Morgunblaðið - 03.10.1987, Page 30

Morgunblaðið - 03.10.1987, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987 Filippseyjar; Honasan segist vera aðundirbúa valdarán Manila, Reuter. CORAZON Aquino hafði í hótun- um við óvini sína í gær. Þar sagðist hún hafa brotið á bak aftur uppreisnartilraunir hægri- manna og myndi á sama hátt kæfa uppreisnartilraunir komm- únista. í sjónvarpsávarpi sagðist Aquino myndi gera allt til að halda friði í landinu en ef með þyrfti myndi hún grípa til vopna gegn andstæðingum sínum. Hún sagði í sjónvarpsþætt- inum að með stuðningi tryggra hersveita hefði sér tekist að btjóta á bak aftur valdaránstilraunir hægri manna. „Og ég hef trú á að við munum fá að sjá endalok komm- únistauppreisna í landinu innan tíðar,“ sagði hún. Vamarmálaráð- herra landsins tók í sama streng og sagðist vona að fólk kynni að meta hernaðaraðgerðir stjómarinn- ar sem miðuðu að því að gera skæruliða kommúnista „óvirka". Eftir þessar yfirlýsingar Aquinos hafa kviksögur um nýjar valdaráns- tilraunir komist á kreik. Gregorio „Gringo“ Honasan, sem leiddi síðustu valdaránstilraun sem gerð var á Filippseyjum, lét hafa eftir sér í dagblaðinu Tempo að hann væri að undirbúa nýja uppreisn. „Við ákváðum að gefa okkur einn og hálfan mánuð til undirbúnings eftir fmmhlaupið í ágúst,“ sagði Honasan. Mjög var dregið úr viðbúnaði hersins í höfuðborginni Manila eftir að slaknaði á spennunni á fimmtu- dag í kjölfar þess að handeknir vom hermenn sem taldir vom vera að undirbúa byltingu. Vegatálmanir em enn við forsetahöllina. RÆÐA GORB ACHEVS í MURMANSK Reykjavíkurfundurinn var vendipunktur í heimssögunni Sovétríkin bjóðast til þess að ábyrgjast kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum í RÆÐU þeirri er Mikhail Gorbac- hev, Sovétleiðtogi hélt í Mur- mansk í fyrradag, óskaði hann m.a. eftir öryggisráðstefnu ríkja á Norðurhöfum. Gorbachev sagð- ist vonast til þess að dregið yrði úr vígbúnaði á norðurslóðum: „Megi norðurhjari reikistjörnunn- ar verða að friðarsvæði. Megi Norðurpóllinn verða friðarpóll." Til þess að svo mætti verða taldi Gorbachev nauðsynlegt að lýst yrði yfir kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum, sem Sov- étríkin gætu tekið ábyrgð á. Fyrir sitt leyti sagði Gorbachev að Sov- étríkin fögnuðu tillögu Mauno Koivisto, Finnlandsforseta, um minnkandi hernaðarumsvif á Norðurhöfum, og sagði vel til greinar koma að Sovétríkin minnkuðu umsvif sín á Eystra- salti, Norðursjó, Grænlandshafi og Kólaskaga enn meira en þau hefðu gert nú þegar. Gorbachev ítrekaði að nú blésu ferskari og hlýrri vindar í alþjóða- samskiptum en oftast áður og vísaði til samkomulags ríkjanna í Wash- ington um samningsgerð um upprætingu meðal- og skamm- drægra flauga. Hann sagði þó að leiðin til þessa samkomulags hefð erlendum herstöðvum og kjarnorku- vopnum á friðartímum, en gat ekki íslands í þessu samhengi. Gorbachev vék að vígbúnaði á Norður-Atlantshafi og sagði það krökkt af alls kyns vígbúnaði. í því skyni að draga úr honum stakk framkvæmdastjórinn upp á því að haldin yrði ráðstefna þar sem þau ríki, sem yfir svæðinu ríkja, réðu ráðum sínum. verið vandrötuð. „Reykjavíkurfund- urinn var tímamótaatburður í þessu viðfangi,“ sagði Gorbachev og gekk lengra: „Reykjavík varð í raun vendi- punktur í heimssögunni, [fundurinn] sýndi fram á að hægt er að bæta ástandið í heiminum.“ Reykjavík tákn vonarinnar Gorbachev var tíðrætt um mikil- vægi Norðurlanda og hveiju hlut- verki þau hefðu gegnt í friðarsókn heimsins. Benti hann á að Helsinki- ráðstefnan var haldin þar og ekki annars staðar. Næsta stóra skrefið sagði Gorbachev að tekið hefði verið á Ráðstefnu um öryggi og samvinnu I Evrópu, í Stokkhólmi. „Reykjavík varð tákn vonarinnar um að kjarn- orkuvopn væru ekki eilíf og að mannkynið væri ekki skyldugt að lifa með þetta Damóklesarsverð yfir höfði sér.