Morgunblaðið - 03.10.1987, Page 1
64 SÍÐUR OG LESBÓK
223. tbl. 75. árg.____________________________________LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987____________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsilis
Til óeirða kom i Lhasa, höfuðborg Tíbets, i gær og létu sex menn lífið, að sögn kínversku fréttastofunn-
ar NCNA. Tíbeskir búddamunkar mótmæltu yfirráðum Kínverja yfir Tíbet í Lhasa á sunnudag og var
myndin tekin þá.
Blóðugar óeirðir
blossa upp í Tíbet
Höfuðborg landsins sambandslaus við umheiminn
London, Reuter.
KÍNVERSKA fréttastofan NCNA greindi frá því í gær að sex menn
hefðu látið lífið og nitján lögregluþjónar meiðst í óeirðum í Lhasa,
höfuðborg Tíbets. Sagði fréttastofan að átökin á fimmtudag væru
liður í tilraun fylgismanna Dalai Lama, trúarleiðtoga tibeskra búdda-
munka, til að „kljúfa föðurlandið".
„Mótmælendumir tóku skotvopn
af lögregluþjónum og skutu á allt
sem fyrir varð. Óeirðarseggimir og
aðrir viðstaddir dreifðust ekki fyrr
en rökkva tók,“ sagði fréttastofan.
Tekið var fram að lögregla hefði
ekki notað skotvopn.
Fyrr í gær var greint frá því að
Sovétríkin;
Ida Nudel
fær brott-
fararleyfi
Moskvu, Reuter.
SOVÉSKI andófsmaðurinn
Ida Nudel hefur fengið leyfi
til að flytjast til ísraels, að
því er náinn vinur hennar,
Iulia Ratner, sagði í gær.
Nudel býr nú i íbúð Ratner i
Moskvu.
Ratner hvaðst ekki vita hven-
ær Nudel, sem hefur reynt að
fá leyfi yfirvalda til að flytjast
úr landi frá árinu 1971, fengi
að fara..Nudel var send í útlegð
til Síbiríu 1978. Hún fékk leyfi
til að snúa aftur til Moskvu
1982, en var meinað að setjast
þar að. Hefur hún síðan búið í
Sovétlýðveldinu Moldavíu.
Nudel hefur barist fyrir mál-
stað gyðinga, sem vilja flytja frá
Sovétríkjunum, og hafa emb-
ættismenn vestrænna ríkja oft
og tíðum talað máli hennar.
lokað hefði verið fyrir síma- og fjar-
skiptasamband við Lhasa vegna
mótmælanna og bárust óstaðfestar
fregnir um að fjöldi manna hefði
slasast og verið handtekinn eftir
átök aðskilnaðarsinna og lögreglu.
í frétt málgagns kínverska
kommúnistaflokksins, Dagblaðs al-
þýðunnar, í morgun sagði, að
atburðirnir í Tíbet væm „alvarlegs
eðlis“ og væri við „Dalai-klíkuna“
að sakast. Sagði að tilgangur óeirð-
anna væri að grafa undan þeirri
einingu, sem ríkti í Kína, og styðja
„glæpastarfsemi fylgismanna Dalai
Lama á erlendri grundu og kljúfa
föðurlandið". í blaðinu sagði að
Tíbet væri óijúfanlegur hluti af
Kína og undanfarin ár hefðu lífskjör
íbúa þar batnað talsvert.
Kínverska fréttastofan sagði að
flokkur nokkurra aðskilnaðarsinna
hefði kynnt undir óeirðunum. Mót-
mælin bar upp á þjóðhátíðardegi
Kínverja og var sagt að hátíðahöld
hefðu farið friðsamlega fram þar
til nokkrir tugir manna gengu niður
eina aðalgötu Lhasa og hrópuðu:
„Veitið Tíbet sjálfstæði!" Sagði að
mótmælendumir hefðu grýtt al-
menning og lögregluþjóna, sem
reyndu að hefta för þeirra. Þeir
hefðu lagt eld að lögreglustöð og
eyðilagt vélknúin ökutæki.
