Morgunblaðið - 03.10.1987, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 03.10.1987, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987 41 Minning: Gyða Guðmundsdóttir, Síðumúlaveggjum Fædd 20. febrúar 1928 Dáin 18. september 1987 Laugardaginn 26. september sl. var kvödd frá Síðumúlakirkju í Hvítársíðu frú Gyða Guðmunds- dóttir húsfreyja á Síðumúlaveggjum í sömu sveit. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Gyða var fædd í Reykjavík hinn 20. febrú- ar 1928, ein af 6 börnum þeirra hjóna Agnesar Erlendsdóttur og Guðmundar Axels Jónssonar, sem bæði voru ættuð úr Reykjavík. Uppvaxtarár sín dvaldi Gyða að mestu í Reykjavík en var þó á sumr- um í sveit, eins og þá var algengt, dvaldi hún þá m.a. á Síðumúla- veggjum. Gyða lauk skólagöngu sinni með því að setjast í Iðnskól- ann í Reykjavík og ljúka þaðan námi í hárgreiðslu. En sveitin heill- aði ungu stúlkuna, og árið 1950 gekk hún að eiga eftirlifandi eigin- mann sinn, Guðmund Þorgrímsson, og tóku þau þá við búi á Síðumúla- veggjum af foreldrum Guðmundar, þeim Guðrúnu Guðmundsdóttur og Þorgrími Einarssyni. Guðrún lést árið 1964 en Þorgrímur hefur átt heimili á Síðumúlaveggjum og unn- ið þar að búi sonar síns. v A Síðumúlaveggjum er nú hið reisulegasta býli og auðséð að þar hefur samheldni setið í fyrirrúmi hvað varðar umgengni a!la jafnt utan dyra sem innan. Gyða og Guðmundur eignuðust 6 böm saman en áður hafði Gyða eignast eina dóttur, Ernu Einars- dóttur Júlíussonar frá Akranesi. Ema býr á Sveinsstöðum í Dala- sýslu. Nöfn barna Gyðu og Guðmundar fara hér á eftir í aldurs- röð. Finnur, Guðrún, Kristín og Guðjón, sem öll búa á Akranesi, Þóra, býr á Selfossi, Agnes, býr á Síðumúlaveggjum, og Helga, sem enn er í föðurhúsum. Allt er þetta hið mesta myndar- og dugnaðarfólk. Barnabörnin eru nú orðin 12 að tölu. Það er erfitt að koma tilfinn- ing^urn sínum og hugsunum á blað þegar minningarnar um ástkæra tengdamóður líða um hugann. Gyða var hreinskiptin kona og sagði meiningu sína á hlutunum umbúða- laust. Hún var sannur talsmaður landbúnaðarins en var ekki alltaf sammála stefnu ráðamanna í þeim efnum. Við ræddum oft þessi mál, og þá sérstaklega nú hin seinni árin eftir að við hjónin fórum að starfa við landbúnað. Gyða vr harð- dugleg kona og þekkti nánast engin takmörk sér til handa í þeim efnum. Gyða veiktist nokkuð snögglega nú í byijun sumars og kom þá í ljós að um illkynja sjúkdóm var að ræða og að ekkert yrði við hann ráðið. Er ég heimsótti Gyðu í síðasta sinn á sjúkrahúsið á Akranesi var mjög af henni dregið og tjáði hún mér Minning: Helga Sigríður Sigurðardóttir Fædd 3. júlí 1909 Dáin 26. september 1987 Helga Sigríður Sigurðardóttir var fædd 3. júlí 1909, hún var gift Svavari Ellertssyni. Eg ætla ekki að rifja upp æviferil hennar, þó vissulega væri það viðeigandi, því til þess eru mér aðrir færari. Mig langar aðeins að minnst Siggu „ömmu“ með örfáum orðum. Ég kynntist Siggu fýrir um það bil tólf árum er ég byijaði að slá mér upp með bamabami hennar og Svavars, Svavari Ellertssyni. Öll þessi ár bjuggu þau hjónin á sama stað, Aðalgötu 13, Sauðárkróki. Þar sem ég var búsett í Hafnar- fírði leið þó nokkur tími frá því að ég mægðist fjölskyldunni og þar til ég hitti „ömmu og afa á Krók“ í fyrsta skipti. Þegar að því kom var eins og við hefðum þekkst alla ævi, svo ástúðlega var tekið á móti mér. Alltaf er við fjölskyldan fómm norður til ömmu og afa á Krók, sem var því miður alltof sjaldan, var ávallt tekið á móti okkur eins og höfðingjum. Það brást ekki, maður var varla kominn inn úr dyronum þegar búið var að bera fýrir okkur hinar ýmsu kræsingar. En þrátt fyrir að gott hafi verið að fá að borða, er það ekki það sem ég mun helst minnast er ég hugsa um Siggu: heldur hitt