Morgunblaðið - 23.09.1987, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1987
Sjávarútvegssýningii\
Danir með 55 sýnendur
FYRIRTÆKIÐ Traust hf kynnir
á sjávarútvegssýningunni
íslenzka sprautusöltunarvél,
hannaða af verkfræðingum fyr-
irtækisins i samvinnu við danskt
fyrirtæki, Lynggaard. Traust hf
kynnir ennfremur sérstök sölt-
unarkerfi og nýjungar eins og
Morgunblaðið/Bjami
Trausti Eiríksson og Hans T. Lynggaard, sem unnið hafa saman að
hönnun sprautusöltunarvélarinnar.
EIN af þeim athyglisverðu nýj-
ungum sem eru til sýnis á
íslensku sjávarútvegssýningunni
er uppstokkunarvél sú sem sýnd
er í bás fyrirtækisins Hafsýnar.
Uppstokkunarvél þessi er fundin
upp og smíðuð af Sigurbimi Ævarri
Jónssyni trésmið og fyrrverandi sjó-
manni. Vélin er ekki að fullu kláruð,
og er eintakið sem sýnt er á sjávar-
útvegssýningunni annað tveggja
sem smíðuð hafa verið. „Ég fékk
hugmyndina fyrir 20 árum og hef
verið að þróa hana meira eða minna
síðan. Ég hef svo helgað mig þessu
verkefni alveg síðustu tvö árin,“
sagði Sigurbjöm.
I vélina vantar nú aðeins stykki
sem séð getur um að skipta um
öngla sem famir em að slitna. Að
sögn Sigurbjöms stendur einungis
flármagnsskortur í vegi fyrir því í
að hægt sé að klára vélina, en hann
hefur að öil leyti kostað smíði vélar-
innar sjálfur, utan styrks sem hann
fékk frá Rannsóknaráði ríkisins.
Uppstokkunarvélin virkar þannig
að spilið í henni dregur á móti spil-
inu á borðstokknum og heldur
þannig alltaf línunni strekktri á
milli spila. Vélin skiptir um og end-
umýjar önglana sjálf, sker beituna
og beitir. Hún raðar svo önglunum
fullbeittum í tromlu og þar geymist
beitan við kjörhitastig, með aðstoð
kælikerfis vélarinnar, þar til lagt
er. Vélinni er stjómað af tölvu sem
staðsett er í stýrishúsi.
Að sögn Sigurbjöms er þetta eina
vélin sinnar tegundar sem til er í
heiminum, svo vitað sé. Hefur Há-
skólinn leitað slíkrar vélar í 50
löndum án árangurs. Sigurbjöm
hefur nú sótt um einkaleyfí á vél-
inni. „Flestir reyndir sjómenn og
beitingamenn höfðu enga trú á að
þetta væri hægt, en trúa því nú
þegar þeira hafa séð vélina. Ég
hafði jafnvel ekki trú á því sjálfur
að þetta væri hægt, í upphafi,“
sagði Sigurbjöm.
„Náum ekkí að
byggja upp birgðir“
ALLS sýna 55 dönsk fyrirtæki á
sjávarútvegssýningunni að þessu
sinni. Á danska sýningarsvæðinu
eru 35 fyrirtæki og 20 önnur eru
í básum isleskra umboðsmanna.
Jan Furst Andersen hjá danska
útflutningsráðinu er þáttur Dana í
sýningunni mjög öflugur að þessu
sinni. Þetta er stærsta sýning þess
hóps sem sýnir á danska sýningar-
svæðinu til þessa. Þar væru 36
fyrirtæki sem framleiddu allar þær
vörur sem notaðar væru til fiskiðn-
aðar, allt frá önglum til bátavéla.
Jan Fiirst talaði um það hve tensl
íslendinga og Dana væm sterk,
allt frá víkingatímum. Báðar þjóð-
imar væru miklar siglingarþjóðir
og fiskveiðar þeirra væru svipaðar.
íslendingar veldu oft danskar vör-
ur, bæði vegna þess að flestir
íslendingar tala dönsku og margir
þeirra hefðu komið til Danmerkur
og Kaupmannahafnar. ísland væri
líka áhugaverður markaður fyrir
Dani, enda væri landið 17 stærsta
útflutningsland Danmerkur, og það
mlisstærsta miðað við höfðatölu.
Að sögn Jan Fiirst er það stór-
kostlegt hjá íslendingum að geta
safnað svo mörgum fyrirtækjum á
sjávarútvegssýninguna, miðað við
fámenni þjóðarinnar. Hins vegar
Jan FUrst Andersen.
hefði það ýmsa annmarka, til dæm-
is væri ómögulegt að fá sæti í
kaffistofunni á matartímum og
leigubíl heim á hótel að sýningu
lokinni. Jan Fiirst sagðist samt vera
Morgunblaðið/Bjami
ánægður með sýninguna og enginn
vafi á því að hann yrði hér á landi
aftur að þremur árum liðnum, á
íslensku sjávarútvegssýningunni
’90.
Traust kynnir nýja
sprautusöltunarvél
uppþýðingarvél fyrir rækju,
Hörpudiskvinnsluvélar af ýmsu
tagi, kúfiskverksmiðju, lifrar-
verksmiðju, kaviarverksmiðju og
laxaslátrunarbúnað.
