Morgunblaðið - 23.09.1987, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1987
Pólveijar og Bandaríkjamenn:
Sendiherrar skipaðir
eftir fjögnrra ára hlé?
Varsjá, Reuter.
PÓLVERJAR og Bandaríkja-
menn ætla brátt að skipa sendi-
herra í höfuðborgiun ríkjanna
og taka upp fullt stjórnmálasam-
band að nýju, að því er Jerzy
Urban, talsmaður pólsku sU'órn-
arinnar, sagði í gær.
„Pólveijar eru reiðubúnir tií þess
að koma á óskertu stjómmálasam-
bandi við Bandaríkjamenn á
næstunni," sagði Urban á vikuleg-
um blaðamannafundi sínum. Hann
sagði ekki hvenær þar að kæmi.
Bandaríkjamenn kvöddu sendi-
herra sinn heim snemma ársins
1983 og hefur sendiráðsritari verið
fulltrúi þeirra í Varsjá síðan. Var
þetta gert til að lýsa yfír óánægju
með að pólsk stjómvöld skyldu beita
herlögum til þess að bæla verka-
mannasamtökin Samstöðu niður.
Sendiráðsritari hefur einnig farið
með mál pólska sendiráðsins í
Washington síðan Romoald
Spasowski sendiherra sótti um
pólitískt hæli þegar herlög voru
sett í Póllandi í desember árið 1981.
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti ákvað að hætta refsiaðgerðum
gegn Pólverjum og veita þeim for-
gang í viðskiptum eins og áður eftir
að öllum pólitískum föngum, sem
pólsk yfirvöld viðurkenndu að væru
í haldi, var sleppt. Um nokkurt
skeið hefur verið búist við að sendi-
herrar færu til Washington og
Yarsjár til merkis um að fullt stjóm-
málasamband væri komið á að nýju.
Hafa ríkisstjómir landanna sakað
hvora aðra um að þæfa málið.
George Bush, varaforset Banda-
ríkjanna, kemur i opinbera heim-
sókn til Póllands á laugardag og
virðist yfirlýsing Urbans hafa verið
miðuð við hana. Bush er háttsett-
asti ráðamaður frá Bandaríkjunum
sem kemur til Póllands í tíu ár.
Bandaríkjamenn vildu ekkert
láta hafa eftir sér um málið.
Noregur:
Noregur:
Nýtt olíusvæði
fundið í Norðursjó?
Keuter
Þingað um kjarnorkumál
Þing Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) hófst í
Vínarborg á mánudag. Hér sést Kurt Waldheim, forseti Aust-
urríkis, flytja setningarræðu þingsins, sem nú er haldið 31. sinni.
Grænfriðungar sektaðir
Krístíansand, Reuter.
Stavangrí, Reuter.
FRANSKA olíufélagið Ste Nati-
onale Elf-
Aquitaine hefur fundið olíu und-
an vesturströnd Noregs og var
haft eftir heimildarmönnum í
olíuiðnaði að sennilega væri um
mikla olíu að ræða.
Fyrirtækið Elf er nú að kanna
hafsbotninn skammt frá olíusvæð-
inu Frigg, sem er skammt frá
breska hluta Norðursjávar. Tals-
maður norsku olíustjómarinnar,
sem er hluti af olíuráðuneyti lands-
ins, sagði í gær að Elf hefði fundið
olíu og fyrstu tilraunir til að bora
hefðu lofað góðu.
„Hér gæti verið um jafn mikla
olíu að ræða og á Ula-svæðinu, sem
talið er að geymi um 40 milljónir
tonna af olíu og gefi af sér 70 þús-
und tunnur af olíu á dag,“ sagði
heimildamaður Reuters-fréttastof-
unnar, sem ekki vildi láta nafns
getið.
Norðmenn eru næststærstu olíu-
framleiðendur í Evrópu og dæla
þeir um einni milljón tunna af olíu
úr Norðursjó á dag.
SKIPSTJÓRI Siríusar, skips um-
hverfisvemdarsamtakanna
Greenpeace, var á mánudag
dæmdur til að greiða 50 þúsund
norskar krónur (um 300 þúsund
ísl.kr.) fyrir að sigla yfir hemað-
arsvæði á leið til hafnar í Kristian-
sand.
Skipsljórinn, Peter Willcox frá
New York, var ekki viðstaddur uppk-
vaðningu dómsins, en að sögn
lögreglu greiddi hann sektina þegar
honum var greint frá úrskurðinum.
Norska lögreglan dró tilbaka í gær
að hann hefði greitt sektina: „Við
höfum ekkert samband við hann
haft og sendum kröfu um greiðslu
til höfuðstöðva Greenpeace í Banda-
ríkjunum. Ef hann borgar ekki fer
málið fyrir dómstóla," sagði talsmað-
ur lögreglunnar.
Siríusi var siglt til Noregs í því
skyni að mótmæla mengun frá iðn-
fyrirtækjum. Hvorki lögregla né
strandgæsla gerðu tilraun til að fara
um borð í skipið þegar það lagðist
við festar í Kristiansand á sunnudag.
Strandgæslan fór um borð í skipið
þegar það sigldi upp Oslóarfjörð og
var skipveijum sagt að þeir ættu
handtöku yfir höfði sér fyrir að fara
ekki að lögum. Siríus hefur nú látið
úr höfn og er á leið til Skotlands.
30-50% afsláttur
á útsöluvörum.