hve mikil mann- eskja hún var. Þó svo heilsan væri ekki alltaf upp á það besta var Sigga alltaf létt og kát. Hlýja og ástúð var henni svo sjálfsögð og gaf hún óspart af henni, um leið og hún höfðaði til þess besta í okk- ur með viðmóti sínu. Mér er það mikils virði að hafa fengið að kynn- ast Siggu. Við fjölskyldan sáum ömmu á Krók núna síðast í júlí er við komum við á Aðalgötunni á leið okkar hringinn í kringum landið. Garður- inn var í fullum skrúða og það var yndislegt að skoða og sjá hve mikla rækt afi og amma lögðu í garðinn Sýnir í Listakrubbu Bókasafns Kópavogs GUNNAR Ásgeir Hjaltason sýnir í Listakrubbu Bókasafns Kópa- vogs. Öll verkin á sýningunni eru til sölu. Gunnar Ásgeir er fæddur á Ytri- Bakka við Eyja- fjörð 1920. Hann Rjaltason. nam teikningu, módelteikningu og olíumálun hjá Bimi Bjömssyni og Marteini Guðmundssyni og sótti ýmis námskeið í Handíðaskólanum, m.a. tréristu hjá Hans Alexander Miiller. Gullsmíði nam hann hjá Guðmundi Guðnasyni og Leifi Kal- WiWlllirHTBlli ■WÉTTTil ÍT r ta 4 ilt e dal 1943-47. Gunnar sýndi fyrst í Hafnarfirði 1964, einnig hefur hann sýnt í Norræna húsinu, Bogasal, á Akur- eyri, í Vestmannaeyjum, í Kópa- vogi, á Mokkakaffi, í Eden í Hveragerði, Borgamesi, Hvamms- tanga og víðar. Hann hefur einnig tekið þátt í samsýningum, m.a. hafnfirskra málara í Uppsölum í Svíþjóð og á íslandssýningu í Vínar- borg í Austurríki. Þá hefur Gunnar myndskreytt bækur og tímarit. Sýningin í Bókasafni Kópavogs er opin mánudaga til föstudaga kl. 09.00-21.00 og laugardaga kl. 11. 00-14.00. Sýningin stendur til 30. október. IIMttllMMI IIIMJMIIIIIMMI þá að hún væri nú farin að þrá hvíldina, enda væri hún sátt við sitt hlutskipti í lífinu bæði gagnvart Guði og mönnum. Gyða lést í sjúkrahúsinu á Akra- nesi 18. september síðastliðinn. Ég vil leyfa mér fyrir hönd aðstand- enda að þakka læknum og hjúkr- unarfólki á Akranesi fyrir góða umönnun henni til handa síðustu vikurnar. Gyðu Guðmundsdóttur mun ég ætíð minnast með virðingu og þökk fyrir þau ár sem hún gaf mér og mínum af lífi sínu. Hér skilja leiðir í bili. Samúð mína votta ég eigin- manni, öldroðum tengdaföður, börnum, barnabömum og öðrom vandamönnum og vinum hinnar látnu. Blessuð sé minning Gyðu Guð- mundsdóttur. Guðbjartur A. Björgvinsson sinn. Og ég hugsaði að þessi garður væri dæmigerður fyrir þau, því rétt eins og þau hafa nostrað og hlúð að plöntunum sínum, hafa þau alla tíð hlúð að bömum, bama- og bamabamabömum sínum. Um leið og ég vil þakka fyrir þann tíma er ég fékk að þekkja þessa góðu konu, færi ég elsku Svavari afa, bömum, bama- og bamabamabömum, öðrom ættingj- um og vinum, mínar innilegustu samúðarkveðjur. Gunnur Baldursdóttir Vetrarstarf að hefj- ast í Bústaðakirkju MEÐ október hefst vetrarstarfið í Bústaðakirkju. Barnasamkom- urnar eru klukkan ellefu eins og í fyrra og eru þær í jgóðri umsjón kennaranna Elínar Onnu Antons- dóttur og Guðrúnar Ebbu Ólafs- dóttur. Einnig koma gestir í heimsókn og mikið verður sungið undir sljórn organistans, Jónasar Þóris. Gott er, ef börnin geta komið strax í fyrstu stundina sína til þess að fá þau gögn sem notið verða í vetur. Sjálf flytja börnin líka þætti og undirbúa, auk þess sem helgihaldið er að hluta til í þeirra höndum. Guðsþjónustumar verða því klukkan tvö síðdegis. Sú fyrsta nú á sunnudaginn. Sóknarnefndin hef- ur ákveðið að auka við vægi sunnudagsins með því að bjóða upp á kaffi og kleinur eða eitthvað þess háttar eftir messur öðro hveiju, og verður svo á sunnudaginn kemur. En þá mun kvenfélagið einnig bjóða kökur og muni til sölu á haustbasar sínum, svo að það ætti að vera þægilegt að ganga í safnaðarsalina og njóta veitinga og skoða og kaupa góðar vöror eftir messuna næst komandi sunnudag. Einnig verður tónlist