMMTUDAGUR og FÖSTUDAGUR: Minnkandi norðaustanátt, kalt og jafnvel sumstaðar stinningskaldi austan til á landinu á fimmtudag, en mun hægara á föstudag. Norðan- og norðaustan- lands verða skúrir eða slydduél, en þurrt og bjart um sunnanvert landið. Hiti 5—7 stig. TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius A stefnu og (jaðrirnar • Skúrir Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. V * á Léttský)að / / / / / / / Rigning V Él Þoka A / / / Þokumóða Hálfskýjað * / * 5 5 Súld Skýjað f * f * Slydda f * f oo Mistur 4 Skafrenningur Jjj|||^ Alskýjað * * * * Snjókoma # # # K Þrumuveður VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akurayrl 7 skúrir Revkiavlk 10 léttskýjað Bergon 13 súld Helslnki 10 alskýjað Jan Mayen 4 skýjað Kaupmannah. 14 þrumuveður Narssarssuaq 3 hálfskýjað Nuuk 2 þokalgrennd Osló 12 rigning Stokkhólmur 11 rigning Pórshöfn 9 skúrir Algarve 24 skýjað Amsterdam 19 skýjað Aþena 31 lóttskýjað Barcelona 28 léttskýjað Berlln 24 akýjað Chicago 13 skýjað Feneyjar 24 þokumóða Frankfurt 26 akýjað Glasgow 19 skúrlr Hamborg 22 þokumóða Las Palmas 26 lóttskýjað London 17 skýjað LosAngeles 18 þokumóða Lúxemborg 18 rigning Madrfd 24 mlatur Malaga 30 helðskfrt Mallorca 30 heiðsklrt Montreal 11 skýjað NewYork vantar Parls 19 rigning Róm 27 þokumóða Vln 26 hólfskýjað Washington 18 þokumóða Winnlpeg 6 léttskýjað 'Morgunbl'a'ðifl/Emilía Krisfján sýnir förin eftir sprengubrotin á bakhlið myndarinnar. Þorgeir Þorgeirsson rithöfundur: Oskar eftir opinberri rannsókn á málsmeðferð Telur réttaröryggi í hættu ÞORGEIR Þorgeirsson, rithöfundur, hefur sent bréf til ríkissaksókn- ara og óskað eftir opinberri rannsókn á skipan verjanda hans fyrir Hæstarétti. Þá vill Þorgeir einnig að skoðuð verði nánar tiltekin atriði í sambandi við meðferð máls hans hjá lögreglu og dómstólum. Hann krefst þess að rannsóknin verði gerð með það fyrir augum að bæði hann og aðrir megi framvegis treysta betur réttarkerfi landsins. Formáli málsins er sá, að á síðasta ári var Þorgeir dæmdur í sakadómi Reykjavíkur fyrir meiðandi ummæli í blaðagrein um lögregluna. Nú er málið komið til Hæstaréttar og í bréfi Þorgeirs til ríkissaksóknara kemur fram, að forseti réttarins hefur skipað Sigurmar K. Albertsson veijanda hans. Þorgeir segir, að Sig- urmar hafi verið skipaður sér til vamar þann 10. apríl, en sjálfur hafi hann ekkert um það vitað fyrr en 6. maí, þegar Sigurmar tilkynnti honum það. Þá hafí lögmaðurinn rætt málið við utanaðkomandi mann í millitíðinni og segir Þorgeir, að sér skiljist að þetta athæfí varði við lög. Þá krefst Þorgeir þess einnig, að rannsakað verði hvaða afgreiðslu mál hans hafí fengið á lægri stigum dómskerfísins og við lögreglurann- sóknir. Nefnir hann t.d., að ekki hafí verið lögð fram nein samþykkt Lögreglufélagsins né stjómar þess um kæruna, sem þó sé gerð í nafni þess félags; málið hafi verið rann- sakað af lögreglumönnum sem vel gætu talið sig krenkta af skrifunum sem kært var út af, auk ýmissa annarra atriða sem hann telur at- hugaverð. I lok bréfs síns til ríkissaksóknara minnist Þorgeir Þorgeirsson á „Spegilsmálið" svokallaða, er rit- stjóri Spegilsins var sóttur til saka fyrir ■ myndbirtingu og skrif sem þóttu meiðandi. Þorgeir bendir á, að nú hafi Hæstiréttur skipað sér sama veijanda og fór með það mál og veltir því fyrir sér hvort sam- hengi sé þar á milli. Hann bendir á að réttaröryggi verði að halda und- antekningalaust í heiðri eða glata því ella, en geðþótti megi ekki koma þar til greina. I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.