Morgunblaðið - 23.09.1987, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 23.09.1987, Blaðsíða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1987 KNATTSPYRNA Lands- liðið til flóa íhaust Islenska landsliðið mun að öll- um líkindum halda til Persaf- lóa í byrjun nóvember og leika tvo til þijá vináttuieiki við Kuwait og Saudi-Arabíu. Landslið þessara þjóða munu í lok nóvember og byijun desember leika þýðing- armikla leiki í undankeppni OL og þessir leikir því hugsaðir sem lokaundirbúningur fyrir þau átök. Þeir eru einnig kærkomin verkefni fyrir íslenska liðið, sem þama fær tækifæri til að þróa leik sinn og leikkerfí. Frá Bemharði Valssyni ÍBordeaux Endur- tekur Ólafur leikinn? Olafur Þórðarson, sem er með a-landsliðinu í Noregi, lék fyrir skömmu þrjá landsleiki á þremur vikum og vann ísland þá alla. Fyrsti leikurinn var með U-21 gegn Danmörku, sem lauk 3:1 og skor- aði Ólafur eitt mark. 2. septem- ber vann ólympíuliðið Austur-Þjóðveija 2:0 og skoraði Ólafur ógleymanlegt mark. Þá var Ólafur í a-liðinu í 2:1 sigrin- um gegn Noregi á Laugardals- velli. Því er það stóra spumingin hvort Ólafur endurtaki leikinn í dag. Skúli Unnar Sveinsson skrifar fráOsló Altt dákveðið — segir Bjarni markvörður um hvort hann leikur heima næsta sumar „ÞAÐ er allt opiA ennþá varð- andi það hvort óg kem heim eftir þetta keppnistfmabil hjá Brann,“ sagði Bjarni Sigurðs- son, markvörður hjá Brann f Noregi og íslenska landsliðs- ins, er óg spurði hann hvort hann væri á leiðinni heim. Skúli Unnar Sveinsson skrifar fráOsló Það er í rauninni allt óákveðið varðandi þetta. Ég er auv- ðitað farinn að hugsa dálítið um hvað ég eigi að gera, en það er ekki komjð neitt lengra. Ég veit reyndar ekkert hvað ég geri, ég hef möguleika á að vera áfram hér í Noregi og einnig er það vel hugsanlegt að ég komi heim og leiki þar. Með hvaða liði það yrði, hef ég ekki hugmynd um ennþá enda varla farinn að hugsa svo langt," sagði Bjami. Bjami var spurður að því hvort hann teldi að hann myndi eiga náðugar 90 mínútur í markinu í Ullevall-leikvanginum í dag. „Nei, alveg ömgglega ekki. Þetta verður geysilega erfíður leikur. Við höfum misst Pétur Pétursson, Sigurð Jónsson og ef til vill Pétur Ormslev, frá því við lékum við Norðmenn á Laugardalsvelli fyrir hálfum mánuði og á sama tíma virðast þeir ætla að stilla upp sínu besta liði. Norðmenn eru mjög sterkir á heimavelli og þeir era ákveðnir í því að vinna. Mér fínnst eins og þessi leikur sé bara forms- atriði hjá þeim, þeir era svo öraggir," sagði Bjami. Gunnar Gíslason tók í sama streng og sagðist telja að öryggi Norðmanna ætti vonandi eftir að koma íslenska liðinu til góða. „Ég held að ef við tökum hraust- lega á móti þeim strax í byijun, þá verði þetta allt í lagi. Annars er mjög mikilvægt fyrir Norð- menn að vinna, bseði vegna almenningsálitsins og einnig til að fá hagstæðari riðil næst,“ sagði Bjami að lokum. Atll EAvaldsson í baráttu við við einn norsku leikmannanna á Laugardals- velli fyrir hálfum mánuði. Atli er leikreyndasti landsliðsmaðurinn sem nú er i liðinu, í kvöld leikur hann sinn 46. landsleik. Norðmenn verða að vinna með fimm mörkum til að sanna sig - segirAtli Eðvaldsson. Hann segir Norðmenn sjaldan eða aldrei hafa átt betra lið en nú „VIÐ hjá Bayer Uerdingen höf- um leikið nokkuð vel það sem af er þessu keppnistímabili en tapað samt, jafnvel leikjum þar sem við höfum verið miklu betri aðilinn," sagði Atli Eð- valdsson, leikmaður Bayer Uerdingen og fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, í gær þegar óg spurði hann um gengi liðsins og hans, það sem af er leikárinu í Vestur-Þýska- landi. Hvað mig varðar þá virðast voðalega margir hafa áhyggj- ur af því hvemig mér hefur gengið," sagði Atli brosandi. „Ég hef verið SkúliUnnar Sveinsson skrifar fráOsló rosalega þungur síðustu þijár vikum- ar og ég held að það sé vegna þess að ég hef leikið aftar á vellinum en undanfarin ár. Þar þarf maður minna að