Morgunblaðið - 23.09.1987, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1987
35
Framhaldsskóli Húsavík-
ur settur í fyrsta skipti
Húsavík.
Framhaldsskólinn á Húsavik,
áður Gangfrœðaskólinn á
Húsavík, var settur í fyrsta
skipti sl. þriðjudag við hátíð-
lega athöfn í Húsavíkurkirkju.
Athöfnin hófst með því að Juli-
et Falkner kennari lék einleik á
píanó en síðan tók formaður
skólanefndar til máls og bauð
nýja skólameistarann Jón Hann-
esson svo og kennara og nemend-
ur velkomna til starfa.
í upphafi setningarræðu sinnar
minntist skólameistari starfs for-
vera við skólann og þá sérstaklega
starfs Jóns Jóhannessonar skóla-
stjóra sem lengi og vel hefði
stjómað Gagnfræðaskóla
Húsavíkur og unnið ötullega að
breytingum þeim sem nú væru
orðnar með tilkomu hins nýja
Framhaldsskóla Húsavíkur. En
hinn nýi skóli hefur fengið víðara
starfssvið en gagnfræðaskólinn
hafði áður. Beindi hann síðan orð-
um sínum til nemenda og ræddi
um gildi menntunar fyrir hinar
komandi kynslóðir. Hinn nýi skóli
starfar samkvæmt sérstökum
samningi Húsavíkurbæjar gerð-
um við menntamálaráðuneytið á
síðastliðnu vori.
I vetur verða 150 nemendur í
7.-9. bekk, 25 í framhaldssnámi
og 10 í iðnnámi. Auk þess sem
boðið er upp á fullorðinsfræðslu
sem virðist ætla að verða vel sótt.
— Fréttaritari
Morgunblaðið/SPB
Jón Hannesson skólameistari.
Setning Framhaldsskóla Húsavíkur fór fram í Húsavíkurkirkju.
n sjgp
BSBi
Hér gefur að líta nokkra starfsmanna ferðaskrifstofunnar Sögu,
talið frá vinstri: Kristin Karlsdóttir, Ása Baldvinsdóttir, Rebekka
Þráinsdóttir, Sigrún E. Árnadóttir, Inga Engilberts og Helga Lára
Guðmundsdóttir. Á innfelldu myndinni má sjá hvar ferðaskrifstofan
er til húsa núna.
Ferðaskrifstofan Saga
flutt í nýtt húsnæði
FERÐASKRIFSTOFAN Saga er
flutt í nýtt húsnæði að Suðurgötu
7, en var áður til húsa að Tjarnar-
götu 10.
Saga var opnuð þann 24. októ-
ber 1986 og voru starfsmenn 5
talsins. Nú starfa 11 manns hjá
ferðaskrifstofunni. Fram-
kvæmdastjóri Sögu er Örn
Steinsen.
í tilkynningu frá Sögu segir, að
ferðaskrifstofan bjóði upp á alia
almenna ferðaþjónustu, einstakl-
ings og hópferðir, viðskiptaferðir,
móttöku erlendra ferðamanna og
leiguflug til Spánar. Hún sérhæfi
sig í ráðstefnuhaldi hér á landi og
hafi í því skyni gefið út kynning-
arbæk'mg, sem hafi verið dreift
víða erlendis.
150 manns á niðja-
móti á Barðaströnd
■
jfiM* ■ vl'síáíSsí'’ ,|*i^€lSISÉtkí
Börn Steinunnar og Þórðar, talið frá vinstri. Aftari röð: Steinþór, Sveinn, Kristján, Karl, Július og
Ólafur. Fremri röð: Jóhanna og Björg.
Innri-Múla Barðaströnd.
HELGINA 21.-23. ágúst var
haldið hér á Barðaströnd niðja-
mót hjónanna Steinunnar B.
Júlíusardóttur, f. 20. mars 1895,
d. 13. febrúar 1984 og Þórðar
Ólafssonar, f. 24. ágúst 1887, d.
10. apríl 1984, frá Innri-Múla.
Tilgangur mótsins var m.a. sá
að minnast þess að 24. ágúst
voru 100 ár liðin frá fæðingu
Þórðar.
Mótið var vel sótt og þegar fjöl-
mennast var voru um 150 manns
samankomnir. Þeim hjónum Stein-
unni og Þórði varð 9 bama auðið,
sem öll eru á lífi og voru þau öll
þama utan eitt, sem komst ekki.
Mótsgestir héldu til í gmnnskól-
anum og félagsheimilinu Birkimel
og reistar voru tjaldbúðir við ána
Móru.
Byijað var á að koma saman á
föstudagskvöldið en þá var haldin
grillveisla. Að henni lokinni var
kveiktur varðeldur og yfir honum
var sungið fram yfir miðnætti.
Á laugardaginn var komið saman
til að vera við helgistund í Haga-
kirkju. Sr. Þórarinn Þór messaði.
Kristján Þórðarson las minningar-
ræðu um foreldra sína eftir Björgu
Þórðardóttur, dóttur þeirra. Að
helgistund lokinni var farið út í
kirkjugarð að leiði þeirra Steinunn-
ar og Þórðar. Því næst var haldið
í rútuferð út að Múla og gengið
niður í fjöm í blíðskaparveðri.
Seinni part laugardagsins var
matarveisla í félagsheimilinu, þar
sem borinn var fram þjóðlegur
matur. Sigurður Einarsson kokkur
á Hótel Sögu undirbjó matarveisl-
una.
Seinna um kvöldið var svo kvöld-
vaka sem Þórður Júlíusson Þórðar-
sonar stjómaði og var þá öllum
fijálst að koma með eitthvert
skemmtiefni og leggja annað til
málanna. Þar kom best í ljós að
nóg er um efnilega skemmtikrafta
innan þessarar ættar. Þegar búið
var að troða upp með skemmtiatrið-
um var slegið upp balli. Hljómsveit
skipuðu mótsgestir sjálfír. Vom ein-
ir 7 manns sem skiptust á að vera
í henni, sumir vanir að koma fram
í hljómsveitum. Hljómsveitin hélt
uppi fjöri til kl. 2 um nóttina.
Það var að heyra á mótsgestum
að þeir hefðu verið mjög ánægðir
með mótið og það hefði í alla staði
tekist vel.
- SJÞ
Hamborg er fyrir vandláta
- Við fljúgum þangað fimmtudaga og sunnudaga