Trausti Eiríksson eigandi Tarusts
hf sagði á blaðamannafundi, þar
sem hann kynnti starfsemi fyrir-
tækisins, að tímamót væru nú í
verkun á salktfiski. Sprautusöltun
með sérhannaðri sprautuvél
Trausts og síðan söltun með söltun-
arkerfi fyrirtækisins væri bylting í
fyllstu orðsins merkingu. Sprautu-
söltunin gæfi mun betri nýtingu og
auknar tekjur. Ennfremur lækkaði
söltunarkerfið launakostnað veru-
lega og bætti vinnuaðstöðu mikið.
Sprautusöltun væri nýjung í vinnslu
á saltfiski, en væri byggð á tækni,
sem notuð hefði verið við söltun á
kjöti í áratugi. Ástæða aukinnar
nýtingar væri að fiskurinn væri
saltaður innan frá og minna af
uppleystum eggjahvítuefnum og
þurrefnum tapaðist við verkunina.
Söltun innan frá gæfi ennfremur
ljósari og áferðarfalalegri fisk.
Trausti sagði, að helztu kostir
nýju sprautusöltunarvérlarinnar
væru að breidd hennar væri miðuð
við fiskiðnaðinn. Afköst væru meiri
en hjá örðum vélum vegna niðurröð-
unar nála og þau sniðin að afköstum
flatningsvélar. Nálabrot væru minni
því við hönnun vélarinnar hefði ver-
ið tekið tillit til beina í flöttum físki.
Vélin sprautaði einingis pækli, þeg-
ar nálamar væru í fískinum og þar
af leiðandi yrði minna vandamál
með mettun saltpækils af eggja-
hvítuefnum og síubúnaður væri
sniðinn að eggjahvítuefnum í fiskin-
um og stíflaðist síður.
Um það bil 60 til 80% af fram-
leiðslu Trausts hf eru flutt utan til
landa eins og Noregs, Svíþjóðar,
Danmerkur, Færeyja, Rússlands,
Skotlands, Grænlands, Banda-
ríkjanna, Alaska og Kanada. Fjöldi
starfsmanna er um 60 og þar af
starfa 10 tæknimenn við hönnun
og þróun nýrra tækja. Nú er verið
að taka í notkun nýtt 1.200 fer-
metra húsnæði, sem í verður
verzlun, færibandadeild, skrifstofur
og nýtt verkfræðifyrirtæki, sem
mun veita alhliða þjónustu á sviði
verksmiðjuskipulagninga og hönn-
unar. Heildarstærð húsnæðis
Trausts hf er því orðið um 2.500
fermetrar.
Sigurbjöm Ævarr Jónsson við uppstokkunarvél sina, sem mun vera
sú eina sinnar tegundar í heiminum, svo vitað sé.
Eina vélin sinnar
tegundar í heiminum
„ÉG fékk mjög álitlegar fyrir-
spurnir og pantanir strax á
fyrsta degi,“ sagði Jósafat
Hinriksson, en fyrirtæki hans,
J. Hinriksson, hefur stóran bás
á góðum stað á sjávarútvegssýn-
ingunni i Laugardalshöll.
Á svæði því sem J. Hinriksson
hefur til umráða hefur Jósafat
smfðað bát sem viðskiptvinir geta
sest inn í og rætt málin. Bátinn
notaði Jósafat einnig á sjávarút-
vegssýningunni 1984.
Stærstur hluti framleiðslu
J.Hinrikssonar eru „Poly ice“ tog-
hleramir, að sögn Jósafats, en um
það bil 70% framleiðslu fyrirtækis-
ins er fluttur út. Toghleramir eru
af ýmsum stærðum, og eru þeir
stærstu 3700 til 4200 kg stykkið.
Einn slíkur er einmitt við inngang
sýningarinnar.
„Þetta eru miklir aflahlerar, seld-
ir í stærstu rækjutogara erlendis,
meðal annars eitt stærsta og full-
komnasta rækjuskip í heimi, Ocean
Prawns frá Danmörku," sagði Jósa-
fat. „Stærstu netaverkstæði
Danmörku keppast til dæmis við
að panta fra'okkur hlera." J.Hin-
riksson flytur út hlera til fjölmargra
landa, til dæmis Færeyja, Græn-
Iands, Noregs, Bretlandseyja og
Bandaríkjanna. Jósafat gat þess til
gamans að allur færeyski flotinn,
utan eitt skip, notar toghlera frá
Jósafat Hinriksson í bás sínum á sjávarútvegssýningunni.
J.Hinriksson. „En sá sem ekki er
með okkar hlera núna mun ömgg-
lega kaupa toghlera af okkur næst
þegar hann endumýjar," bætir
Jósafat við.
J.Hinriksson kynnir á sýningunni
nýja, mjög stóra gerð gálgablakka
og dekkrúlla sem þola átak upp að
39 tonnum. Að sögn Jósafats hafa
Norðmenn sýnt þeim mikinn áhuga.
Jósafat sagði að þetta væri
líklega í 38. sinn sem hann sýndi
á slíkri sjávarútvegssýningu, er-
lendri eða innlendri, og kæmi það
fyrir að hann sýndi þrisvar sinnum
á ári.
„Það er svo mikil sala hjá okkur
að við náum engan veginn að
byggja upp birgðir," sagði Jósafat.
„Hér áður átti ég allt til í birgða-
geymslunum, en nú er það ekki
hægt lengur, heldur að verður bara
að framleiða upp í þær pantanir sem
berast."