“ Þá lýsti Gorbachev yfir velþóknun Sovéríkjanna á því að Atlantshafsbandalagsríkin Danmörk og Noregur skyldu bæði hafa hafnað því að koma fyrir á landsvæði sínu Reuter Gorbachev kannar hér heiðursvörð Rauða flotans í Murmansk, en þar er stærsta flotastöð Sovétríkjanna. Landsfundur breska Verkamannaflokksins: Eimmgis minmháttar frá- vik frá gömlu stefnuimi London, Reuter. Reuter „Gringo44 Honasan segir valda- rán á næsta leiti. SELTJNES Nesvegur 40-82 o.fl Selbrauto.fi. Kópavogur Bræðratunga AUSTURBÆR Ingólfsstræti Grettisgata 2-36 BRESKI Verkamannaflokkur- inn kom saman í vikunni til að bylta stefnumiðum sínum sem VESTURBÆR Tjarnargata 3-40 Tjarnargata 39- Aragata Einarsneso.fi. Ægisíða 44-78 ÚTHVERFI Básendi Ártúnshöfði - iðnaðarhverfi Birkihlíð Efstasund 60-98 ekki virðast höfða til kjósenda. En niðurstaðan virðist einungis vera andlitslyfting sem ekki er líkleg til að gera flokkinn meira aðlaðandi en harðlínustefnu Margaret Thatcher, að því er segir í fréttaskýringu Reuter- fréttastofunnar eftir Deborah Telford. Landsfundurinn hófst á mánu- dag og var það fyrsta ráðstefna flokksins eftir kosningaósigurinn í júní á þessu ári. Fundarmenn virt- ust staðráðnir í að láta ekki forsætisráðherrann komast upp með að vinna fjórðu kosningamar í röð, árið 1992. í gær þegar fundinum lauk höfðu átök milli hægri og vinstri vængja flokksins um það hvort hverfa ætti frá lykilatriðum í stefnu flokksins í vamar- og efnahagsmálum gert vonir leiðtogans Neils Kinnock um einingu vinstri manna að engu. Stjómmálaskýrendur segja að Kinnock hafi látið vera að taka á raunverulegum vanda flokksins af ótta við að átök innan flokksins styrktu enn frekar þá ímynd sem hann hefur meðal almennings sem klofínn flokkur sem stjómað sé af öfgamönnum til vinstri og verka- lýðsfélögum. Andstaða flokksins við kjam- orkuvopn til vamar landinu er talin hafa átt stærstan þátt í kosninga- osigri bæði árið 1983 og 1987. Skoðanakannanir hafa sýnt að um það bil 65% kjósenda telja einhliða kjarnorkuafvopnun hættulegar Bretum. í upphafi fundar virtist Kinnock undirbúa að horfið yrði frá þessari stefnu en óljóst var hvað taka átti upp í staðinn. Ken Livingstone, þingmaður úr vinstra armi flokksins, reis þá úr sæti og spáði því að nokkurs konar borgarastríð skylli á innan flokks- ins ef stefnunni í vamarmálum yrði breytt. Kinnock brást að minnsta kosti í fyrstu þannig við að hann sagði að flokkurinn yrði áfram á móti kjamorkuvömum. Síðar ögraði hann gagnrýnend- um af vinstri vængnum með því að gefa í skyn að nota mætti Trid- ent-flaugamar sem skiptimynt í marghliða viðræðum við Sovét- menn. Stuðningsmenn Kinnocks veitt- ust að Livingstone og kölluðu hann tækifærissinnaðan og óþroskaðan stjómmálamann. Engum duldist þó að Livingstone á eftir að verða Kinnock Þrándur í götu. Hann er talsmaður hrein- ræktaðs sósíalisma og hlustar ekki á neitt „miðjumoð". Dagblaðið Guardian lýsti vöflunum á Kinnock þannig: „Það er sorglegt að horfa upp á hvemig herra Kinnock flýr aftur í holu sína eins og skelfdur héri um leið og Livingstone brýnir raust sína.“ Blaðið dró í leiðara í gær í efa að flokknum hefði tekist á fundinum að laða til sín fleiri kjósendur úr miðju pólitíska litrófs- ins þótt tillaga um einhliða af- vopnun hafi verið kolfelld á fundinum. í kosningunum í júní höfnuðu kjósendur efnahagsstefnu flokks- ins sem þeir telja að feli í sér aukna skattheimtu vegna meiri ríkisút- gjalda. Þess í stað völdu þeir lága skatta, meiri hlutdeild almennings í atvinnulífínu og nýja kosti í hús- næðis-, heilbrigðis- og menntamál- um. Bryan Gould, þingmaður Verka- mannaflokksins og stuðningsmað- ur Kinnock reyndi að sannfæra fundargesti um að koma til móts við þann þriðjung kjósenda sem hlut á í fyrirtækjum. En hann tal- aði fyrir daufum eyrum og fáir virtust samþykkja að sú stefna að breyta ríkisfyrirtækjum í almenn- ingshlutafélög samrýmdist hugsjón sósíalismans. Þó samþykktu full- trúar á þinginu að hvetja til þess að verkafólk eignaðist hluti í fyrir- tækjum sem það starfar hjá. Dagblaðið Independent gekk svo langt að segja að eftir landsfundinn væri ljóst að þeir sem létu sig efna- hagsmál einhveiju skipta gætu áfram gengið út frá því að Verka- mannaflokkurinn héldi sig frá kapítalisma og að vamarmálasér- fræðingar myndu nú sem fyrr saka flokkinn um ábyrgðarleysi í vamar- málum. Blaóburóarfólk óskast! 35408 83033

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.