Morgunblaðið - 03.10.1987, Side 1

Morgunblaðið - 03.10.1987, Side 1
64 SÍÐUR OG LESBÓK 223. tbl. 75. árg.____________________________________LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987____________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsilis Til óeirða kom i Lhasa, höfuðborg Tíbets, i gær og létu sex menn lífið, að sögn kínversku fréttastofunn- ar NCNA. Tíbeskir búddamunkar mótmæltu yfirráðum Kínverja yfir Tíbet í Lhasa á sunnudag og var myndin tekin þá. Blóðugar óeirðir blossa upp í Tíbet Höfuðborg landsins sambandslaus við umheiminn London, Reuter. KÍNVERSKA fréttastofan NCNA greindi frá því í gær að sex menn hefðu látið lífið og nitján lögregluþjónar meiðst í óeirðum í Lhasa, höfuðborg Tíbets. Sagði fréttastofan að átökin á fimmtudag væru liður í tilraun fylgismanna Dalai Lama, trúarleiðtoga tibeskra búdda- munka, til að „kljúfa föðurlandið". „Mótmælendumir tóku skotvopn af lögregluþjónum og skutu á allt sem fyrir varð. Óeirðarseggimir og aðrir viðstaddir dreifðust ekki fyrr en rökkva tók,“ sagði fréttastofan. Tekið var fram að lögregla hefði ekki notað skotvopn. Fyrr í gær var greint frá því að Sovétríkin; Ida Nudel fær brott- fararleyfi Moskvu, Reuter. SOVÉSKI andófsmaðurinn Ida Nudel hefur fengið leyfi til að flytjast til ísraels, að því er náinn vinur hennar, Iulia Ratner, sagði í gær. Nudel býr nú i íbúð Ratner i Moskvu. Ratner hvaðst ekki vita hven- ær Nudel, sem hefur reynt að fá leyfi yfirvalda til að flytjast úr landi frá árinu 1971, fengi að fara..Nudel var send í útlegð til Síbiríu 1978. Hún fékk leyfi til að snúa aftur til Moskvu 1982, en var meinað að setjast þar að. Hefur hún síðan búið í Sovétlýðveldinu Moldavíu. Nudel hefur barist fyrir mál- stað gyðinga, sem vilja flytja frá Sovétríkjunum, og hafa emb- ættismenn vestrænna ríkja oft og tíðum talað máli hennar. lokað hefði verið fyrir síma- og fjar- skiptasamband við Lhasa vegna mótmælanna og bárust óstaðfestar fregnir um að fjöldi manna hefði slasast og verið handtekinn eftir átök aðskilnaðarsinna og lögreglu. í frétt málgagns kínverska kommúnistaflokksins, Dagblaðs al- þýðunnar, í morgun sagði, að atburðirnir í Tíbet væm „alvarlegs eðlis“ og væri við „Dalai-klíkuna“ að sakast. Sagði að tilgangur óeirð- anna væri að grafa undan þeirri einingu, sem ríkti í Kína, og styðja „glæpastarfsemi fylgismanna Dalai Lama á erlendri grundu og kljúfa föðurlandið". í blaðinu sagði að Tíbet væri óijúfanlegur hluti af Kína og undanfarin ár hefðu lífskjör íbúa þar batnað talsvert. Kínverska fréttastofan sagði að flokkur nokkurra aðskilnaðarsinna hefði kynnt undir óeirðunum. Mót- mælin bar upp á þjóðhátíðardegi Kínverja og var sagt að hátíðahöld hefðu farið friðsamlega fram þar til nokkrir tugir manna gengu niður eina aðalgötu Lhasa og hrópuðu: „Veitið Tíbet sjálfstæði!" Sagði að mótmælendumir hefðu grýtt al- menning og lögregluþjóna, sem reyndu að hefta för þeirra. Þeir hefðu lagt eld að lögreglustöð og eyðilagt vélknúin ökutæki. Kínveijar halda því fram að Tíbet hafi heyrt undir þá síðan á 13. öld. En Tíbetbúar eru margir andvígir yfírráðum Kínverja, einkum fylgis- menn Dalais Lama. Vilja þeir að hann snúi aftur heim úr útlegð á Indlandi, þar sem hann hefur dval- ist síðan uppreisn gegn yfirráðum Kínveija var bæld niður árið 1959. Kínverskir ráðamenn segja að hann megi snúa aftur til Kína, en ekki búa í Tíbet. Haft var eftir vestrænum ferða- mönnum áður en símasamband var rofið að svo margir hefðu tekið þátt í mótmælunum að ógerningur hefði verið að slá tölu á þá. í Lhasa gekk sá orðrómur að nokkrir út- lendingar hefðu verið handteknir en það fékkst ekki staðfest. Á sunnudag kom til mótmæla í Lhasa og greindu kínverskir fy'öl- miðlar ekki frá þeim fyrr en á þriðjudag. Styrjöld við Banda- ríkjamenn vofir yfir — segir forseti íranska þingsins Nicosiu, Dubai, Reuter. ALI Akbar Hashemi Rafsanjani, forseti íranska þingsins, sagði í gær að allt benti til þess að brátt hæfust átök við Bandaríkjamenn á Persaflóa og gaf í skyn að þau myndu standa í nokkur ár. Útvarpið í Teheran kvað Rafsanj- ani hafa sagt á bænafundi í höfuðborg írans að Bandaríkja- menn hefðu skotið fyrsta skotinu. Svíþjóð: Þurfaekki að taka við flóttafólki Stokkhólmi, frá Erik Liden, fréttantara Morffunblaðsins. Utlendingaeftirlitið í Svíþjóð hefur nú fallist á að stjórnir sex bæjar- og sveitarfélaga fái að neita flóttamönnum og