Kínveijar halda því fram að Tíbet
hafi heyrt undir þá síðan á 13. öld.
En Tíbetbúar eru margir andvígir
yfírráðum Kínverja, einkum fylgis-
menn Dalais Lama. Vilja þeir að
hann snúi aftur heim úr útlegð á
Indlandi, þar sem hann hefur dval-
ist síðan uppreisn gegn yfirráðum
Kínveija var bæld niður árið 1959.
Kínverskir ráðamenn segja að hann
megi snúa aftur til Kína, en ekki
búa í Tíbet.
Haft var eftir vestrænum ferða-
mönnum áður en símasamband var
rofið að svo margir hefðu tekið
þátt í mótmælunum að ógerningur
hefði verið að slá tölu á þá. í Lhasa
gekk sá orðrómur að nokkrir út-
lendingar hefðu verið handteknir
en það fékkst ekki staðfest.
Á sunnudag kom til mótmæla í
Lhasa og greindu kínverskir fy'öl-
miðlar ekki frá þeim fyrr en á
þriðjudag.
Styrjöld við Banda-
ríkjamenn vofir yfir
— segir forseti íranska þingsins
Nicosiu, Dubai, Reuter.
ALI Akbar Hashemi Rafsanjani, forseti íranska þingsins, sagði í gær
að allt benti til þess að brátt hæfust átök við Bandaríkjamenn á
Persaflóa og gaf í skyn að þau myndu standa í nokkur ár.
Útvarpið í Teheran kvað Rafsanj-
ani hafa sagt á bænafundi í
höfuðborg írans að Bandaríkja-
menn hefðu skotið fyrsta skotinu.
Svíþjóð:
Þurfaekki
að taka við
flóttafólki
Stokkhólmi, frá Erik Liden, fréttantara
Morffunblaðsins.
Utlendingaeftirlitið í Svíþjóð
hefur nú fallist á að stjórnir sex
bæjar- og sveitarfélaga fái að
neita flóttamönnum og innflytj-
endum um að setjast að. Útlend-
ingaeftirlitið hefur lagt til að þau
bæjar- og sveitafélög, sem vilja
meina útlendingum að setjast að,
taki ekki á móti innflytjendum í
þijú ár til þess að losna við þrot-
lausar deilur um það hvort bera
eigi málið undir almenna at-
kvæðagreiðslu.
Yfírvöld í Sjöbo á Skáni hafa
verið í fararbroddi áðumefndra
bæjar- og sveitarfélaga. í sumar
og haust hefur verið hart deilt um
aukin straum flóttamanna til
Svíþjóðar. Mörg bæjar- og og sveit-
arfélög hafa ákveðið að taka á
móti eins fáum flóttamönnum og
mögulegt er. Stjómir sex bæjar-
sveitafélaga hafa ákveðið að segja
hingað og ekki lengra og bera því
við að þær hafí hvorki efni á að
taka við flóttafólki, né húsnæði
handa því.
Þingmenn allra flokka hafa fyllst
reiði vegna aðgerða stjórnmála-
manna í Sjöbo. Stefna Svía í flótta-
mannamálum er orðin rótgróin og
er hún því mjög viðkvæmt mál þar
í landi.
„Ef öryggisráð [Sameinuðu þjóð-
anna] ætlar að binda enda á styrj-
öldina milli írana og Bandaríkja-
manna eftir þrjú til fjögur ár, skulu
Bandaríkjamenn ekki halda því
fram að þeir séu saklausir af að
hafa hafíð hana,“ sagði Rafsanjani.
„Líkast til munum við eiga í átökum
á nýjum vígstöðvum í suðurhluta
landsins [við Persaflóa] í náinni
framtíð." Skoraði hann á fleiri að
bjóða sig fram til herþjónustu vegna
þess að hluti herafla írana ætti að
vera í viðbragðsstöðu við Persaflóa.
„Við höfum þegar gert ráðstafanir
til þess að bregðast við Bandaríkja-
mönnum á viðeigandi hátt,“ sagði
Rafsanjani.
