Morgunblaðið - 23.09.1987, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1987
Persaflói:
Tundurdufla-
slæðurum fjölg-
að á flóanum
Áhöfn tekst að hemja
elda eftir árás Irana
Breska olíuskipið Gentle Breeze:
Einn skipveija lét lífið
Bahrain, London, Reuter.
ÁHÖFN breska olíuskipsins Gentle Breeze barðist enn við elda
uœ borð við skipinu í gœr, að því er haft var eftir eigendum
skipsins. íranskur hraðbátur skaut eldflaugum á skipið á mánu-
dag og kviknaði í því. Bretar hyggjast ekki auka viðbúnað á
Persaflóa vegna árásarinnar.
Fyrr var haft eftir skipamiðlur-
um við Persaflóa að skipvetjar
hefðu yfirgefið skip sitt og farið
um borð í björgunarskip, sem er
upp við Gentle Breeze. Haft var
eftir starfsmanni björgunarfyrir-
tækis, sem á björgunarskipið, að
skipstjóri olíuskipsins hefði farið
frá borði til þess að nota íjar-
skiptatæki. Sagði að filippínskur
skipvetji hefði beðið bana, en ekki
væri vitað um önnur slys á mönn-
um.
Talsmaður skipafélagsins Wall-
em Shipping Management, sem
aðsetur hefur í Hong Kong og
gerir Gentle Breeze út, sagði að
verið gæti að einhveijir skipveija
hefðu farið um borð í björgunar-
skip og dráttarbáta við olíuskipið,
en meirihluti áhafnarinnar reyndi
nú að ráða niðurlögum eldsins.
Tekist hefði að hemja eldinn og
stæðu vonir til að tækist að
slökkva hann innan nokkurra
klukkustunda. Skipið verður dreg-
ið til hafnar í Bahrain.
Hermt var að íranskir bylting-
arverðir um borð í hraðbáti hefðu
skotið að minnsta kosti fimmtán
flugskeytum að olíuskipinu með
þeim afleiðingum að eldur bloss-
aði upp í káetum skipveija á
stjómborða. Sagði að skipstjórinn
hefði fundið brak úr flaugunum
um borð í skipinu.
Skipið var statt skammt frá
írönsku eynni Farsi þegar árásin
var gerð. Byltingarverðir hafa
siglt ffá Farsi til að gera árásir
á flutningaskip á leiðinni til og
frá Kuwait í botni Persaflóa.
Bretar hafa herskip á Persaflóa
til vemdar kaupskipum. Þau sigla
aftur á móti ekki á norðanverðum
flóanum og þar var Gentle Breeze
þegar árásin var gerð. Embættis-
menn vamarmálaráðuneytisins og
utanríkisráðuneytisins á Bretlandi
sögðu að bresk stjómvöld hefðu
engar ráðagerðir á pijónunum um
að auka viðbúnað á Persaflóa
vegna árásarinnar. Nú eru tvær
freigátur og einn tundurspillir
breska sjóhersins á Persaflóa.
Skip hefur ekki orðið jafnilla
úti í árás frá því að olíuskipastríð-
ið blossaði upp á ný á Persaflóa
fyrir mánuði síðan.
Bahrain, Reuter.
BRÁTT munu rúmlega tuttugu
og fimm tundurduflaslæðarar
frá Bandaríkjunum, Sovétríkj-
unum og fimm Evrópuríkjum
slæða Persaflóann og mynni
hans. Bandaríkjamenn héldu
því fram í gær að þeir hefðu
fundið tíu tundurdufl um borð
í írönsku skipi. Er það fyrsta
sönnunin, sem styður þær ásak-
anir, að írakar hafi komið þeim
tundurduflum fyrir, sem leiddu
til þess að farið var að senda
tundurduflaslæðara á Persa-
flóa. Belgar samþykktu fyrir
viku að senda tundurdufl á
Persaflóa og koma þeir til liðs
við Breta, Frakka, Hollendinga
og ítala. Búist er við að belgí-
skir og hollenskir tundurdufla-
slæðarar lyóti verndar breskra
herskipa.
Hér á eftir fylgir listi yfir er-
lenda tundurduflaslæðara á
Persaflóa og fylgiskip þeirra.
Bandaríkin:
Um borð í skipinu Guadalca-
nal, sem ætlað er til að gera
strandhögg, em átta RH-530 Sea
Stallion þyrlur ætlaðar til að leita
tundurdufla.
Fjórir sautján metra langir
slæðarar ætlaðir til tundurdufla-
leitar meðfram ströndum eru um
borð í flutningaskipinu Raleigh.
Sex tundurduflaslæðarar, sem
færir eru til að sigla úthöfln,
munu koma til liðs við herafla
Bandaríkjamanna á Persaflóa í
lok þessa mánaðar eða byijun
október.