innflytj- endum um að setjast að. Útlend- ingaeftirlitið hefur lagt til að þau bæjar- og sveitafélög, sem vilja meina útlendingum að setjast að, taki ekki á móti innflytjendum í þijú ár til þess að losna við þrot- lausar deilur um það hvort bera eigi málið undir almenna at- kvæðagreiðslu. Yfírvöld í Sjöbo á Skáni hafa verið í fararbroddi áðumefndra bæjar- og sveitarfélaga. í sumar og haust hefur verið hart deilt um aukin straum flóttamanna til Svíþjóðar. Mörg bæjar- og og sveit- arfélög hafa ákveðið að taka á móti eins fáum flóttamönnum og mögulegt er. Stjómir sex bæjar- sveitafélaga hafa ákveðið að segja hingað og ekki lengra og bera því við að þær hafí hvorki efni á að taka við flóttafólki, né húsnæði handa því. Þingmenn allra flokka hafa fyllst reiði vegna aðgerða stjórnmála- manna í Sjöbo. Stefna Svía í flótta- mannamálum er orðin rótgróin og er hún því mjög viðkvæmt mál þar í landi. „Ef öryggisráð [Sameinuðu þjóð- anna] ætlar að binda enda á styrj- öldina milli írana og Bandaríkja- manna eftir þrjú til fjögur ár, skulu Bandaríkjamenn ekki halda því fram að þeir séu saklausir af að hafa hafíð hana,“ sagði Rafsanjani. „Líkast til munum við eiga í átökum á nýjum vígstöðvum í suðurhluta landsins [við Persaflóa] í náinni framtíð." Skoraði hann á fleiri að bjóða sig fram til herþjónustu vegna þess að hluti herafla írana ætti að vera í viðbragðsstöðu við Persaflóa. „Við höfum þegar gert ráðstafanir til þess að bregðast við Bandaríkja- mönnum á viðeigandi hátt,“ sagði Rafsanjani. Iranar og írakar héldu áfram að gera árásir á skip á Persaflóa í gær. íraskar orrustuþotur gerðu loftárás á níunda skipið á ellefu dögum. írakar réðust á fimmta skipið á þremur dögum en unnu ekki umtalsvert tjón fremur en í fyrri árásum. íranar gera árásir sínar á litlum hraðbátum og hafa skip, sem orðið hafa fyrir barðinu á þeim, undantekningarlaust getað siglt leiðar sinnar. Tyrkjar greindu frá því að íranar og Irakar hefðu ákveðið að loka sendiráðsskrifstofum sínum í Bagd- að og Teheran. íranar og írakar hafa haft erindreka hvorir í höfuð- borgum annarra frá því að Persa- flóastríðið hófst fyrir sjö árum, en að sögn Rafsanjanis hafa þeir nán- ast verið fangar. Verður skipst á erindrekunum í Tyrklandi. Tyrkir hafa átt vinsamleg samskipti við bæði Irana og Iraka. Japanskir sjómenn munu ekki fá að sigla á Persaflóa þar til öryggi þeirra hefur verið tryggt, að því er japönsk stjómvöld sögðu í gær. Japanska stjómin setti slíkt bann í síðasta mánuði eftir árás á japanskt olíuskip, en því var aflétt fjórum dögum sfðar. Jarðskjálftinn í Los Angeles: Þúsundir manna sváfu úti undir berum himni Los Angeles, Reuter. ÞÚSUNDIR íbúa Los Angeles sváfu í tjöldum i almennings- görðum eða á götum úti í fyrrinótt. Óttuðust þeir að fleiri jarðskjálftar fylgdu í kjöl- far öfluga skjálftans, sem skók borgina á fimmtudagsmorgun. Sex menn biðu bana í skjálftan- um en þrír fengu hjartaáfall er hann reið yfir. Tvöhundruð menn slösuðust, þar af 12 alvar- lega. Tuttugu byggingar eyði- lögðust og þúsundir húsa löskuðust. Talsverður ótti greip um sig meðal borgarbúa en í gær var daglegt líf að færast í fyrra horf. Alls hafa 19 skjálftar fundist í kjölfar aðalskjálftans, sem mæld- ist 6,1 stig á Richter-kvarða og skók borgina í 20 sekúndur. Hjörtur Grétarsson, nemi í Los Angeles, býr á garði í borginni og sagði hann að þar hefðu allir vaknað við það að viðvörunar- flautur í bílum fyrir utan vældu við fyrsta skjálftann. Talsmenn Rauða krossins sögðu í gær að 51 maður hefði fengið hjartaáfall í skjálftanum. Þrír þeirra dóu. Auk þess beið 23 ára stúlka bana er steinveggur hrundi á hana, maður kafnaði í jarðgöngum er þau hrundu yfir hann og maður frá Guatemala beið bana er hann stökk út um glugga á þriðju hæð í húsi af hræðslu. Vísindamenn við Jarðvísinda- stofnun Bandaríkjanna útilokuðu ekki frekari skjálfta á næstunni. Þeir sögðu að líkur á „þeim stóra" hefðu ekki minnkað við skjálftann í fyrradag. Aftur á móti er búist við að jarðskjálfti á borð við skjálftann á fimmtudag ríði yfír á næstu fímm dögum. Stór- skjálfta, um 8 stig, hefur verið spáð í Kalifomíu fyrir næstu ára- mót. Að sögn Hjartar Grétarssonar verður vart við um §óra jarð- skjálftakippi í borginni á mánuði. Sagði hann að fyrir skjálftann í fyrradag hefði aftur á móti allt verið með kyrmm kjörum í ellefu mánuði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.