Morgunblaðið - 23.09.1987, Síða 60

Morgunblaðið - 23.09.1987, Síða 60
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1987 „ 60 KNATTSPYRNA „ÓSKAR, Óskar, Óskar“ ' kyrjuðu nokkur hundruð ánægðra Ólafsfirðinga á Þróttarvellinum í Reykjavík, þegar Leiftur hafði sigrað heimamenn og þar með tryggt sér sæti í 1. deild karla í knatt- spyrnu næsta ár. Á Ólafs- firði hljómaði sami söngur sem og á miðunum fyrir utan. Fögnuðurinn var gífurlegur, gleði skein úr hverju andliti. Knatt- spyrnufélagið Leifturvar komið í hóp þeirra bestu í fyrsta sinn í sögunni — Olafsfjörður á fótboltakor- tið. Hafi einhvern Ólafs- firðing dreymt um að lið heimamanna ætti eftir að leika í 1. deiid, hélt sá hinn sami þeim draumi leynd- um — þar til í sumar. Morgunblaðið/Bjami Mikil gleði ríkti á Þróttarvelli þegar Leiftur frá Ólafsfirði hafði tryggt sér sæti í 1. deild næsta ár. Enginn var samt ánægðari en Óskar Ingimundarson, þjálfari liðsins og markakóngur. Á myndinni fagnar hann sigrinum með eiginkonunni Hrafnhildi Halldórsdóttur og Ingimundi syni þeirra. Dætumar Karen og Bima fundust ekki í mannþrönginni. Bólan sem aldrei sprakk „Vorum stimplaðir malarlið, sem ekkert gat á grasi, en fengum uppreisn æru,“ segir Óskar Ingimundarson þjálfari Leifturs sem komst upp í 1. deild Oskar Ingimundarson var ráð- inn þjálfari Leifturs eftir að liðið féll úr 2. deild fyrir tveimur árum. Hann hafði staðið sig vel Steinþór Guðbjartsson skrifar með Leikni á Fá- skrúðsfírði keppn- istímabilið á undan — lið, sem kom upp úr 4. deild og var dæmt aftur niður, en hafnaði um miðja 3. deild — en það var frum- raun hans sem þjálfari. „Ég hafði lengi hugsað um að fara út í að þjálfa lið. Því setti ég mig oft í spor þeirra þjálfara sem ég hafði og skrifaði niður æfíngar þeirra. Alvaran var samt ekki mikil fyrr en ég fann að ég var á síðasta snún- ingi sem leikmaður og átti ekki Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson Leiftur 1987 Leikmenn Leifturs eftir 2:1 sigurinn gegn Þrótti, sem tryggði liðinu sæti í 1. deild næsta ár. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Garðarsson, Geir Hörður Agústsson, Helgi Jóhannsson, Gústav Ómarsson, Ólafur Bjömsson, Friðrik Einarsson, Óskar Ingimundarson, Gunnlaugur Sigursveinsson, Guðmundur Bjöms- son, Hermann Baldursson, Rúnar Guðlaugsson gjaldkeri og Óli H. Ingólfsson ritari. Fremri röð frá vinstri: Sigfús Jónsson, Sigurbjöm Jakobsson, Friðgeir Sigurðsson, Hafsteinn Jakobsson, Þorvaldur Jónsson, Steinar Ingimundarson, Halldór Guðmundsson, Róbert Gunnarsson og Þorsteinn Þorvaldsson formaður knattspymudeildar Leifturs. lengur fast sæti í KR-liðinu,“ sagði Óskar um tildrög þjálfarastarfsins. EkklméraAþakka Óskar hefur náð árangri sem þjálf- ari. Reynsla hans sem leikmanns hefur komið að miklu gagni — hann þekkir leikinn og les hann vel, nær því besta úr þeim efnivið, sem hann hefur hverju sinni, er raunsær. „Ég hef ekki búið til neitt á Ólafsfírði. Þar snýst allt um fótbolta og kjarni liðsins hefur leikið saman í áratug eða meira. Þetta eru reyndir strák- ar, sem þekkja hvem annan vel. Þeir hafa haft marga þjálfara og árangurinn er ekki mér að þakka." Óskar er lítillátur og vill sem minnst um eigin þátt tala, en auk þess að þjálfa liðið hefur hann leikið með því og var markakóngur þess í sum- ar. En kom árangurinn þjálfaranum á óvart? Sveltavargar „Það var skrekkur í okkur í vor. Við sigruðum í 3. deild í fyrra og 2. deildin á að vera erfiðari. Onnur lið í deildinni litu á okkur sem al- gjöra sveitamenn og við fengum ekki einu sinni æfingaleiki við þessi félög. Þau töldu tíma sínum betur varið en að spila við einhveija „sveitavarga". Því urðum við að spila æfíngaleiki við lið í 3. og 4. deild og í upphafi móts höfðum við ekki hugmynd um hvar við stóðum. En við vomm ákveðnir í að selja okkur dýrt og fljótlega komumst við að raun um að við vorum síst lakari en hin liðin í deildinni. En við gerðum okkur líka grein fyrir að stutt var á milli fyrstu og þriðju deildar — gleði og sorgar. Því var ég ekki sáttur við allt það umtal sem við fengum á miðju sumri, hélt að það myndi jafnvel

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.