hlaupa og beijast, en það er nú einu sinni það sem ég hef alltaf gert. Ég talaði við þjálfarann og sagði honum hvað mér fínnst sjálfum og hann tók mig á sér æfingar — æfingar þar sem mikið er hlaupið og djöflast, og ég fínn að ég er að ná mér aftur. Ég hef leikið sjö leiki af þeim níu sem við eram búnir með í vetur og það hefur gengið svona og svona. Ég er samt viss um að þetta er allt saman að koma hjá mér, og einnig hjá liðinu. Strákamir virðast hafa ofmetnast af góðu gengi und- anfarin þijú ár, en við eram með mjög ungt lið og strákamir héldu að þetta kæmi bara að sjálfu sér. Það gerist auðvitað ekki og við verðum að gera okkur grein fyrir því, að við verðum að hafa fyrir hlutunum. Við höfum fengið góða dóma fyrir leiki okkar og strákam- ir hafa verið ánægðir með það en ég hef reynt að segja þeim að við ættum frekar að leika illa og vinna leiki, það era jú stigin sem telja. Við eigum erfíða leiki eftir á úti- velli núna á næstunni, gegn Werder Bremen og HSV og ef okkur tekst að fá einhver stig úr þeim leikjum er ég viss um að sjálfstraustið kem- ur aftur. Sumir strákamir hafa verið eins og hríslur í vindi fyrir Ieiki, þeir hafa verið svo tauga- óstyrkir.“ Nú er erfiður leikir framundan hjá landsliðinu á morgun — er ekki svo? „Jú, blessaður vertu, þetta verður hörku leikur og hann verður erfíð- ur, það er alveg ljóst. Norðmenn verða að vinna okkur með einum fímm mörkum, ef þeir ætla að sanna hvað góðir þeir era. Þeir hafa sjaldan eða aldrei verið með betra lið og það vantar talsvert uppá að við séum með okkar sterk- asta lið, þannig að þeir verða að vinna okkur, annars fer allt í baklás hjá þeim,“ svaraði Atli brosandi og vildi ekki tjá sig um hvemig leikur- inn í kvöld fer. GETRAUNIR TöKan gaf rúmlega 1.1 milljón EIN röð kom fram með 12 róttum leikjum í gstraununum um síðustu helgi og fókk sá heppni, sem notaði gulan 16 raðaseðil, 1.112.745 krónur ívinning. etta er hæsti vinningur í get- raununum á þessu tímabili, en fyrsti vinningur er ekki greidd- ur nema fyrir 12 rétta leiki. Enginn náði því tvær helgamar á undan og var þess vegna meira í pottinum en ella. Þessi breyting á örugglega eftir að mælast vel fyrir og eykur vonandi þátttök- una. 37 raðir vora með 11 réttum leikj- um og er vinningurinn fyrir hveija röð 5.520 krónur. Venjulega hefur verið farið yfír selda seðla á mánudögum, en nú var það gert strax eftir leikina á laugardaginn og verður það reynt áfram. Getrauna- spá MBL. C 3 r s > Q c c E I- c c Dagur | c CM I Stjarnan Sunday Expraas Sunday Talagraph Sunday Mlrror SAMTALS 1 X 2 Arsenal — West Ham 1 1 1 1 1 1 1 1 2 0 0 0 8 0 1 Derby — Oxford 2 1 X 1 1 1 X 1 X 0 0 0 6 3 1 Everton — Coventry 1 1 1 1 1 1 1 1 1 0 0 0 9 0 0 Man. Utd. — Tottenham 1 1 1 2 X 2 1 1 X 0 0 0 5 2 2 Newcastle — Southampton 1 1 2 2 2 1 2 1 X 0 0 0 4 1 4 Norwich — Nott. Foreet 2 1 X X 2 2 2 1 2 0 0 0 2 2 5 Portsmouth — Wlmbledon X 2 2 X 1 X 1 X X 0 0 0 2 5 2 QPR — Luton 1 1 1 1 1 1 2 1 1 0 0 0 8 0 1 Sheffield Wed. - Charlton 2 1 X 1 X 1 1 1 1 0 0 0 e 2 1 Watford — Chelsea 1 2 1 2 2 2 X 1 2 0 0 0 3 1 6 C. Palace — Ipswich 1 1 1 1 1 X X 1 1 0 0 0 7 2 0 Leede - Man. Chy 1 1 X 1 1 1 1 1 1 0 0 0 8 1 0 Ólafur högg- þéttur? Olafur Þórðarson, baráttujaxl- inn frá Akranesi, meiddi sig lítillega á æfíngunni á mánudags- kvöldið. Hann hélt þó áfram, en þegar hann vaknaði SkúliUnnar á þriðjudagsmorg- Sveinsson uninn, var vinstra hné hans talsvert frá Oslo meira um sig en venjulega. Vatn hafði komist inná liðinn. Eins og venjulegt er í góðra vina hópi gerðu menn hæfílegt grín af þessu. „Ég hélt að þú væri vatns- þéttur Óli minn,“ sagði einn lands- liðsmanna og annar stakk upp á því að Óli yrði settur í þurrkara. Sá þriðji var í vafa um hvort Ólafur væri vatnsþéttur, en „hann er alveg öragglega höggþéttur!" sagði hann um Ölaf, sem er þekktur fyrir allt annað en að gefast upp eða hika þegar návígi era annars vegar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.