Iranar og írakar héldu áfram að
gera árásir á skip á Persaflóa í
gær. íraskar orrustuþotur gerðu
loftárás á níunda skipið á ellefu
dögum. írakar réðust á fimmta
skipið á þremur dögum en unnu
ekki umtalsvert tjón fremur en í
fyrri árásum. íranar gera árásir
sínar á litlum hraðbátum og hafa
skip, sem orðið hafa fyrir barðinu
á þeim, undantekningarlaust getað
siglt leiðar sinnar.
Tyrkjar greindu frá því að íranar
og Irakar hefðu ákveðið að loka
sendiráðsskrifstofum sínum í Bagd-
að og Teheran. íranar og írakar
hafa haft erindreka hvorir í höfuð-
borgum annarra frá því að Persa-
flóastríðið hófst fyrir sjö árum, en
að sögn Rafsanjanis hafa þeir nán-
ast verið fangar. Verður skipst á
erindrekunum í Tyrklandi. Tyrkir
hafa átt vinsamleg samskipti við
bæði Irana og Iraka.
Japanskir sjómenn munu ekki fá
að sigla á Persaflóa þar til öryggi
þeirra hefur verið tryggt, að því er
japönsk stjómvöld sögðu í gær.
Japanska stjómin setti slíkt bann í
síðasta mánuði eftir árás á japanskt
olíuskip, en því var aflétt fjórum
dögum sfðar.
Jarðskjálftinn í Los Angeles:
Þúsundir manna sváfu
úti undir berum himni
Los Angeles, Reuter.
ÞÚSUNDIR íbúa Los Angeles
sváfu í tjöldum i almennings-
görðum eða á götum úti í
fyrrinótt. Óttuðust þeir að
fleiri jarðskjálftar fylgdu í kjöl-
far öfluga skjálftans, sem skók
borgina á fimmtudagsmorgun.
Sex menn biðu bana í skjálftan-
um en þrír fengu hjartaáfall
er hann reið yfir. Tvöhundruð
menn slösuðust, þar af 12 alvar-
lega. Tuttugu byggingar eyði-
lögðust og þúsundir húsa
löskuðust.
Talsverður ótti greip um sig
meðal borgarbúa en í gær var
daglegt líf að færast í fyrra horf.
Alls hafa 19 skjálftar fundist í
kjölfar aðalskjálftans, sem mæld-
ist 6,1 stig á Richter-kvarða og
skók borgina í 20 sekúndur.
Hjörtur Grétarsson, nemi í Los
Angeles, býr á garði í borginni
og sagði hann að þar hefðu allir
vaknað við það að viðvörunar-
flautur í bílum fyrir utan vældu
við fyrsta skjálftann.
Talsmenn Rauða krossins
sögðu í gær að 51 maður hefði
fengið hjartaáfall í skjálftanum.
Þrír þeirra dóu. Auk þess beið 23
ára stúlka bana er steinveggur
hrundi á hana, maður kafnaði í
jarðgöngum er þau hrundu yfir
hann og maður frá Guatemala
beið bana er hann stökk út um
glugga á þriðju hæð í húsi af
hræðslu.
Vísindamenn við Jarðvísinda-
stofnun Bandaríkjanna útilokuðu
ekki frekari skjálfta á næstunni.
Þeir sögðu að líkur á „þeim stóra"
hefðu ekki minnkað við skjálftann
í fyrradag. Aftur á móti er búist
við að jarðskjálfti á borð við
skjálftann á fimmtudag ríði yfír
á næstu fímm dögum. Stór-
skjálfta, um 8 stig, hefur verið
spáð í Kalifomíu fyrir næstu ára-
mót.
Að sögn Hjartar Grétarssonar
verður vart við um §óra jarð-
skjálftakippi í borginni á mánuði.
Sagði hann að fyrir skjálftann í
fyrradag hefði aftur á móti allt
verið með kyrmm kjörum í ellefu
mánuði.