flutt á þessum samvero- stundum, en aðalatriðið er að auka á samheldni með góðum félagsskap og þægilegu rabbi. Æskulýðsfélagið starfar nú í tveimur deildum eins og var hér fyrr á árom. Yngri deild hefur fundi hvert þriðjudagskvöld, en eldri deild annan hvem miðvikudag. Það er unga fólkið sjálft, sem vaxið hefur upp í þessu starfi, sem ábyrgðin hvílir að mestu á, og er áhugi þess og fúsleiki til mikillar fyrirmyndar. Á hveiju miðvikudagseftirmið- degi kemur gamla fólkið saman upp úr hádeginu og á góðar stundir við föndur, lestur eða spil fram undir klukkan fimm. Einnig ero erindi flutt og fróðleik miðlað, auk þess sem ævinlega er helgistund og mik- ið um söng. Þá kemur einnig leikfimikennari í heimsókn og hjálp- ar fólki að liðka limi og liðamót^ Allt er unnið í sjálfboðaliðsvinnu og væri þar mikil upphæð, ef reikn- að væri, sem konumar úr kvenfé- laginu í sókninni hafa lagt fram á þessum árom öllum. Þá er einnig fótsnyrting á fimmtudagsmorgnum og hárgreiðsla á föstudögum fyrir eldri sóknarbörn. Kirkjukórinn er að hefja vetrar- starfíð með reglubundnum æfing- um og gæti þegið fleiri raddir, en nánari upplýsingar gefur organist- inn og söngstjórinn Jónas Þórir eftir messuna á sunnudaginn eða endra- nær. Er þegar farið að undirbúa veglegan tónlistarflutning á að- ventu og við sérstök tilefni. Kvenfélagið starfar sem áður ogu hefur kynnt dagskrá vetrarins með bréfum til allra félagskvenna. Fundir ero annan mánudag hvers mánaðar, og þá hefur bræðrafélag- ið einnig sína fundi og fær kost hjá kvenfélaginu til að neyta eftir fundi. Finnst bræðrom það góður hlutur, enda þótt fjöldi þeirra sé frekar bágborinn í samanburði við þann fjölda, sem venjulegast sækir fundi kvenfélagsins. En nýir félagar eru boðnir velkomnir opnum örmum í báðum félögum, eins og í allt starf á vegum safnaðarins. Ólafur Skúlason Birkifræjum safn- að á sunnudaginn EINS og kunnugt er hefur upp- græðsla örfoka lands hingað til mest byggst á sáningu grasfræs, sem aðallega hefur verið af er- lendum uppruna. Mikill áhugi er á að reyna að græða upp land með íslenskum tegundum en slíkt hefur ekki verið hægt hingað til nema í litlum mæli, þar sem fræ af þeim tegundum sem henta hefur ekki verið til. í ár er óvenjugott fræár hjá íslenska birkinu. Landgræðslan, Skógrækt ríkisins og Rannsókna- stofnun landbúnaðarins hafa í sameiningu ákveðið að gangast fyr- ir söfnun á birkifræi nú í haust og gera síðan tilraunir með að sá þessu fræi á lítt gróið land til uppgræðslu. Hið íslenska náttúrofræðifélag gengst fyrir fræsöfnunarferð sunnudaginn 4. október. Farið verð- ur á Þingvöll til að safna fræinu, og í Haukadal ef veður verður gott. Þetta er upplögð fjölskylduferð. Lagt verður af stað frá Umferðar- miðstöðinni kl. 10 árdegis og reiknað með að koma í bæinn fyrir kl. 18. Munið að taka fotur með til að tína í og svo nesti. Með í ferð- inni verða Andrés Amalds, beitar- þolsfræðingur Landgræðslu ríkisins, og Jón Gunnar Ottósson, líffræðingur hjá Skógrækt ríkisins. (Fréttatilkynning) Husqvarna VIÐ FRUMSÝNUM í KRINGLUNNI VÖRUMARKAÐURINN HF. hefur hafið sölu á HUSQVARNA saumavélum. í tilefni af því bjóðum við 10% staðgreiðsluafslátt í dag „frumsýningardaginn“. Erla Ásgeirsdóttir mun bjóða upp á sýni- kennslu á Classica 100 og Optima 190 í VÖRUMARKAÐNUM í dag kl. 10-16. Komið - sjáið - sannfærist. Kaupið HUSQVARNA saumavélina í VÖRU- MARKAÐNUM, Kringlunni, í dag á sérstöku tilboðsverði. 3 Yörumarkaðurinn htJ Mlr Kringlunni, sími 685440. c^SS,CAl00verð kr. 17.500 stqr —PTIMA190 yerð kr.2S.0QQ stgr." Qk Gunnar Ásgeirsson hf. Suöurlandsbraut 16 '23*91-691600 ■ ... ■— ■ ....... i ttMikmwai isa ■ tsm * ■*•■•■■ sa«a m mwmm mmmmmmmmmmu MTHMMaglBIM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.