Bretland:
Tundurduflaslæðaramir Bich-
ester, Hurworth, Brecon og
Brocklesby (615 tonn) komu að
Hormuz-sundi á mánudag. í fylgd
með skipunum var skipið Abdiel
(1.500 tonn), sem ætlað er til
þess að granda tundurduflum.
Frakkland:
Tundurduflaslæðaramir Gar-
igliano, Cantho og Vinh-Long
(780 tonn) kemba hafíð rétt fyrir
utan Hormuz-sund.
Ítalía:
Tundurduflaslæðaramir Vi-
Reuter
Fjölskyldan kvödd
Belgiskur sjóliði kveður konu sína og dóttur áður en lagt er af
stað til Persaflóa með tundurduflaslæðaranum „Breydel“. Hald-
ið var úr höfn á mánudag en áætlað er, að belgísku skipin, tveir
tundurduflaslæðarar og birgðaskip, verði í Persaflóa í fjóra og
hálfan mánuð.
Voru bímir að koma sex
tundurduflum í sjóinn
- og tíu fundust um borð í skipinu
Bahrain, Reuter.
ÁRÁS Bandaríkjamanna á
íranskt skip, sem var að Ieggja
tundurdufl í Persaflóa, hefur
enn á ný vakið ótta sæfarenda
á þessum slóðum við hættuna,
sem af duflunum stafar. í frétt-
um frá Pentagon, bandaríska
hermálaráðuneytinu, segir, að
fjórir íranir hafi fallið í árás-
inni, fimm sé saknað en 22
menn, þar af fjórir særðir, hafi
verið teknir um borð i
bandarískt herskip.
íranir hafa hótað að hefna
þessa atburðar og segja, að skipið
hafí aðeins verið að flytja matvöm
en Bandaríkjamenn segjast hafa
fundið tíu tundurdufl um borð í
því. Segja þeir einnig, að Iranim-
ir hafí verið búnir að koma a.m.k.
sex tundurduflum í sjóinn, 50
mflum undan Bahrain-strönd.
Það var á mánudagskvöld, að
áhöfnin á bandarískri þyrlu frá
freigátunni Jarrell kom auga á
íranska skipið með hjálp nætur-
sjár þar sem áhöfnin var að leggja
tundurduflin á alþjóðlegri sigl-
ingaleið. Iranska skipið er land-
göngubátur með hjólabúnaði og
getur farið jafnt yfír láð sem lög.
Kom upp eldur í því við árásina
en bandarískir hermenn fóm ekki
um borð fyrr en að nokkmm
stundum liðnum.
Ali Akbar Rafsanjani, talsmað-
ur íranska þingsins, sem hótaði í
síðasta mánuði að dreifa tundur-
duflum eins og fijókomum um
allan flóann, sagði í gær, að full-
yrðingar Bandaríkjamanna væm
„lygi“ en hemaðarsérfræðingar,
fréttamenn, stjómmálamenn og
aðrir bíða þess nú með eftirvænt-
ingu að sjá hvaðan skipið og
tundurduflin em. Þau dufl, sem
fundist hafa í Persaflóa til þessa,
hafa verið af sovéskri gerð, upp-
haflega frá árinu 1908 en endur-
bætt 1938 og síðar seld
Norður-Kóreumönnum. Talið er,
að þeir hafí aftur selt þau írönum.
11. september sl. sagði í fétt í
bandaríska blaðinu The New York
Times, að Bandaríkjastjóm og
Sovétstjómin einnig hefðu mót-
mælt því við Líbýustjóm að ætla
að senda írönum mjög fullkomin
tundurdufl í skiptum fyrir efna-
vopn. Þau hafí Líbýumenn aftur
ætlað að nota í stríðinu við Chad.
este, Milazzo og Sapri (485 tonn)
em á leið til Persaflóa.
Holland:
Leitarskipin Hellevoetsluis og
Maasluis (510 tonn) em á leið til
Persaflóa.
Belgía:
Tundurduflaslæðaramir Bo-
vesse og Breydel létu úr höfn og
héldu til Persaflóa á mánudag.
Sovétríkin:
Þrír 650 tonna tundurdufla-
slæðarar af gerðinni Natya em á
Persaflóa eða þar nærri.
Að auki eiga íranar tvo tundur-
duflaslæðara til að leita meðfram
ströndum að því er haft er eftir
Alþjóðlegu _ herfræðistofnuninni í
London. írönsku skipin em
smíðuð í Bandaríkjunum. Saudi-
Arabar eiga fjóra 320 tonna
tundurduflaslæðara til að leita
meðfram ströndum. Talið er að
tveir þeirra slæði á siglingaleiðum
norður af Bahrain.
Bandaríska freigátan Jarrell en það voru þyrluflugmenn frá henni, sem komu auga á íranina við
tundurduflalagningu. Á innfelldu myndinni má sjá þyrlu sömu tegundar og sú, og sem gerði árásina
á iranska skipið.
Bandaríkjamenn um árásina á íranska skipið: